Morgunblaðið - 27.05.1993, Side 25
______________________MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993 _25
Lítill munur á fylgi tveggja stærstu flokka Spánar fyrir þingkosningarnar
Baskar og Katalóníumenn
gætu komist í oddaaðstöðu
Madrid. Reuter.
Reuter
Tvísýn kosningabarátta
FELIPE Gonzales, forsætisráðherra Spánar (t.v.), og Jose Maria
Aznar, leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins, ganga inn í upp-
tökusal þar sem þeir tóku þátt í kappræðum sem sýndar voru beint
í sjónvarpi. Talið er að kappræðurnar geti ráðið úrslitum í kosningun-
um 6. júní þar sem lítill munur er á fylgi tveggja stærstu flokkanna.
SAMKVÆMT skoðanakönnunum
sem birtar voru í gær er lítill
munur á fylgi tveggja stærstu
flokka Spánar, Sósíalistafiokks-
ins, sem hefur verið við völd und-
anfarin tíu ár, og Þjóðarflokksins
(Partido Popular). Ef marka má
kannanirnar myndi hvorugur
flokkanna ná meirihluta á þinginu
og þyrftu því að leita eftir stuðn-
ingi baskneskra eða katalónskra
Sex konur
hlekkja sig
við skutla
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SEX konur á vegum umhverfis-
verndarsamtakanna Greenpeace
hlekkjuðu sig í gærmorgun við
skutulbyssur í tveimur norskum
hvalveiðibátum til að mótmæla
þeirri ákvörðun Norðmanna að
hefja hvalveiðar að nýju.
Konurnar eru frá sex löndum og
eigendur skipanna reyndu ekki að
koma þeim í burtu. Þess í stað var
konunum boðið upp á kaffi og með-
læti, en þær vildu engar veitingar
þiggja. Lögreglan sagði síðdegis að
hún ráðgerði ekki að skerast í leik-
inn. „Þetta er síðasta tækifærið fyrir
stjómina að skipta um skoðun og
stöðva hvaiveiðamar," sagði Ingrid
Berthinussen, talsmaður Greenfveace.
þjóðernissinna til að geta myndað
meirihlutastjórn.
Flokkarnir gætu neyðst til að
semja við Þjóðernisflokk Baska
(PNV) eða bandalag tveggja katalón-
skra flokka, Convergencia i Unio
(CiU). Katalóníumennirnir myndu þá
kreijast aukinnar sjálfstjórnar og
vilja meðal annars fá sama rétt og
Baskar til að ráðstafa sköttum sem
lagðir eru á í héraðinu. Báðir flokk-
arnir hneigjast til hægri en þeim
hefur hingað til gengið erfiðlega að
vinna með Þjóðarflokknum, sem hef-
ur verið harðari í andstöðu sinni við
sjálfstjórnarkröfur héraðanna en
Sósíalistaflokkurinn.
Felipe Gonzales, forsætisráðherra
Spánar og leiðtogi Sósíalistaflokks-
ins, átti í höggi við íhaldsmanninn
Jose Maria Aznar, leiðtoga Þjóðar-
flokksins, í sjónvarpskappræðum
sem sýndar voru í beinni útsendingu
á mánudagskvöld. Aðrar sjónvarps-
kappræður verða næsta mánudag og
gætu ráðið úrslitum í kosningunum
sem fram fara 6. júní.
Margir fréttaskýrendur töldu að
Aznar hefði staðið sig ívið betur en
forsætisráðherrann í kappræðunum
með snörpum árásum á efnahags-
stefnu stjómarinnar. Niðurstöður
þriggja skoðanakannanna, sem birtar
voru í gær, renna stoðum undir það.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
ar sem birtist í E1 Pais þótti 50%
áhorfenda Aznar hafa haft betur en
aðeins 21% töldu Gonzales hafa sigr-
að. í blaðinu La Vanguardia í Barcel-
ona sögðu 42,5% Aznar hafa sigrað
en aðeins 18,4% töldu Gonzales hafa
haft betur. í könnun stjórnarand-
stöðublaðsins El Mundo stóðu 49,8%
með Aznar en 28,4% með forsætis-
ráðherranum.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu Spán-
ar sem tveir helstu keppinautarnir í
kosningum efna til kappræðna í sjón-
varpi og talið er að 11 milljónir
manna hafi fylgst með þeim.
Spænsk dagblöð voru' flest þeirrar
skoðunar að Aznar hefði staðið sig
ivið betur en forsætisráðherrann og
nokkrum sinnum komið höggi á hann
með gagnrýni sinni á efnahagsstefnu
stjórnarinnar, þótt hann hefði ekki
bent á neinar leiðir út úr efnahags-
vandanum. Forsætisráðherrann hefði
átt í vök að veijast í fyrri hluta kapp-
ræðnanna þegar fjallað var um efna-
hagsmálin en staðið sig betur þegar
rætt var um velferðar- og utanríkis-
mál.
STIGA PARK aksturssláttu-
vélar. Sláttubúnaður að
framan. Óvenju liprar og af-
kastamiklar fjölnota vélar.
Ýmsar gerðir.
Fjölbreytt úrval af sláttuvél-
um, akstursvélum, valsavél-
um, loftpúðavélum, vélorf-
um, limgerðisklippum, jarð-
vegstæturum, mosatæturum,
snjóblásurum o.fl.
/TIGFk
HAMRABORG 1-3
KÖPAVOGl SlNll 91-641864
^Reiðhjóíó heildsoluverði!
BMX 16”
BMX 20" , „
F'iallahjól 5 gíra 20" F|allah|ol 18 gira 26
Fjallahiól 12 gíra 24" (f. dömur)
Fiallahjól 18 gíra 26"
Geisladiskar & kassettur
Q Fatnaður ★
Q Nýjar vörur á hverjum degi!
RÝMINGARSALA AF
HEILDSÖLULAGER
AHKLIG4RDUR
Hjólin eru seld ósamsett. Auðveld í samsetningu.
MARKAÐUR VIÐ SUND