Morgunblaðið - 19.05.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993
29
Fjölbreytt dagskrá í Hafnarfirði
Sýningin Vor
’93 opnuð í dag
SÝNINGIN Vor ’93 í Hafnarfirði verður opnuð í íþróttahúsinu
í Kaplakrika kl. 19 í dag. Tæplega 100 fyrirtæki taka þátt í
sýningunni og í tengslum við hana er fjölbreytt skemmtidag-
skrá sem miðuð er við alla fjölskylduna. „Gaflarinn“ verður
mættur á staðinn við opnun sýningarinnar og tívolí verður opið
fyrir börnin. Kvæðamannafélagið verður með dagskrá og dans-
sýning verður í kvöld. Sýningunni er lokað kl. 22 en dansað
verður í miðbæ Hafnarfjarðar til kl. 1 og mun hljómsveitin GCD
halda uppi fjörinu.
Aðgöngumiði að sýningunni
gildir einnig í tívolíið. Þá er að-
göngumiðinn jafnframt happ-
drættismiði í MBA-happdrættinu
og verður dregið daglega alla sýn-
ingardagana um ferð fyrir tvo til
Kaupmannahafnar.
Samstillt átak
Sýningin er samstillt átak bæj-
aryfirvalda í Hafnarfirði, atvinnu-
fyrirtækja og verkalýðshreyfingar
til að vekja athygli á hafnfirskri
vöru og þjónustu. Að sögn Stens
Johanssons, forsvarsmanns sýn-
ingarinnar, hefur verið kraftur í
uppsetningu hennar. Sagði hann
að bæjaryfirvöld og Hafnfirðingar
væru staðráðnir í því að breyta
vandamálunum í verkefni til úr-
lausnar, sýningin væri einungis
upphafið að átaki sem næði til alls
bæjarins.
Sten sagði að tæplega 40 fram-
leiðslufyrirtæki tækju þátt í sýn-
ingunni en ijölmörg smáfyrirtæki
væru þar með framleiðslu sína og
kenndi margra grasa.
Ýmsar uppákomur verða í
tengslum við skemmtidagskrá sýn-
ingarinnar. Á fimmtudag mun t.d.
slökkvilið og bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar takast á í nýstárlegri
íþróttagrein, vatnsbolta. Verður
leikið með boltann með kröftugum
vatnsbunum en liðin eru hvort um
sig staðráðin í að fara með sigur
af hólmi.
Sýningin verður opin til 23.
maí. Á morgun, uppstigningardag,
Landsmót skólalúðra-
sveita í Hafnarfirði
LANDSMÓT skólalúðrasveita
verður haldið í Hafnarfirði dag-
ana 28.-30. maí nk. Mótið sækja
rúmlega þúsund börn og ungl-
ingar ásamt sljórnendum og
fararstjórum, fólk alls staðar
að af landinu. 35 skólalúðra-
sveitir taka þátt að þessu sinni
og gestir mótsins verða 40 fé-
lagar í skólalúðrasveit frá Skell-
efteá í Svíþjóð.
Þetta er fjölmennasta mót þess-
arar tegundar sem haldið hefur
verið hér á landi. Þar verður spilað
og æft, saman og sitt í hvoru lagi,
tónleikar haldnir í íþróttahúsinu
við Strandgötu, auk þess sem
nokkur tími gefst til samveru og
kynna á öðram grundvelli.
Á mótinu starfar einnig 70-80
manna úrvalssveit skipuð tónlistar-
fólki úr hinum ýmsu skólalúðra-
sveitum. Fenginn hefur verið
þekktur erlendur stjórnandi, Tre-
vor J. Fora, til að stjórna og leið-
beina þeirri sveit.
(Fréttatilkynning)
Lifandi tón-
list á Plúsnum
Á PLÚSNUM v/Vitastíg mið-
vikudaginn 19., föstudaginn 21.
og laugardaginn 22. maí stiga
þijár hljómsveitir á stokk.
Rokkabillíband Reykjavíkur leik-
ur frá kl. 21-3 í kvöld, miðvikudag-
inn 19. maí, en á fimmtudaginn 20.
maí verður Zappa-kvöld þar sem
sýnt verður myndband frá nýlegum
hljómleikum. Bláeygt sakleysi leik-
ur fyrir dansi föstudaginn 21. maí
og laugardaginn 22. maí verður það
svo hljómsveitin Galíleó með sveita-
ballastemmningu.
(Fréttatílkynning)
Morgunblaðið/Kristinn
Lokahandtök fyrir sýningu
UNNIÐ að uppsetningu glerpiramída í bás Gler- SÍÐASTA hönd lögð á útstillingu á gleraugum af
borgar hf. á sýningunni Vori ’93. ýmsum gerðum hjá Augsýn hf.
og 22. og 23. maí verður opið frá Fiskmarkaður Hafnarfjarðar við til 18 og laugardag og sunnudag
kl. 12 til 22. Föstudaginn 21. maí smábátahöfnina verður opin á frá kl. 11 til 18.
verður opið frá kl. 17 til 22. fimmtudag og föstudag frá kl. 14
Opel Corsa vsk. - bíll
Er þrælsterkur, spameytinn og lipur sendibíll.
Tilvalinn í atvinnureksturinn
Verð kr 696.000.- árg. 1992
Verð kr. 559-000.- án vsk.
BÍLHEIMAR
Höfóabakka 9, sími 634000 og 634050
Reykvíkingar - nú hreinsum vi& til.
Næsta laugardag er sérstakur hreinsunardagur í
Reykjavík fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Ruslapokar fóst
afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra.
Vesturbæ við Njarðargötu,
Austurbæ við Sigtún,
Miðbæ á Miklatúni,
Breiðholti við Jafnasel,
Árbæ, Selási og Grafarvogi við Stórhöfða.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar munu sjá um að fjarlægja
fulla poka sem settir eru út fyrir lóðamörk.
Einnig er auðvelt að losna við rusl í gámastöðvar Sorpu
sem eru við:
Ánanaust móts við Mýragötu,
Sævarhöfða norðan við Malbikunarstöð,
Gylfaflöt austan Strandvegar og
Jafnasel í Breiðholti.
Höldum borginni hreinni.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
hreinsunardeild