Morgunblaðið - 19.05.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993
Matargjafir Dómkirkju til atvinnulausra
Húnvetnskir bændur
gefa 100 kg af kjöti
STJÓRN Búnaðarsambands Vestur-Húnvetninga samþykkti á
fundi sínum síðastliðinn föstudag að gefa atvinnulausum í Reykja-
vík 100 kíló af kindakjöti. Kjötið var sent suður í gær og verður
því dreift á vegum Dómkirkjunnar. Kirkjan mun á næstunni standa
fyrir matar gjöfum til heimila, þar sem hart er í búi
„Þetta er viðleitni til að styðja
við bakið á fólki, sem á í ijárhags-
erfiðleikum og hefur ekki efni á
að kaupa gæðakjöt," sagði Gunnar
Þórarinsson, ráðunautur hjá Bún-
aðarsambandi V-Húnvetninga.
Hann sagði að ekki hefði verið
ákveðið hvort matargjöfum af
þessu tagi yrði haldið áfram, en
ekkert væri útilokað í því efni.
Matarbúr Dómkirkjunnar
Kjötinu frá húnvetnskum bænd-
um verður dreift til fjölskyldna,
sem á því þurfa að halda, á vegum
Dómkirkjunnar. I safnaðarheimili
kirkjunnar er nú rekin miðstöð
fyrir fólk í atvinnuleit. Sr. Jakob
Agúst Hjálmarsson dómkirkju-
prestur segir að kirkjan hafi tekið
að sér í samráði við Hjálparstofnun
kirkjunnar að gera þriggja mán-
aða tilraun með að halda úti mat-
argjöfum undir yfirskriftinni
„Matarbúr Dómkirkjunnar“. „Við
ætlum að leiða í Ijós með þessari
tilraun hvort nægilegt framboð er
á matvælum til að standa undir
þeirri eftirspum, sem tilraunin
ætti sömuleiðis að leiða í ljós,“
sagði sr. Jakob. Hann sagði að
tilraunin byggði á fyrirmyndum
frá útlöndum, þar sem hjálpar-
stofnanir hefðu tekið að sér dreif-
ingu á ýrrveum umframvamingi
framleiðenda til fólks, þar sem
efnahagur væri bágur.
Morgunblaðið/Júlíus
Breyttur Suðurlandsvegur
FRAMKVÆMDIR vegna breytinga á Suðurlandsvegi eru nú hafnar, en í gær var unnið að sprengingum
við Vesturlandsveg. Þegar breytingunum lýkur mun Suðurlandsvegur ekki liggja í gegnum Árbæjarhverf-
ið, eins og nú er, heldur yfir holtið rétt við golfvöllinn á Grafarholti og tengjast Vesturlandsveginum þar
fyrir neðan. í haust verður lokið við að sprengja fyrir veginum yfir holtið og leggja malarslitlag. Þá er enn
eftir lokafrágangur við gatnamót þessara miklu umferðaræða.
)
ÍDAGkl. 12.00 7°
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 2 alakýjaða Reykjavik 7 léttskýjað
Bergen 18 alskýjað
Helsinki 19 léttskýjað
Kaupmannahöfn 19 léttskýjað
Narssarssuaq 4 iéttskýjað
Nuuk 2 léttskýjað
Osló 19 léttskýjað
Stokkhólmur 22 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 18 alskýjað
Barcelona 20 hálfskýjað
Beriín 23 heiðskírt
Chicago 10 alskýjað
Feneyjar 26 þokumóða
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 24 léttskýjað
London 16 hálfskýjað
Los Angeles 15 léttskýjað
Lúxemborg 19 skýjað
Madríd 16 skýjað
Malaga 23 skýjað
Mallorca 20 skýjað
Montreal 8 heiðskírt
NewYork 16 skýjað
Orlando 23 þokumóða
París 19 skýjað
Madelra 19 léttskýjað
Róm 24 skýjað
Vín 25 léttskýjað
Washington 17 skúr
Winnipeg 1 skýjað
Ættartré Völsunga í Jökulsárgljúfrum '
Hollendmgarnir
ekki sóttir til saka
„OKKUR sýnist sem verknaðurinn sjálfur, að mála ættartré Völsunga
á klettavegginn, sé fyrndur, en í sumar tnunum við skoða nákvæm-
lega til hvaða ráða er unnt að grípa,“ sagði Þóroddur Þóroddsson,
framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs, er hann var inntur eftir því
hvort til einhverra aðgerða yrði gripið vegna svokallaðs umhverfislista-
verks tveggja HoIIendinga í Jökulsárgljúfrum.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu síðastliðið haust máluðu Hol-
lendingamir tveir, Reinout van der
Bergh og Gerhard Lentink, ættartréð
á klettavegg í Jökulsárgljúfrum,
skammt frá Upptyppingum, sumarið
1987. Til þess notuðu þeir innanhúss-
málningu og kváðust hafa búist við
að hún veðraðist af á skömmum tíma,
en í ljós kom að hún var þeirrar
náttúru'að ganga betur inn í blautan
náttúrulegan stein en til dæmis olíu-
málning. Náttúruvemdarráð fór
bréflega fram á það við listamennina
að þeir greiddu kostnað við þrif á
klettaveggnum, en þeir tóku því afar
ólíklega.
Skoðað í sumar
„Við ætlum að skoða í smáatriðum
í sumar til hvaða ráða verður grip-
ið,“ sagði Þóroddur. „Við höfum leit-
að til lögfræðinga og þeim sýnist að
verknaðurinn sem slíkur sé fyrndur,
svo ekki sé hægt að kalla listamenn-
ina til ábyrgðar. Menn hafa verið að
velta þvi fyrir sér hvort hægt sé að
kæra þá fyrir að skilja svona við
staðinn, en það er ekki talið mögu-
legt heldur. Við höfum því ákveðið
að skoða þetta vel, hvort málningin
sé farin að veðrast, hvemig hægt sé
að ná þessu í burtu og hvað slíkt
kosti. Það eru ýmsir boðnir og búnir
að aðstoða við það.“
Þóroddur sagði að hann ætti von
á að listamennimir reyndu að kom-
ast hjá því að taka þátt í kostnaði f
við hugsanlega hreinsun á kletta-
veggnum. Það skýrðist hins vegar
ekki fyrr en um mánaðamótin júní-
júlí til hvaða ráða yrði gripið.
Full vél fer 1
að hlusta
áBruce
FULL flugvél Atlanta-flugfé-
lagsins flýgur í fyrramálið til
írlands með aðdáendur banda-
ríska rokkarans Bruce
Springsteen. 130 manns ætla
að sækja tónleika hans í Dublin
annað kvöld og kemur vélin
heim með fólkið strax að tón-
leikunum loknum.
Samvinnuferðir-Landsýn
standa að þessari ferð í samvinnu '
við Bylgjuna og segir Helgi Jó-
hannsson framkvæmdastjóri
Samvinnuferða að það sé fyrst
og fremst ungt fólk sem fari í
þessa ferð, sem kostar 19.900 kr.
Að sögn Helga hefur verið (
ákveðið að bjóða upp á ferð á
tónleika írsku hljómsveitarinnar
U2 í Dublin í ágúst nk.
Lítill þorskafli í aprílmánuði
Netaveiðibann
hluti skýringar
EIN af ástæðum þess hversu þorskafli var lítill í april, auk lítils
kvóta, er óvenjulangt bann við þorskveiði í net í mánuðinum, að
sögn Jóns B. Jónassonar, skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðuneytinu.
Páskastopp á netaveiðum fyrir
Suður- og Vesturlandi hefur verið
árvisst, en var óvenjulangt í ár, eða
15 dagar, að sögn Jóns. I fyrra var
bannið 10 dagar og áður var það
yfirleitt vika. Þá segir Jón einnig
spila inn í að krókabann hafi verið
í 10 daga af apríl.
Jón segir að stoppið hafí mikil
áhrif á aflatölur, ekki sízt vegna
þess að uppistaðan í þorskafla báta
sé veidd á þessum árstíma. Bannið
komi minna við afla stærstu togar-
anna, en komi nokkuð við minni tog-
skip.