Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
Vortónleikar Tónlist-
arskólans á Húsavík
Húsavík.
VETRARSTARFI Tónlistarskól-
ans á Húsavík er nýlokið og Iauk
því með þrennum tónleikum þar
sem flestir nemendur skólans
komu fram. Nokkrar nýjungar
voru teknar upp í skólastarfinu
og má í því sambandi nefna hóp-
kennslu fyrir byrjendur á píanó
og stendur sú kennsla í 1 til 2
ár, en eftir það verða allir nem-
endur komnir með einkatíma að
hluta.
Á haustönn hófst samstarfsverk-
efni tónlistarskólans og barnaskóla,
sem nefnt er „Hljóðfæranám fyrir
alla“. Til þess að vinna þetta verk-
efni fengu skólarnir styrk úr Skóla-
þróunarsjóði, en ætlað er að verk-
efnið standi í 3 ár. Markmiðið með
þessu verkefni er meðal annars að
auka tónmenntanám og hljóðfæra-
nám nemenda í grunnskólum með
því að gefa öllum börnum í heilum
árgangi í Borgarhólsskóla tækifæri
á að kynnast hljóðfæranámi áður
en þau standa frammi fyrir þeirri
ákvörðun að hefja „hefðbundið“
hljóðfæranám eins og það fer fram
í skólanum í dag.
Nemendur hefja oft tónlistarnám með því að læra á blokkflautu.
Morgunblaðið/Silli
Nemendur við skólann í vetur
voru 248 og kennt var á 10 hljóð-
færi og stunduðu flestir nemendur
nám á blásturshljóðfæri, píanó og
gítar. Það vekur eftirtekt að enginn
nemenda stundaði nám í orgelleik,
en þörf fyrir orgelleikara í kirkjum
í dreifbýli úti á landi er mjög mikil
og svo að víða horfir til vandræða.
Fastir kennarar í vetur voru 7
auk skólastjóra, Árna Sigurbjörns-
sonar. - Fréttaritari
nn\ ^
Jogginggallar (þessir sterku) St. 128-164
Verð kr. 2490.-
Elías Snæland Jónsson hlýtur
Islensku bamabókaverðlaunin
ELÍAS Snæland Jónsson, aðstoð-
arritstjóri Dagblaðsins Vísis,
hlaut íslensku barnabókaverð-
launin á þriðjudag fyrir bók sína
Brak og brestir í samkeppni sem
rúmlega 30 höfundar tóku þátt
í. Ólafur Ragnarsson, útgefandi
og formaður sljórnar Verðlauna-
sjóðs íslenskra barnabóka, til-
kynnti val stjórnarinnar við há-
tíðlega athöfn í Foldaskólá, og
afhenti Ármann Kr. Einarsson,
rithöfundur, Elíasi síðan verð-
launin. Þetta er í 8. skipti sem
íslensku barnabókaverðlaunin
eru afhent síðan 1986 og er verð-
launaféð 200.000 krónur auk
venjulegra ritlauna.
Bókaútgáfan Vaka-Helgafell,
fjölskylda Ármanns Kr. Einarsson-
ar, Barnabókaráðið, íslandsdeild
IBBY-samtakanna og Barnavinafé-
lagið Sumargjöf standa að verð-
launasjóði íslenskra barnabóka, og
sátu fulltrúar frá þessum aðilum í
dómnefnd ásamt tveimur nemend-
um úr Foldaskóla í Grafarvogi sem
voru fulltrúar lesenda barna- og
unglingabóka. Markmið verðlaun-
anna er að stuðla að auknu fram-
boði á vönduðu íslensku lesefni fyr-
Morgunblaðið/Sverrir
Elías Snæland Jónsson tekur við íslensku barnabókaverðlaununum
úr hendi Ármanns Kr. Einarssonar, en hægra megin við þá stendur
Ólafur Ragnarsson, útgefandi.
ir æsku landsins, og hvetja penna:
færa menn til dáða á því sviði. í
ræðu sinni kvaðst Ólafur Ragnars-
son þó harma að verðlaunaveitingin
stæði að nokkru leyti í skugga þess
skatts sem lagður verður á bækur
og aðra útgáfustarfsemi 1. júlí
næstkomandi og sagðist vona að
„stjórnvöld sjái að sér og afstýri
þannig menningarslysi".
I stuttu þakkarávarpi sínu minnti
Elías Snæland á gildi þess að til
væri gott og aðgengilegt lesefni
fyrir börn og unglinga. Verðlauna-
bókin, Brak og brestir, segir frá
unglingspiltinum Hákoni sem flyst
út á landsbyggðina með atvinnu-
lausum föður sínum og lendir í
óvæntum ævintýrum, m.a. upp á
fjöllum uppi þar sem „brakar og
brestur í jökulsprungum", eins og
kom fram í kynningu á bókinni.