Morgunblaðið - 19.05.1993, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993
ÍSHOKKÍ / ÚRSLITAKEPPNI NHL-DEILDARINNAR
GOLF
TENNIS
Góð byrjun hjá
þeim kanadísku
KR-ingarfjölmennum!
Karen á heimleið
Islandsmeistarinn í golfí, Karen
Sævarsdóttir úr Keflavík, er á
heimleið eftir að hafa stundað nám
og leikið golf í Bandaríkjunum í
vetur. Karen lék með skólaliðinu í
háskólakeppninni en um helgina
fékst úr því skorðið að skólinn henn-
ar komst ekki áfram í úrslitakeppn-
ina. Karen hefur samt leikið mjög
vel en það dugði skólaliðinu ekki
til að komast áfram. Hún varð
meðal annars í sjötta sæti á sterku
móti um fyrri helgi. Karen er vænt-
anleg til landsins í vikunni og verð-
ur því væntanlega með á öðru stiga-
mótinu í golfí sem fram fer i Leir-
unni um helgina.
Stuku-
kvöld
(karlakvöld)
verður haldið í Súlnasal Hótels Sögu
íkvöld 19.maí.
Mæting í nýju stúkunni kl. 19.00
eða úHótelSögu kl. 20.00.
Miðaverð 3.500 kr.
TORONTO og Montreal sigr-
uðu sannfærandi ífyrsta ieik
undanúrslita NHL-deildarinnar
í íshokkf og bíða Kanadamenn
spenntir eftir næstu leikjum.
Draumur þeirra er að kanadísk
lið leiki til úrslita, en Wayne
Gretzky á líka dygga stuðnings-
menn í föðurlandi sínu og viija
margir sjá hann og samherja
hans í LA Kings í efsta þrepi.
Toronto tók á móti Kings í fyrri-
nótt og réðust úrslit í þriðja
leikhluta, en heimamenn unnu 4:1.
Doug Gilmour var hetja Toronto,
gerði tvö mörk og lagði upp önnur
tvö. Gilmour skoraði fyrst fyrir Tor-
onto, en Pat Conacher jafnaði. Glenn
Anderson kom heimamönnum yfír í
þriðja hluta og Gilmour bætti öðru
marki sínu við skömmu síðar, átt-
unda mark hans í úrslitakeppninni,
en Bill Berg áti síðasta orðið með
fyrsta marki sínu í úrslitakeppninni.
Gilmour er stigahæstur í úrslita-
keppninni með 26 stig, átta mörk
og 18 stoðsendingar, en tekur ekki
í mál að sér sé líkt við Gretzky, sem
er með 24 stig. „Það má ekki setja
mig á sama stall og þann besta. Við
erum báðir að vinna okkar starf og
þetta verður löng og ströng keppni,“
sagði Gilmour, en fjóra sigra þarf
til að komast í úrslit.
Monica Seies
ar væru miklar, en ekki væri hægt
að fullyrða að batinn yrði algjör.
Seles, sem er 19 ára, varð fyrir
fólskulegri árás manns, sem stakk
hana í bakið með hnífi og gaf þá
skýringu að hún ógnaði Steffí Graf
á toppnum. Hún hefur sigrað í öllum
helstu tennismótunum nema
Wimbledon og ætlaði sér stóra hluti
þar í sumar, en áréttað var að ekk-
ert gæti breytt ákvörðuninni um
að hætta við þátttöku, jafnvel þó
hún yrði búin að ná sér að fullu.
Reuter
Barátta
Bill Berg gerði síðasta mark Toronto
gegn LA Kings, en hér fær hann óbiíð-
ar móttökur hjá Rob Blake og sam-
heijum.
keppir
ekki
Monica Seles, sem er efst á
heimsafrekalistanum í tenn-
is, tilkynnti í gær að þar sem hún
hefði ekki náð sér eftir árás, sem
hún varð fyrir á móti í Þýskalandi
fyrir skömmu, gæti hún ekki tekið
þátt í Opna franska meistaramót-
inu, sem hefst n.k. mánudag. Seles
átti titil að veija, en hún hefur sigr-
að á mótinu undanfarin þijú ár.
Talsmaður tennisstjörnunnar til-
kynnti einnig að Seles gæti ekki
verið með á Wimbledon af sömu
ástæðu, en myndi einbeita sér að
endurhæfíngunni í Colarado í
Bandaríkjunum, þar sem hún hefur
verið síðan árásin átti sér stað.
Læknir hennar sagði að framfarirn-
WQ
Aðalfundur
Aðalfundur Skagamanna - stuðningsmannafé-
hö' lags Knattspyrnufélags ÍA - verður haldinn í fé-
lagsheimili Lögreglufélags Reykjavíkur, Brautar-
holti 30, miðvikudaginn 19. maí 1993, kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
★ Gestir verða Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna,
★ Þórdís Arthúrsdóttir, ferðamálafulltrúi á Akranesi, og
★ Orri Harðarson, sem leikur og syngur nokkur lög.
★ Veitingar í boði Langasands á Akranesi.
Mætum sem flest - Nýirfélagar velkomnir.
Stjórnin.
Maxfli.
OPNA
DUNLOP MAXIFII
MÓTID í 60LFI
fer fram á Hólmsvelli í Leiru 22. og 23. maí.
Leiknar verða 36 holur meö og án forgjafar.
Mótið gefur stig til landsliðs.
Skráning í stigamótið til kl. 20 fimmtudaginn
20. maí.
Skráning í opna flokkinn til kl. 20 föstudaginn
21. maí.
Ræst út frá kl. 09.00.
Skráning í síma 92-14100.
GLÆSILEG VERÐLAUN
m
C^CWILIF
UMBOÐSAÐILI
fbroítir & tðmstundir
Þekkt italskt merki óskar eftir um-
boðsaðila á Islandi.
Þarf að hafa góð sambönd innan
fótbolta, handbolta og körfubolta.
Hafið samband við Per Stromsnes,
simi&fax 90 47 5 321515.
Gretzky sagði að lið Kings væri
ekki sambærilegt við lið Edmonton,
sem hann varð fímm sinnum meist-
ari með 1984 til 1990. „Við eigum
á brattann að sækja, en þegar ég
var með Edmonton var gert ráð fyr-
ir að við sigruðum.“
Pat Burns, þjálfari Toronto, sagði
að úthaldið hefði ráðið úrslitum.
„Það má vel vera að við séum gaml-
ir, en við erum best komnir á okkur
líkamlega og úthaldið réð úrslitum
í þriðja leikhluta."
Montreal byijaði einnig vel og
vann New York Islander 4:1, en New
York sló meistara Pittsburgh út í
átta liða úrslitum. „Við gleymdum
hvernig á að leika þennan leik á leið-
inni frá Pittsburgh til Montreal,"
sagði A1 Arbour, þjálfari New York.
„Við byijuðum ekki á neinu og luk-
um því engu. Við vorum þreyttir
eftir sjö leiki gegn Pittsburgh, en
það er engin afsökun. Við lékum
bara illa.“
Jacques Demers, þjálfari Montre-
al, var ánægður. „Eg er sérstaklega
ánægður með hugarfar minna
manna. þeir voru tilbúnir eftir að
hafa ekki leikið í viku, en venjulega
tekur um 30 til 40 mínútur að koma
öllum aftur inní leikinn eftir slíka
hvíld. En mótheijarnir verða betri í
næsta leik og við Iíka.“
IÞROTTIR
Heilsuvika
framundan
Senn er liðið ár frá því að lands-
samtökin íþróttir fyrir alla,
ÍFA, voru stofnuð á vegum ÍSÍ.
Samtökin hafa vaxið hratt á þessu
fyrsta ári og nú þegar eru félagar
orðnir um 8.000. Mörg stór verk-
efni eru á döfinni sem öll hafa það
að leiðarljósi að stuðla að bættri
heilsu þjóðarinnar.
Fyrsta stórverkefni vorsins er
heilsuvika dagana 20. til 26. maí.
Þar verða ýmsir atburðir skipulagð-
ir, tengdir næringu og hreyfingu.
Þá verður höfð samvinna við fjöl-
margra aðila um skipulagða
íþróttaviðburði, svo og kynningar á
hollu mataræði og fleiru sem snýr
að heilbrigði. Búist er við þátttöku
í heilsuvikunni um land allt og hef-
ur þetta verkefni verið kynnt öllum
íþrótta- og tómstundafulltrúm, á
öllum heilsugæslustöðvum og í öll-
um grunnskólum landsins.
Meðal atburða má nefna þátttöku
Reykjavíkurborgar og Akureýrar-
bæjar í alþjóðlegum íþróttadegi,
Hverdagsleikunum, þann 26. maí.
Hugmyndin er að heilsuvikan verði
íþróttastarfi almennings í landinu
lyftistöng og opni augu fólks fyrir
gildi hreyfingar og hollrar fæðu.
Þann 19. júní verður Kvenna-
hlaup ÍSÍ og hefur ÍFA verið falin
yfirumsjón með undirbúningi og
framkvæmd hlaupsins. Kvenna-
hlaupið hefur unnið sér sess í
íþróttaiðkun kvenna á síðustu árum
og hefur fjöldi þátttakenda aukist
ár hvert. Ráðgert er að hlaupið
verði á u.þ.b. 50 stöðum um allt
land og slegið verði þátttökumet.
Markmið samtakanna er að fá
10.000 konur til að vera með þann
19. júní nk.