Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIRi LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
FOLK
■ TOMMY Caton, fyrrum fyrir-
liði Manchester City, lést í gær
eftir að hafa fengið hjartaslag.
Caton, sem var 30 ára, lék með
Manchester City, Arsenal, Ox-
ford og Charlton.
■ ÍTALIR geta tryggt sér farseð-
ilinn á HM í Bandaríkjunum 1994,
með sigri á Svisslendinga í Bern
á morgun.
■ MANCHESTER United verð-
ur Englandsmeistari í dag, ef
Aston Villa tapar gegn Oldham
heima. Man. Utd. leikur heima
' gegn Blackburn á mánudaginn.
Ef Aston Villa vinnur í dag, þurfa
leikmenn United sigur gegn Black-
burn til að tryggja sér meistaratitil-
inn.
■ EGGERT Bogason, kringlu-
kastari úr FH, kastaði 58,38 m á
Landsbankamóti FH í Hafnarfirði
um síðustu helgi. Þessi árangur, svo
snemma árs, gefur góð fyrirheit um
framhaldið í sumar.
■ EINAR Kristjánsson, FH,
sigraði í hástökki á móti í Louis-
ianna í Bandaríkjunum á sunnu-
dag, stökk 2,10 metra.
■ FINNBOGI Gylfason, hlaupari
úr FH, sigraði á sama móti í 1.500
metra hlaupi eftir taktískt hlaup.
■ STEINN Jóhannsson, FH,
hafnað í 4. sæti í 800 metra hlaupi
á sama móti.
FELAGSLIF
KSÍ-Klúbburinn
til Lúxemborgar
Þriðja starfsár KSÍ-klúbbsins, stuðnings-
mannafélags íslenska iandsliðsins í knatt-
spyrnu, er að hefjast og stendur skráning
‘ nýrra félaga yfir. Starfsemnin felst aðallega
í samkomum tengdum landsleikjum fslands
a heimavelli, en einnig eru skipulagðar hóp-
ferðir á leiki erlendis, landsleiki og ýmsa
aðra stórleiki.
Klúbburinn gengst fyrir vorferð til Lúx-
emborgar í tengslum við landsleik heima-
manna og fslendinga í undankeppni HM
fimmtudaginn 30. maí. Hægt verður að
velja um þriggja til fimm daga ferð, en
nánari upplýsingar um ferðina og klúbbin
veita Hörður og Þórir (s. 699300).
KLIFUR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Gód ferð San Antonio
Spurs til Portlands
Sean Elliott var hetja San An-
tonio Spurs, þegar félagið
gerði góða ferð til Portland, þar sem
það vann Trail Blazers 86:87 í vest-
urdeildinni. Hann skoraði tvö síð-
ustu stig San Antonio úr vítaskot-
um þegar 5,3 sek. voru til leiks-
loka. Leikmönnum Portlands mis-
tókst að skora úr sínu síðasta skoti
- rétt fyrir leikslok, þannig að gest-
irnir fögnuðu sigri.
Portland hafði ávallt forystu og
var munurinn mestur 14 stig, en
undir lokin skoruðu leikmenn San
Antonio átta síðustu stigin. Þess
má geta að þegar staðan var 86:85
og 10 sek. eftir fengu heimamenn
tvö vítaskot, en kappinn Cliff Rob-
inson brást þá bogalistin - misnot-
aði þau bæði. Elliott skoraði 18
stig fyrir San Antonio, en David
Robinson 16 og hann tók 15 frá-
köst. Clyde Drexler lék ekki með
heimamönnum vegna meiðsla. Je-
rome Kersey skoraði 24 stig Terry
Porter og 18 fyrir Portland.
Hakeem Olajuwon fór á kostum
með Houston, sem átti ekki í vand-
ræðum með Los Angeles Clippers.
Hann skoraði 28 stig, tók ellefu
fráköst, varði níu skot, átti fimm
stoðsendingar og vann knöttinn
fjórum sinnum.
Xavier McDaniel skoraði 21 stig
fyrir Boston, sem vann Charlotte
örugglega, 112:101, í austurdeild-
inni. Boston gerði út um leikinn í
þriðja leikhluta með því að ná 30:18
skori. McDaniel kom af bekknum
þegar Reggie Lewis datt niður um
miðjan fyrri hálfleik, eftir að hafa
skorað 17 stig. Lewis fékk aðsvif.
Cleveland Cavaliers vann örugg-
an sigur, 114:98, á New Jersey
Nets. Níu af leikmönnum liðsins
skoruðu meira en tíu stig, sem er
metajöfnun. Derrick Coleman skor-
aði 31 stig fyrir New Jersey, en
aðrir leikmenn í byrjunarliðinu
skoruðu saman aðeins 25 stig.
Morgynblaðið/Sveinbjörn
Elín Sigurösdóttir, Árni Birgisson, Garðar Einarsson og Árni G. Reynisson.
KVENNAHLAUP ÍSÍ
19. |Úní Dk. imnrmneuii
á 50 stöðum um land allt
Æfingar fyrir kvennahlaupió í Garóabæ eru
á þriðjudögum kl. 18.10 og laugardögum
kl. 10.00 við
íþróttamióstöóina
Asgaró í Garðabæ.
Allar konur
velkomnar.
SJOVA-ALMENNAR
AÓalstyrktaraðili
kvennahlaups
Leiðbeinandi:
Elín Birna
Guómundsdóttir.
Hakeem Olajuwon (nr. 34) fór á kostum með Houston gegn Los Angeles
Clippers. Hann skoraði 28 stig og tók auk þess mörg fráköst.
Ámi G. sigurveg-
ari í klifurkeppni
Arni G. Reynisson varð sigur-
vegari í klifurkeppni á dögun-
um, eftir harða keppni við Garðar
Einarsson. Björn Baldursson, sem
varð annar á Opna Norðurlanda-
mótinu fyrir stuttu, missti fótafestu
í keppninni og var úr leik.
Klifinn var sex metra hár veggur
- tíu metra leið. Árni G. fékk tím-
ann 3:30 mín., en Garðar fór leiðina
á 3:28 mín. Árni Birgisson var þriðji
á 3:18 mín. Þess má geta að Björn
mjög góðum tíma, en hann fór klif-
urleiðina á 33 sek.
Elín Sigursdóttir varð sigurveg-
ari í kvennaflokki.
KNATYTSPYRNA EM U-16 ARA
Slysalegt mark kost-
aði sæti í úrslrtum
Íslenska drengjalandsliðið í knatt-
spymu, U-16, er úr leik í Evrópu-
keppninni eftir að hafa beðið lægri
hlut fyrir Svisslendingum, 0:1, í síð-
asta leik sínum í úrslitakeppni EM í
Tyrklandi í gær. Islenska liðinu hefði
nægt jafntefli til að komast í 8-liða
úrslit, en slysalegt mark á 35. mín-
útu kom í veg fyrir það.
Dæmd var aukaspyma á íslenska
markvörðinn fyrir tvígrip rétt utan
markteigs. Svisslendingar tóku
spymuna — renndu til hliðar á Vok-
el, sem var besti leikmaður liðsins
og er á samningi hjá Grasshoppers,
sendi knöttin efst í markhornið fjær.
„Ein afdrifarík mistök og þar með
var draumurinn um sæti í átta liða
úrslitum úti,“ sagði Sveinn Sveins-
son, aðalfararstjóri íslenska liðsins.
Sveinn sagði að íslenska liðið hafi
leikið illa, sérstaklega í fyrri hálfieik.
„Við voru heppnir að vera ekki und-
ir strax á fyrstu mínútu er Svisslend-
ingar áttu skot í stöng og skömmu
síðar fengu þeir dauðafæri, sem þeir
nýttu ekki. Annars var lítið um mark-
tækifæri í leiknum. Besta færi ís-
lands kom á 75. mínútu er Eiður
Guðjohnsen átti góða sendingu fyrir
markið en Þorbjörn Sveinsson náði
ekki að skalla að marki úr upplögðu
færi. Þessi úrslit voru mikil von-
brigði fyrir strákana,“ sagði Sveinn.
Hann sagði að Eiður Guðjohnsen
hafi verið besti leikmaður íslands.
Islenska liðið kemur heim annað
kvöld með flugvél frá London.
KARATE
Bjami
banda-
rískur
meistari
Bjarni Kristjánsson, 26 ára
Reykvíkingur, varð fyrir
stuttu bandarískur háskóla-
meistari í karate með félagi
sínu, UML Karate Club frá Bos-
ton. Bjarni, sem keppti fyrir
Karatefélag Reykjavíkur, hélt
til Bandaríkjanna til náms í hag-
fræði og fjármálafræði við há-
skólann í Boston 1990. Bjarni
stóð sig best í UML-sveitinni í
umræddri keppni og vann fjórar
af fimm viðureignum sínum.
Þess má geta að Bjarni er nú
í Japan ásamt fjórum úr UML
Karate Club, en þar keppir fimm
manna sveit félagsins fyrir hönd
Bandaríkjanna á móti þar sem
20. félög taka þátt.
UM HELGINA
Skíði
Fossavatnsgangan, sem er liður í íslands-
göngunni, fer fram í dag, 1. maí. Gengið
er frá Fossavatni í Engidal og farið yfir
Fellsháls og Miðfellsháls og endað við
Skíðaheima á Seljalandsdal, alls 20 km.
Gangan á sér '58 ára sögu og telst elsta
fjöldaganga á íslandi.
Golf
Opið golfmót verður haldið á vegum
Golfklúbbs Grindavíkur á Húsatóftavelli í
Grindavík á morgun, sunnudag. Leikinn
veður höggleikur með og án forgjafar.
Skráning fer fram í dag, laugardag, frá
kl. 17 - 21.
Golfklúbbur Hellu heldur opið golfmót í
dag, laugardag, á Strandarvelli. Leiknar
verða 18 holur með og án forgjafar.
Golfklúbbur Reykjavíkur opnar golfvöll-
inn í Grafarholti formlega í dag með keppni
í innanfélagsmóti og verður ræst út frá kl.
09.00. Leikinn verður 18 holu höggleikur
með og án forgjafar.
Siglingar
Siglingaklúbburinn Þytur í Hafnarfirði
og Siglingasamband íslands verða með tvíl-
iða keppni á kjölbátum í dag og á morgun.
Keppni hefst báða dagana kl. 10 og verður
keppt á Micro 18 bátum með þriggja manna
áhöfn.
Skvass
íslandsmótið í skvassi fer fram í Vegg-
sporti við Stórhöfða um þessa helgi og þá
næstu. í dag og á morgun verður fslands-
mót kvenna og forkeppni i karlaflokki en
úrslitakeppni karlanna verður um næstu
helgi.
Knattspyrna
Þrír leikir verða leiknir í 8-liða úrslitum
Litlu-bikarkeppninnar um helgina; í dag kl.
14. mætast ÍA og ÍBV annars vegar og HK
- Grindavík hins vegar. Á morgun kl. 16
mætast svo Breiðablik og Keflavík.
KR og Valur mætast í undanúrslitum
Reykjavíkurmótsins á mánudaginn kl. 20.
Frjálsíþróttir
Vímuvarnahlaup Lions í Hafnarfirði verð-
ur á morgun, sunnudag, á Víðistaðatúni og
hefst kl. 14.00. Hægt er að velja um tvær
hlaupalengdir, 2,2 km og 4,6 km og mega
keppendur hlaup, ganga eða skokka. Allir
þátttakendur fá verðlaunapening, en þátt-
tökugjald er kr. 500.
Fram 85 ára
Knattspyrnufélagið Fram er 85 ára í
dag, laugardaginn 1. maí. Af því tilefni
verður opið hús fyrir Framara og velunnara
félagsins í Fram-heimilinu frá kl. 15 þar
sem boðið verður upp á veitingar.
í tilkynningu frá Fram er þess getið að
félagið er í hópi elstu starfandi íþróttafé-
laga landsins og var eitt af stofnfélögum
ÍSI 1912. Fram hefur átján sinnum orðið
íslandsmelstari í knattspyrnu og sjö sinnum
bikarmeistari. í handknattleik hefur félagið
átta sinnum orðið íslandsmeistari í karla-
flokki og nitján sinnum í kvennaflokki, auk
þess sem Fram-stúlkur hafa níu sinnum
orðið bikarmeistarar. Þess er og getið að
öflug skíðadeild sé með aðsetur í Eldborg-
argili ( Bláfjöllum þar sem aðstaða sé mjög
góð. „Höfuðstöðvar Fram eru í Safamýri,
en þar standa nú yfir miklar framkvæmdir
við byggingu nýs íþróttahúss, sem áætlað
er að verði tilbúið í júni á næsta ári," seg-
ir ennfremur.
Núverandi formaður Fram er Alfreð Þor-
steinsson.
Uppskeruhátíð Breiðabliks
Uppskeruhátíð unglingaráðs körfuknatt-
leiksdeildar Breiðabliks verður á morgun,
sunnudag, í Félagsheimili Kópavogs og
h^fst kl. 14.