Morgunblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 1. MAI 1993
71
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Komnir í úrslit!
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristján Arason, þjálfari og leikmaður FH, og Gunnar Beinteinsson fyrirliði fagna í Kaplakrikanum í gærkvöldi eftir að íslandsmeistararnir höfðu loks náð að
ryðja nýiiðum ÍR úr vegi.
Góð markvarsla og
vöm skóp sigurinn
TENNIS
Seles stungin
í miðjum leik
Serbneska stúlkan Monica
Seles, besta tenniskona
heims, var stungin í bakið í gær
meðan hún var að keppa á móti
í Hamborg í Þýskalandi. Það var
áhorfandi sem skyndilega komst
að henni og rak hníf — sem hann
hélt á með báðum höndum —
milli herðablaða hennar. Sárið
var talið einn og hálfur senti-
metri á dýpt, en tenniskonan var
ekki talin alvarlega sködduð.
„Hún líður ekki kvalir og getur
talað,“ sagði í yfirlýsingu frá
læknum sem gerðu að sárum
hennar. „Hún á ekki í neinum
vandræðum með andardrátt,
lungun sködduðust ekki...“ „Hún
var mjög heppin," sagði einn
læknanna ennfremur, því litlu
munaði að hnifurinn lenti í mæn-
unni. Læknirinn taldi Seles
myndu ná sér innan tveggja
vikna og hún gæti keppt á ný
eftir einn til þrjá mánuði. Næsta
stórmót er hið opna franska sem
hefst 24. maí, en þar á hún titil
að veija.
Seles, sem er aðeins 19 ára
o g hefur verið búsett í Bandaríkj-
unum síðan 1985, hefur fengið
nokkrar morðhótanir undanfarin
ár. Vangaveltur voru uppi strax
eftir atburðinn þess efnis að hann
tengdist styijöldinni í Bosníu, þar
sem hún er Serbi. Hið eina sem
talsmaður lögregiu vildi segja um
málið var að árásarmaðurinn
væri 38 Þjóðverji, fæddur í aust-
urhluta landsins.
ÍR, sem varð í öðru sæti 2.
deildar í fyrra og mestallra liða
hefur komið á óvart á íslands-
mótinu í handknattleik i vetur,
varð loks að játa sig sigrað í
baráttunni um meistaratitilinn
— tapaði fyrir íslandsmeistur-
um FH í Hafnarf irði í gærkvöldi
fþriðju viðureign liðanna. Eftir
hnífjafnan og spennandi leik
urðu úrslit 25:21, og það var
ekki fyrr en alveg í lokin að Ijóst
varð hvert stefndi. En sigur
Hafnfirðinganna var sanngjarn
og þeir mæta Valsmönnum f
úrslitum um meistaratign, en
ÍR-ingar og Selfyssingar mæt-
ast i aukakeppni, sem hugsan-
lega gefur Evrópusæti.
1 eikur gærkvöldsins einkenndist
■■ af gífurlegri baráttu og tauga-
spennu. ÍR-ingar byijuðu betur, en
eftir að FH-ingar
komust á skrið voru
þeir yfírleitt á undan
að skora þó jafnt
væri á mörgum
tölum. Fyrri hálfleikurinn var ótrú-
lega spennandi, talsvert um mistök
sem spennan olli greinilega og allt
í jámum. Eftir hlé var það sama
upp á teningnum lengst af en þeg-
ar líða tók á leikinn voru heima-
menn sem voru mun ákveðnari;
skoruðu til að mynda úr átta síð-
ustu sóknunum á meðan gestirnir
nýttu aðeins helming sókna sinna.
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
Erfttt
Kristján Arason, þjálfari og leik-
maður FH, var að vonum ánægður
í leikslok. „Þetta var erfítt. Jafnt,
en við vorum ætíð með yfírhöndina.
Okkur gekk vel í vörninni; það var
fyrst og fremst hún og góð mar-
kvarsla sem skóp sigurinn," sagði
hann.“
FH-IR 25:21
Kaplakriki, íslandsmótið í handknatt-
leik — þriðji leikur í undanúrslitum í
1. deild karla, föstudaginn 30. aprfl
1993.
Gangur leiksins: 0:2, 4:2, 5:5, 7:6,
9:9, 11:9, 11:11, 12:11, 14:12, 14:15,
15:16, 17:16, 19:18, 22:19, 23:20,
23:21, 25:21.
Mörk FH: Alexej Trúfan 7/4, Sigurður
Sveinsson 5, Gunnar Beinteinsson 4,
Kristján Arason 3, Guðjón Ámason 3,
Hálfdán Þórðarson 2, Þorgils Óttar
Mathiesen 1.
Utan vallan 8 mínútur og eitt rautt
spjald.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
13 (þar af 4 til mótherja): 7 (2) lang-
skot, 5 (1) úr homi og 1 (1) af línu.
Mörk ÍR: Róbert Þór Rafnsson 8, Jó-
hann Ásgeirsson 6/2, Matthías Matthí-
asson 4, Branislav Dimitrivitsch 2,
Magnús Ólafsson 1, Ólafur Gylfason 1.
Utan vallar: 8 mín.
Magnús Sigurðsson 13 (þar af 4 til
mótheija): 7 (4) langskot, 3 úr horni,
2 af linu og 1 hraðaupphlaup.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson
og Einar Sveinsson. Fá allt að því
hæstu einkunn; í fáeinum tilvikum virt-
ist þeim skjátlast, en leik sem þennan
er varla hægt að dæma betur. Svo
örugg dómgæsla er alltof sjaldséð.
Áhorfendur: 2.000.
Á meðan ÍR-ingar náðu að beita
löngum sóknum héldu þeir algjör-
lega í við meistarana, en eftir að
þurftu að auka hraðann var örygg-
ið ekki eins mikið í sóknarleiknum.
Vörnin var sterk á stundum en í
seinni hálfleiknum fóru útispilarar
FH að láta mikið að sér kveða.
ÍR-ingar réðu þá ekki við þá. Magn-
ús var góður í markinu hjá ÍR og
Guðmundur Þórðarson bestur í
vörninni. í sókninni var Róbert
Rafnsson bestur — sérlega lunkinn
leikmaður.
FH-ingar voru sterkari aðilinn í
leiknum, það var engin spurning.
Bergsveinn góður í markinu, og
vörnin sterk með Gunnar Beinteins-
son í stóru hlutverki, sem hann
skilaði með miklum sóma. Gerði
Serbann Dimitrivich nánast óvirk-
an. FH-ingar sýndu einnig góð til-
þrif í sókn — Sigurður og Gunnar
voru ógnandi í hornunum í fyrri
hálfleik, sérstaklega þó Sigurður
sem gerði glæsileg mörk. í seinni
hálfleiknum voru það hins vegar
útispilaramir sem tóku völdin —
Trúfan, Kristján og Guðjón. Og
gaman var að sjá Þorgils Óttar á
gamla staðnum; inni á línunni, þar
sem hann gerði góða hluti.
„Það er erfítt að sigra liðsheild
FH-inga, hún er feykisterk. Verð
ég ekki að segja að þeir hafí verið
betri í kvöld?“ sagði Brynjar Kvar-
an, þjálfari ÍR í leikslok. „Það var
ýmislegt sem betur mátti fara hjá
okkur, sérstaklega í varnarleiknum.
Við vomm til dæmis að fá á okkur
ódýr mörk meðan við vomm einum
fleiri." Brynjar sagðist svekktur því
lið ÍR hefði kastað frá sér sigri 7
sekúndum fyrir lok fyrsta leiksins,
og þar sem liðið sigraði í þeim
næsta hefðu tveir fyrstu átt að
koma liðinu áfram. „En svona er
þetta í íþróttunum; sekúndubrotin
ráða því oft hvort menn em skúrk-
ar eða hetjur.“
KNATTSPYRNA
Eyjólfur skoraði
gegn Bayem
Eyjólfur Sverrisson skoraði
fyrsta mafk Stuttgart í 5:3
tapi liðsins gegn Bayern Miinchen
í þýsku úrvalsdeildinni á Ólympíu-
leikvanginum í Miinchen í gær-
kvöldi. Tomas Helmer kom Bayern
yfir á 2. mínútu, en Eyjólfur jafn-
aði fímm mínútum síðar. Markus
Schupp kom Bayern aftur yfír
skömmu síðar og Maurizio Gaudino
jafnaði á 37. mínútu og þannig var
staðan í hálfleik.
Þýski landsliðsmaðurinn Lothar
Mattháus gerði tvö mörk með fímm
mínútna millibili í upphafí síðari
hálfleiks og Roland Wohlfarth gerði
fimmta markið á 61. mínútu. Tho-
ams Strunz minnkaði muninn fyrir
Stuttgart áður en yfir lauk. Leikur-
inn var vel spilaður — hraður og
skemmtilegur.
Borussia Dortmund vann Saar-
briicken, 3:0. Mörkin gerðu Michael
Zorc og Matthias Sammer tvö, en
hann hefur nú gert 8 mörk í deild-
inni.
URSLIT
Körfuknattleikur
EM drengjalandsliða
Panevezys, Litháen:
Litháen - Island...........109Í»ík
Stig íslands: Helgi Guðfinnsson 44, Ólafur
Ormsson 19, Friðrik Stefánsson 7, Arnþór
Birgisson 5, Hafsteinn Lúðvíksson 4, Ómar
Sigmarsson 3, Gunnar Einarsson 3, Óskar
Pétursson 2 og Ægir Gunnarsson 1.
■Isienska liðið lék vei í þessum leik að
sögn fararstjóra liðsins. Fyrri hálfleikur var
nokkuð jafn, en heiamenn þó alltaf með
nauma forystu. í hálfleik var staðan 41:48
fyrir Litáen og var það mesti munurinn á
liðunum í fyrri hálfleik. Helgi Guðfinnsson
var besti leikmaður íslenska liðsins. Friðrik
Stefánsson úr ÍBV var éinnig sterkur, tók
m.a. 9 fráköst.
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni
Það lið sem er fyrr til að vinna þijá leiki
kemst áfram.
AUSTURDEILD:
Cleveland - New Jersey Boston - Charlotte 114: 98 112:101
VESTURDEILD:
117: 94
Portland - San Antonio 86: 87
Íshokkí
Leikir í NHL-deildinni í fyrrinótt:
Detroit - Toronto 7:3
■Liðin eru jöfn 3:3.
4:3
■Vancouver vann 4:2.
Los Angeles - Calgary 9:6
■Los Angeles vann 4:2
Vancouver og Los Angeles hafa tryggt
sér sæti Smythe-deildarúrslitum.
HM í Þýskalandi
Svíar, sem unnu sameiginlegt lið Tékka óg
Slóvaka, leika til úrslita um heimsmeistara-
titilinn gegn Rússum sem unnu Kanada-
menn í undanúrslitum.
Svíþjóð - Tékkóslóvakía.............4:3
(1-2 1-0 1-1: 3:3. Framl. 1-0)
Charles Berglund, Ulf Dahlen, Mikael Ren-
berg, Thomas Rundqvist - Jiri Dolezal,
Radek Toupal, Drahomir Kadlec.
Rússland - Kanada..................7:4
(1-1, 4-2, 2-1)
Yushkevich, Titov, Astrakhantsev, Bykov,
Khomutov, Karpov - Shayne Corson, Dave
Manson og Eric Lindros.
Snóker
HM í Sheffield:
Undanúrslit:
3-Jimmy White (Englandi) - 7-James Watt-
ana(Tælandi)......................14:8
Þegar 22 römmum af 31 er lokið er staðan
14:8 og hafa einstakir leikir farið þannig
(White á undan): 37-71 21-68 24-80 36-77
10-83 71-39 60-1 0-93 88-15 64-7 69-45
62-25 104(104)-0 77-39 109(105)-0 71-50
100-24 69-0 92-8 64-24 52-70 14-83.
■Jimmy White þarf nú aðeins að vinna tvo
ramma til að tryggja sér sæti í úrslitum.
í hinum úrslitaleiknum stendur heimsmeist-
arinn Stephen Hendry vel að vigi, hefur
10:5 yfir á móti Skotanum Alan McManus.
SÓKNAR-
NÝTING
FH
IR
Mðck Sóknk % MðrkSóknir %
Urslitakeppnin í
handknattleik 1993
11 23 48 F.h 11 23 48
14 22 64 S.h 10 22 45
25 45 55 Alls 21 45 46
4 Langskot 5 f
5 Gegnumbrot 3
3 Hraðaupphlaup 5 |
■■ r 5 Hom 3
r 4 Lína 3 f
4 lii