Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
Swissair
varað við
RÍKISSTJÓRN Sviss sagðist í
gær hafa áhyggjur af fyrirhug-
uðum tengslum flugfélagsins
Swissair við
þijú önnur
evrópsk fiug-
félög og
krafðist þess
að fyrirtækið
benti á aðrar
hugmyndir
um framtíðar-
skipulag flug-
félagsins. Opinberir aðilar eiga
20% hlut í félaginu. Talsmaður
stjómarinnar sagði hana óttast
að sjálfstæði félagsins yrði ógn-
að. „Swissair er ekki bara eitt-
hvert gamalt fyrirtæki heldur
sjálft vörumerki landsins,"
sagði talsmaðurinn, Achille
Casanova.
Stjórnarfor-
maður Napólí
handtekinn
CORRADO Ferlaino, stjómar-
formaður ítalska knattspyrnu-
félagsins Napólí, var handtek-
inn í gær, sakaður um spill-
ingu. Hann er talinn hafa mút-
að stjómmálamönnum til að fá
verk eh Ferlaino stjórnar m.a.
verktakafyrirtæki. Ymis önnur
knattspyrnufélög, þ. á m.
Roma, Lazio, Ancona, Genúa,
Parma, Torino og Udinese,
hafa einnig orðið fyrir því að
ráðamenn félaganna hafa
flækst í spillingarmál.
Vegatollar til
umræðu
SVO gæti farið að breskir öku-
menn yrðu að greiða vegatolla
á hraðbrautum landsins, að
sögn talsmanna ríkisstjómar
íhaldsflokksins. John Mac-
Gregor samgönguráðherra úti-
lokar þó að komið verði á fót
föstum tollstöðvum, þær
myndu taka of mikið pláss.
Hann vill að notast verði við
sjálfvirk rafeindatæki í fram-
rúðum bifreiða er myndu taka
við merkjum frá sendistöðvum
við vegarkantinn og skrá þann-
ig notkunina.
Japanir
segjast ekki á
útleið
JAPAN hefur ákveðið að segja
sig ekki úr Alþjóðahvalveiðiráð-
inu, IWC, þrátt fyrir óánægju
með starf stofnunarinnar. Ma-
sami Tanabu landbúnaðaráð-
herra, er fer með hvalveiðimál
í ríkisstjóminni, sagði á þing-
fundi á mánudag að stjómvöld
hygðust reyna að notfæra sér
aðildina til að andæfa tillögu
Frakka um griðasvæði fyrir
hvali við Suðurskautslandið.
Mótmæli í Tíb-
et bæld niður
KYRRT var á yfirborðinu en
spenna undir niðri í Lhasa í
Tíbet á þriðjudagskvöld eftir
að kínverskir lögreglumenn
höfðu skotið táragasi á mót-
mælendur annan daginn í röð.
Heimildir sögðu að svo virtist
sem Kínvetjar væru staðráðnir
í að koma í veg fyrir uppreisn
gegn yfirráðum þeirra. Lög-
reglumönnum tókst ekki að
dreifa mannfjöldanum fyrr en
eftir níu klukkustundir.
Reuter.
Lamið á hjúkkum
LÖGREGLUMAÐUR í Dhaka í Bangladesh slær fund 3.000 hjúkrunarkvenna sem komu saman við
til hjúkrunarkonu við mótmælaaðgerðir í borginni stjórnarbyggingar og mótmæitu launakjörum og
í gær. Lögreglan reyndi að leysa upp mótmæla- slæmum aðbúnaði á vinnustað.
NATO vill skilgreina
Bosníustefnuna betur
Zagreb, Genf, Brussel, London, SÞ. Reuter.
MANFRED Wörner, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins
(NATO) vísaði í gær á bug ásökunum þess efnis að bandalagið
hefði ekki gert nóg til að stöðva átökin í Bosníu. Wörner sagði
að ábyrgðin hlyti að vera hjá Sameinuðu þjóðunum. SÞ hafa ákveð-
ið að stofna dómstól til að fjalla um mál stríðsglæpamanna í fyrr-
verandi Júgóslavíu.
Á fundi varnarmálaráðherra
NATO í Brussel var því lýst yfir
að bandalagið væri reiðubúið að
samþykkja í meginatriðum nýja
stefnu fjögurra Vesturvelda og
Rússlands um griðasvæði handa
múslimum Bosníu. Tekið var fram
að skilgreina þyrfti stefnuna betur
og sagt að markmiðið með afskipt-
um umheimsins af átökunum ætti
að vera að fá Bosníu-Serba til að
sættast á friðaráætlun Cyrus
Vance og Owens lávarðar um
skiptingu landsins milli þjóðabrot-
anna og afsala sér miklu af því
landi sem þeir hafa hertekið.
NATO mun aðeins grípa til að-
gerða að beiðni SÞ.
Öryggisráð SÞ ákvað samhljóða
á þriðjudag að koma á fót 11
manna stríðsglæpadómstól í Haag
og verður hann sá fyrsti sinnar
tegundar frá því að leiðtogar nas-
ista voru dæmdir í Nurnberg eftir
stríð. Leiðtogi Bosníu-Serba,
Radovan Karadzic, hafnaði i gær
allri samvinnu við dómstólinn.
Hátíðahöld
í tilefni orr-
ustunnar um
Atlantshafið
VARÐSKIPIÐ Týr tekur þátt í
miklum fimm daga hátíðahöldum
sem hefjast í dag í Liverpool í
Englandi í tilefni þess að 50 ár
eru liðin frá því bandamenn náðu
yfirhöndinni gegn Þjóðveijum í
orrustunni um Atlantshafið. Tug-
ir herskipa frá 16 þjóðum voru í
gær samankomin undan borginni
og var hópsigling þeirra inn á
höfnina ráðgerð í dag.
Til stóð að skipin „röðuðu“ sér
upp í gær við eyna Anglesey norður
af Wales en hvassviðri og krappur
sjór urðu til þess að nokkur skipanna
urðu frá að hverfa og leita vars. Þá
varð bandarískur tundurspillir,
Devastator, vélarvana og rak fyrir
sjó og vindum.
Á þessum slóðum söfnuðust skip
saman áður en þau héldu í mikilli
lest yfir Atlantshafið í seinna stríð-
inu. Elísabet drottning skoðaði skip-
in í gær úr drottningarsnekkjunni
Britanniu og tók við heiðurskveðju
þeirra. Maður hennar Filippus prins
var með í för og einnig Haraldur
Noregskonungur.
Nítján manna áhöfn er á varðskip-
inu Tý og mun hún taka þátt í há-
tíðahöldunum með ýmsum hætti. Þá
verður skipið almneningi til sýnis
hluta úr hátíðinni en það kom á sín-
um tíma mikið við sögu síðasta
þorskastríðsins við Breta.
Hátíðahöldin fara fram í Liverpool
því ferðum skipalestanna yfir Atl-
antshafið var stjórnað úr stjórnstöð
breska flotans þar í borg. Sjóorrust-
an stóð meira og minna í hálft sjötta
ár en almennt er miðað við að banda-
menn hafi náð yfirhöndinni í átökun-
um við þýsku kafbátana 24. maí
1943 er skip og flugvélar hröktu þá
af norðurhluta Atlantshafsins.
Öldruð kvenréttindakona og heim-
spekingur vekja áhuga á ástinni
París. The Daily Telegraph.
„KONUR eru óhamingjusamar. Það er köllun
þeirra,“ segir hún. „Ég þekkti ekki þessa
tilvitnun í Mauriac," svarar hann. „Þetta er
fallegt. Hræðilegt, en fallegt."
Svona töluðu þau saman um ástina og
bókmenntir í heilan mánuð. Þau sátu í
skugga fíkjutrés í París, það var vor í lofti,
og þeirra biðu fúlgur í frönkum fyrir útgáfu-
réttinn. Samtölin voru birt í bók sem hefur
selst í 100.000 eintaka á tveimur vikum og
orðið til þess að Parísarbúar tala nú um
fátt annað en ástina þessa dagana.
Konan er kvenréttindakonan Francoise Giro-
ud, stofnandi tímaritsins Elle, einn af stofnend-
um dagblaðsins L'Express og fyrsti ráðherra
kvennamálefna í Frakklandi á áttunda áratugn-
um. Viðmælandi hennar er heimspekingurinn
Bemard-Henri Levy, ímynd franskrar karl-
mennsku, með liðað hár og glitrandi augu. Giro-
ud er 76 ára gömul og að eigin sögn er hún
ekki lengur operationelle, eða virk kynferðis-
lega. Hann er 44 ára og eins operationel og
mögulegt er.
Giroud er hvöss í viðmóti, harðgreind og þyk-
ir enn glæsileg, klæðist vel hönnuðum og karl-
mannlegum fatnaði og gengur með svera skart-
gripi úr gulli. Levy er enginn Byron lávarður,
en samt gæddur rómantískri dulúð, náfölur í
framan, í svörtum jakka og með langa og
frammjóa fingur í gotneskum stíl.
Bókin heitir Les Hommes et les Femmes
(Karlar og konur) og í samtölunum fjalla þau
um allt sem gerist frá því karl og kona kynn-
ast og þar til þau skilja - um „ástina, hjónaband-
ið, afbrýðisemina, framhjáhöldin".
Þau byija á því að spyrja hvort annað ein-
faldra spurninga eins og: „Líkar þér við konur,
Bernard?" og „Líkar þér við karla, Francoise?"
Bæði dýrka þau auðvitað hitt kynið en, en, -
það eru bara svo mörg en. Hartnær 300 blaðsíð-
ur af þeim.
Ástin deyr ekki - víkur aðeins fyrir
annarri
Levy þykir ágætur rithöfundur og hefur skrif-
Konur óhamingjusamar
FRANSKA kvenréttindakonan Francoise
Giroud segir að konur séu óhamingjusam-
ar, það sé þeirra köllun.
að leikrit sem frumsýnt var í París nýlega.
Aðalleikkonan í leikritinu er Areille Dombasle,
og vikuritið Paris Match birti myndir af henni
og Levy þegar þau voru að æfa leikritið tvö ein
saman við ströndina. Þau voru mjög fáklædd
og myndirnar sýna að maginn á heimspekingn-
um er ekki alveg í rómantískum stíl og axlimar
harla signar. Haft var eftir hjónaleysunum að
þetta hefði verið „varanleg ást við fyrstu sýn“.
Levy hefur að minnsta kosti tvisvar áður orð-
ið svo ástfanginn og er jafnframt tvískilinn.
Þessi bitra reynsla kann að skýra afstöðu hans
til tryggðarinnar og kynferðislegra ástríðna.
Hann telur að ástríðan geti varað alla ævina
og þegar hann elski konu deyi ástin ekki, held-
ur taki aðeins ný ástríða við. Hann ætlar að
ná því að verða alvarlega ástfanginn að minnsta
kosti tólf sinnum um ævina, þótt ekki sé vitað
hvort ungfrú Dombasle viti af því. Hann trúir
ekki á platónska ást.
Óvissan um faðernið veldur óöryggi
karla
Giroud kveðst hins vegar trúa á platónska
ást, einkum á mönnum sem hún hefur áður
verið í ástríðufullu sambandi með. Hún segir
að ekki sé skynsamlegt að ætla að menn geti
orðið alvarlega ástfangnir oftaf en tvisvar eða
í mesta lagi þrisvar um ævina.
Þeir sem leita klámfenginna lýsinga í „Körlum
og konum“ verða fyrir vonbrigðum. Þetta er
allt saman afskaplega bókmenntalegt, þau tala
mikið um Madame Bovary, Proust, Scott Fitz-
gerald og Francois Mauriac, sem var „ekki mik-
ið gefinn fyrir stúlkur".
Þau skeggræða síðan hin ýmsu vandamál
karla og kvenna. „Karlmenn geta aldrei verið
vissir um faðerni sitt og það gerir þá óörugga,"
segir Giroud. „Þess vegna verða þeir að binda
konur fastar við heimilið. Ef þær leyfa þeim
það eru þær svo grunaðar um að draga allan
mátt úr mönnunum."
Levy segir að losta mannsins verði aldrei
fullnægt og Giroud kennir auglýsingastofunum
um: „Það er ekki hægt að selja kaffibolla án
myndar af konu í algleymi." „Lengi lifi naktar
konur í algleymi!" svarar Levy.
Engin stúlka er hamingjusöm
Þegar talið berst að kvenréttindum segir Giro-
ud að kynlífsbyltingin hafi orðið til þess að kon-
ur neiti að vera óhamingjusamar lengur. Levy
gerist langorður um kaffínlausar refsinomir
nútímans: „Mér hafa alltaf fundist konur án
andlitsfarða vera frekar groddalegar."
í lok bókarinnar kemur að því að þau skilja,
eins og í ástarævintýrunum. Þau eru sammála
um að þau hafi skemmt sér konunglega, en les-
andinn fær það á tilfmninguna að karlinn hafí
skemmt sér meira en konan, þótt hún sé orðin
fijáls.
„Varstu hamingjusöm sem lítil stúlka?" spyr
hann.
„Engin stúlka er hamingjusöm," svarar hún.
„í hvaða stjömumerki ertu,“ spyr frú Giroud.
„Ég þverneita að ræða stjörnumerkið mitt,“
svarar heimspekingurinn.
„Þá hlýtur þú að vera tvíburi." (Hún er meyja;
hann sporðdreki).
Ú-la-la.