Morgunblaðið - 19.05.1993, Síða 38
38
rtr
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993
I i A'ir ".'Tr"H'T7)7'i i ■; ^ i v' i!1G!(i A,.'| iROM
fclk í
fréttum
IÞROTTIR
Olafur Eiríksson út-
nefndur íþróttamaður KR
Olafur Eiríksson, sundmaður,
var útnefndur íþróttamaður
KR fyrir keppnistímabilið 1992 til
1993 á aðalfundi félagsins á dög-
unum. Ólafur, sem verður tvítugur
í haust, vakti mikla athygli á
Ólympíumóti fatlaðra í Barcelona
á Spáni í fyrra, þar sem hann sigr-
aði í tveimur greinum í sínum fötl-
unarflokki og bætti Ólympíumetið
í báðum og heimsmetið í annarri.
Auk þess var hann þriðji í tveimur
greinum.
Ólafur hóf sundæfingar hjá KR
í september 1989 og hefur staðið
sig vel í keppni innan lands og
utan. í fyrra bætti hann átta ís-
landsmet í sínum flokki, en fyrir
utan glæsta sigra á Ólympíumót-
inu, sigraði hann í tveimur grein-
um á Opna Malmö mótinu og í
þremur greinum á Opna hollenska
mótinu, en varð í þriðja sæti í 200
m flugsundi á Sundmeistaramóti
íslands.
Hann var valinn íþróttámaður
ársins 1992 hjá fötluðum og var
í 8. sæti í kjöri íþróttamanns árs-
ins, sem Samtök íþróttafrétta-
manna standa að. Iþróttadeildir
KR komu með tilnefningar í kjöri
Sumum þótti Katarina ganga of
langt.
Ólafur Eiríksson, sundmaður og íþróttamaður KR 1992 til 1993, til
hægri, tekur við farandbikamum af Kristni Jónssyni, formanni KR.
íþróttamanns KR og aðalstjórn glæsilegan farandbikar sem Georg
félagsins kunngerði úrslitin á aðal- L. Sveinsson gaf félaginu á sínum
fundinum. Þá afhenti Kristinn tíma og eignarplatta.
Jónsson, formaður KR, Ólafi
IÞROTTIR
Katarina Witt
hneykslar aðdáendur
Skautadrottningin Katarina
Witt hefur vakið aðdáun
margra gegnum tíðina. Nú er hins
vegar svo komið, að sumir aðdá-
enda hennar ná ekki upp í nefið
á sér vegna hneykslunar. Orsökin
er sú, að birtar hafa verið myndir
af henni á forsíðu þýsks viku-
biaðs, þar sem hún hylur bijóst
sín með skautum. Katarina segist
vilja vekja athygli á því, að hún
sé ekki einungis íþróttahetja held-
ur sé hún líka kvenmaður. Er eitt-
hvað að því að undirstrika kven-
leikann? spyr skautadrottningin,
sem undirbýr sig nú á fullu fyrir
vetrarólympíuleikana í Lillehamm-
er.
Madonna verður að sýna á sér velsæmishliðina vilji hún koma
fram í Peking.
TÓNLEIKAR
Madonna verður
að vera siðsöm
Madonna hefur fengið boð frá
kínverska menningarmála-
ráðuneytinu um að halda tónleika
þar í landi, en ráðuneytinu er
meðal annars ætlað að ýta undir
gagnkvæm menningaleg skipti
við erlendar þjóðir. Madonnu hef-
ur verið skýrt frá því að fram-
koma og fatnaður verði að vera
innan velsæmismarka. Þar sem
henni er mikið í mun að fá að
syngja í Kína hefur hún að sögn
fallist á skilyrðin.
Haft er eftir dagblaði í Kína,
að menningarmálaráðuneytið líti
á kynþokka sem eðlilegan hlut,
en öðru máli gegni með nekt og
ósæmilega hegðan.
Fréttin um komu Madonnu
hefur að vonun vakið mikla at-
hygli Kínveija og einn aðdáandi
hennar hafði mestan áhuga á því
hvort hún kæmi fram fáklædd.
Þegar hann fékk hins vegar að
vita um reglurnar, sagði hann
með vonarrödd: „Kannski verður
hún ekki í bijósthaldara.“
Áætlað er að tónleikarnir fari
fram í Peking í lok ársins.
NAMSMENN
Leita að gestgjöfum
COSPER
—"wr~ (CJPIB
Geturðu ekki sofnað? Það er ekkert skrítið fyrst
þú eyðir nóttunum í að ganga milli íbúða og
trufla nágrannana.
Stúdentar í félagsráðgjöf í Há-
skólanum í Kiel hafa undanfar-
in ár kynnt sér félagsráðgjöf og
félagslegar aðstæður fólks í hinum
ýmsu löndum, og er það liður í
námi þeirra. Þeir hafa ferðast víða
í því sambandi, kynnt sér félags-
ráðgjöf í háskólum og á stofnunum
í viðkomandi landi og búið á meðan
hjá fólki sem starfar að félagslegum
málefnum.
Stúdentarnir í Kiel hafa nú í
hyggju að koma til Islands dagana
23. ágúst til 13. september nk., til
að kynna sér félagsráðgjöf. Þetta
er átta manna hópur, fimm konur
og þrír karlar á aldrinum 20 til 28
ára og hafa þau undirbúið sig ræki-
lega undir dvölina með því að lesa
og afla sér upplýsinga um land og
þjóð. Til að komast betur í snert-
ingu við þjóðina og kynnast þeim
félagslegu aðstæðum sem hún býr
við, óska þau sérstaklega eftir því
að búa hjá fólki sem starfar í félags-
lega geiranum, eins og til að mynda
félagsráðgjöfum, sálfræðingum,
prestum, kennurum og fleirum sem
gætu rætt þau málefni við þau. Að
vanda bjóða þeir síðan gestgjöfum
sínum til dvalar í Kiel í staðinn.
Nú er leitað að gestgjöfum á ís-
landi og þeir sem gætu hugsað sér
að hýsa einhvem af þessum ungu,
áhugasömu stúdentum og þiggja
síðan að launum boð þeirra um
dvöl í Kiel, geta snúið sér til Þóru
Magnúsdóttur sem starfar á al-
þjóðaskrifstofu háskólastigs í Há-
skóla íslands.
Stúdentar í félagsráðgjöf í Háskólanum í Kiel ásamt kennara sínum,
Peter Dentler, sem er lengst til hægri á myndinni.