Morgunblaðið - 19.05.1993, Síða 31

Morgunblaðið - 19.05.1993, Síða 31
r \ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993 31 Morgunblaðið/Þorkell Umferðarátak LÖGREGLA á suðvesturhorni landsins er þessa dagana með sér- stakt umferðarátak, sem beinist að vinnuvélum, enda er mesti annatími í notkun þeirra að hefjast. Ástand vélanna er kannað og alltaf er eitt- hvað um að þær séu teknar úr umferð vegna ófullnægjandi búnað- ar. Þá er kannað hvort ökumenn þeirra hafi fullnægjandi vinnuvéla- og ökuréttindi og hvort vélunum er ekið þar sem takmarkanir eða bann eru við akstri slíkra tækja. Einnig hyggjast lögreglumenn sér- staklega fylgja því eftir að skrán- ingarskyld ökutæki séu búin skrán- ingarmerkjum í samræmi við fyrir- mæli laga og reglugerða. ! I I I Dagur aldraðra í Dóm- kirkjunni á morgun Á MORGUN, uppstigningardag, er dagur aldraðra í kirkjunni. Af því tilefni verður messa í Dómkirkjunni kl. 2 e.h. þar sem sr. Hjalti Guðmundsson predikar og þjónar fyrir altari. Einsöng í messunni syngur Þorgeir J. Andrésson, tenórsöngvari. Eftir messuna er kirkjugestum boðið til kaffidrykkju á 'Hótel Borg. Þar syngur Þorgeir J. Andrésson nokkur lög fyrir gesti en hann hef- ur getið sér mjög gott orð fyrir söng sinn í Sardasfurstynjunni að undanfömu. Marteinn H. Friðriks- son, dómorganisti, leikur með á píanó. Þess er vænst að eldri borgarar í Dómkirkjusöfnuðinum íjölmenni Dómkirkjan í Reykjavík. til messunnar og kaffídrykkjunnar á eftir. Vika eldri borgara árlegur viðburður VIKU eldri borgara lauk sl. laugardag og að sögn aðstandenda henn- ar eru allir á einu máli um það, jafnt flyljendur sem gestir, að hún hafi verið einstaklega vel heppnuð. Ríkir mikil gleði meðal eldri kynslóðarinnar með þessar málalyktir, að sögn Péturs H. Ólafssonar sem var framkvæmdastjóri undirbúningsnefndar. Sagðist hann dauð- þreyttur en himinlifandi í samtali við Morgúnblaðið. Viku eldri borgara lauk sl. laug- ardag. Skemmtiatriðin voru fjöl- sótt. Alþingis- og ráðhúsið nutu mestrar hylli meðal gesta og að auki var húsfyllir á Café París og Hótel Borg alla dagana. Pétur sagði einnig að sér virtist sem allir sem hlut áttu að máli væru sælir og ánægðir með hvernig til tókst og jafnvel stæði til að gera vikuna að árlegúm viðburði. Hefði borgar- stjóri ekki tekið illa í þá hugmynd. Það var borgin sem fjármagnaði vikuna en Félag eldri borgara sá um skipulagninguna. Þegar er búið að skipuleggja mót fyrir kóra frá Norðurlöndunum næsta sumar og að sögn Péturs er búið að tryggja gistingu fyrir 1.000 manns, fá af- not af kirkju og þár fram eftir götunum. 800 manna fagnaður Pétur sagði einnig að lokahófíð í ráðhúsinu sl. laugardagskvöld hefði tekist einstaklega vel, hefðu um 800 manns verið í húsinu og m.a. hefði bifhjólaklúbburinn Snigl- arnir tekið þátt í gleðinni og mættu eldri borgarar því vel við una. Ferming í Mið- dalskirkju Ferming í Miðdalskirkju, upp- stigningardag kl. 14. Prestur sr. Rúnar Þór Egilsson. Fermdir verða: Óðinn Þór Kjartansson, Feney, Laugarvatni. Rúnar Gunnarsson, Dalseli, Laugarvatni. Stiúpbörn í Laugarásbíói LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn- ingar á myndinni Stjúpbörn. Með aðalhlutverk fara Hillary Joce- lyn Wolf, David Strathairn, Mar- gret Whitton og Griffin Dunne. Einn af framleiðendum myndar- innar sagði að svipað hefði hent hana og gerist í myndinni. Hún sagði að þegar bróðir hennar hefði útskrifast úr menntaskóla fyrir þrem árum, með dóttur pabba henn- ar og hálfsystur okkar hefði mamma hennar verði þarna með nýja eiginmanninum. Pabbi hennar var þarna og fyrrverandi kona hans (vegna þess að það var dóttir henn- ar sem var að útskrifast) og nýi kærastinn hennar. Þegar skóla- stjórinn bað foreldra Michael Godd- ars að standa upp, stóðu upp sjö manns. Þá rann upp fyrir henni Aðalleikarar myndarinnar Stjúp- börn. grínið sem getur hlotist af þegar foreldrar eru lausir í rásinni og því miður einnig sorg og tregi. Mynd þessi er sem betur fer frekar á léttu nótunum. STOP Hemlaklossar Hemlakjálkar Hemladiskar Hjóldælur Höfuðdælur Hemlaslöngur Hemlagúmmí Handbremsubarkar Hemlavökvi Hemlarofar naust Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! A Jtí: RAÐAUGí YSINGAR Sérvöruverslun Til sölu lítil sérvöruverslun við Laugaveg. Hentug fyrir einstakling sem vill starfa við eigið fyrirtæki. Hagstætt verð. Áhugasamir vinsamlegast sendi inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl., merkt: „ET - 10911“, fyrir 24. maí. I Til sölu notaðar vélar til bókagerðar (prentmyndagerð): 1. HOPE framköllunarvél, filmubr. 70 cm. 2. ESKEFOT framköllunarvél, filmubr. 42 cm (mjög góð til framk. frá setningarvél). 3. CRTronic 360 ásamt Typeview 300. Af- kastamikil tölva, sem hentar mjög vel fyr- ir setningu á bókum og eyðublöðum. Mörg letur fylgja. 4. SCREEN-Repromaster af vönduðustu gerð. Filmustærð 40x55 cm. Fullkomin tölva í stjórnborði. Hentar vel í útlit- svinnslu o.fl. 5. Frá BELLOWS stórt Ijósaborð með bor til vinnslu á prentformum. 6. Filmuskammtari, tekur tvær stærðir af rúllum. Samútgáfan Korpus, Ármúla 20-22. Sími 685020 (Sigurður/Hallgrímur). Sumarbústaða- og garðeigendur Höfum til sölu fallegt, náttúrulegt, útiræktað birki í mörgum stærðum. Einnig víðiplöntur og runna. Opið til kl. 21.00 og sunnudaga til kl. 18.00. Gróðrarstöðin Skuld, Lynghvammi 4, Hafnarfirði, sími 651242 Esmod - Ósló Esmod Internatinonal er heimsins stærsti tískuskóli með höfuðaðsetur í París og útibú í Rennes, Bordeaux, Lyon, Nice, Bangkok, Casablanca, Rabat, Túnis, Seoul, Tokyo, Múnchen og Ósló. 3 ára nám ítískuhönnun og fyrirsætustörfum Nýtt skólaár hefst 30. ágúst. Umsóknarfrest- ur er til 10. júní. Skólinn er láns- og styrkhæf- ur hjá Statens lánekasse. Ef þú hefur áhuga á að vita meira, þá hafðu samband við skólann í síma 90 47 22 71 56 25. Moteskolen AS ESMOD - Ósló, Teglverksgt. 7a, 0553 Ósló, Noregi. dlul InýitónlistarskcJinn Inntökupróf í söng verða mánudaginn 24. maí. Upplýsingar og skráning í síma 39210 frá kl. 14-18. Næstu vortónleikar skólans verða í skólanum föstud. 21. maí kl. 18: Píanónemar 6.-8. st. Laugard. 22. maí kl. 14: Nemar 3.-5. st. Sunnud. 23. maí kl. 17: Kammer- og hljóm- sveitartónleikar. Mánud. 24. maí kl. 20.30: Söngtónleikar - efri stig. Mánud. 26. maí kl. 18: Sjöundastigstónleikar í söng og píanóleik. í Gerðubergi laugardaginn 22. maí kl. 17: Burtfararpróf í píanóleik: Arnar Bjarnason píanóleikari. Skólaslit verða í Bústaðakirkju föstudaginn 28. maí kl. 18. Frá Nýja tónlistarskólanum. Borgarnes Alþingismennirnir Sturla Böðvarsson og Guðjón Guðmundsson verða til viðtals í Sjálfstæðishúsinu, Borgarnesi, miðvikudaginn 19. maí kl. 17-19.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.