Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993 Athafnasemi á Akureyri _________Myndlist______________ Bragi Ásgeirsson í fjarlægð hef ég fylgst með mik- illi uppbyggingarstarfsemi á sviði myndlistar norðan heiða, en átti ekki svo gott með að trúa því með öllu. Forvitni mín var vakin og ég greip tækifærið í sambandi við vor- sýningu Myndlistarskóla Akureyrar og gerði mér ferð norður til að líta þróunina eigin augum. Það er merkilega lítil fyrirhöfn að komast til Akureyrar, en heldur þykir mér flugfarið dýrt hafi menn ekki tækifæri til að nýta sér sérfar- gjöldin. Æskilegt væri að við sem byggjum þetta fjarlæga útsker gæt- um komist til meginlandsins fyrir ámóta fjárhæð. Það mundi tengja okkur umheiminum nánari böndum en öll efnahagsbandalög. Það var kuldalegt um að litast á leiðinni norður og sjaldan hef ég séð Iandið jafn hrjúft, nákalt og litlaust, en viss form- og litræn fegurð er- þó falin- í þessum umhleypingi og meinlega sumarfrera. Myndlistarskólinn var stofnaður 1974 og á því 20 ára afmæli á næsta ári, svo að réttilega má segja “ fasteignasala < Suðurlandsbraut 14 S 678221 fax 78289 Opið laugardag 11-14 3ja-5 herb. Kríuhólar - 3ja Nýstandsett 79 fm íb. á mjög góðum kjörum m. góðum lánum. Verð 6,2 millj. Asparfell - 5 herb. Góð 130 fm tveggja hæða íb. Góð lán. Verð: Tilboð. Klapparstígur - 4ra Glæsil. 120 fm íb. tilb. u. trév., í nýju blokkinni á Völundarlóðinni. íb. er björt og rúmg. Óviðjafnanlegt útsýni. Góð greiöslukjör og mjög gott verð. Kjarrhólmi - 3ja Góð 3ja herb. 75 fm íb. Parket á gólf- um. Sameign nýuppg. Verð 6,5 millj. Einbýlis- og raðhús Vesturhús Vel hannað nýl. hús m. góðum innr. Mjög rúmg. bílskúr, auk einstaklíb. Stór- kostl. útsýni. Hagstæö lán. Nónhæð- Gbæ Erum með í sölu nokkrar 4ra herb. íb. sem afh. tilb. u. trév. Verð 7950 þús. Suðurhlíðar- Kóp. Nýtt glæsil. parhús 180 fm ásamt 27 fm bílskúr. Hús og lóð að fullu frág. 3-4 svefnherb. Skipti á ódýrari kcma til greina. Verð 14,5 millj. Einkasala. Sýnishorn úr söluskrá Borgarholtsbraut - parh. Samtún - parhús. Urðarbakki - raðhús. Grettisgata - einbhús. Rauðagerði - hæð. Ósabakki - raðhús. Hamraborg - 3ja herb. Þverholt - 3ja herb. Alhliða ráðgjöf - ábyrg þjónusta Guömundur Sigþórsson sölustjóri, Skúli H. Gíslason sölumaöur, Kjartun Rugnurs hrl. að hratt fljúgi ögurstund, ég man glögglega er ég skoðaði skólann fyrst er hann var rétt í burðarliðn- um. Nú er hann kominn í nýtt hús- næði á einum besta stað í miðbæn- um, eða Kaupvangsstræti, og hefur verið bætt við nýrri deild, sem er grafísk hönnun. Hér geta þeir norð- anmenn byggt á reynslunni að sunn- an og hafa t.d. strax í upphafi tekið tölvutæknina í þjónustu sína, en ekki sem markmið í sjálfu sér, held- ur sem hvert annað verkfæri svo sem rissblý, penna og pensil. Tölvan er hraðvirkari og skilar óaðfinnanlegu handverki, en getur aldrei keppt við skapandi kenndir. Þess vegna er mikilvægt að nemandinn nái valdi á miðlinum, en ekki tölvan á nemand- anum. Skili tölvan andlausri vinnu, er það þannig ekki hennar sök held- ur þess sem stjórnar henni. Allt er í fullum gangi í skólanum og vonandi ræktar hann sérkenni sín, en það er mjög mikilvægt að listaskólar geri það, en séu ekki reknir samkvæmt einhverjum ákveðnum staðli og með löggiltu námsmati sem er gróf móðgun við skapandi hugsun. Sú sjónræna menntun hlýtur að vera mikilvæg- ust, sem er í samræmi við nánasta umhverfi og velferð þeirra sem þar búa, en skal síður stjórnast af þörf- um fjarlægra menningarheilda. Því miður hefur eitt ár verið klippt af fornáminu eins og í MHÍ, sem veldur mörgum nemendum miklum erfiðleikum, þvi að nám á listasviði í framhaldsskólum kemur aldrei í stað markvissrar grunnþjálfunar í listaskólum. Slíkt er hrein óskhyggja rasspúðafræðinga fræðslukerfisins. Við megum ekki gleyma því hve grunnmenntunin er mikilvæg í landi, sem hefur engin stórsöfn, þar sem nemendur geta rannsakað þróun heimslistarinnar í beinu sjónmáli, það sem eitt slíkt safn hefur að geyma getur jafnast á við 50-100 brotkenndar kynningar erlendrar listar hér á landi. Hið mikilvægasta í listnámi er að kenna fólki að vinna og einbeita sér óskipt að því sem það er að gera allan daginn. Læra að meta huglæg vinnubrögð til jafns við hlutlæg. Samfelld og markviss vinnubrögð eru undirstaða árangurs í myndlist, enda árangur í ýmsum listaskólum fyrst og fremst undir framsæknum einstaklingum kominn, er bæta sér upp nám, slitið úr markvissu sam- hengi, með vinnu utan skólatíma. Ekki er mögulegt að reka lista- skóla undir stefnumörkunum „mynd í skyndi, list í hvelii", og þó þa sé auðvitað hvergi gert getur sumum fundist það er þeir líta vinnubrögðin. Á þetta er bent, vegna þess að menn verða að gera sér grein fyrir því hve myndlistarnám eitt sér gerir miklar kröfur, og að hér eigi mála- miðlanir og hóplausnir ekki heima. Einungis fáir af þeim sem leggja út í listnám verða atkvæðamiklir lista- menn, en listaskólar þykja þó ein- hveijar mikilvægustu stofnanir menningarríkja, þeir teljast rækta mjúku gildin í mannlífsflórunni, sem eru hverri þjóðfélagsheild lífsnauð- synleg. Þá vita menn líka að stuðn- ingur við listir skilar sér einnig fjár- hagslega, og hér er uppbyggingin í Þýskalandi lýsandi dæmi, því að þarlendir leggja aldrei í neitt nema að það á einhvern hátt skili arði. En menn mega svo aldrei missa sjón- ar af því, að mjúku gildin gera engu síður kröfur en þau hörðu. Framanskráð eru auðvitað ein- ungis almennar staðreyndir, en hér Verslun til sölu Til sölu er af sérstökum ástæðum tískuverslun með kvenföt, vel staðsett í Rvík. Góður lager, fallegar innrétt- ingar. Gott tækifæri til að skapa sér sjálfstæða starfsemi. EIGNASALAIM, Ingólfsstræti 8, símar 19540og 19191. Það skiptir máli að menningar- og viskuviðir landsins laufgist. Til þess þurfa sterkir stilkar að vaxa upp úr frjórri gróðurmold. Á myndinni sjást útskriftarnemar Myndlistarskóla Akureyrar 1993. er þó vel að merkja mikilvægt að menn haldi vöku sinni. Þá skulu menn minnast þess, sem fárast út af streyminu úr listaskólum, að það er einungis brot af því sem kemur úr áfangakerfinu með stúdentsprófi, svo og háskólum með hin ýmsu embættismannapróf. Menntun þess, sem að auganu eða eyranu snýr ásamt næmi skilningarvitanna ætti þó síst að vera óæðri almennri menntun í bóknámsskólum. Annars var það annað, sem var öðru fremur ástæða forvitni minnar og það er hið svonefnda Listagil, sem áður hét víst Grófargil. Þar er hvert húsið a fætur öðru undirlagt lista- starfsemi og var mér tjáð að 10 lista- menn hefðu þar vinnuaðstöðu, auk þess sem þær eru einnig íverustaður sumra. Eg kom inn í nokkrar vinnu- stofur og var mjög undrandi á því hve rúmgóðar og hentugar þær eru. Listamennirnir hafa keypt þetta rými fyrir hóflegan perúng og inn- réttað sem vinnustofur (og heimili) af miklum dugnaði, og víðast hvar er húsnæðið ekki fullfrágengið. Meira að segja er verið að innrétta listasafn og listamiðstöð, sem fyrir- hugað er að opna í ágústmánuði, en þó einungis eina hæðina til að byija með. Fullbyggt sýndist mér sem safnbyggingin muni rúma mun fleiri myndverk en Listasafn íslands (I), en málverkaeignin er auðvitað stór- um minni. Einn og einn listasalur hefur ver- ið starfræktur á Akureyri, en þeir lognast útaf, því ekki var enn grund- völlur fyrir slíka starfsemi, en þessar stórhuga framkvæmdir virðast hafa smitað út frá sér og nú eru fleiri en einn í gangi, en sumir munu þó á tilraunastiginu. Hér er mikilvægt að menn átti sig á að hið almenna rekstrarform á listhúsum, sem hér á landi tíðk- ast, hentar sennilega ekki allstaðar. Má vísa til þess að í stórborgum ytra eru virtir sýningarsalir kannski á fjórðu hæð í lyftulausum húsum, og þeir sem reka þau hugsa ekki svo mikið um almenna aðsókn held- ur þeim mun meira um umsvifín, kynna skjólstæðinga sína og að dreifa listaverkum. íslenskur listamarkaður er þannig afar einhæfur og frumstæður enn sem komið er og það hefur gefið ýmsum tækifæri til lágkúrulegra vinnubragða við dreifingu listar. Framkvæmdirnar á Akureyri eru svo risavaxnar framfarir í litlu sam- félagi, að maður hlýtur að taka ofan fyrir ráðamönnum þar, því að án velvildar þeirra hefði þetta ekki ver- ið mögulegt. Þetta er innlegg í vax- andi áhuga og skilning á listum í heiminum sem jafnvel hefur náð ein- angruðum samfélögum, þar sem minna var hugsað um mjúku gildin hér áður fyrr, en þeim mun meir um lífsbjörgina eina og sér. En náttúrlega er þetta einnig andsvar við þeim gelda miðstýrða niðursuðuiðnaði, sem nú á tímum þrengir sér jafnvel inn í hinar af- skekktustu vistarverur, og sem eins og brýtur niður mannleg gildi. Alveg tvímælalaust mun Listagil setja sérstakan svip á bæjarlífíð á Akureyri á næstu árum og fram- kvæmdirnar geta orðið allri list á landinu til góða, því að þetta smitar út frá sér og enn eru sumir lands- fjórðungarnir afskiptir. Það sem máli skiptir er að dreifa lifandi Iist um landið og frumkvæðið á ekki einungis að koma frá ríkinu eða framtakssömum listaspekúlönt- um og listamönnum á höfuðborg- arsvæðinu. Vísa má einnig til þess að aldrei hefur verið eins mikil þörf á að skipuleggja innkaup á myndlist- arverkum og dreifa þeim um landið, í skóla, stofnanir og félagsheimili. En hið mikilvægasta af öllu er að listin einangrist ekki við lands- hlutana, þótt þeir megi svo sannar- lega halda í sérkenni sín, heldur verði sameign og stolt þjóðarinnar. Sú innansveitarkróníka, sem list- iðkun hefur lengstum verið, og er þá höfuðborgarsvæðið alls ekki und- anskilið, er dragbítur á alla framþró- un. Listamenn verða að skilja að því sterkari sem heildin er, þeim mun jarðtengdari verður listin þjóðarsál- inni og af því hafa allir hag. Jafnvel listafélögin verða fljótlega að vett- vangi framapots fámennrar lista- klíku er rígheldur í völdin með allri þeirri misnotkun sem því er samfara. Sú hugmynd leitar á, hvort ekki væri upplagt fyrir okkur íslendinga, að fara að dæmi þeirra í útlandinu sem tilnefna menningarborg Evrópu. Eins og fram hefur komið, hefur það reynst sumum borgum ómæld víta- mínsprauta og gerbreytt ásjónu þeirra og má taka Glasgow sem dæmi. Árið 1996 fellur heiðurinn svo í skaut Kaupmannahafnar, og er undirbúningurinn í fullum gangi, og hyggjast borgarbúar lyfta grettis- taki ekki síður en Glasgow-búa, sem þeir reyndar vilja taka til fyrirmynd- ar og helst yfírganga. I fyrra var Madrid menningarborg Evrópu og í ár er það Antwerpen og er þar mik- ið að gerast. Hvað Kaupmannahöfn snertir hafa ráðmenn lagt því sem nemur sjö og hálfum milljarði íslenskum krónum i framkvæmdirnar, en gert er ráð fyrir að veltan sjálf hlaupi upp í hundruð milljarða. Hvernig væri nú að tilnefna menn- ingarumdæmi ársíns á íslandi með það fyrir augum að rækta innlenda menningu og innlent framtak í list og mennt. Við gætum t.d. bytjað á því að útnefna einhvern kaupstað landsfjórðunganna, t.d. ísafjörð eða Seyðisfjörð, og fært okkur svó upp á skaftið. Málið er, vel að merkja, að öll þjóðin tekur þátt í uppbyggingunni hveiju sinni og það gefur skiljanlega margfalda möguleika til viðamikilla og myndarlegra framkvæmda á hveijum stað. Til viðbótar má búast við að þetta yrði eitt sterkasta aflið til viðhalds íslenskri menningu og þjóðartungunni um leið. Morgunblaðið/Krislinn Mynd af Regínu Þórðardóttur Afkomendur Regínu Þórðardóttur leikkonu hafa fært Þjóðleikhúsinu málverk af henni að gjöf. Regína starf- aði í Þjóðleikhúsinu á annan áratug, hún var ráðin við opnun hússins 1950 og lék yfir fjörutíu hlutverk á ferli sínum þar. Myndin af Regínu er eftir Pétur Friðrik og hefur henni verið fenginn staður í Kristalssal leikhúss- ins. Ljósmyndari smellti af þegar dætur Regínu og dótt- urdætur afhentu Þjóðleikhússtjóra myndina. F.v.: Stefán Baldursson, Kolbrún Bjamadóttir, Edda Bjamadóttir, Ragnheiður og Regína Harðardætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.