Morgunblaðið - 16.05.1993, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
109. tbl. 81. árg.
SUNNUDAGUR 16. MAI 1993
PRENTSMIÐJA MORGUNBLADSINS
Martröðinni lokið
MENN úr sérsveitum frönsku lögreglunnar eru hér að bera börnin út úr skólanum eftir að maðurinn, sem hélt þeim í gíslingu,
hafði verið skotinn. Þar með lauk 46 klukkustunda langri martröð fyrir foreldra barnanna og raunar alla Frakka, sem fylgst
hafa með málinu milli vonar og ótta.
Gíslatöku í París lauk þegar lögreglan skaut manninn til bana
Danir takast á
um Maastricht
DANIR kjósa um Maastricht-samninginn
öðru sinni á þriðjudag og bendir flest
til, að hann verði samþykktur. Ummæli
yfirhagfræðings Citibank í London um
að dönsku krónunni sé ekki hætt þótt
kjósendur höfnuðu Edinborgarákvæðun-
um ganga hins vegar þvert a það sem
meðmælendur þeirra hafa haldið fram,
en stöðugleiki í efnahagslífinu eru helstu
röksemdir þeirra fyrir jái. Neil MacKinn-
on segir í viðtali við Politiken að krónan
lendi ekki í neinum ólgusjó þó Edin-
borgarákvæðunum verði hafnað, því á
alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum þyki
ósennilegt að nokkuð verði úr áættunum
EB um myntbandalag fyrir aldamót.
Sagnfræðingur nokkur hefur ályktað að
góða veðrið geri Dani sjálfstæðari og þar
sem spáð er sól og 25 stiga hita næstu
daga auki það líkur á höfnun. Skoðana-
kannanir benda þó allar til, að Ma-
astricht verði samþykkt.
Mannleg mistök
SÁ atburður varð í Svíþjóð á síðasta ári,
að lítil flugvél lenti í vandræðum, missti
mótorinn eins og stundum er sagt, og
neyddist flugmaðurinn til að nauðlenda
á vatni. Sökk vélin til botns á þriggja
metra dýpi en flugmanninum og farþega
hans tókst þó að bjarga sér við illan leik.
Flugslysanefndin sænska hefur nú Iokið
við að rannasaka málið og í skýrslu, sem
hún hefur sent frá sér, er komist að þeirri
niðurstöðu, að um mannleg mistök hafi
verið að ræða. Fólust þau í því, að flug-
maðurinn varð svo gagntekinn af fegurð
stjörnuhiminsins, að hann gáði ekki að
sér þegar bensínið þraut á aðaltankinum
og gleymdi að skipta yfir á varatankinn.
Serbar kjósa um
friðaráætlunina
SERBAR í Bosníu greiða nú um helgina
• atkvæði um friðaráætlun Vance og
Owens og Sameinuðu þjóðanna og er
talið fullvíst, að hún verði felld með
miklum meirihluta. Hefur sjálfskipað
þing þeirra fellt hana þrisvar og áskor-
anir Serba í Serbíu og Svartfjallalandi
um að samið verði um frið hafa engin
áhrif haft. Á Vesturlöndum virðist eng-
in samstaða vera um einhveijar aðgerð-
ir í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Bosníu-Serbar á kjörskrá eru um
730.000 en kjósa átti í gær og í dag. Á
Vesturlöndum hefur þjóðaratkvæða-
greiðslunni verið vísað á bug sem mark-
lausri en meðal Serba sjálfra virðist
mikill áhugi vera á henni. Mætti fólk
snemma á kjörstað og kváðust sumir
varla hafa sofið af tilhlökkun. „Þetta
eru mikilvægustu kosningar í lífi mínu.
Nú gefst okkur tækifæri til sýna hvaða
hug við berum til áætlunar Vance og
Owens,“ sagði kjósandi í Pale.
„Bömin höfðu líklega
minni áhyggjur en við“
Neuilly. Reuter
MAÐURINN, sem hélt sex börnum og kennara þeirra í gíslingu í skóla í París, var
skotinn til bana í gærmorgun. Hafði hann sofnað út frá þvi að telja peninga, lausn-
argjaldið, sem hann hafði fengið fyrir börnin, og notaði þá lögreglan tækifærið til
að koma börnunum undan. Við það vaknaði hann og var þá umsvifalaust skotinn
enda var hann girtur miklu sprengiefni. Börnin og kennara þeirra sakaði ekki.
Umsátrið um skólann stóð í 46 klukku-
stundir og hafði maðurinn fyrst á valdi sínu
21 bam auk kennarans. 15 börnum sleppti
hann á fimmmtudag en hin sex hótaði hann
að deyða yrði hann ekki látinn fá um einn
milljarð fsl. kr. í lausnargjald fyrir þau og
tryggð undankoma. Var orðið við kröfunni
um peningana og þeim komið til hans. í
fyrrakvöld og fyrrinótt var reynt að semja
við manninn um að hann afhenti sprengiefn-
ið, sem hann var með, en fengi í staðinn
byssu og bíl til að koma sér burt en á það
vildi hann ekki fallast.
Mjög taugaóstyrkur
„Hann var orðinn mjög taugaóstyrkur,"
sagði Nicolas Sarkozy, borgarstjóri í Neu-
illy, sem er úthverfí frá París, „og þuldi
fyrir munni sér, að börnin væm skjöldurinn
sinn og vildi ekki koma út. Allt í einu var
eins og hann frysi og hann var ekki meira
til viðtals."
Það var svo klukkan hálfátta í gærmorg-
un að frönskum tíma, að menn úr sérsveitum
lögreglunnar voguðu sér inn í kennslustof-
una en þá var vitað, að maðurinn hafði sofn-
að við að telja peningana. Virtist hann gagn-
tekinn af þeim og taldi þá í sífellu þar til
hann dottaði eftir nokkurra sólarhringa
vöku. Hann vaknaði þó þegar lögreglumenn-
irnir voru að fara burt með börnin og var
hann þá skotinn í höfuðið.
Tilbúinn að sprengja skólann
Um sig miðjan hafði maðurinn bundið 16
dýnamítstúpur og fimm aðrar fundust í
skólastofunni. Hafði hann búið þannig um
hnútana að hann gat sprengt þær fyrirvara-
laust.
„Eg held jafnvel, að börnin hafí haft minni
áhyggjur en við,“ sagði Sarkozy borg-
arstjóri í gær en sagt er, að kennslukonan
hafí staðið sig eins og hetja allan tímann
og getað talið bömunum trú, að um eins
konar æfíngu væri að ræða.
SVIPTINGAR
Á SKJÁNUM
Tímamót
í tískuverslun?
16
FJARRI
HURDASKELLUM
ÓSÝNILEGA
FJOLSKYLDAN
ÖNDVEGISSðLUR
SÆMUNDAR
SAMVINNUAÐILI EÐA SYNDASELUR