Morgunblaðið - 01.05.1993, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
'sgsr ia(/.' r :r:TZTAí‘mA‘)íVAA giha:ig'/myOTrotvr
Hjónaminning
Gréta RósnýJóns-
dóttir og Ingólfur
Kristinsson
Gréta Rósný
Fædd 3. október 1910
Dáin 25. apríl 1982
Ingólfur
Fæddur 10. október 1910
Dáinn 26. febrúar 1993
Það var alltaf svo gaman þegar
mamma og pabbi ákváðu að fara
til Akureyrar í okkar árlegu heim-
sókn til afa og ömmu. Mikrl var
tilhlökkunin að hitta þau þegar við
keyrðum upp Helgamagrastrætið
með öllum stóru tijánum. Akureyri
var eins og útlönd í huga okkar
systkina, svo fallegur fannst okkur
bærinn. Alltaf tóku afi og amma
á móti okkur opnum örmum þegar
við komum. Þessar minningar eru
efst í huga okkar er við hugsum
til baka og mikill er söknuður okk-
ar nú, en minningarnar eigum við
alltaf.
Afi fæddist á Akureyri, sonur
Guðlaugar Stefaníu Benjamíns-
dóttur og Kristins Jósefssonar. Var
hann yngstur fjögurra bama þeirra
hjóna. Afi missti föður sinn ungur
að árum og varð því tengdari móð-
ur sinni og var mjög kært á milli
þeirra. Átján ára átti afi að fara
í nám hjá móðurbróður sínum,
Magnúsi Benjamínssyni úrsmið, er
bjó í Reykjavík, en úr því varð
ekki þar sem afi veiktist og var
lengi að ná sér. Afi hóf störf hjá
Ullarverksmiðjunni Gefjun þar sem
mágur hans, Jónas Þór, var verk-
smiðjustjóri. Síðan fór hann að
vinna hjá póstbátnum Drang við
skrifstofu- og afgreiðslustörf.
Lengst starfaði Ingólfur afi þó við
Sundlaug Akureyrar.
Afi tók mikinn þátt í félagsstörf-
um, t.d. söng hann með karlakórn-
um Geysi í fjöldamörg ár. í frímúr-
arareglunni var hann í mörg ár.
Hann var formaður starfsmann-
afélags Akureyrar frá 1961-1968
og 1971-1975, kosinn heiðursfé-
lagi hinn 21. maí 1979, var full-
trúi á þingum BSRB í Reykjavík
og gegndi fleiri trúnaðarstörfum.
Einnig var hann formaður Karls
II. Á sínum yngri árum starfaði
hann og lék með Leikfélagi Akur-
eyrar, þá sýndi hann fimleika með
LFA og starfaði með íþróttafélag-
inu Þór. Sæti átti hann sem full-
trúi á aðalfundum Kaupfélags Ey-
firðinga, vann fyrir Framsóknar-
flokkinn og átti þar sæti á lista.
Heyrðum við sagt að afi hefði ver-
ið góður ræðumaður og aldrei nein
lognmolla í kringum hann þar sem
heitar umræður áttu sér stað. Gat
hann þá talað í sig hita og var
mikill sannfæringarkraftur í orð-
um hans. Afi var mikilhæfur mað-
ur sem mikil eftirsjá er að. Til
gamans látum við fylgja nokkrar
af vísum þeim er morgunsyndarar
ortu til hans er hann var sjötugur:
Afinælis ég yrki braginn
aðeins til að minna á daginn
og sjötíu ára sómamann
sem alla tíð var okkar maður
árla á fótum hress og glaður,
morgunkarlar meta hann.
Ekki breytist okkar dómur
að hann teljist hrekkjalómur
þó að fjölgi æviár,
Enn þá strákur er í honum,
ærslabelgur framar vonum,
þó að kollur gerist grár.
Oft finnst þeim sem Ingólf þekkja
einhvers konar tímaskekkja
orðin sé í aldri hans,
því stöðugt virðist Ingi ungur
aldrei neitt í spori þungur,
vinnur öll sín verk með glans.
Ingólfur afi tók sér margt fyrir
hendur og gerði það vel, t.d. batt
hann inn bækur eftir að hann
hætti störfum. Hann kom ekki svo
til okkar að hann athugaði hvort
ekki þyrfti að binda inn einhveija
bókina. Einnig fann afi sig vel í
að búa til alls kyns muni, svo sem
fallega lampa, pípustatíf úr viði,
já, eða bara hvað sem honum datt
í hug. Gaman var að hlusta á hann
fara með hinar ýmsu vísur og rím-
ur. Þegar við vorum fyrir norðan
var hann iðinn við að segja okkur
hin ýmsu staðarnöfn og örnefni,
þar sem við ókum hjá þegar var
farið út að keyra með honum og
ömmu.
Stundum minntist hann á
Saurbæ í Hvalfirði þar sem hann
var í sveit hjá Jóhönnu móðursyst-
ur sinni og manni hennar, séra
Einari Thorlacius. Sagði hann okk-
ur stundum sögur þaðan. Gaman
þótti honum líka að vitna í Islend-
ingasögurnar.
Á heimili afa og ömmu var í
mörg horn að líta og margt spenn-
andi að skoða, þar á meðal mikið
af bókum og gömlum tímaritum.
Heimili afa og ömmu einkenndist
af snyrtimennsku og hreinlæti og
mikið var lagt upp úr góðum sið-
um, og vandað og gott málfar var
í heiðri haft, einhver menningar-
bragur á öllu að okkur fannst.
Þegar amma dekkaði borð var það
sérlega huggulegt, hvort heldur
sem um virkan dag var að ræða
eða hátíðisdag.
Amma var fædd á Sólheimum á
Akureyri, dóttir Kristínar Guðjóns-
dóttur og Jóns Björnssonar skip-
stjóra og útgerðarmanns. Var hún
elst átta barna þeirra hjóna. Tvær
systur hennar eru nú á lífi.
Afi og amma giftu sig hinn 26.
nóvember 1932. Þeim varð sex
barna auðið. Elst er Hildur Jónína,
gift Guðlaugi Tómassyni; Örn,
kvæntur Elsu Valgarðsdóttur; Örl-
ygur, kvæntur Ástu Jónsdóttur;
Ingólfur, kvæntur Sigrúnu Valdi-
marsdóttur; Gréta Kristín, gift Sig-
urði Hallgrímssyni; og yngstur
Örvar, kvæntur Erlu Olafsdóttur.
Barnabörnin eru 23, barnabarna-
börnin 34 og eitt barnabarna-
tjanrab'am:------------ 7
Nóg hefur verið að gera á stóru -
heimili. Þar sem amma var ekki
alltaf heilsuhraut hafði hún vinnu-
konu sem hefur verið henni
ómetanleg hjálp á meðan börnin
voru ung. Seinna meir tók hún
kostgangara inn á heimilið, þó yfir-
leitt ekki nema einn í einu. Voru
það bæði námsmenn og danskar.
stúlkur, sem hún síðan hélt alltaf
góðu sambandi við með bréfa-
skriftum.
Þegar börnin fóru að fljúga úr
hreiðrinu, fór amma að sinna meira
sínum áhugamálum. Hún söng í
kirkjukór Akureyrarkirkju og
starfaði í kvenfélaginu Hlíf. Einnig
störfuðu saman konur þeirra karla-
kórsmanna. Gaman hafði amma
af að setjast niður við píanóið og
spila, jafnvel eitthvað frumsamið.
Amma var mjög víðsýn kona, og
á undan sinni samtíð að mörgu
leyti. Bæði hvatti hún ungt fólk
til að mennta sig og skoða sig um
í heiminum á meðan tækifæri væri
til. Sjálf stundaði hún sjálfsnám,
meðal annars í ensku. Og dönsku
las hún og talaði. Andleg málefni
voru henni alltaf hugleikin og hef-
ur hún áreiðanlega tekið á móti
afa opnum örmum. Við kveðjum
elsku afa og ömmu okkar með ljóði
eftir Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi, nágranna þeirra.
Ég nefni nafnið þitt,
og næturmyrkrið flýr,
því ljóma á lofti slær
hið liðna ævintýr.
Ég nefni nafnið þitt
og nýja heima sé,
þar grær hið vilta vín,
þar vagga pálmatré.
Ég nefni nafnið þitt,
og nóttin verður hlý.
Ég heyri klukknaklið
frá kirkju í Assisí.
Þú kemur móti mér
í minninganna dýrð.
í sólskini og söng
er sál mín endurskírð.
Jón, Tómas, Kristín,
Grétar og Álfhildur.
I
Arnþrúður Ingimars
dóttir - Kveðjuorð
í dag kveðjum við góða konu,
Arnþrúði Ingimarsdóttur, eða
Öddu, eins og hún var alltaf kölluð.
Enn er höggvið skarð í stóra systk-
inahópinn frá Þórshöfn. Að leiðar-
lokum er margs að minnast. I mörg
ár vorum við nokkrar konur saman
í saumaklúbbi 0g er Adda sú þriðja
af okkur sem kveður. Við vorum
allar ungar á þessum árum þegar
við hittumst vikulega. Ein okkar
bjó út í sveit, en þó færð gæti stund-
um verið slæm létum við það aldrei
aftra okkur frá að komast út að
Möðruvöllum og einu sinni í svo
vondu veðri að við sáum varla hvert
við vorum að fara. Einum eigin-
manninum varð þá að orði, hvort
við gætum kannski ekki líka haft
saumaklúbb úti í Grímsey.
Já, það var oft gaman í þá daga.
Það var alveg yndislegt að hafa
hana Öddu í þessum hópi. Hún
hafði svo góða nærveru og ljúfa
lund og lagði aldrei nema gott til,
því þetta var kona sem öllum vildi
gott gera. Oft var hún búin að
skemmta okkur, því hún hafði alveg
sérstaka kímnigáfu og á sinn hóg-
væra hátt sagði hún svo skemmti-
lega frá að maður veltist um af
hlátri. Það eru sannarlega góðar
minningar sem við eigum um hana
Öddu, þegar hún hefur lokið sinni
jarðvist.
Hún andaðist aðfaranótt sumar-
dagsins fyrsta eftir nokkurra mán-
aða baráttu við sinn sjúkdóm. Á
nýju tilverustigi hefur hún gengið
inn í sumarið.
Að þessum fáu orðum loknum
sendum við eiginmanni Öddu, Jóni
Kristinssyni, börnum þeirra, Árnari
og Ilelgu, systkinum hennar og
öðrum vandamönnum innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing hennar og hafi hún þökk fyrir
allt.
Gamli saumaklúbburinn.
Adda frænka er dáin. Adda stóra
eins og við systurnar kölluðum
hana, þessi fallega kona er farin.
Enn er höggvið skarð í hinn glæsi-
lega systkinahóp pabba. Adda var
sú af systkinum pabba sem mér
finnst ég hafa þekkt mest og best,
sú sem ávallt var hægt að leita til
er við vorum litlar þegar eitthvað
amaði að, alltaf var Adda tilbúin
að hlusta. Elsku Adda, hafðu þökk
fyrir allt. Megir þú hvíla í friði.
Heilagi guðsson, kenn þú oss krossinn að
bera.
Kraftur þinn megnar oss aflvana styrka að
gera.
Styrk oss og styð,
stattu oss sjálfur við hlið,
elskunnar ímynd og vera.
Sendu nú frið þinn í syrgjandi ástvina hjörtu.
Sýn þeim hinn dána í upprisuljósinu björtu.
Eilífa ást,
aldrei er syrgjendum brást,
hastaðu á harmélin svörtu.
Sjúkleikans þungbæru þjáningarspor er
gengin,
þrautunum lokið - og gröfin hræðast skal
enginn.
Dauðinn er lif.
Drottinn vor styrkur og hlíf.
Vissa um framhaldslíf fengin.
Vinir og ættmenn, er hamþrungin sitjið í
sárum,
sólarljós æðra heims brotnar í jarðneskum
tárum.
Guðs góði son
gaf öllum samfundar von. -
Kvíðum ei komandi árum.
(Vald. V. Snævarr.)
Elsku Jón, Arnar, Helga Bogga,
Adda og aðrir ástvinir. Ég votta
ykkur öllum innilega samúð.
Helga frænka.
Fleiri minningargreinar um
Amþrúði Ingimarsdóttur
bíða birtingar og munu
birtast á næstu dögum.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR F. PÉTURSDÓTTUR,
Austurbrún 25.
Ingibjörg Ólafsdóttir Wilson,
Sigurjón Á. Ólafsson,
Hafdís Ólafsdóttir,
Theódóra Ólafsdóttir,
Óli Rúnar Ólafsson
Perry G. Wilson,
Hildur Sigurðardottir,
Guðjón Guðnason,
Þórir Ingvarsson,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okk-
ar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR
frá Vindási,
Laugarnesvegi 88.
Ólafur Ingvarsson,
Guðni G. Jónsson, Ingveldur Sveinsdóttir,
Elín H. Jónsdóttir, Jóhann Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar eig-
inkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
VALGERÐAR MARGRÉTAR
LÁRUSDÓTTUR
frá Heiði á Langanesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 3. hæð
hjúkrunarheimilisins Skjóls.
Snorri H. Bergsson,
Bergur Vilhjálmsson, Kristbjörg Kristjánsdóttir,
Edda Snorradóttir, Þorkeli Guðfinnsson,
Sæbjörg Snorradóttir, Þorgils Arason
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar eig-
inkonu minnar, móður okkar, dóttur og
tengdadóttur,
LÁRU
JÓHANNESDÓTTUR,
Framnesvegi 16,
Reykjavík.
Guðmundur A. Jóhannsson,
Kristín Guðmundsdóttir, Jóhannes Guðmundsson,
Lilja Sólrún Guðmundsdóttir,
Jóhannes Guðmundsson,
Helga Jónsdóttir.