Morgunblaðið - 16.05.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.05.1993, Blaðsíða 2
EFNI 2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAI 1993 Varðskip beindi skútu sem lenti í villum á leið frá Irlandi tíl hafnar Hef aldrei lent í svo vondu veðri Vestmannaeyjum. SKÚTA með fjögurra manna áhöfn kom til hafnar í Vest- mannaeyjum í gær eftir sex og hálfs sólarhrings siglingu frá Norður-írlandi. Skútan hafði hreppt slæmt veður á leiðinni og á föstudagskvöld var haft samband við Loft- skeytastöðina í Eyjum og beðið um að hún reyndi að stað- setja skútuna þar sem skipverjar væru ekki vissir hvar þeir væru staddir og veðrið slæmt. Varðskipið Týr var austur af Eyjum og gat staðsett skútuna og fylgdi henni síðan eftir til hafnar í Eyjum. Bob Harier, skipstjóri á skút- mílur austur af Vestmannaeyjum unni sem heitir Breakaway, sagði að þau hefðu hreppt vont veður á leiðinni til íslands. Þau fóru frá Carrick Fergus á Norður-írlandi að kvöldi 8. maí sl. og gekk ferðin vel fysrtu tvo dagana en síðustu fjóra sólarhringa var norðan og norðvestan hvassviðri og þungur sjór. Einungis var hægt að sigla með litil segl uppi og sóttist ferðin seint. Hjálparvél bátsins bilaði einnig og því voru ýmsir erfíðleik- ar að hrjá þau. Loftnetið fyrir gervitunglamótakarann sem notað er til staðarákvarðana brotnaði og því varð að nota sextant tii stað- setningar. Sáum ekki til sólar í tvo daga „Við höfðum ekki séð til sólar í tvo daga og því áttum við erfítt með að staðsetja okkur. Við leituð- um því eftir aðstoð Loftskeyta- stöðvarinnar í Vestmannaejjum með staðsetningu og þeir höfðu samband við Landhelgisgæsluna. Við héldum okkur vera um 20 en reyndumst vera öO.mílur austur af þeim. Þetta munaði ekki nema 30 mílum hjá okkur en við vorum alla vega á réttri stefnu," sagði Bob og var hress með að vera kominn til íslands. Hann sagðist áður hafa gert þrjár tiiraunir til að komast til íslands en ekki tek- ist þar sem veður og bilanir hafa alltaf sett strik í ferðir hans. Aðspurður hvort þau hafí verið í hættu taldi hann það ekki vera en veðrið hafí verið mjög slæmt, það versta sem hann reynt og væri hann þó búinn að sigla lengi. Hann sagði það hafa verið góð til- fínning að vita af varðskipinu við hlið þeirra síðasta spölinn til Eyja og þau hafí því getað sofíð rótt og hvílt sig síðasta spölinn. Áhöfnin, tvenn hjón, ætlaði að stoþpa í Eyjum um helgina og gera við vél bátsins en síðan ætla þau að halda áfram til Reykjavikur en reikna með að halda til írlands á ný eftir viku. Grímur í öruggri höfn Áhöfnin á skútunni Bre- akaway komin heilu og höldnu til Vestmannaeyja úr hafvillum. Frá vinstri: Christine Harper, Norman Grant, Wendy Moore og skipstjórinn, Bob Harier. Minni myndin var tekin þegar skúta þeirra, Bre- akway, var að koma inn í höfnina í Eyjum um hádegi í gær. Til höfunda greina UNDANFARIN ár hefur Morgunblaðið ítrekað beint þeim tilmælum til greinahöfunda, að þeir stytti mál sitt og haldi lengd greina innan hóflegra marka. Töluvert hefur áunnizt í þeim efnum og greinar, sem sendar eru blaðinu til birting- ar eru yfirleitt mun styttri en áður. Hins vegar er sótzt svo mjög eftir birtingu greina, að meirihluta ársins er biðtími alltof langur. í sumum tilvikum bíða greinar birtingar vikum saman, ekki sízt, ef um langar greinar er að ræða. í því skyni að bæta þjónustu við höfunda greina og lesendur almennt með því að stytta biðtíma og tryggja, að aðsendar greinar verði aðgengilegt lesefni fyrir les- endur blaðsins hefur ritstjóm Morgunblaðsins ákveðið að taka upp ný vinnubrögð við afgreiðslu greina. Þess verður óskað, að greinar verði almennt ekki lengri en sem nemur 60-80 dálksentí- metrum eða 5500 til 6500 táknum í tölvu. Bréf, sem birtast eiga í Bréfí til blaðsins mega ekki vera lengri en um 30 dálksentímetrar eða u.þ.b. 2200 tákn í tölvu. Ber- ist blaðinu lengri greinar verður óskað eftir því við höfund, að hann stytti greinina en jafnframt verður boðin sú þjónusta, að starfsmenn blaðsins stytti við- komandi grein í samráði við höf- und. Þrír starfsmenn ritstjómar Morgunblaðsins munu sinna því verkefni sérstaklega. Að jafnaði geta greinahöfundar komið sjónarmiðum sínum á fram- færi í mun styttra máli en nú tíðk- ast. Að sjálfsögðu geta orðið und- antekningar frá þessari almennu reglu og byggjast þá á því mati blaðsins, að lengri greinar eigi efnisins vegna erindi við lesendur Morgunblaðsins. Ritstjórn Morgunblaðsins væntir þess, að nýjum vinnu- brögðum verði vel tekið af hálfu greinahöfunda enda eiga þau að tryggja mun skjótari birtingu greina en nú. Ritstj. Léleg’ rækjuveiði á „gráa svæðinu“ FJÖGUR íslensk rækjuveiðiskip eru nú við veiðar á „gráa svæðinu“ svokallaða við miðlínuna milli íslands og Færejja, en þar hafa færeysk skip verið við veiðar upp á síðkastið. Að sögn Sigurbergs Haukssonar, stýrimanns á Beiti NK, er heldur dræm veiði á svæðinu sem stendur, en færeysku skip- in öfluðu ágætlega í síðustu viku. Auk Beitis eru Margrét EA, Skutull ÍS og Klara Sveinsdóttir SU ná á svæðinu en Sigurbergi var ekki kunnugt um fleiri íslensk skip á leiðinni þangað. Hann sagði 6-7 færeysk skip vera á bletti 4-5 sjó- mflum innan við miðlínuna. Þau em við þau mörk sem stjómvöld í Dan- mörku viðurkenna sem miðlínu. Röng mynd Fyrir mistök birtist röng mynd á baksíðu Morgunblaðsins í gær. Myndin var sögð vera af færeyskum bát á úthafskarfaveiðum, en hún var af íslenskum fískibát. Morgunblaðið/Ámi Helgason Langlífar konur MIKILL fögnuður varð í afmælinu þegar Hansína Jóhannesdóttir 101 árs(t.h.) kom í 100 ára afmæli Vilborgar. Tvær hundrað ára í sama afmælinu Stykkishólmi FRÚ Vilborg Kristjánsdóttir frá Ölkeldu í Staðarsveit átti 100 ára afmæli 13. maí sl. og í tilefni þess mættu henni til samfagnaðar börn ættingar og vinir, en ákveðið var að halda upp á daginn í sal sjúkrahússinis hér, þar sem hún hefir dvalið undanfarið og notið þar ágætrar þjónustu. Þetta var ljómandi fagnaður og mikið sungið og hún ekki síst og var undur hversu hún kunni og söng mikið af hin- um gömlu og gildu lögum og ljóðum, enda minntust vinir hennar þess. Þá var ekki lítill fögnuður þegar hún fékk góða heimsókn af Hansínu Jóhannesdóttur, húsfreyju hér í Hólminum, sem var gift Sigurði Marinó Jóhannssyni sjó- manni en hún verður 102 ára í haust og dvelur nú á sjúkra- húsinu. Vilborg var fædd í Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi, systir Guðbjarts bónda þar og hreppstjóra um langt skeið. Hún var gift Gísla Þórðarsyni á Ölkeldu og þar bjuggu þau allan sinn búskap og eignuðust 7 börn og tóku auk þess í fóstur Kristján bróðurson hennar, sem var mættur til þessa samfagnaðar. Gísli er látinn. Lést árið 1962. Góð afmælisgjöf Þess má einnig geta að fyrir há- degi þennan dag fæddist drengur á sjúkrahúsinu og sögðu systumar að þetta væri góð afmælisgjöf. í tilefni dagsins gáfu börn Vilborgar og ætt- ingjar systrunum álitlega peningag- jöf sem þakklætisvott fyrir alúð og góða þjónustu þeirra. Sól var og heiður himin og puntaði það ekki lít- ið upp á daginn enda sungið kröftug- lega: „Ó blessuð vertu sumarsól." Ánægjulegur dagur. Loks skal þess getið að í tilefni dagsins afhentu Elín, dóttir Vilborg- ar, og Þórður Kárason, fræðimaður, öllum viðstöddum heftið: Ölkelduætt, niðjatal Vilborgar og Gísla, mynd- skreytt og skemmtilega uppsett, 20 blaðsíður að stærð. Seinna um daginn var svo haldin guðsþjónusta í kaþólsku kirkjunni í tilefni dagsins. Árni Sviptingar á skjánum ►Fyrirhugað er að endurvarpa erlendum sjónvarpsrásum á Islandi og í undirbúningi er samnorræn fréttarás./lO Nei á ný? ►Þjóðaratkvæðgreiðsla um sér- ákvæði Maastricht-samkomulags- ins verður í Danmörku næstkom- andi þriðjudag./14 Tímamót í tískuversi- un ►Verslunin Vero Moda selur kvenfatnað á mjög hagstæðu verði og telja neytendur að hún geti haft áhrif á verðlag hér heima og dregið úr innkaupaferðum til út- landa./16 Ósýnilega fjölskyidan ►Kristín Gústavsdóttir og Karl Gustaf Piltz hafa gert rannsóknir á sænskum og íslenskum fjölskyld- um. Segja þau að ekkert bendi til þess að fjölskylduböndin séu minni en áður./18 Fjarri hurðarskellum ►Söngkonan Amina er fædd í Túnis en hefur búið í Frakklandi frá barnsaldri. Hún er væntanleg til íslands öðru sinni í næstu viku./22 Færri deyja úr hjarta- sjúkdómum ►Starfsemi Hjartavemdar er 25 ára um þessar mundir./30 B ► l-32 Öndvegissúlur Sæ- mundar ► Sæmundur Valdimarsson mynd- höggvari hefur vakið athygli fyrir styttur sem hann heggur úr reka- viði./l Mannbætandi að hafa hund ►Guðrún Guðjohnsen, formaður Hundaræktarfélags íslands segir íslendinga góða hundaeigendur./4 í mörg horn að líta ►Af ungu fólki í Alþýðuskólanum á Eiðum en þar hefur skólahald staðið í rúma öld./6 • Draumaveröid barn- anna ►Fimm böm svara því í máli og myndum hvað þeim fínnst um þann heim sem fullorðnir hafa búið þeim./lO Menningarkimi í eigin ■ heimi ►Af sjónarhóli cyberpönkara./12 Vá maður! ►Af ævintýraferð upp á Vatna- jökul í máli og myndum./16 FASTIR ÞÆTTIR Leiðari 24 ídag 20b Helgispjall 24 Fólk f fréttum 22b Reykjavíkurbríf 24 Myndasögur 24b Minningar 30 Brids 24b íþróttir 42 Stjömuspá 24b - Útvarp/sjónvarp 44 Skák 24b Gárur 47 Bió/dans 25b Mannlífsstr. 8b Bréftil blaðsins 28b Kvikmyndir 18b Velvakandi 28b Dægurtónlist 19b Samsafnið 30b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.