Morgunblaðið - 27.05.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
Gróðurhús Skógræktar ríkisins í Vaglaskógi hrundi undan snjóþunga veturinn 1990
Nýtt gróðurhús bæt-
ir aðstöðuna til muna
NÝTT tæplega 300 fermetra gróðurhús hefur verið tekið í notk-
un hjá Skógrækt ríkisins í Vaglaskógi, en það kemur í stað húss
sem hrundi undan snjóþunga veturinn 1990. Þetta nýja gróður-
hús gjörbreytir aðstöðu skógræktarmanna til hins betra, sem nú
hafa möguleika á að tvöfalda uppskeru sína því unnt er að hefja
sáningu í marslok, en húsið er með olíulofthitun. Starfsmenn í
Vaglaskógi eru um 20 talsins og stunda nokkrir bændur úr
Fnjóskadal þar hlutastarf með búskapnum.
Sigurður/skúlason skógarvörður
Skógræktar ríkisins á Norðurlandi
sagði að nýja gróðurhúsið hefði ver-
ið reist fyrra haust og var það fok-
helt um jól, en síðan um áramót
hefur verið unnið innandyra við að
koma upp búnaði og ýmsu sem til-
heyrir. Nú í vor var svo 120 þúsund
lerkiplöntum sáð í potta í húsinu,
sem seinna meir verða gróðursettar
í landgræðsluskóga á Norðurlandi.,
Tvöföld uppskera
„Við erum með olíulofthitun í
góðurhúsinu, en við það skapast sá
möguleiki að sá tvisvar sinnum, í lok
Hversdagsleikarnir
Aknreyringar
ætla sér sigur
VEÐRIÐ Iék við þátttakendur
Hversdagsleikanna á Akureyri í
gær þegar fólk þyrptist út til að
taka þátt í margvíslegum íþróttum
og leggja þannig sitt af mörkum
tii að afla bænum stiga í bæja-
keppni við Ashkelon í Israel.
Bænadagur
Akureyringar kepptu við íbúa í
Ashkelon í Israel, en úrslit verða
ekki ljós fyrr en að viku liðinni. I
Ashkelon var einhvers konar bæna-
dagur í gær en á slíkum dögum eru
ekki stundaðar íþróttir þannig að
íbúar þar fengu að fresta keppnis-
deginum um eina viku.
Á skrifstofu Hversdagsleikanna
fengust þær upplýsingar síðdegis í
gær, að mikil stemmning væri í
bænum vegna Ieikanna og greinilega
mikill áhugi. Allir þeir sem tóku þátt
í einhverri íþróttagrein í minnst 15
mínútur voru beðnir að skila inn
þátttökutilkynningu þar um og runnu
miðamir út eins og heitar lummur.
„Það er greinilegt að Akureyringar
ætla sér sigur í keppninni," sagði
starfsmaður leikanna á Akureyri í
gær.
mars og aftur í byijun júní þannig
að við getum tvöfaldað uppskeruna
ef með þarf. Áður var byijað að sá
hér í júníbyijun, en vegna frost-
hættu var ekki óhætt að byija fyrr.
Nú tekur miðstöðin af áhættuna,"
sagði Sigurður. Flatarmál gróður-
húsa í Vaglaskógi er tæplega 1.600
fermetrar og eru tvö þeirra með olíu-
lofthitun. Þröstur Eysteinsson líf-
fræðingur hefur unnið að rannsókn-
arverkefni er lýtur að kynbótum á
lerki.
Skapar vinnu
Skógrækt ríkisins í Vaglaskógi
þjónar stóru svæði, frá Hrútafirði
og að Langanesi, um 20 manns vinna
í skóginum og þá eru 3-4 starfsmenn
í Varmahlíð á vegum skógræktar-
innar. Bændur í Fnjóskadal starfa í
nokkrum mæli í Vaglaskógi með
búskap og sagði Sigurður að starf-
semin í skóginum gerði að verkum
að menn flyttu síður búferlum úr
sveitinni í kjölfar samdráttar í land-
búnaði. „Ég held því fram að starf-
semin hér haldi að mörgu leyti uppi
byggð í sveitinni, þegar draga fór
úr búskap höfðu bændur möguleika
á að fá hér hlutastarf með búskapn-
um,“ sagði Sigurður.
Starfsemin í Vaglaskógi er marg-
vísleg, plöntur eru seldar vítt og
breitt um landið, m.a. mikið til Vest-
fjarða, og þá eru einnig seldar þar
garðplöntur, nokkur sala er í tijáp-
löntum til skreytinga og einnig er
töluverð sala á arinvið. Verkefnin í
kringum þessa sölu segir Sigurður
fylla upp í daufasta tímann að vetrin-
um og geri að verkum að hægt er
að bjóða upp á nokkur heilsársstörf.
Þá má néfna að á vegum skógrækt-
arinnar er stefnt að því að gróður-
setja á bilinu 50 til 100 þúsund plönt-
ur á ári og á síðustu árum hefur
mikið verið gróðursett í tvo reiti,
Skuggabjörg í Dalsmynni og Vaglir
á Þelamörk, og einnig hefur töluvert
verið gróðursett í girðingu ofan
Kristness.
Árskógshreppur, Dalvíkurbær og Ólafsfjarðarbær
Sveitarfélögin stofna
með sér hafnasamlag
ÁRSKÓGSHREPPUR, Dalvíkurbær og Ólafsfjarðarbær ætla að
stofna með sér hafnasamlag og fór fyrri umræða um stofnsamn-
inginn fram í bæjarstjórnunum á Dalvík og Ólafsfirði á þriðju-
dag. Sveitarfélögin munu eiga og reka allar eignir hafnanna á
þessum stöðum svo og önnur hafnarmannvirki innan lögsagna-
rumdæma sveitarfélaganna. Síðari umræða um stofnsamninginn
verður að hálfum mánuði liðnum og verður hann undirritaður
fljótlega eftir það.
Sveitarfélögin hafa gert með sér
samkomulag um stórframkvæmdir á
vegum Hafnasamlags Eyjafjarðar
fyrir árin 1993-1996. Á Arskógs-
sandi er samkomulag um að lengja
bryggjuna um 70 metra auk fleiri
verkefna, en hvað Dalvíkurhöfn
varðar er gert ráð fyrir að gera lík-
antilraunir af nýjum brimvarnar-
garði og að þeim verði lokið fyrir
árslok.
Bryggjusmíði og dýpkun
í Ólafsfirði á að ljúka við nýja
þverbryggju við Norðurgarðinn auk
dýpkunar bæði við nýju bryggjuna
og viðhaldsdýpkun. Þá er ráðgert
að rífa gamla steinbryggju. Fram-
kvæmdir í Ólafsfirði verða boðnar
út í tvennu lagi, annars vegar dýpk-
un og hins vegar bryggjusmíði.
Á næsta ári er síðan ráðgert að
þjóða út byggingu brimvamargarðs
á Dalvík þannig að framkvæmdir
gætu hafist um mánaðamótin maí
og júní.
Á árunum 1995 til 1996 er á fram-
kvæmdaáætluninni gert ráð fyrir að
gert verið stálþil á Norðurgarð í
Dalvíkurhöfn, steyptar verði þekjur
í Ólafsfirði og Árskógi og gijótvam-
ir verði styrktar á Dalvík og Ólafs-
firði.
Ný brú
Þá eru ótalin öll þau störf sem
inna þarf af hendi í tengslum við
ferðafólk sem í miklum mæli heim-
sækir skóginn að sumrinu. Að með-
altali eru skráðar um 15 þúsund
gistinætur í Vaglaskógi yfir sumar-
mánuðina, en Sigurður taldi að
meira en helmingi fleiri gestir hefðu
viðdvöl í skóginum í skemmri ferða-
lögum.
í sumar verður byggð ný brú yfir
Fnjóská og aðkoma í Vaglaskóg
verður um Stórahvamm gegnt Hró-
arstöðum. í framtíðinni sagði Sig-
urður að fyrirhugað væri að reisa á
því svæði þjónustumiðstöð fyrir
ferðamenn og í kjölfarið sköpuðust
möguleikar á að skipuleggja starf-
semi á útivistarsvæðum meira en
nú er unnt að gera.
Lokað um hvítasunnuna
Tjaldsvæðin í Vaglaskógi verða
lokuð um hvítasunnuhelgina, en Sig-
urður sagði að síðustu daga hefðu
unglingar og fleiri mikið hringt til
að spyijast fyrir. Skógurinn væri
ekki tilbúin enn og á þessum tíma
væri mikil eldhætta vegna þurrka,
en að líkindum yrði svæðið opnað
aðra helgina í júní.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Nýtt gróðurhús
ÞORGERÐUR Sigurgeirsdóttir og Sigurður Skúlason skógarvörður
í nýju gróðurhúsi Skógræktar ríkisins í Vaglaskógi.
Hundaræktarfélagið gagnrýnt
fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð
GREINT er frá því í fyrsta tölublaði fyrsta árgangs nýs fréttablaðs
um hunda, Voff!, að forsvarsmenn Hundaræktarfélags íslands hafi
hafið aðför að Sigríði Pétursdóttur hundadómara á þeim forsendum
að hún sé í forsvari fyrir óánægjuraddir innan félagsins. Sigríður sagði
að þvi færi fjarri að hún hygðist standa fyrir stofnun nýs félags um
hundarækt. Aðalfundur Hundaræktarfélagsins verður haldinn í kvöld
og sagði Guðrún Guðjohnsen, formaður, að enginn óróleiki væri í kring-
um félagið að henni vitandi. Hugsanlega væri einhver taugaóstyrkur
vegna yfirvofandi kosninga/Guðrún sagði Sigríði hugsanlega hafa
brotið í bága við siðareglur hundadómara og stjórnin hafi spurst fyrir
um það hjá norskum kollegum sínum.
í Voffi! segir að Sigríður Péturs-
dóttir sé komin á höggstokkinn og
að Hundaræktarfélagið hafi hafið
hausaveiðar. .Eins og segir í grein
eftir Jóhönnu Harðardóttur: „Marga
ómerkilega aðförina að félögum
HRFÍ hefur maður séð um dagana
en enga í líkingu við þessa. Sérstak-
lega þar sem vitað er að sjálfur for-
maður félagsins á heiðurinn af þess-
um gjömingi. Hún skirrist ekki við
að nota erlend sambönd sín til að
bera félaga HRFÍ þungum sökum,
væntanlega til þess að ræna þá ær-
unni innanlands sem utan.“
Að sögn Sigríðar Pétursdóttur
snýst deilan annars vegar um starf-
rækslu deildar innan félagsins sem
geri eigendum hunda, sem ekki hafa
náð tilteknum fjölda svo stofna megi
fyrir þá sérstaka deild, kleift að
starfa saman og hins vegar um
starfshætti stjómar félagsins. Hún
sagði hinsvegar að því færi fjarri að
hún ætlaði sér að standa fyrir stofn-
un nýs félags þótt hún hefði sett
fram gagnrýni.
Svipting dómararéttinda
Sigríður sagði jafnframt að stjóm
félagsins hefði verið gagnrýnd fyrir
ólýðræðisleg vinnubrögð og það að
sinna ekki þörfum félagsmanna og
taka fálega í hugmyndir um breyting-
ar sem gera þyrfti á félaginu. Sigríði
hefur borist bréf frá Norsk kennel
klub þar sem henni er gefið að sök
að hafa stofnað nýtt félag um hunda-
rækt og segir jafnframt í bréfinu að
reynist þetta rétt líti félagið slíkt at-
ferli alvarlegum augum og þar sem
hún hafí fengið dómararéttindi sín
fyrir tilstilli félagsins geti það einnig
beitt sér fyrir afnámi þeirra.
Guðrún Guðjohnsen, formaður
Hundaræktarfélags íslands sl. tíu
ár, sagði að sér væri ekki kunnugt
um óróleika í félaginu. Hún sagði
að ummæli sem höfð hefðu verið um
svokölluð deilumál væru ósönn. í
fyrsta lagi hefði stofnfundur nýs
félags verið auglýstur og að Sigríður
hefði staðið að skipulagningu hans.
Hún sagðist hafa átt erindi til Nor-
egs vegna fundar hjá hjá Nordisk
kennel union, sem fer með yfirum-
sjón hundaræktar á Norðurlöndum.
Þar segist hún hafa notað tækifærið
og innt forsvarsmenn hinna félag-
anna eftir því hvort stofnun nýs fé-
lags samræmdist siðareglum hunda-
dómara og þess vegna hafí Sigríði
verið sent umrætt bréf. Málið sé því
í athugun. Guðrún, sem aftur gefur
kost á sér til formanns, sagði enn-
fremur að þessi kosningabarátta
væri með miklum ólíkindum og skað-
aði félagið og málstað þess út á við.
Ekki hægt að tjá sig
ftjálslega í Sámi
Jóhanna Harðardóttir, sem rit-
stýrði fyrsta tölublaði Voffs!, og gefur
jafnframt kost á sér til formanns
Hundaræktarfélags íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið að það hefði
lengi verið álit félagsmanna að félag-
ið væri of miðstýrt, meðlimir þess
fengju ekki tækifæri til þess að vera
virkir. Einnig væri erfítt að fá breyt-
ingum framgengt, félagið væri ein-
faldlega of þungt í vöfum. Hún sagði
að margir væru þeiirar skoðunar að
Hundaræktarfélag íslands ætti að
vera félag eigenda allra hunda, þar
með talinna blendinga, ekki bara
fárra útvaldra. Sagði hún tímaritið
Voff! til komið vegna þess að íélags-
menn þyrðu ekki að tjá sig um mál-
efni félagsins af ótta við ofsóknir og
ekki væri vettvangur fyrir gagnrýnis-
raddir í málgagni þess, Sámi.
Jóhanna sagði það ennfremur ein-
kennilegt að formaður Hundarækt-
arfélags íslands skyldi fara utan upp
á sitt einsdæmi, án samþykkis ann-
arra stjómarmeðiima, og vekja at-
hygli formanns Norsk kennel klub,
Helge Lie, á þessum deilum og síðan
hafi hann, án samráðs við meðstjóm-
endur, sent Sigríði fyrrgreint bréf.