Morgunblaðið - 16.05.1993, Qupperneq 2
EFNI
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAI 1993
Varðskip beindi skútu sem lenti í villum á leið frá Irlandi tíl hafnar
Hef aldrei lent í
svo vondu veðri
Vestmannaeyjum.
SKÚTA með fjögurra manna áhöfn kom til hafnar í Vest-
mannaeyjum í gær eftir sex og hálfs sólarhrings siglingu
frá Norður-írlandi. Skútan hafði hreppt slæmt veður á
leiðinni og á föstudagskvöld var haft samband við Loft-
skeytastöðina í Eyjum og beðið um að hún reyndi að stað-
setja skútuna þar sem skipverjar væru ekki vissir hvar
þeir væru staddir og veðrið slæmt. Varðskipið Týr var
austur af Eyjum og gat staðsett skútuna og fylgdi henni
síðan eftir til hafnar í Eyjum.
Bob Harier, skipstjóri á skút- mílur austur af Vestmannaeyjum
unni sem heitir Breakaway, sagði
að þau hefðu hreppt vont veður á
leiðinni til íslands. Þau fóru frá
Carrick Fergus á Norður-írlandi
að kvöldi 8. maí sl. og gekk ferðin
vel fysrtu tvo dagana en síðustu
fjóra sólarhringa var norðan og
norðvestan hvassviðri og þungur
sjór. Einungis var hægt að sigla
með litil segl uppi og sóttist ferðin
seint. Hjálparvél bátsins bilaði
einnig og því voru ýmsir erfíðleik-
ar að hrjá þau. Loftnetið fyrir
gervitunglamótakarann sem notað
er til staðarákvarðana brotnaði og
því varð að nota sextant tii stað-
setningar.
Sáum ekki til sólar í tvo daga
„Við höfðum ekki séð til sólar
í tvo daga og því áttum við erfítt
með að staðsetja okkur. Við leituð-
um því eftir aðstoð Loftskeyta-
stöðvarinnar í Vestmannaejjum
með staðsetningu og þeir höfðu
samband við Landhelgisgæsluna.
Við héldum okkur vera um 20
en reyndumst vera öO.mílur austur
af þeim. Þetta munaði ekki nema
30 mílum hjá okkur en við vorum
alla vega á réttri stefnu," sagði
Bob og var hress með að vera
kominn til íslands. Hann sagðist
áður hafa gert þrjár tiiraunir til
að komast til íslands en ekki tek-
ist þar sem veður og bilanir hafa
alltaf sett strik í ferðir hans.
Aðspurður hvort þau hafí verið
í hættu taldi hann það ekki vera
en veðrið hafí verið mjög slæmt,
það versta sem hann reynt og
væri hann þó búinn að sigla lengi.
Hann sagði það hafa verið góð til-
fínning að vita af varðskipinu við
hlið þeirra síðasta spölinn til Eyja
og þau hafí því getað sofíð rótt
og hvílt sig síðasta spölinn.
Áhöfnin, tvenn hjón, ætlaði að
stoþpa í Eyjum um helgina og
gera við vél bátsins en síðan ætla
þau að halda áfram til Reykjavikur
en reikna með að halda til írlands
á ný eftir viku.
Grímur
í öruggri höfn
Áhöfnin á skútunni Bre-
akaway komin heilu og
höldnu til Vestmannaeyja
úr hafvillum. Frá vinstri:
Christine Harper, Norman
Grant, Wendy Moore og
skipstjórinn, Bob Harier.
Minni myndin var tekin
þegar skúta þeirra, Bre-
akway, var að koma inn í
höfnina í Eyjum um hádegi
í gær.
Til höfunda greina
UNDANFARIN ár hefur Morgunblaðið ítrekað beint þeim
tilmælum til greinahöfunda, að þeir stytti mál sitt og haldi
lengd greina innan hóflegra marka. Töluvert hefur áunnizt
í þeim efnum og greinar, sem sendar eru blaðinu til birting-
ar eru yfirleitt mun styttri en áður. Hins vegar er sótzt svo
mjög eftir birtingu greina, að meirihluta ársins er biðtími
alltof langur. í sumum tilvikum bíða greinar birtingar vikum
saman, ekki sízt, ef um langar greinar er að ræða.
í því skyni að bæta þjónustu
við höfunda greina og lesendur
almennt með því að stytta biðtíma
og tryggja, að aðsendar greinar
verði aðgengilegt lesefni fyrir les-
endur blaðsins hefur ritstjóm
Morgunblaðsins ákveðið að taka
upp ný vinnubrögð við afgreiðslu
greina. Þess verður óskað, að
greinar verði almennt ekki lengri
en sem nemur 60-80 dálksentí-
metrum eða 5500 til 6500 táknum
í tölvu. Bréf, sem birtast eiga í
Bréfí til blaðsins mega ekki vera
lengri en um 30 dálksentímetrar
eða u.þ.b. 2200 tákn í tölvu. Ber-
ist blaðinu lengri greinar verður
óskað eftir því við höfund, að
hann stytti greinina en jafnframt
verður boðin sú þjónusta, að
starfsmenn blaðsins stytti við-
komandi grein í samráði við höf-
und. Þrír starfsmenn ritstjómar
Morgunblaðsins munu sinna því
verkefni sérstaklega.
Að jafnaði geta greinahöfundar
komið sjónarmiðum sínum á fram-
færi í mun styttra máli en nú tíðk-
ast. Að sjálfsögðu geta orðið und-
antekningar frá þessari almennu
reglu og byggjast þá á því mati
blaðsins, að lengri greinar eigi
efnisins vegna erindi við lesendur
Morgunblaðsins.
Ritstjórn Morgunblaðsins
væntir þess, að nýjum vinnu-
brögðum verði vel tekið af hálfu
greinahöfunda enda eiga þau að
tryggja mun skjótari birtingu
greina en nú. Ritstj.
Léleg’ rækjuveiði
á „gráa svæðinu“
FJÖGUR íslensk rækjuveiðiskip eru nú við veiðar á „gráa
svæðinu“ svokallaða við miðlínuna milli íslands og Færejja,
en þar hafa færeysk skip verið við veiðar upp á síðkastið.
Að sögn Sigurbergs Haukssonar, stýrimanns á Beiti NK, er
heldur dræm veiði á svæðinu sem stendur, en færeysku skip-
in öfluðu ágætlega í síðustu viku.
Auk Beitis eru Margrét EA,
Skutull ÍS og Klara Sveinsdóttir
SU ná á svæðinu en Sigurbergi var
ekki kunnugt um fleiri íslensk skip
á leiðinni þangað. Hann sagði 6-7
færeysk skip vera á bletti 4-5 sjó-
mflum innan við miðlínuna. Þau em
við þau mörk sem stjómvöld í Dan-
mörku viðurkenna sem miðlínu.
Röng mynd
Fyrir mistök birtist röng mynd á
baksíðu Morgunblaðsins í gær.
Myndin var sögð vera af færeyskum
bát á úthafskarfaveiðum, en hún
var af íslenskum fískibát.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Langlífar konur
MIKILL fögnuður varð í afmælinu þegar Hansína Jóhannesdóttir
101 árs(t.h.) kom í 100 ára afmæli Vilborgar.
Tvær hundrað ára
í sama afmælinu
Stykkishólmi
FRÚ Vilborg Kristjánsdóttir frá Ölkeldu í Staðarsveit átti
100 ára afmæli 13. maí sl. og í tilefni þess mættu henni
til samfagnaðar börn ættingar og vinir, en ákveðið var að
halda upp á daginn í sal sjúkrahússinis hér, þar sem hún
hefir dvalið undanfarið og notið þar ágætrar þjónustu.
Þetta var ljómandi fagnaður og mikið sungið og hún ekki
síst og var undur hversu hún kunni og söng mikið af hin-
um gömlu og gildu lögum og ljóðum, enda minntust vinir
hennar þess. Þá var ekki lítill fögnuður þegar hún fékk
góða heimsókn af Hansínu Jóhannesdóttur, húsfreyju hér
í Hólminum, sem var gift Sigurði Marinó Jóhannssyni sjó-
manni en hún verður 102 ára í haust og dvelur nú á sjúkra-
húsinu.
Vilborg var fædd í Hjarðarfelli í
Miklaholtshreppi, systir Guðbjarts
bónda þar og hreppstjóra um langt
skeið.
Hún var gift Gísla Þórðarsyni á
Ölkeldu og þar bjuggu þau allan sinn
búskap og eignuðust 7 börn og tóku
auk þess í fóstur Kristján bróðurson
hennar, sem var mættur til þessa
samfagnaðar. Gísli er látinn. Lést
árið 1962.
Góð afmælisgjöf
Þess má einnig geta að fyrir há-
degi þennan dag fæddist drengur á
sjúkrahúsinu og sögðu systumar að
þetta væri góð afmælisgjöf. í tilefni
dagsins gáfu börn Vilborgar og ætt-
ingjar systrunum álitlega peningag-
jöf sem þakklætisvott fyrir alúð og
góða þjónustu þeirra. Sól var og
heiður himin og puntaði það ekki lít-
ið upp á daginn enda sungið kröftug-
lega: „Ó blessuð vertu sumarsól."
Ánægjulegur dagur.
Loks skal þess getið að í tilefni
dagsins afhentu Elín, dóttir Vilborg-
ar, og Þórður Kárason, fræðimaður,
öllum viðstöddum heftið: Ölkelduætt,
niðjatal Vilborgar og Gísla, mynd-
skreytt og skemmtilega uppsett, 20
blaðsíður að stærð.
Seinna um daginn var svo haldin
guðsþjónusta í kaþólsku kirkjunni í
tilefni dagsins.
Árni
Sviptingar á skjánum
►Fyrirhugað er að endurvarpa
erlendum sjónvarpsrásum á Islandi
og í undirbúningi er samnorræn
fréttarás./lO
Nei á ný?
►Þjóðaratkvæðgreiðsla um sér-
ákvæði Maastricht-samkomulags-
ins verður í Danmörku næstkom-
andi þriðjudag./14
Tímamót í tískuversi-
un
►Verslunin Vero Moda selur
kvenfatnað á mjög hagstæðu verði
og telja neytendur að hún geti
haft áhrif á verðlag hér heima og
dregið úr innkaupaferðum til út-
landa./16
Ósýnilega fjölskyidan
►Kristín Gústavsdóttir og Karl
Gustaf Piltz hafa gert rannsóknir
á sænskum og íslenskum fjölskyld-
um. Segja þau að ekkert bendi til
þess að fjölskylduböndin séu minni
en áður./18
Fjarri hurðarskellum
►Söngkonan Amina er fædd í
Túnis en hefur búið í Frakklandi
frá barnsaldri. Hún er væntanleg
til íslands öðru sinni í næstu
viku./22
Færri deyja úr hjarta-
sjúkdómum
►Starfsemi Hjartavemdar er 25
ára um þessar mundir./30
B
► l-32
Öndvegissúlur Sæ-
mundar
► Sæmundur Valdimarsson mynd-
höggvari hefur vakið athygli fyrir
styttur sem hann heggur úr reka-
viði./l
Mannbætandi að hafa
hund
►Guðrún Guðjohnsen, formaður
Hundaræktarfélags íslands segir
íslendinga góða hundaeigendur./4
í mörg horn að líta
►Af ungu fólki í Alþýðuskólanum
á Eiðum en þar hefur skólahald
staðið í rúma öld./6 •
Draumaveröid barn-
anna
►Fimm böm svara því í máli og
myndum hvað þeim fínnst um þann
heim sem fullorðnir hafa búið
þeim./lO
Menningarkimi í eigin
■ heimi
►Af sjónarhóli cyberpönkara./12
Vá maður!
►Af ævintýraferð upp á Vatna-
jökul í máli og myndum./16
FASTIR ÞÆTTIR
Leiðari 24 ídag 20b
Helgispjall 24 Fólk f fréttum 22b
Reykjavíkurbríf 24 Myndasögur 24b
Minningar 30 Brids 24b
íþróttir 42 Stjömuspá 24b -
Útvarp/sjónvarp 44 Skák 24b
Gárur 47 Bió/dans 25b
Mannlífsstr. 8b Bréftil blaðsins 28b
Kvikmyndir 18b Velvakandi 28b
Dægurtónlist 19b Samsafnið 30b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4