Morgunblaðið - 27.05.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAI 1993
23
Safnara-
sýningum
helg’ina
Frímerkjasýningin EyFRÍM ’93
verður haldin í Iþróttahöllinni um
hvítasunnuhelgina. Um 70 frí-
merkjasafnarar íslenskir og er-
lendir sýna söfn í 260 römmum.
Auk þess verða til sýnis mörg
önnur söfn, t.d. spil, pennar, lykla-
kippur, fingurbjargir, happaþrennur,
sígarettupakkar, steinar, vasahnífar
og mörg fleiri og forvitnileg söfn.
Skiptimarkaður
Skiptimarkaður verður í Iþrótta-
höllinni sunnudaginn 30. maí frá kl.
14 til 18 og þangað geta allir komið
og skipt á söfnunarefni. Þá kynnir
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar smáiðn-
að og minjagripagerð i héraðinu.
Sérstakt pósthús verður opið á sýn-
ingunni og sérstimpill gefinn út í til-
efni hennar.
Sýningin verður opin frá ki. 14 til
22 laugardaginn 29. maí, á hvíta-
sunnudag verður opið frá kl. 13 til
22 og annan í hvítasunnu, 31. maí,
verður opið frá kl. 13 til 17.
-----♦ ♦ ♦---
Vegir á Norðurlandi
Lægstu til-
boð 67 millj.
undir kostn-
aðaráætlun
VEGAGERÐ ríkisins hefur að
undanförnu opnað tilboð í fjögur
stórverk í vegagerð á þessu ári
og því næsta norðan- og norðaust-
anlands. Lægstu tilboð voru í
þremur tilvikum 56-59% en í einu
tilviki 70%. Kostnaðaráætlun allra
veganna var 173 milljónir kr. og
lægstu tilboð samtals 106 milljónir
og munar þarna því 67 milljónum.
Klæðning hf. í Garðabæ átti
lægsta tilboð í Norðurlandsveg, frá
Skútustöðum að Helluvaði í Mý-
vatnssveit. Tilboðið var 29,8 milljón-
ir sem er 57% af kostnaðaráætlun.
Vegurinn er 6,5 km að og á verkinu
að vera lokið fyrir 1. september 1994.
Vélás hf. á Egilsstöðum bauð 19,3
milljónir í Illugastaðaveg og er það
58,6% af kostnaðaráætlun. Vegurinn
er 3,7 km að lengd og á að vera
lokið 15. pktóber.
Björn Ívarsson á Hofsósi bauð
19,8 milljónir í 8,1 km á Siglufjarðar-
vegi, frá Hlíðarenda að Gröf, og er
það 56% af kostnaðaráætlun. Verki
skal lokið 1. júlí næsta sumar.
N orðausturvegur
Loks átti Ljósaland hf. á Vopna-
firði lægsta tilboð í lagningu 7,9 km
kafla á Norðausturvegi, milli Sveina
og Selár. Tilboðið var 37,4 milljónir
sem er 70% af kostnaðaráætlun.
Verkinu skal lokið 1. ágúst 1994.
LAGIÐ
SKIPTIR EKK
ÖLLU MÁLI
e n þ a ð v e rð ur a ð v e r a l amb a kj ö t
- n ú
m e ð a . m . k . 15% grill af s l œ tti
Lagið eða stærðin á grillinu þínu hefur
engin úrslitaáhrif fyrir árangurinn af
matreiðslu við glóð. En það skiptir öllu
máli að vera með rétta kjötið.
í næstu verslun færðu nú lambakjöt á
afbragðstilboði, - tilbúið beint á grillið,
- með a.m.k. 15% grillafslætti.
Notaðu lambakjöt á grillið,
meyrt og gott - það er lagið.
Beint í bústaðinn
Njóttu sveitasælunnar án þess að missa samband við vini
og ættingja.
Með stafræna símakerfinu geturðu á einfaldan hátt flutt
símtal úr vinnunni eða að heiman beint í farsímann.
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt
MOTOFtOLA
— traustur tengiliöur
>STUR OG SÍMI