Morgunblaðið - 27.05.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
21
Formannafundur BSRB lýsir and-
stöðu við hópuppsagnir bankamanna
Hvatt til samstarfs
um réttindi opin-
berra starfsmanna
FORMENN aðildarfélaga BSRB hvetja til víðtækrar umræðu og sam-
starfs á meðal þeirra sem starfa í almannaþjónustu um réttindi, kjör
og atvinnumál. Jafnframt lýsa þeir andstöðu við hópuppsagnir banka-
manna. Þetta var niðurstaða fundar formanna bandalagsins í gær.
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að að svo stöddu verði
þcssum umræðum haldið algerlega aðskildum frá viðræðum um gerð
kjarasamninga en hann segir að BSRB hafi ekki ákveðið hvort eða
með hvaða hætti það tæki afstöðu til þeirra samninga sem gerðir
hafa verið á almenna vinnumarkaðinum.
í ályktun formannafundarins í
gær er einnig bent á að uppsagnir
Sóknarfélaga á Landakotsspítala og
útboð á ræstingu í skólum, stofn-
unum dómsmálaráðuneytisins og víð-
ar auki enn atvinnuleysi. „Formenn
aðildarfélaga BSRB mótmæla þeirri
stefnu sem hefur verið tekin upp í
vaxandi mæli og byggir á því að
hagræða fólki út úr starfi og inn í
atvinnuleysisbiðraðir," segir í frétta-
tilkynningu frá BSRB.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
næsti samningafundur verður hald-
inn á milli BSRB og samninganefnd-
ar ríkis og sveitarfélaga og er jafn-
vel búist við að hann geti dregist
fram í næstu viku.
Fyrstu sjálfstæðu tón-
leikar Bama- og ung-
lingakóra Selfosskirkju
Selfossi.
UNGLINGAKÓR og Barnakór Selfosskirkju halda tónleika í Sel-
fosskirkju í kvöld, 27. maí'klukkan 20.30. Kórarnir hafa nokkrum
sinnum komið fram á tónleikum ásamt öðrum kórum en þetta eru
þeirra fyrstu sjálfstæðu tónleikar.
í Barnakórnum eru 8-11 ára
börn en 12-14 ára í Unglinga-
kórnum, samtals um 60 kórfélag-
ar. Barnakórinn hefur aðeins
starfað um skamma hríð en ungl-
ingarnir byrjuðu haustið 1988 sem
barnakór.
Verkefni kóranna hafa einkum
verið söngur við helgistundir á
Sjúkrahúsi Suðurlands, elliheimil-
inu og við guðsþjónustur í kirkj-
unni.
Síðustu tvö árin hefur verið
vaxandi samvinna kirkjunnar við
skólana um markvissa uppbygg-
ingu söngþjálfunar yngstu kyn-
slóðarinnar á Selfossi. Organistinn
hefur verið undirleikari á æfingum
yngsta kórs skólans en tónmenn-
takennari eldri barnanna hefur
starfað ásamt honum við þjálfun
beggja kóranna í kirkjunni.
Á efnisskránni eru bæði einfald-
ar raddsetningar við hæfi byijenda
svo og fjölrödduð verk með og án
undirleiks. Einsöngvari, Gylfí Þ.
Gíslason, syngur með í einu lagi.
Stjórnendur og undirleikarar eru
Glúmur Gylfason og Stefán Þor-
leifsson. Aðgangur er ókeypis.
- Sig. Jóns.
m V j ■ ■ - ■ — g ÉÉÉÉl JZutanci/
ÁBURÐUR OG GRASFRÆ MR búðin*Laugavegi 164 sími 11125 >24355 Heílsuvörur nútímafólks
Morgunblaðið/Kristinn
Formannafundur BSRB
FORMENN aðildarfélaga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja héldu fund í gær þar sem lýst var and-
stöðu við hópuppsagnir bankamanna og hvatt til víðtæks samstarfs um réttindamál.
E3
&
HEWLETT
PACKARD
H P Á ISkANOI H F
<T . N
1 V A « V
PAKKI
Tækni- og tölvudeild Heimilistækja hf, í samvinnu
við Apple-umboðið, hefur ákveðið að veita sérstakan
pakkaafslátt á eftirfarandi tölvubúnaði:
TILBOÐ I
Macintosh Color Classic 4/40 MB
Innbyggður Trinitron skjár, mús, lykilborð og
Desk Writer bleksprautuprentari - Listaverð 151.140 kr.
tilboð ii VERÐ 129.000 kr.
Macintosh LCIII 4/80 MB
14" litaskjár, lykilborð, mús og Desk Writer C
lita bleksprautuprentari - Listaverð 246.080 kr.
að auki býður t&t VERÐ 199.000 kr.
PC-Tölvu og Desk Jet 500 bleksprautuprentara
Laser 486 SX 25 Mhz.4/107MB, SVGA lággeisla
litaskjá, lykilborð, mús, MS-DOS 5.0,
MS-Windows 3.1 - Listaverð 177.900 kr.
VERÐ 155.900 kr.
Verð miðast við staðgreiðslu ásamt vsk.
Tilboð þessi gilda aðeins til 1. júní n.k.
TÆKNI- OG TÖLVUDEILD
® Heimilistæki hf.
SÆTÚNl 8 • SlMI: 69 15 00
T0LWI
91
PHjJIKH
Á AÐEINS í
129.000