Morgunblaðið - 08.05.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUÍJBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1993
fclk f
fréttum
STJÖRNUR
Hvað vildu þau verða?
D
Iraumar og vangaveltur um
hvað maður ætlar að verða
þegar sá hinn sami er orðinn stór
fara ekki ætíð saman við það sem
verður. Reyndar er það svo hjá
flestum að þeir lenda hreint ekki í
því starfi sem þá dreymdi um. En
hvað skyldu eftirfarandi stjörnur
hafa viljað verða?
Mel Gibson vildi fyrst verða
Hann'hóf111’’ -'tðan máIari-
ín í-nam 1 hvoru tveggja
en endað' sem leikari -!
Það hafð1 honum aldrei dottif
hlLpa Þ“S en”l>S *»
M Hann segn að ser
tektet vel t» “j0S
:átt í söngvamynd ems
fgerðustí gamla daga.
í Austurríki og dreynjB ®
aðverðaáhrifamtollpóhUkus
sem hefði raunverulegt va
«m aí taka >
Dollv Parton dreymdi allt_ fra
urðardrottning. Hún --
iflrrE spm __•
fýa sem draúmurinn Z*S
'f°ody AI>en aulaði sér alltaf
ssJíP^r
íþróttum. d og flejri
DÆGURTONLIST
Þeir eru enn í eldlínunni
Það hefur ekki farið framhjá
neinum að þeir félagar úr
hljómsveitinni Pelican eru komnir
saman á ný, með nýja hljómplötu
í farteskinu, enda stefnan sett á
hringveginn nú í sumar. Jón Ólafs-
son bassaleikari, er í þessum hópi
að sjálfsögðu enda stóð hann í eldl-
ínunni með Pelican hér á árum áð-
ur, og hefur leikið með ýmsum fleiri
þekktum hljómsveitum á löngum
og litríkum ferli. Hann hefur þótt
með pottþéttari mönnum á sitt
hljóðfæri í gegnum árin enda oft
kallaður „Kletturinn“ meðal þeirra
sem telja sig þekkja til í rokktónlist-
arbransanum.
Jonni var hinn hressasti er Morg-
unblaðið spjallaði við hann um nýju
plötuna og sagði að þeir félagar
hefðu lagt sig fram um að gera
góða og vandaða rokkplötu. „Við
lögðum þó höfuðáheerslu á að hafa
gaman af þessu og við ætlum okk-
ur að njóta þess að spila saman í
sumar“, sagði Jonni og bætti við:
„Þótt' Pelican hafi vissulega verið
góð hljómsveit á sínum tíma get
ég fullyrt að mönnum hefur farið
mikið fram og ég held að það komi
vel í ljós á nýju plötunni og æfing-
ar á því efni sem við ætlum að flytja
í sumar lofa mjög góðu“.
Ljósmyndari Morgunblaðsins,
Ragnar Axelsson, fann í fórum sín-
um mynd af Jonna, sem tekin var
á hljómnleikum með Pelican í Aust-
urbæjarbíói um miðjan áttunda ára-
tuginn og birtum við hana hér til
gamans ásamt mynd af nýrri Pelic-
an, sem tekin var af Sigurði Þór
Hallbjörnssyni.
Pelican í dag, frá vinstri: Ásgeir Óskarsson, Jón Ólafsson,
Björgvin Gíslason, Pétur Kristjánsson og Guðmundur Jóns-
son.
Morgunbiaðið/Rax Jón Ólafsson í eldlínunni með Pelican fyrir tæpum 20 árum.
IÞROTTIR
Góð þátttaka í Grýlupottahlaupinu
Hið árlega Grýlupottahlaup á
Selfossi er er nefnt eftir kenni-
leitum skammt frá íþróttavellinum,
hraunpottum sem hlaupið er fram-
hjá.
Reglur hlaupsins eru þannig að
hlaupin eru sex hlaup á hveiju ári
en þátttakendur þurfa að ljúka fjór-
um til þess að eiga kost á viður-
kenningum. Mjög góð þátttaka er
í hlaupunum, því 120—160 taka
þátt í hverju hlaupi. Margir foreldr-
ar fylgja börnum sínum í hlaupið
sem er einn þeirra íþróttaviðburða
þar sem margir bestu afreksmanna
Selfyssinga í íþróttum hafa stigið
sín fyrstu skref á keppnisbrautinni.
Hlaupin eru á laugardögum
klukkan eitt og næsta hiaup verður
8. maí og er jafnframt síðasta
hlaupið í ár.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hlaupið af miklum móð í Grýlupottahlaupi.
COSPER
tc')pin
Hafð’ekki áhyggjur af honum, mamma mín. Hann er
bara að reyna að losna við hikstann!