Morgunblaðið - 27.05.1993, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAI 1993
31
Norrænt meinatæknamót
MEINATÆKNAFÉLAG íslands býður dagana 3. til 5. júní nk.
norrænum starfsfélögum sínum til Norjjurlandaþings meinatækna
— NML — sem að þessu sinni er haldið í þriðja sinn á Islandi.
Boðið verður upp á áhugaverða fyrirlestra um það sem efst er á
baugi í meinarannsóknum á íslandi.
Fyrirlestrarnir munu einkum
fjalla um ættgenga sjúkdóma,
, rannsóknir á konum og störf og
Hljomsveitin Plahnetan. _______________________
Tónleikar Pláhnetunnar
EINS og fram hefur komið í fjölmiðlum var síðla vetrar stofnuð
í Reykjavík ný hljómsveit, Pláhnetan. Hljómsveitin heldur útgáfu-
tónleika í Tunglinu við Lækjargötu fimmtudaginn 27. maí nk. Ald-
urstakmark er 18 ár og verður húsið opnað kl. 22.
Pláhnetumenn hafa undanfama
mánuði verið að vinna að gerð
nýrrar 12 laga geislaplötu sem
kemur út 1. júní nk.
Á föstudagskvöldið heldur
hljómsveitin til Keflavíkur og leik-
ur þar fyrir dansi í veitingahúsinu
Þotunni. Pláhnetan mun leika á
eftirfarandi tónleikum í júní: 4.
júní Tveir vinir; 5. júní Fjörðurinn
í Hafnarfirði; 11. júní Hótel ísland;
12. júní Ingóll, Selfossi; 16. júní
Við félagarnir í Vestmannaeyjum;
17. júní miðbær Reykjavíkur; 18.
júní Hótel Lækur, Siglufirði; 19.
júní Miðgarður, Skagafirði; 25.
júní Hlaðir, Hvalfjarðarströnd; og
26. júní Njálsbúð, V-Landeyjum.
Hljómsveitina Pláhnetuna skipa
Stefán Hilmarsson, Friðrik Sturlu-
son, Ingólfur Guðjónsson, Sigurður
Gröndal og Ingólfur Sigurðsson.
stöðu meinatækna, en síðast-
nefnda atriðið er jafnframt þema
þingsins. Velt verður upp spurn-
ingunum: Hvað eru meinatæknar
að fást við? Hvernig er búið að
þeim til þess að leysa verk sín sem
best af hendi og hvaða áhrif hafa
þeir á ákvarðanatöku þar að lút-
andi? Sett verður upp veggspjalda-
sýning og ýmis fyrirtæki munu
kynna tæki, áhöld og efni fyrir
rannsóknastofur. Einnig verður
mótsgestum boðið að taka þátt í
skemmtidagskrá sem skipulögð
hefur verið í tengslum við þingið.
Meinatæknafélag íslands var
stofnað í apríl 1967 og eru félags-
menn þess rúmlega 400 talsins.
Ári eftir stofnunina gerðist félagið
aðili að Samtökum norræna meina-
tækna og eru norræn þing haldin
annað hvert ár.
(Fréttatilkynning)
lauglýsingar
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjuttræti 2
Hjáípræðisherinn
( kvöld kl. 20.30 spænskt-
íslenskt kvöld á Her. Kapteinn
Mirijam Óskarsdóttir. Veitingar.
Allir velkomnir.
Flóamarkaðsbúð Hjálpræðis-
hersins, Garðastræti 2, er opin
kl. 13-18.
UTIVIST
Hallveiqarstig 1 • simi 614330
Kvoldganga
fimmtudaginn 27. maí
Fyrsta kvöldferð sumarsins
verður farin í Búrfellsgjá og verð-
ur gengið um Valaból í Kaldár-
sel. Létt ganga og góð ferð fyrir
alla fjölskylduna. Verð kr.
700/800, frítt fyrir börn 15 ára
og yngri i fylgd fullorðinna. Brott-
för kl. 20.00 frá BSl bensínsölu.
Ath. að kvöldferðirnar verða á
fimmtudögum f sumar.
Útivist.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Vakningasamkoma í kvöld kl.
20.30. Mikill söngur og beðið
fyrir sjukum.
Allir hjartanlega velkomnirl
VEGURINN
V Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Lækningasamkoma í kvöld
kl. 20.00.
Kennsla um guðlega lækningu
og fyrirbænir.
Allir hjartanlega velkomnir
„Jesús Kristur er í gær og f dag
hinn sami og um aldir."
Jíimhj
ólp
Vissir þú að allir eru velkomnir
á samkomur Samhjálpar?
I kvöld er samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.30rMikill
söngur. Þorvaldur og Rósa taka
til máls. Þú ert velkomin(n).
Samhjálp.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Hvítasunnuferðir F.í.
28.-31. maí:
1) Snæfellsnes - Snæfellsjökull.
Gist í svefnpokaplássi að Görð-
um í Staðarsveit. Jökullinn heill-
ar, en margt annað er í boði
bæði á láglendi og fjöllum.
Silungsveisla. Stutt í sundlaug.
2) Öræfajökull - Skaftafell.
Gengið á Hvannadalshnúk, 15
klst. ganga. Gist að Hofi. Göngu-
ferð og æfing í þjóðgaröinum.
3) Skaftafell - Öræfasveit -
Jökulsárlón. Snjóbílaferð á •
Skálafellsjökul f boði.
Göngu- og skoðunarferðir um
þjóðgarðinn og Öræfasveitina.
Góð gistiaðstaða í svefnpoka-
plássi eða tjöldum að Hofi.
Árbókin 1993: Við rætur Vatna-
jökuls eftir Hjörleif Guttorms-
son var að koma út. Ferðir 2
og 3 eru fyrstu af mörgum ferð-
um í sumar sem tengjast efni
hennar. Ómissandi í ferðir um
Austur-Skaftafellssýslu.
4) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála. Gönguferðir um Mörkina.
Brottför í ferðirnar er kl. 20.00.
5) 29.-31. maí - brottför kl.
08.00: Fimmvörðuháls - Þórs-
mörk. Ekið að Skógum og geng-
ið þaöan á laugardeginum yfir
til Þórsmerkur.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Mörkinni 6.
Dagsferðir
um hvítasunnu:
Sunnudagur 30. maí ki. 13.30:
Selvogur - Strandakirkja/
ökuferð.
Mánudaginn 31. maí verða
tvær ferðir: Kl. 10.30 Fossá -
Þrándarstaðafjall - Brynjudal-
ur. Gengið á Þrándarstaðafjall
frá Fossá og komið niður í
Brynjudal. Kl. 13.00 sama dag:
Reynivallaháls - Kirkjustfgur.
Gengið upp frá Hálsnesi og aust-
ur eftir hálsinum og niður Kirkju-
stíg.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Ferðafélag fslands.
Komdu og skoöaöu gott úrval af notuöum SAAB bílum á mjög góöu veröi I eigu Globus
hf. SAAB er einhver öruggasti bfll í heimi sama hvort hann er notaöur eöa nýr.
Meö því aö kaupa notaöan SAAB kaupir þú góöan og traustan bíl.
Saab 9000 CD, árg. '90
Ekinn 35 þús. km., grár, sjálfsk.
Stgr.verð 1.460.000 kr.
Saab 9000 Turbo, árg. 86
Ekinn 66 þús. km., beinsk.,
topplúga, leðursæti.
Stgr.verö 1.040.000 kr.
Saab 900 Turbo, árg. '88
Ekinn 82 þús. km. grár, beinsk.
álfelgur.
Stgr.verö 980.000 kr.
Saab 900Í, árg. '87
Ekinn 116 þús. km., rauður, beinsk.
Stgr.verö 630.000 kr.
Saab 900Í, árg. '88
Ekinn 70 þús. km., grænn, beinsk.
Stgr.verö 790.000 kr.
Saab 900Í, árg. '88
Ekinn 100 þús. km., grár, beinsk.,
topplúga.
Stgr.verö 750.000 kr.
Saab 900Í, árg. '88
Ekinn 86 þús. km., silfurgrár,
beinsk. álfelgur.
Stgr.verö 820.000 kr.
Saab 900i, árg. '88
Ekinn 55 þús. km., grár, sjálfsk.
Stgr.verö 880.000 kr.
Saab 900i, árg. '89
Ekinn 70 þús. km., hvítur, beinsk.
Stgr.verö 780.000 kr.
SIMI 674949
t>AO ER OPK) HJÁ OKKUR:
mánud. til föstud. kl. 9.00 - 18.30
og laugardaga kl. 10.30 * 17.00
GOTT FÓLK