Morgunblaðið - 19.05.1993, Side 36

Morgunblaðið - 19.05.1993, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993' + Móðir okkar, ÁGÚSTA RAGNARS, Fálkagötu 19, Reykjavík, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 17. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gunnar Ragnars, Karl Ragnars, Guðrún Ragnars. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1 b, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum 17. maí síðastliðinn. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Jóhann Óskarsson, Erna Guðlaugsdóttir, Sigurbjörg Edda Óskarsdóttir, Hörður Gíslason, Sjöfn Oskarsdóttir, Kristján Pétur Ingimundarson, Jóhanna Axelsdóttir, Þorsteinn Ingimundarson, Álfdís Gunnarsdóttir, Inga Ólöf Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, ARNDÍS KRISTRÚN KRISTLEIFSDÓTTIR, Hrafnistu, andaðist á heimili sínu 17. maí. Kolbeinn Guðmundsson, frá Kilhrauni. + BJÖRN SIGVALDASON, áður bóndi í Bjarghúsum, sem andaðist miðvikudaginn 12. maí síðastliðinn, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. maí kl. 13.30. Jóhanna Björnsdóttir, Jón M. Ámundason, Þorvaldur Björnsson, Kolbrún Steingrímsdóttir, Hólmgeir Björnsson, Jónína Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SÆMUNDUR JÓNSSON frá Bessastöðum, Öldustíg 1, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Reynistaðakirkju föstudaginn 21. maí kl. 14.00. Mínerva Gísladóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Gíslína Þórðar- dóttir - Minning Fædd 3. október 1907 Dáin 9. maí 1993 Það verða ætíð kaflaskipti í til- verunni þegar fólk hverfur af sjón- arsviðinu eftir langan dag. Lóa, eins og hún var alltaf kölluð, fæddist í Reykjavík 3. október 1907 og var tekin í fóstur af hjónunum Vilborgu Jónsdóttur og Þórði Bjarnasyni og ólst upp hjá þeim við mikið ástríki. Hún launaði þeim fóstrið og annað- ist þau til dauðadags. Ung kynntist hún mannsefni sínu, Guðmundi Jó- hannssyni blikksmið, og giftust þau árið 1931. Þau eignuðust fjögur börn, Sigríði, Borgþór, Jóhann og Svövu. Borgþór lést árið 1976, en hin lifa móður sína. Mér er minnisstætt atvik, sem gerðist á mínu heimili fyrir næstum 30 árum. Þau hjón komu í kvöld- heimsókn og Lóa kom ekki tóm- hent. í hlut dóttur minnar kom Barbie-dúkka, sem þá var nýtt leik- fang á markaðnum, hún rauk til og þakkaði Lóu fyrir og fór svo til Guðmundar, en þá sagði hann: „Það er ekkert að þakka mér, taktu bara í báðar hendurnar á henni Lóu.“ Ég skildi vel hvað hann átti við því að ég vissi að hennar mesta gleði var að gefa og vinstri höndin henn- ar vissi ekki alltaf hvað sú hægri gjörði. Þegar ég kom inn í þessa fjöl- skyldu fyrir 40 árum, þá var mikið og gott samband milli hennar og systra Guðmundar. Guðmundur átti við áfengis- vandamál að stríða allt til ársins 1950, en þá sneri hann á Bakkus og hætti allri drykkju og kom þá sólin upp á því heimili. Fjórum árum seinna stofna nokkrir félagar sam- tök áfengissjúklinga, AA. Hann helgaði samtökunum starfskrafta sína upp frá því, dyggilega studdur af henni. Hún var hversdagshetjan, sem vann öll sín störf í kyrrþey og af alúð og stóð eins og klettur að baki sínum nánustu og setti sjálfa sig aftast í forgangsröðina. Tengdafaðir minn bjó hjá okkur síðustu tíu æviárin. Þá fjölgaði sam- verustundunum með því fólki, sem var á hans aldri og gaf sér tíma til að koma í heimsókn. Lóa og Guðmundur voru í þeim hópi og samskipti okkar urðu öll nánari. Með árunum laðaðist ég að henni. Hún var vinur vina sinna, en gat líka verið óþægilega tannhvöss. Ég hef heimsótt hana nokkuð oft sein- ustu fimmtán árin, mér til gleði. Við áttum margt sameiginlegt. Við vorum báðar fæddar af mæðrum, sem sáu ekki möguleika á að veita barni sínu skjól og neyddust til að láta það frá sér. í þá daga var ekki um margt að velja. Það var kafli í lífsbókinni, sem við ræddum oft. Við ræddum líka lífsgátuna, trú- málin, gleðina, sorgina og dauðann og það sem gerir okkur að manni. Hún var vel gefin, hafði ákveðnar skoðanir og var andlega hress allt til dauðadags. Guðmundur lést 7. maí 1989, þá höfðu þau gengið saman æviveginn í rúm sextíu ár. Um það leyti var hún í miklum rannsóknum og svo var ekki um flúið að taka af henni annan fótinn. Gervifótur eða göngugrind gátu ekki hjálpað henni, því að líkaminn var farinn að bila, svo hjólastóllinn var hennar farartæki eftir það. Aldrei komst hún aftur heim á Hringbraut 58, þar sem hún hafði átt heimili alla tíð. Þá sótti hún styrk sinn í trúna á Guð, sem allt veit og skilur. Ég vissi að hún var bænheit, fylgdist náið með niðjum sínum og vinum og bað fyrir þeim. Við Hans, Katrín og Sverrir þökkum henni umhyggjuna, sam- veruna og allar fyrirbænirnar. Við óskum henni góðrar landtöku í nýj- um heimkynnum. Guð blessi börnin hennar, tengdabörn og barnabörn. Málfríður Linnet. Fjarskalega verður tilveran und- arleg og öðruvísi án hennar Lóu, mágkonu minnar. Hún var orðin 85 ára gömul, farin að líkamlegri heilsu og þráði að fá hvíld eftir lang- an og oft æði strangan starfsdag. En hún skilur eftir sig mikið tóm og söknuð í hugum okkar, ættingja hennar og vina, enda bar hún ætíð hag okkar allra fyrir bijósti. Hún fékk að sofna burt úr þessum heimi, umvafin ástúð þeirra, sem henni voru kærastir. Lóa var fædd í Reykjavík 3. októ- ber 1907 og ólst hér upp hjá vönd- uðum, góðum og trúuðum kjörfor- eldrum, sem unnu einkadótturinni mjög og vildu hag hennar sem best- an. Ekki var veraldarauði fyrir að fara á æskuheimili Lóu, en þeim mun meiri reglusemi og hófsemi. Fyrir tilstuðlan kristniboðsfélag- anna í Reykjavík og vegna utanað- komandi hvatningar sigldi Lóa til Noregs 18 ára gömul og stundaði nám við Lýðháskólann í Stavanger í tvö ár. Minntist hún skólaáranna einlægt með hlýju og virðingu. Vin- áttuböndin, sem þar voru hnýtt, slitnuðu ekki á langri ævi. Hún hélt t.d. bréfasambandi við a.m.k. eina skólasystur sína fram á síðustu ár, vissi ég. Skömmu eftir heimkomuna, árið + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, PETREA JÓNSDÓTTIR, sem andaðist hinn 14. þ.m., verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju föstudaginn 21. maí kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hinn- ar látnu, er bent á dvalarheimilið Hlíð. Elsa Jónsdóttir, Maria Jónsdóttir, Niels Jónsson, Jóhanna Helga Jónsdóttir tengdabörn og fjölskyldur. + Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KATRÍNAR MAGNEU GUÐMUNDSDÓTTUR, Stórholti 28, Reykjavik, verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 19. maí, kl. 15.00. Haukur Helgason, María Kristoffersen, Nanci Arnold Helgason, Steen Kristoffersen, Mikael Kristoffersen, Daniel Kristoffersen, Robert Kristoffersen. 1927, kynntist hún jafnaldra sínum, Guðmundi Jóhannssyni blikksmið, bróður mínum, og gengu þau í hjónaband 6. júní 1931. Þau eignuð- ust fjögur börn og eru þijú þeirra á lífi. Son misstu þau frá konu og fjórum sonum árið 1976 og mann sinn missti Lóa svo 7. maí 1989 eftir um 60 ára sameiginlega lífs- göngu. I lífi Lóu hafa svo sannarlega skipst á skin og skúrir. Margvísleg- ir erfiðleikar steðjuðu að. Bóndi hennar háði áralanga baráttu við Bakkus og leið hún og heimilið allt fyrirþað eins og gefur að skilja. En hún lét ekki hugfallast og stóðst andstreymið. Guðmundur bar sigur úr býtum í glímunni við áfengið og það tók að birta í ranni. Áfram reyndi þó á fórnfýsi henn- ar og skilning, því Guðmundur tók að hjálpa áfengissjúklingum af óbil- andi áhuga, jafnt á nóttu sem degi. Ekki var spurt hvaða dgaur var, ef einhver var hjálparþurfi. Alltaf var Guðmundur reiðubúinn að fara á vettvang. Heimilið sat á hakanum, en Lóa hélt ótrauð áfram að annast börn og bú til að hann gæti heils hugar sinnt starfi sínu, sem jafn- framt var eitt af aðaláhugamálum hans og veitti hún honum þannig ómetanlegan stuðning. Mér hefur orðið tíðrætt um erfið- leikana, en hún varð einnig mikillar gæfu aðnjótandi og hamingjusamir eru þeir einir, sem beina hug að öðru marki en hamingju sjálfra sín. Lóa var bráðvel gefin, velvirk og fljótvirk að hveiju sem hún gekk, afkastamikil húsmóðir. Hún stjórn- aði stóru heimili við þröngan húsa- kost eins og altítt var fyrr á tímum og hlúði að foreldrum sínum báðum á meðan þau þurftu á að halda. Þau létust bæði í hárri elli á heim- ili hennar. Til hins síðasta fylgdist hún grannt með öllum afkomendum sínum svo og öðrum nákomnum, gladdist yfir velgengni og hryggð- ist, ef eitthvað fór úrskeiðis. Ótalinn er enn einn ríkur þáttur í fari hennar, gjafmildin, sem var einstök og margir hafa notið. Óhætt er að fullyrða, að hún hafi verið rík alla sína lífstíð, því að það sem menn gefa er þeirra mesti auður. Síðustu tvö árin átti hún heimili sitt í Seljahlíð, vistheimili aldraðra, og naut þar einstakrar umönnunar, sem hún var þakklát fyrir og talaði oft um. Starfsfólki þar skulu færðar alúðarþakkir allra aðstandenda. Ég þakka Lóu vináttu hennar og gæði við mig og allt mitt fólk, lífs og liðið, frá fyrstu tíð og bið guð að blessa hana og ástvinum hennar minningarnar. Sigríður G. Jóhannsdóttir. Scríneðingar í blómaskrcyíiiigum við öll lickilæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími19090

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.