Morgunblaðið - 19.05.1993, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.05.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993 33 Áttræður Árni Friðgeirsson, ráðsmaður Mennta- skólans á Akureyri Árni Friðgeirsson, fyrrum ráðs- maður Menntaskólans á Akureyri, er áttræður í dag. Trúmennska og hógværð hafa einkennt Árna Frið- geirsson alla tíð, enda þótt hvorki sé hann skaplaus maður né skoð- analaus, eins og fram getur komið í hnitmiðuðum athugasemdum hans um menn og málefni, orðum sem ekki þurfa að vera ýkja mörg, því að margmáll er Árni ekki. En orð hans eru beinskeytt, enda er Ámi Friðgeirsson afsprengi íslenska bændasamfélagsins, þar sem orðs- ins list hefur verið í hávegum höfð og virt meira en aðrar náðargáfur guðs. Árni Friðgeirsson er fæddur að Landamótaseli í Köldukinn 19. maí 1913, yngstur átta barna hjónanna Kristbjargar Einarsdóttur frá Björgum Grímssonar og Friðgeirs Kristjánssonar frá Finnsstöðum Kristjánssonar frá Hóli í Kinn, en þau höfðu reist bú að Landamóta- seli árið 1902, sem þá var talin lít- il jörð og niðurnídd. Systkini Árna Friðgeirssonar voru elst Karitas (f. 1890), gift Eið Arngrímssyni bónda á Þóroddsstað, Helga (f. 1893), kona Jóns Sigurðs- sonar í Ystafelli, Hildur (f. 1895), fyrri kona Baldurs Baldurssonar á Ofeigsstöðum, sem dó 1923 af barnsförum, Hólmfríður, sem dó á öðra ári úr barnaveiki, Þórir (f. 1901), lengi gjaldkeri Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík og átti Am- fríði Karlsdóttur frá Túnsbergi á Húsavík, en Þórir er enn á Húsa- vík, Einar (f. 1903), bóndi í Engi- hlíð, nýbýli úr landi Þórodsstaðar, en kona hans var Hulda Baldvins- dóttir frá Ófeigsstöðum, og Ingimar (f. 1908), sem bóndi var á Þórodds- stað, nú búsettur á Akureyri. Árið 1916 fluttist Árni með for- eldrum sínum og systkinum frá Landamótaseli að Þóroddsstað í Kinn, er faðir hans tók staðinn á leigu þegar Þóroddsstaður var niður lagður sem prestsetur, og bjó Frið- geir þar til dauðadags. Árni Frið- geirsson ólst upp hjá foreldram sín- um til ársins 1932 að hann settist í Menntaskólann á Akureyri og tók þaðan gagnfræðapróf árið 1935 með hárri fýrstu einkunn. Um haustið settist Árni í stærðfræði- deild skólans en hætti námi og sett- ist í Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi og lauk þaðan prófi 1941. Eftir það vann hann við garðyrkjustöð að Nesjavöllum í HLUTAVELTA. — Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands og söfnuðu 2.107 krónum. Þær heita Ingibjörg Ösp Óttars- dóttir og Ingibjörg Guðmundsdóttir. HLUTAVELTA. — Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands og söfnuðu 1.000 krónum. Þær heita Margrét Hrefna Rík- harðsdóttir og Elsa Blöndal Hjaltadóttir. HLUTAVELTA. — Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar krabba- meinssjúkum börnum og söfnuðu 1.207 krónum. Þær heita Hrand Ólafs- dóttir, Hildur Knútsdóttir og Ragnhildur Gyða Magnúsdóttir. Grafningi, stundaði unglinga- kennslu á Svalbarðsströnd og var bryti við Laugaskóla í Reykjadal veturinn 1942 til 1943, en réðst þaðan. sem bryti og ráðsmaður við Menntaskólann á Akureyri haustið 1943, er Stefán Gunnbjörn Egilsson frá Laxamýri lét af störfum. Árið 1972 tók Árni við starfi gjaldkera Menntaskólans á Akur- eyri, og enn starfar hann í skrif- stofu skólans og hefur því verið starfsmaður skólans 50 ár eða leng- ur en nokkur annar og starfað und- ir stjórn allra skólameistara, sem setið hafa við skólann síðan Menntaskólinn á Akureyri fékk réttindi til að brautskrá stúdenta. Árni hefur unnið skólanum bæði vel og lengi og hefur tekið til hendi þar sem þurfti og unnið flest störf við skólann nema að kenna, og má segja að Árni sé orðinn eitt af sam- einingartáknum norðanstúdenta, því að allir muna Árna Friðgeirsson. Hinn 14. september 1950 gekk Árni að eiga Kristínu Benedikts- dóttur frá Vöglum í Hrafnagils- hreppi. Kjörsonur þeirra er Ingimar (f. 1961), kennari við Verkmennta- skólann á Akureyri. Ingimar Árna- son er kvæntur Sigurlínu Jónsdótt- ur frá Dalvík og eiga þau tvö börn, Kristínu og Árna, sem eru sólar- geislar í lífi Árna Friðgeirssonar. Kristín Benediktsdóttir andaðist 24. júlí 1976 eftir harða sjúkdómslegu. Gott var að koma á heimili þeirra Stínu og Árna, þar sem tekið var á móti fólki af ljúfmennsku, stund- um af gustmikilli glaðværð en ávallt af mannlegri hlýju. Á þeim árum fannst mér ég stundum sitja ein- hvers staðar á bak við heiminn þeg- ar ég sat í eldhúsinu hjá þeim, svo undra nærri hinu iðandi lífi en þó í skjóli þar sem önnur lögmál giltu en sá tími setur, sem ávallt er að hlaupa frá okkur. Eftir að Stína dó, lagðist Árni í ferðalög og hefur gert víðreist bæði vestanhafs og austan og haft mikla ánægju af, auk þess sem hann hef- ur alla tíð lagt rækt við söfnunar- eðli sitt í „frímerkjamafíunni“ á Akureyri, eins og hann kallar þenn- an félagsskap nokkurra norð- lenskra sæmdarmanna sem hittast á síðkvöldum allan veturinn að skoða frímerki og mynt sína. Enn er Árni Friðgeirsson ungleg- ur og ern, þótt heyrnin sé örlítið farin að dofna — enda heyrt margt. Hann fylgist með framvindu heims- mála og þróun landsmála af miklum áhuga sem fyrr og hefur skoðun á málum. Sú skoðun hefur mótast af langri sambúð við land og lýð, og honum er í merg borinn trúnaður við land sitt og þjóð, sem við bænd- ur höfum margir haft og haldið hefur lífinu í þessari þjóð í þúsund ár. Sú nýtísku skoðun að íslending- ar eigi að lúta tilskipunum stjórn- valda suður á Vallandi og kaupa smjör frá Hollandi og kjöt frá Spáni er honum því ekki að skapi. Á þessu merku tímamótum vil ég færa Árna ráðsmanni bestu hamingjuóskir og þakkir fyrir allt hið mikla og góða starf, sem hann hefur unnið Menntaskólanum á Akureyri í hálfa öld og fyrir vináttu hans um áratuga skeið. Tryggvi Gíslason. fSSjHDE ■MsMíþm Þýsk gæðavara Teg. 1406. St. 35-43. Verð kr. 3.390,- Teg. 1502. St. 39-47. Verð kr. 3.280,- ÚTILÍFf CLÆSIBÆ . SÍMI S12922 GIRÐINGAREFNI í ÚRVALI MR búðin*Laugavegi 164 sími 11125 »24355 ERTU AÐ BYGGJA - VILTU BREYTA - PARFTU AÐ BÆTA ÚTIMÁLNING 15—20% afsláttur DÆMI; Steintex 10 Itr. Allirlitir Verö áður kr. 6.099,- NÚ kr. 4.879,- ÞAKMÁLNING15—20% afsláttur DÆMI: Þol þakmálning 20 Itr. Jarðrautt. Verö áður kr. H.ZOB.-JIÚJa^jJjOaSj- FÚAVARNAREFN115% afsláttur DÆMI: Kjörvari 4 Itr. Allir litir. Verð áður kr. 2.511núKRjZJM,- GRASTEPPI M/TÖKKUM 15% afsláttur Verð áður kr. OBO.-JIÚJavjœa^ ÓDÝRU STÖKU TEPPIN fyrir parketið, flísarnar og í sumarbustaðinn DÆMI: Sarah 160x230^^^4^921^ laugardag 10 til 13 Sunnudag 13 tíl 17 Líttu við í Litaveri því það hefur ávallt borgað sig Öll íslensk málning! - Veljum íslenskt T5ST( E V 5SS RAÐGREIÐSLUR TIL 18 MÁNAÐA GRENSÁSVEGI 18 SÍMI 812444

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.