Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993 Mu’k \m\m% ásxy «f Hb (ív«r íí/jíI «v«r Groundhog Day 16500 STÓRGRÍNMYNDIN DAGURINN LANGI BILI MURRAY OG ANDIE MacDOWELL í BESTU OG LANGVINSÆLUSTU GRÍNMYND ÁRSINS! Hvað myndir þú gera ef þú upplifðir sama daginn í sama krumma- skuðinu dag eftir dag, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð? Þú myndir tapa glórunni! „Klassísk grínmynd.. það verður mjög erfitt að gera betur!“ ★ ★★★★ Empire. „Bill Murray hefur aldrei veríð skemmtilegri!“ Neil Rosen, WNCN Rad- io, New York. ★ ★ ★ ★ Jeff Craig, Sixty Second Preview. Leikstjóri: HAROLD RAMIS. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ OLLSUNDLOKUÐ Sýnd kl. 5,7 og 11.10. Bönnuð innan 16 ára. HETJA ★ ★ ★ 1/2 DV ★ ★ ★ Pressan. Sýnd kl. 9. ★r ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ Stjórn RKÍ STJÓRN Rauða kross íslands. Standandi talið frá vinstri: Þórir Sigurbjörnsson, Guð- jón Einarsson, Guðmundur Smári Guðmundsson, Guðjón Magnússon, Anna Bryndís Hendriksdóttir, Bjarni Arthúrsson og Eggert Á. Sverrisson. Sitjandi talið frá vinstri: Gunnhildur Sigurðardóttir, Árni Gunnarsson, Anna Þrúður Þorkelsdóttir og Þór Halldórsson. _ Guðjón Magnússon end- urkjörinn formaður RKI „ÞÖRFIN fyrir aðstoð Rauða kross hreyfingarinnar eykst stöðugt bæði vegna náttúruhamfara og neyðar af mannavöldum. Daglega berast okkur frásagnir af hörmulegum atburðum, fjöldamorðum, pyndingum og grimmd. Það er ekki að ástæðulausu að árið 1992 hef- ur verið nefnt ár mannvonskunnar,“ sagði Guðjón Magn- ússon, formaður Rauða kross íslands, meðal annars í ávarpi sínu á aðalfundi félagsins, sem haldinn var á Hótel Lind 14. og 15. maí. Yfirskrift fundarins var: „Virðum hvert annað.“ Guðjón sagði að starf Rauða kross ísiands hefði verið öflugt á árinu. Starf- semi hans hefði styrkst bæði innanlands og utan. Hann bauð sérstaklega velkomna fulltrúa þriggja nýrra deilda RKÍ, en deildimar eru nú orðnar 50. Fulltrúar á aðalfundinum voru fleiri en nokkru sinni í sögu félagsins. Helstu mál fundarins voru lagabreyting- ar. Úr stjóm gekk Guðrún Holt, ritari, sem setið hefur í stjórn RKÍ síðan 1979. í hennar stað var kjörin Anna Bryndís Hendriksdóttir, sem kemur úr röðum Ungmenna- hreyfingar RKI. Hannes Hauksson lætur nú af starfi framkvæmda- stjóra Rauða kross íslands eftir tíu ára dygga þjónustu, fyrst sem fjármálastjóri en sem framkvæmdastjóri frá 1987. Hann tilkynnti upp- sögn sína á fyrsta fundi nýrr- ar stjórnar í gær. Hannes mun á næstu dögum taka við starfi á vegum Alþjóða- sambands landsfélaga Rauða krossins erlendis. Honum vora þökkuð heilla- drjúg störf í þágu RKÍ og óskað velfamaðar á nýjum vettvangi innan hreyfingar- innar. Framkvæmdastjóra- staðan verður auglýst laus til umsóknar innan skamms, en þar til nýr framkvæmda- stjóri verður ráðinn mun Sig- rún Ámadóttir, deildarstjóri innanlandsdeildar RKÍ, gegna starfínu. Stjórn Rauða kross ís- lands skipa: Guðjón Magnús- son, formaður, Ánna Þrúður Þorkelsdóttir, varaformaður, Árni Gunnarsson, gjaldkeri, Bjarni Arthúrsson, ritari, Eggert Ágúst Sverrisson, Guðmundur Smári Guð- mundsson, Gunnhildur Sig- urðardóttir, Guðjón Einars- son, Anna Bryndís Hendriks- dóttir, Þór Halldórsson og Þórir Sigurbjörnsson. (Fréttatilkynning) STÆRSTA BIOIÐ ÞAR SEM ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS HASKOLABIO SÍMI22140 Irínæróh vlðbrögð MICE 'AND MEN Frá sumarbúðum kirkjunnar í Heiðarskóla. Stórleikarar í frábærri mynd LOGGAN, STULKAN OG BOFINN Hverfisbófinn lánar löggunni stúlku í viku fyrir að bjarga lífi sínu. ROBERT DelMIRO er hér í óvenjulegu hlutverki. MYND SEM KEMUR Á ÓVART. Leikstjórn: JOHN McNAUGHTON. Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.10. Bönnuð innan 14 ára. Mynd byggð á sannri sögu Hópurfólks berst upp á líf og dauða að komast af eftir flugslys í Andes- fjöllum. Sýnd kl. 5, 9 og 11.15. BÖNNUÐ INNAN 16ÁRA. ★ ★ ★ „Mynd sem hik- laust er hægt að mæla með“ G.B. DV ★ ★ ★ Mbl. Sýnd kl. 5,7 ’og 11.05. Myndin hlaut þrenn Óskarsverð- laun, m.a. besti kvenleikari: EMMATHOMPSON. Chicago Suntimes. Sýndkl.9og 11.05 Síðustu sýningar. Sýnd kl. 5. Síðustu sýn Sumarbúðir kirkjunnar fyrir böm í Heiðarskóla ÆSKULÝÐSSAMBAND kirkjunnar í Reylgavíkurpróf- astsdæmum (ÆSKR) rekur sumarbúðir í Heiðarskóla í Borgarfirði í júní og júlí fyrir 6 til 12 ára börn. ÆSKR hefur undanfarin ár rekið sumarbúðir í Heiðar- skóla. Markmið sumarbúð- anna er að veita bömum hollt umhverfi og góða aðhlynn- ingu og uppfræða þau í krist- inni trú og siðum. I Heiðar- skóla er góð aðstaða til leikja, sunds og útivistar. Aðstaða til íþróttaiðkana er líka góð og hægt er að fara í heim- sókn á sveitabæi til að heilsa upp á dýrin. Á kvöldin era kvöldvökur. Dagarnir byrja og enda með bænastund og fræðst um það að lifa saman sem kristnir einstaklingar og sýna hver öðram kærleika. Flokkaskipan verður á þessa leið: 1. flokkur: 7. júní - 16. júní (6-8 ára), 2. flokkur: 21. júní-2. júlí (9-12 ára) og 3. flokkur: 5. júlí -16. júlí (9-12 ára). Inn- ritun fer fram í Bústaða- kirkju milli kl. 17 og 19 alla virka daga nema föstudaga. Hægt er að skrá börn sím- leiðis. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.