Morgunblaðið - 19.05.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993
33
Áttræður
Árni Friðgeirsson,
ráðsmaður Mennta-
skólans á Akureyri
Árni Friðgeirsson, fyrrum ráðs-
maður Menntaskólans á Akureyri,
er áttræður í dag. Trúmennska og
hógværð hafa einkennt Árna Frið-
geirsson alla tíð, enda þótt hvorki
sé hann skaplaus maður né skoð-
analaus, eins og fram getur komið
í hnitmiðuðum athugasemdum hans
um menn og málefni, orðum sem
ekki þurfa að vera ýkja mörg, því
að margmáll er Árni ekki. En orð
hans eru beinskeytt, enda er Ámi
Friðgeirsson afsprengi íslenska
bændasamfélagsins, þar sem orðs-
ins list hefur verið í hávegum höfð
og virt meira en aðrar náðargáfur
guðs.
Árni Friðgeirsson er fæddur að
Landamótaseli í Köldukinn 19. maí
1913, yngstur átta barna hjónanna
Kristbjargar Einarsdóttur frá
Björgum Grímssonar og Friðgeirs
Kristjánssonar frá Finnsstöðum
Kristjánssonar frá Hóli í Kinn, en
þau höfðu reist bú að Landamóta-
seli árið 1902, sem þá var talin lít-
il jörð og niðurnídd.
Systkini Árna Friðgeirssonar
voru elst Karitas (f. 1890), gift Eið
Arngrímssyni bónda á Þóroddsstað,
Helga (f. 1893), kona Jóns Sigurðs-
sonar í Ystafelli, Hildur (f. 1895),
fyrri kona Baldurs Baldurssonar á
Ofeigsstöðum, sem dó 1923 af
barnsförum, Hólmfríður, sem dó á
öðra ári úr barnaveiki, Þórir (f.
1901), lengi gjaldkeri Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík og átti Am-
fríði Karlsdóttur frá Túnsbergi á
Húsavík, en Þórir er enn á Húsa-
vík, Einar (f. 1903), bóndi í Engi-
hlíð, nýbýli úr landi Þórodsstaðar,
en kona hans var Hulda Baldvins-
dóttir frá Ófeigsstöðum, og Ingimar
(f. 1908), sem bóndi var á Þórodds-
stað, nú búsettur á Akureyri.
Árið 1916 fluttist Árni með for-
eldrum sínum og systkinum frá
Landamótaseli að Þóroddsstað í
Kinn, er faðir hans tók staðinn á
leigu þegar Þóroddsstaður var niður
lagður sem prestsetur, og bjó Frið-
geir þar til dauðadags. Árni Frið-
geirsson ólst upp hjá foreldram sín-
um til ársins 1932 að hann settist
í Menntaskólann á Akureyri og tók
þaðan gagnfræðapróf árið 1935
með hárri fýrstu einkunn. Um
haustið settist Árni í stærðfræði-
deild skólans en hætti námi og sett-
ist í Garðyrkjuskóla ríkisins að
Reykjum í Ölfusi og lauk þaðan
prófi 1941. Eftir það vann hann við
garðyrkjustöð að Nesjavöllum í
HLUTAVELTA. — Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða
krossi íslands og söfnuðu 2.107 krónum. Þær heita Ingibjörg Ösp Óttars-
dóttir og Ingibjörg Guðmundsdóttir.
HLUTAVELTA. — Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða
krossi íslands og söfnuðu 1.000 krónum. Þær heita Margrét Hrefna Rík-
harðsdóttir og Elsa Blöndal Hjaltadóttir.
HLUTAVELTA. — Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum og söfnuðu 1.207 krónum. Þær heita Hrand Ólafs-
dóttir, Hildur Knútsdóttir og Ragnhildur Gyða Magnúsdóttir.
Grafningi, stundaði unglinga-
kennslu á Svalbarðsströnd og var
bryti við Laugaskóla í Reykjadal
veturinn 1942 til 1943, en réðst
þaðan. sem bryti og ráðsmaður við
Menntaskólann á Akureyri haustið
1943, er Stefán Gunnbjörn Egilsson
frá Laxamýri lét af störfum.
Árið 1972 tók Árni við starfi
gjaldkera Menntaskólans á Akur-
eyri, og enn starfar hann í skrif-
stofu skólans og hefur því verið
starfsmaður skólans 50 ár eða leng-
ur en nokkur annar og starfað und-
ir stjórn allra skólameistara, sem
setið hafa við skólann síðan
Menntaskólinn á Akureyri fékk
réttindi til að brautskrá stúdenta.
Árni hefur unnið skólanum bæði
vel og lengi og hefur tekið til hendi
þar sem þurfti og unnið flest störf
við skólann nema að kenna, og má
segja að Árni sé orðinn eitt af sam-
einingartáknum norðanstúdenta,
því að allir muna Árna Friðgeirsson.
Hinn 14. september 1950 gekk
Árni að eiga Kristínu Benedikts-
dóttur frá Vöglum í Hrafnagils-
hreppi. Kjörsonur þeirra er Ingimar
(f. 1961), kennari við Verkmennta-
skólann á Akureyri. Ingimar Árna-
son er kvæntur Sigurlínu Jónsdótt-
ur frá Dalvík og eiga þau tvö börn,
Kristínu og Árna, sem eru sólar-
geislar í lífi Árna Friðgeirssonar.
Kristín Benediktsdóttir andaðist 24.
júlí 1976 eftir harða sjúkdómslegu.
Gott var að koma á heimili þeirra
Stínu og Árna, þar sem tekið var
á móti fólki af ljúfmennsku, stund-
um af gustmikilli glaðværð en ávallt
af mannlegri hlýju. Á þeim árum
fannst mér ég stundum sitja ein-
hvers staðar á bak við heiminn þeg-
ar ég sat í eldhúsinu hjá þeim, svo
undra nærri hinu iðandi lífi en þó
í skjóli þar sem önnur lögmál giltu
en sá tími setur, sem ávallt er að
hlaupa frá okkur.
Eftir að Stína dó, lagðist Árni í
ferðalög og hefur gert víðreist bæði
vestanhafs og austan og haft mikla
ánægju af, auk þess sem hann hef-
ur alla tíð lagt rækt við söfnunar-
eðli sitt í „frímerkjamafíunni“ á
Akureyri, eins og hann kallar þenn-
an félagsskap nokkurra norð-
lenskra sæmdarmanna sem hittast
á síðkvöldum allan veturinn að
skoða frímerki og mynt sína.
Enn er Árni Friðgeirsson ungleg-
ur og ern, þótt heyrnin sé örlítið
farin að dofna — enda heyrt margt.
Hann fylgist með framvindu heims-
mála og þróun landsmála af miklum
áhuga sem fyrr og hefur skoðun á
málum. Sú skoðun hefur mótast af
langri sambúð við land og lýð, og
honum er í merg borinn trúnaður
við land sitt og þjóð, sem við bænd-
ur höfum margir haft og haldið
hefur lífinu í þessari þjóð í þúsund
ár. Sú nýtísku skoðun að íslending-
ar eigi að lúta tilskipunum stjórn-
valda suður á Vallandi og kaupa
smjör frá Hollandi og kjöt frá Spáni
er honum því ekki að skapi.
Á þessu merku tímamótum vil
ég færa Árna ráðsmanni bestu
hamingjuóskir og þakkir fyrir allt
hið mikla og góða starf, sem hann
hefur unnið Menntaskólanum á
Akureyri í hálfa öld og fyrir vináttu
hans um áratuga skeið.
Tryggvi Gíslason.
fSSjHDE
■MsMíþm
Þýsk gæðavara
Teg. 1406. St. 35-43. Verð kr. 3.390,-
Teg. 1502. St. 39-47. Verð kr. 3.280,-
ÚTILÍFf
CLÆSIBÆ . SÍMI S12922
GIRÐINGAREFNI
í ÚRVALI
MR búðin*Laugavegi 164
sími 11125 »24355
ERTU AÐ BYGGJA - VILTU BREYTA - PARFTU AÐ BÆTA
ÚTIMÁLNING 15—20% afsláttur
DÆMI; Steintex 10 Itr. Allirlitir
Verö áður kr. 6.099,- NÚ kr. 4.879,-
ÞAKMÁLNING15—20% afsláttur
DÆMI: Þol þakmálning 20 Itr. Jarðrautt.
Verö áður kr. H.ZOB.-JIÚJa^jJjOaSj-
FÚAVARNAREFN115% afsláttur
DÆMI: Kjörvari 4 Itr. Allir litir.
Verð áður kr. 2.511núKRjZJM,-
GRASTEPPI M/TÖKKUM 15% afsláttur
Verð áður kr. OBO.-JIÚJavjœa^
ÓDÝRU STÖKU TEPPIN
fyrir parketið, flísarnar og í sumarbustaðinn
DÆMI: Sarah 160x230^^^4^921^
laugardag 10 til 13
Sunnudag 13 tíl 17
Líttu við í Litaveri
því það hefur
ávallt borgað sig
Öll íslensk málning!
- Veljum íslenskt
T5ST( E
V 5SS
RAÐGREIÐSLUR
TIL 18 MÁNAÐA
GRENSÁSVEGI 18 SÍMI 812444