Morgunblaðið - 16.05.1993, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRTNGLAN 1, 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Morgunblaðið/RAX
Tugþúsundir leggja leið sína íBláa lónið
UM 20 þúsund manns hafa komið í Bláa lónið frá áramót-
um, og líklega er um 70% þess fjölda útlendingar, að sögn
Kristins Benediktssonar, framkvæmdastjóra Bláa lónsins.
^>eim fjölgar stöðugt sem leggja leið sína á þennan vinsæla
ferðamannastað við Grindavík. Um næstu mánaðamót verður
tekin í notkun ný viðbygging sem bætir mjög alla aðstöðu
baðgesta og gerður hefur verið göngustígur út í hraunið.
Kristinn sagði að ráðgert væri að byggja bryggju út í lónið
þar sem baðgestir gætu hvílst og stundað sólböð þegar vel
viðrar. Hann sagði að gott hljóð væri í aðilum í ferðaiðnaði
varðandi komandi sumar. Á myndinni að ofan baðar yngis-
mærin Lovísa Aðalheiður Guðmundsdóttir sig í Bláa lóninu.
Nær 3.000 sjómenn lentu í vinnuslysum á tímabilinu 1988-1992
Bótagreiðslur alls
760 imlljónir króna
Kostuðu 340 millj. meira en vinnuslys annara launþega
ALLS lentu um 2.850 sjómenn í vinnuslysum á sjó tímabil-
ið 1988 til 1992. Samkvæmt upplýsingiim frá Trygginga-
stofnun ríkisins námu heildargreiðslur til sjómanna á þessu
fimm ára tímabili alls um 760 milljónum króna. Til saman-
burðar má geta þess að heildargreiðslur til allra annarra
launþega landsins vegna vinnuslysa á sama timabili námu
um 420 milljónum króna. Þetta er sláandi munur þegar
haft er í huga að sjómenn eru aðeins 5,7% launþega.
Ólafur Þór Ragnarsson, sem sæti
á í Öryggisfræðslunefnd á vegum
Sjómannasambands íslands, segir
að þarna sé um að ræða stóran þátt
í öryggismálum sjómanna sem ekki
sé sinnt nægilega mikið. „Við verð-
um að koma meir inn á verklega
þáttinn í allri öryggisfræðslunni því
stór hluti af þeim sjómönnum sem
lenda í vinnuslysum eru nýliðar eða
byijendur,“ segir Ólafur Þór. „Það
er fullur hugur í okkur að vinna á
þessu vandamáli en það er dýrt í
framkvæmd. Hinsvegar hefur lengi
verið í bígerð að koma á fót nýliða-
fræðslu í þessum efnum og hug-
myndir til um að nýta skipið Sæ-
björgu í þeim tilgangi."
Jónas Haraldsson lögfræðingur
LÍÚ hefur unnið á vettvangi öryggis-
mála fyrir LÍU. Hann segir að út-
gerðarmenn séu algerlega samstíga
sjómönnum í að vilja vinna að úrbót-
um á þessum vettvangi.
Hátt hlutfall örorku
Þegar skoðaðar eru tölur Trygg-
ingastofnunar kemur í ljós að árin
1988 til 1990 slösðust rúmlega 600
sjómenn árlega við vinnu sína. Þar
sem stéttin telur rúmlega 7.000
manns lætur nærri að 8% vinnuafls-
ins hafí lent í bótaskyldu slysi á
þessu tímabili. Á tveimur síðustu
árum hefur slysunum fækkað nokk-
uð, þau voru 522 árið 1991 og 493
í fyrra. Þegar skoðaðar eru tölur um
eingreiðslur vegna 10-49% örorku
kemur í ljós að 36 sjómenn hlutu
slíkar greiðslur árið 1988 á móti 72
launþegum í Iandi. Á síðasta ári
hlutu 45 sjómenn slíkar greiðslur á
móti 99 launþegum í landi.
Bótagreiðslur vegna
vinnuslysa 1988-92
millj. kr. Laun- 169,8172-7
þegar 160,1
ásjó
139,7
Laun- '|l
þegar d
átandi 10^B7
i,o
122,4
88 89 90 91 92
90 91 92
Jónas Haraldsson segir að það
hafí lengi verið barist fyrir því að
koma nýliðafræðslu á laggimar hvað
varðar verkþátt sjómennskunnar.
Nú síðast hafi legið fyrir Alþingi
frumvarp þess efnis en það hafi
ekki náð í gegn á síðasta þingi.
„Við emm að sjálfsögðu óhressir
með að þetta frumvarp skyldi ekki
nást í gegn,“ segir Jónas.
Bæjarsljórn Bolungarvíkur ræddi um kaup á Dagrúnu og Heiðrúnu
Ganga inn í kaupsammnga
Á FUNDI bæjarstjórnar Bolungarvíkur
í gærmorgun var samþykkt einróma að
stefna að því að ganga inn í kaupsamn-
inga vegna togaranna Dagrúnar og
Heiðrúnar og að sögn Ólafs Kristjáns-
sonar bæjarsljóra ætlaði bæjarstjórn að
leggja fram ákveðnar hugmyndir til
lausnar á þessu máli á fundi með þing-
mönnum kjördæmisins í gærdag.
„Þessir kaupsamningar frá Grindavík og Hafn-
arfirði em ófullkomnir eins og fram hefur komið
þar sem ekki em á viðeigandi hátt tilgreindir-
greiðsluskilmálar eða neitt slíkt. Það er samhugur
um það hér að stefna að því að komast yfir Dag-
rúnu og Heiðrúnu ásamt veiðiheimildum, því ef
svo fer að skipin fari úr byggðinni þýðir það um
70% af aflaheimildum Bolvíkinga og að 200 störf
af 570 fæm úr bænum. Þessa sýn viljum við ekki
horfa á til enda. Það stendur núna yfír hlutafjár-
söfnun vegna Ósvarar en við þurfum að auka þar
fé verulega, og talað er um að ná 80 milljónum
inn. Við verðum því að treysta á að Bolvíkingar
og aðrir viðskiptaaðilar þessa fyrirtækis vilji
standa að því með bæjarstóm að vinna að því,“
sagði Ólafur.
200 kröfur
Skiptafundur var haldinn í þrotabúi EG í fyrra-
dag og að sögn Ólafs var þar eingöngu verið að
kynna lýstar kröfur í búið, en þær em um 200.
Snjóar
norðan-
og aust-
anlands
N ORÐLENDIN GAR og Aust-
firðingar urðu áþreifanlega
varir við að vetur konungur
er ekki lagstur í dvala þegar
snjó byijaði að kyngja niður
á föstudag. Svo dæmi sé tekið
hófst éjjagangur strax
snemma um morguninn á Eg-
ilsstöðum og um kaffileytið
gekk í samfellda snjókomu
sem stóð yfir með hléum fram
á laugardagsmorgun. Frost
var 2-3 stig í fyrrinótt og eru
það mikil viðbrigði, því fyrr í
vikunni var 20 stiga hiti á
Egilsstöðum.
Benedikt Vilhjálmsson, flugradio-
maður, sagði að 5-6 cm jafnfallinn
snjór hefði legið á flugbrautunum
tveimur á Egilstöðum í gærmorgun.
Hafíst var handa við að ryðja báðar
brautimar snemma um morguninn
en verkið tók á fjórða tíma og þvi
var lokið rétt fyrir hádegi.
Benedikt vildi ekki slá því föstu
að hretið væri það síðasta á þessum
vetri. „Yfírleitt er hægt að treysta
því að þegar birkið er byrjað að
springa út sé komið sumar en það
var byijað að springa út núna. Birk-
ið flaskaði því á sumarkomunni í
þetta sinn. Ánnars trúir maður ekki
öðm en þetta sé það síðasta sem
komi á þessu vori þó að allur gangur
sé auðvitað á þessu,“ sagði hann.
Hlýnar eftir helgi
Ásdís Auðunsdóttir, veðurfræð-
ingur, sagði að veðrið yrði í stómm
dráttum svipað fram á mánudag en
eftir það tæki að hlýna.