Morgunblaðið - 27.05.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
5
Morgunblaðið/Kristinn
Landgræðslan fær styrk
SVEINN Runólfsson, landgræðslustjóri, tekur við styrk starfs-
mannafélags Aðalverktaka úr hendi Karls Georgs Magnússon-
ar, formanns félagsins, en Ólafur Þ. Gunnarsson, gjaldkeri
félagsins, fylgist með.
Starfsfólk Aðal-
verktaka styrkir
Landgræðsluna
„VIÐ vildum láta eitthvað gott af okkur leiða,“ sagði
Karl Georg Magnússon formaður Starfsmannafélags
íslenskra aðalverktaka en félagið ákvað að styrkja Land-
græðslu ríkisins með um 400.000 króna framlagi til
áburðarkaupa og dreifingar á svæði á Suðurnesjum.
„Við áttum sjóð sem safnað um sem unnin hafa verið á Suð-
hefur verið í af starfsmönnum í urnesjum undanfarið og við átt-
rúm tíu ár,“ sagði Karl. „Starfs- um fyrir sem svaraði til þriggja
mönnum hefur fækkað og við ferða. Okkur fannst peningunum
höfum verið að ræða hvernig vel ráðstafað, þar sem margt
fara ætti með þessa ijármuni. fyrrverandi starfsmanna býr á
Þegar fréttist af ijárhagsvand- Suðurnesjum og geta því einnig
ræðum Landgræðslunnar datt notið þeirra. Við vildum einnig
einum stjórnarmanni í hug að vekja athygli annarra á málefn-
rétt væri að styrkja hana með inu ef aðrir gætu fylgt á eftir
áburði og áburðarflugi. Menn og styrkt Landgræðsluna.“
hafa tekið eftir þessum verkefn-
Fokker-vél Flugleiða
leigð út til að spara
í innanlandsflugi
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að leigja út eina Fokker 50
vél félagsins og notast við hinar þrjár í komandi vetraráætl-
un. Ástæða þessa er taprekstur á innanlandsfluginu, en
hann nam rúmum 200 milljónum á síðasta ári.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði að fyrirtækið gripi
til þessa ráðs til að spara. „Við
erum með Fokker-vélarnar á
kaupleigu og ef við viljum fækka
í flotanum þurfum við að finna
annan leigjanda. Að því er nú
unnið og miðað við að næsta vetr-
aráætlun verði sett upp fyrir þijár
vélar. Við erum til dæmis að kanna
hvernig þessi breyting kemur nið-
ur á þjónustunni. Það snertir til
dæmis Þingeyri og Flateyri, sem
við getum sinnt með þremur vél-
um, en ekki á nógu góðum tímum,
að því er við teljum. Við leitum
því annarra leiða til að tryggja
þessum stöðum þjónustu.“
Auknar álögur
Einar sagði að um 200 milljóna
halli hefði verið af innanlandsflug-
inu í fyrra. „Með því að gera þess-
ar breytingar töpum við um 4%
farþega, en spörum verulega í
rekstrinum, þó að við getum ekki
gefið upp ákveðnar tölur í því sam-
bandi strax. Þarna ræður líka miklu
ótti manna vegna aukinnar skatt-
heimtu af innanlandsfluginu. 14%
virðisaukaskattur leggst á flugið
og þó að aðstöðugjöld séu felld nið-
ur og tryggingagjald lækki er ljóst
að skattaaukningin nemur um 80
milljónum á ári. Þeirri upphæð er
ekki hægt að velta yfir í farmiða-
verð á þessum þrengingatímum, því
þá myndum við einfaldlega missa
farþega. Jafnframt því að fækka í
flotanum ætlum við því að taka upp
viðræður við stjórnvöld um hugsan-
lega endurskoðun á þessum auknu
álögum,“ sagði Einar Sigurðsson.
*■ \s'.
LUJJ r ; i mgg8Ssm*r
l i | 1 \ i '