Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993 Helga Helga- dóttir — Minning Pædd 19. júní 1972 Dáin 20. mai 1993 Veturinn hefur kvatt með síðasta hretinu og Frónbúar eru þess vissir að sumarið ylji þeim sem eftir er, enda orðnir langeygir eftir sumri og hlýju. Það birtir til, og allir bíða átekta eftir sumrinu, en þá, skyndi- lega, dimmir aftur. Við fyllumst depurð haustsins, saknaðar og hryggðar og kuldinn umlykur okk- ar. Stúlka í blóma lífsins, rétt að hefja vor lífsins, er hrifín á braut á einu andartaki. Við kynntumst Helgu fyrir nokkrum árum, þegar hún og Rrist- leifur bróðir voru saman, og strax var Helga eins og ein úr fjölskyld- unni. Okkur varð einnig strax ljóst að Helga hafði alla þá kosti sem prýða góða manneskju, einlæg og heiðarleg, ætíð glöð svo það það geislaði af breiðu brosi hennar. Það er hægt að segja með sanni að hún hafi unnið hug og hjörtu allra sem kynntust henni. Helga kom nokkrum sinnum í heimsókn til okkar austur í Nes- kaupstað, og minnumst við sérstak- lega verslunarmannahelgarinnar árið 1989, þar sem hún var hrókur alls fagnaðar og einnig þegar við urðum samferða austur sumarið 1991. Eitt dæmi getum við nefnt sem sýnir hvað Helga náði til fólks. Sonur okkar, þá ekki nema tveggja ára gamall, þekkti aðeins eitt kenni- leiti í Reykjavík og það var Perlan. Hann sagði í hvert skipti sem keyrt var framhjá Perlunni, „þarna er Perlan. Þar vinnur Helga, eigum við ekki að heimsækja hana?“ Foreldrum Helgu, systkinum og öðrum aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur, og megi minningin um góða stúlku deyfa mesta sársaukann. Þegar við minnumst Helgu sjáum við fyrir okkur eitt stórt geislandi bros, og það getur enginn tekið frá okkur. Við þökkum fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast manneskju eins og Helgu. Björg, Magnús, Skarphéðinn. Með örfáum orðum langar okkur til að minnast Helgu frænku. Hún fæddist á Akranesi 19. júní 1972 og lést af slysförum 20. maí síðast- t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÍMUR EIRÍKSSON frá Ljótshólum, Drápuhlíð 42, lést á heimili sínu laupardaginn 22. maí. Jarðsungið verður frá Árbæjarkirkju föstudaginn 28. maí kl. 15.00. Ástríður Sigurjónsdóttir, Eiríkur Grimsson, Anna Grímsdóttir, Runólfur Þorláksson, og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA RAGNARS, sem andaðist 17. maí sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstu- daginn 28. maí kl. 13.30. Gunnar Ragnars, Guðríður Eiríksdóttir, Karl Ragnars, Emilia Jónsdóttir, Guðrún Ragnars, Jens B. Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, STEFANÍA GUÐBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, Norðurbyggð 24b, Þorlákshöfn, lést af slysförum mánudaginn 24. maí. Einar Bragi Bjarnason, Svanlaug Erla Einarsdóttir, Bragi Þór Einarsson. t Faðir minn, tengdafaðir og afi, VIGGÓ SIGURJÓNSSON bifreiðastjóri, Stóragerði 10, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. maí kl. 10.30. Ingibjörg Viggósdóttir, Jón Bergvinsson og börn. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs vinar míns, sonar og bróður okkar, GUNNARS RAFNS GUÐMUNDSSONAR teikara. Björgvin Gislason, Guðrún Guðmundsdóttir, Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, Jenný Erla Guðmundsdóttir, Áslaug Eva Guðmundsdóttir. liðinn. Foreldrar Helgu eru hjónin Stefanía Sigmarsdóttir og Helgi Sigurðsson. Helga ólst upp í föður- húsum á Akranesi ásamt systkinum sínum þeim Guðríði og Sigurði. Síð- ustu ár hefur hún búið í Reykjavík og stundað nám við Hótel- og veit- ingaskóla íslands. Fréttimar um að Helgu væri saknað og síðan að hún hefði fund- ist látin komu eins og reiðarslag. Okkur setur hljóð, en síðan koma allar ljúfu minningarnar fram í hugann. Fyrstu minningar Sigmars og Guðrúnar um Helgu eru úr sveit- inni hjá afa og ömmu á Skeggja- stöðum, þar sem frændsystkinin dvöldust oft saman á sumrin. Við sjáum Helgu fyrir okkur úti þar sem hún er að tína blóm til að skreyta eldhúsgluggann hjá ömmu. Blóm- vendirnir hennar Helgu voru marg- ir og þeir voru fallegri en allir aðr- ir blómvendir. Við minnumst leikj- anna með Helgu og Guðríði, bæði í sveitinni og á heimilum okkar. Eins og gengur og gerist hjá böm- um á þessum aldri urðu stundum flokkadrættir milli okkar. Þá stóðu Sigmar og Helga jafnan þétt saman um að gefa ekki hlut sinn fyrir eldri systrum. Þama var lagður gmnnur að tryggri og varanlegri vináttu okkar allra. Heimsóknir Skagafjölskyldunnar vora alltaf tilhlökkunarefni hér á Austurlandi, en vegna þess hve langt var á milli okkar var sam- bandið minna en við hefðum viljað. Leiðir frændsystkinanna lágu sam- an í Reykjavík á síðustu áram vegna skólagöngu og vinnu. Þá var vinátt- an endurnýjuð og oft glatt á hjalla. Allar minningar okkar um Helgu eru ljúfar og bjartar. Við munum aldrei gleyma bjarta brosinu hennar og tilhugsunin um það gerir okkur sorgina bærilegri. Það fór ekki allt- af mikið fyrir Helgu, en verkin hennar töluðu sínu máli. Hún var alls staðar vel liðin og dáð af félög- um og vinnuveitendum. Elsku Helga. Við erum þakklát fyrir þann stutta tíma sem við fengum að vera með þér, þú ert perla sem aldrei gleymist. Við biðjum algóðan Guð að vernda þig og blessa minningu þína. Stefanía, Helgi, Guðríður og Siggi. Á þessum erfiðu stundum biðjum við Guð að vera með ykkur og styrkja ykkur. Fegurð og birta mun fylgja minningunni um Helgu. Guðrún, Sigmar, Marta, Ásgrímur og Jóhanna. Mig langar til að minnast vin- konu minnar, Helgu, með nokkram orðum. Sagt er að þeir deyi ungir sem guðirnir elska. Já, það er ekki spurt að aldri þegar slysin eiga sér stað. Það er sárt að hugsa til þess að svo ung og lífsglöð stúlka eins og hún Helga skuli vera horfin frá okkur. Ég hef þekkt Helgu frá því ég man fyrst eftir mér. Við áttum heima hvor á móti annarri á Bjark- argrundinni og lékum okkur mikið saman. Eftir að ég fluttist til Reykjavík- ur, 6 ára gömul, minnkaði sam- bandið á milli okkar, en slitnaði þó aldrei. Það var alltaf tilhlökkunar- efni, þegar ég fór upp á Skaga til afa og ömmu, að fara og hitta Helgu, enda var það oft mitt fyrsta verk. Það vora alltáf miklir fagnað- arfundir. Við töluðum saman um allt milli himins og jarðar og áttum til með að gleyma okkur alveg. Eftir að Helga fluttist suður hitt- umst við alltaf annað slagið, oftar hringdum við þá á milli til að heyra hvor í annarri. Sambandið hélst alltaf gott þrátt fyrir miklar annir. Þegar ég hugsa til þess að ég muni ekki hitta hana Helgu fram- ar, fínn ég hve mikill missir það er. En mestur er þó missirinn fyrir fjölskylduna hennar. Elsku Helgi, Stefanía, Guðríður og Siggi, megi Guð vera með ykkur og styrkja ykkur í þessari núklu sorg. Guðrún M. Örnólfsdóttir. Sú harmafregn barst mér hinn 23. maí síðastliðinn, að Helga vin- kona mín hefði látist í umferðar- slysi. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Helgu og áttum við alla tíð góð samskipti. Helga var einstök manneskja. Það var svo bjart yfír henni og alltaf var stutt í hennar fallega bros. Hún var alltaf boðin og búin að rétta hjálparhönd. Hún gætti sonar míns og fór oft og einatt með hann með sér í Akraborgina til pössunar á Akranesi. Samskipti hennar við son minn voru einstaklega þægileg og hrifning drengsins af henni var mikil. Til merkis um það var nafn Helgu með þeim fyrstu nöfnum sem sonur minn gat sagt. Upp í huga minn kemur yndisleg- ur mánuður sem við Helga áttum saman í Danmörku sumarið 1990 er ég dvaldist hjá Soffíu systur minni. Helga var við vinnu í Dan- mörku og bjó hjá Soffíu. Þarna átt- um við góðar stundir saman. Ég minnist þess hve stutt var í kímni- gáfu Helgu og mikið var hlegið og upp á ýmsu fundið. Já, þar var glatt á hjalla, en núna hefur ský dregið fyrir sólu. Það var reiðarslag að Helga Hjónaminning Geir Ivarsson og Guðrún Ólafsdóttir Fæddur 15. september 1912 Dáinn 3. ágúst 1989 Fædd 14. maí 1915 Dáin 17. maí 1993 Og feginshugar fínn ég bilið' styttast uns fomir vinir mega aftur hittast. (Tómas Guðmundsson) Hún amma mín er komin til afa. Ég reyni að syrgja hana ekki of mikið því að ég veit að hún vildi engin tár. Hún vildi ekki að við grétum þótt hún færi. Hún vildi að við gleddumst yfir því að henni liði ekki lengur illa. Gleddumst yfir því að hún og afi eru saman á ný. Þannig var það alltaf. Hún og afí. Tvö orð sem ávallt vora nefnd í einni svipan; tvær persónur sem tilheyrðu hvor ánnarri. Ég var sVo lánsöm að fá að kynnast þessum hjónum og fyrir það verð ég ævin- lega þakklát. Afi minn Geir ívarsson var fædd- ur árið 1912 í Sölkutóft á Eyrar- bakka. Sökum veikindá móður hans var hann látinn í fóstur til fjar- skyldra ættingja ungabarn að aldri og þaðan fórhann ekki fyrr en sem ungur maðúr í atvinnuleit. Leiðin lá norður í síldina á Siglufírði þar sem hann kynntist ömmu minni, Guðrúnu Ólafsdóttur, sjómanns- dóttur úr Brekku í Glerárþorpi, nærri Akureyri. Þau keyptu Stein- holt og fóru að hokra. Oft var þröngt í búi og matur af skomum skammti en hjónin undu glöð og ólu upp sín börn. Elstur var Gunn- ar, en hann drukknaði ungur að áram ókvæntur og barnlaus, Þá skyldi vera hrifin á brott frá okkur. Spurningar um lífíð og tilveruna koma upp í huga minn og ég velti því fyrir mér hver það sé sem ræð- ur um tilvist okkar hér á jörðu og ég fyllist mikilli reiði í hans garð. Hvers vegna er hún tekin frá okk- ur, þessi ljúfa manneskja? Það má vera að maður sé bara eigingjarn. Þegar ég svo hugsa mig betur um er ég þess fullviss að Helgu hefur verið ætlað göfugt verk þar sem hún er nú. Ég votta foreldrum Helgu, systur og bróður, svo og öllum ættingjum hennar og vinum mína dýpstu sam- úð. Megi Guð styrkja ykkur í sorg- inni. Kristín. Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá hug þinn aftur og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þin. (Kahlil Gibran.) Föstudaginn 21. maí fengum við þær fréttir, er við mættum til vinnu, að Helgu væri saknað. Vjð tóku langir dagar vonar og ótta. Það var svo á sunnudeginum að við fengum þær fregnir að Helga væri fundin, en gleðin var skamvinn því að okk- ur var jafnframt sagt að hún væri ekki lengur á meðal okkar. Það hefði fáa grunað það hinn 18. júní 1991’þegar við hófum nám í Perlunni, að tæpum tveimur áram síðar yrði jafn stórt skarð höggvið í hópinn og nú hefur orðið. Við sem byrjuðum að vinna saman þennan dag, vorum mörg nýgræðingar í greininni, öll spennt að heíja störf á nýjum stað með nýju fólki. Það kom fljótt í ljós hvaða mann Helga hafði að geyma því að hún sást aldrei skipta skapi þótt vinnu- tíminn væri oft langur og erfiður. Því meira sem var að gera því ein- beittari varð Helga, en loks þegar látunum linnti birtist bjarta brosið hennar og gert var grín að því sem miður hafði farið um kvöldið. Þannig mun Helga lifa í minn- ingu okkar sem glaðleg, lífsglöð, en umfram allt traustur vinur. Megi Guðs blessun fylgja Helgu á nýjum og ókunnum vegum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Að lokum viljum við senda okkar innilegustu samúðarkveðjur til for- eldra, systkina og allra sem eiga um sárt að binda á þessum sorgar- tíma. Megi góður Guð blessa ykkur öll. Kristín Óladóttir, Gerður Gunnarsdóttir. Á stundu sem þessari koma góð- ar minningar um yndislega stúlku upp í huga okkari Helga er nú far- in á undan okkur til Nangijala, sem kom móðir mín, Kolbrún, og yngst- ur var ívar. Barnabörnin urðu átta og barnabarnabömin eru orðin sjö. Ég ólst nánast upp á hlaðinu hjá afa og ömmu og var því ekki göm- ul þegar ég fór að rúlla á litlu fótun- um til þess að fara í bíltúr með afa eða sníkja mér köku hjá ömmu. Og þegar ég eltist komst ég að því að meira var hægt að sækja til þeirra - þekkingu. I mínum augum vissu þau allt. Þau vora víðlesin hjón, fróð og vel gefin og það var alltaf hægt að leita til þeirra ef mig vant- aði góða bók að lesa eða þurfti að fræðast um einhverja persónu sög- unnar. Hvort sem það var Nápóleon eða Ragnheiður biskupsdóttir var víst að annaðhvort afí eða amma gat miðlað mér af þekkingu sinni. Sjómannsbömin, verkamannshjón- in, sem alla tíð strituðu fyrir sér og sínum þekktu þá gleði sem þekk- ingih elur og alla tíð var kátt í litla kotinu. Þar voru heimsmálin rædd og þjóðlífsbyltingar gerðar. Lausnir fundnar á öllum heimsins vanda- málum. En líkt og baráttuhugurinn var gleðin aldrei ljarrt þeSsum mætu hjónum. Jafnvel undir það síðasta þegar farið- var-. að draga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.