Morgunblaðið - 27.05.1993, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
Bankamenn mótmæla uppsögnum í Landsbankanum á útifiuicli á Lækjartorgi í dag
Rætt er um aðgerðir til að
tefja afgreiðslu í bönkum
Uppsögnum
mótmælt
STARFSFÓLK í aðalstöðvum
Landsbankans lagði niður
vinnu í 10 mínútur i gærmorg-
un til að mótmæla uppsögnum
76 starfsmanna bankans um
næstu mánaðamót. Á myndinni
sést Aniia Ivarsdóttir, formað-
ur Sambands íslenskra banka-
manna, flytja ávarp við þetta
tækifæri.
STARFSFÓLK í aðalstöðvum Landsbanka íslands lagði niður vinnu
í 10 mínútur skömmu fyrir hádegi í gær til að mótmæla uppsögn-
um 76 starfsmanna bankans frá og með næstu mánaðamótum, en
einnig voru viðstaddir trúnaðarmenn frá öðrum vinnustöðum bank-
ans. Stjórn Sambands íslenskra bankamanna heldur fund í dag þar
sem ræddar verða aðgerðir vegna uppsagnanna, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur meðal annars komið til tals að
hægja á allri afgreiðslu í bönkum eftir næstu helgi. SÍB og Félag
starfsmanna Landsbanka íslands boða til mótmælafundar á Lækjar-
torgi í dag kl. 17 með öllum starfsmönnum Landsbankans og öðr-
um bankamönnum, þar sem gerð verður grein fyrir uppsögnunum
og afstöðu félaganna til þeirra.
Bankarnir
greiða at-
vinnuleys-
isbætumar
BANKAMENN fá greiddar
atvinnuleysisbætur á sama
hátt og aðrir launþegar sem
fara á atvinnuleysisbætur, en
hins vegar greiða bankamir
bætumar í stað þess að At-
vinnuleysistryggingasjóður
greiði þær. Skrái þeir sig at-
vinnulausa sem sagt er upp
störfum, fá þeir atvinnuleys-
isbætur greiddar frá fyrsta
degi sem ráðningarsamning-
ur þeirra rennur út.
Bankamenn fá greiddar jafn-
háar atvinnuleysisbætur fyrir
hvern virkan dag og greiddar
eru hjá Atvinnuleysistrygginga-
sjóði, en það eru 2.140,64 kr.,
eða 46.387 kr. á mánuði, auk
85,63 kr. á dag fyrir hvert barn
sem er yngra en 18 ára.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sambandi íslenskra banka-
manna eru nú um 70 banka-
menn á atvinnuleysiskrá og eru
þrír af hveijum Qórum konur.
Margir þeirra verið á atvinnu-
leysisbótum síðan íslandsbanki
sagði upp starfsfólki árið 1991.
Á fundinum í aðalstöðvum
Landsbankans í gærmorgun kom
fram í máli Onnu Ivarsdóttur að
SÍB hefði á fundi með stjórn
Landsbankans í gærmorgun lagt
fram tilboð um að samningur yrði
gerður við Félag starfsmanna
Landsbanka íslands til tveggja
ára. í honum yrði tekið fram hve
mikið bankinn þyrfti að fækka
starfsfólki á næstu tveimur árum
og hve mikið þyrfti að minnka
rekstrarkostnað bankans, en þetta
tveggja ára tímabil yrði síðan not-
að til að skera rekstrarkostnaðinn
markvisst niður. Ef síðan kæmi í
ljós að markmið samningsins hefði
ekki náðst myndu bankamenn ekki
setja sig upp á móti uppsögnum
starfsfólks sem þá kæmu í kjölfar-
ið.
„Þessu tilboði hafnaði stjóm
bankans, sem skýrði frá því að
uppsagnimar yrðu ekki dregnar til
baka. Við sjáum ekki hvemig
Landsbankinn ætlar sér að vinna
á rekstrarerfiðleikum sínum með
því að segja upp þessum 76 starfs-
mönnum.
Á seinasta ári var bankinn rek-
inn með rúmlega tveggja milljarða
króna tapi og 4,2 milljarðar vora
lagðir í afskriftasjóð útlána. Eftir
okkar útreikningum munu þessar
uppsagnir skila sáralitlu í hagræð-
ingu til bankans. Kannski munu
sparast 30 milljónir, kannski 40
milljónir eða kannski 50 milljónir,
og það sér hver heilvita maður að
slíkar tölur era ekki af þeirri stærð-
Morgunblaðið/Kristinn
argráðu að þær verði til að bæta
erfiða 'stöðu Landsbankans. Til
þess þarf allt aðrar aðgerðir,"
sagði Anna.
Efast um árangur aðgerða
Hún sagði að það sem banka-
menn legðu til grandvallar því að
meiri hagræðing næðist ekki hjá
bankanum með uppsögnunum væri
einfaldlega sú staðreynd að at-
vinnuástand væri nú erfitt og því
ekki hlaupið í ný störf. Bankakerfið
þyrfti sjálft að bera greiðslur at-
vinnuleysisbóta, en þær era að öllu
leyti sambærilegar við atvinnuleys-
isbætur sem greiddar era á al-
mennum vinnumarkaði, og þannig
mætti halda þvi fram að stór hluti
þess fólks sem sagt væri upp yrði
áfram á launum hjá bankanum.
Þar sem starfsmenn Landsbankans
væru ríkisstarfs-menn féllu þeir
undir starfsmannalögin, en þar
væri kveðið á um biðlaunarétt frá
sex mánuðum og upp í eitt ár þegar
stöður væra lagðar niður, og sagði
hún að lögfræðingur SÍB væri að
kanna hvort þeir sem sagt verður
upþ ættu ekki rétt á biðlaunum
samkvæmt þessu. Ef svo væri
mætti sjá að sparnaður bankans
yrði lítill á þessu ári og því næsta.
Einnig mætti gera ráð fyrir
auknum kostnaði vegna yfirvinnu
og fjölgun veikindadaga vegna
aukins álags á þá sem ynnu hjá
bankanum. Þannig myndi innan
fárra mánaða skapast þörf á ný-
ráðningum sem kostuðu fleiri
hundruð þúsund krónur á hvern
starfsmann vegna þjálfunar. Sagði
Anna að Samband íslenskra
bankamanna gæti því ekki með
nokkru móti séð að þær aðgerðir
að reka rúmlega 7% bankamanna
í Landsbankanum kæmu til með
að skila tilætluðum árangri.
Áskorun til bankastjórnar
Á fundinum las Helga Jónsdóttir
formaður Félags starfsmanna
Landsbankans upp ályktun þar
sem segir að fundurinn mótmæli
harðlega fyrirhuguðum uppsögn-
um og skori á stjórnendur bankans
og stjórnvöld að leita annarra leiða
til að ná fram rekstrarhagræðingu
í samvinnu við starfsmenn
bankans. Sagði hún að samhljóða
þessu væru undirskriftarlistar í
gangi í öilum útibúum bankans,
og yrði mótmælunum komið á
framfæri við bankastjómina.
Ályktunin var samþykkt með
dynjandi lófaklappi þeirra sem
Ef þú ættir aö lýsa BMW myndir þú líklega nefna sportlegt útlit, afþuröa
ökuhæfni, glæsileika eða annað sem skapar þá sérstöku tiifinrvingu sem fylgir akstri
á BMW. Öryggi myndi líklega ekki bera á góma fyrr en síðar - kannski vegna þess
að flestir telja öryggi í BMW svo augljóst atriði að óþarfi sé að nefna það sérstaklega.
Traust veggrip, rétt þyngdardreifing, þaulhugsuð fjöðrun, auðveld stýring, örugg
hemlun, nægjanlegt afl við framúrakstur, þægileg ökustelling, krumpusvæði, styrktarbitar og
sjálfstrekkjandi öryggisbelti tryggja hámarksöryggi við allar aðstæöur.
Bílar í BMW-3 línunni eru meðal annars búnirglæsilegri innréttingu, kraftmiklum
vélum, samlæsingu meö þjófavörn, lituðu gleri, rafdrifnum útispeglum, þjónustutölvu,
hraðatengdu aflstýri, hæöarstillanlegum framljósum, 6 hátalara BMW
hljómkerfi og Blaupunkt útvarpstæki með þjófavörn. Hægt er að velja
um mikið úrval af öðrum búnaði.
Söludeildin er opin alla virka daga BílaUmbOÖÍð hf. Engum
kl. 8-18 og á laugardögum kl. 13-17. Krókhálsi 1, Reykjavfk, slmi 686633 líkur
Verö á BMW-3 línunni er frá kr. 1.969.000,- (Bíll á mynd er búinn ýmsum aukabúnaöi sem fáanlegur er í 3-línunni).
BMW ráöleggur: Akiö varlega.