Morgunblaðið - 27.05.1993, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
Villeroy og Boch postulín
ÞEIR sem ætla til Luxem-
borgar í sumar og eru að
safna í matarstell, glösum
eða öðru frá Villeroy og
Boch geta e.t.v. nýtt sér
verksmiðju-
verslun
þeirra þar
sem má kaupa
vörur sem ekki
teljast í.flokks á nið-
ursettu verði.
Ný stígvél
á markaðinn
í byijun þessa árs hófu belgar
að framleiða stígvél sem eiga
að vera um 40% léttari en þau
venjulegu. Ástæðan fyrir létt-
leikanum er efnið polyurethane
sem einangrar líka frá kulda
og verður ekki stíft í frosti. Það
er Jón Bergsson h.f. sem flytur
stígvélin inn sem eru semsagt
fáanleg núna hér á landi og
kosta frá 4500 krónum. ■
Oft sést sama og ekkert á þessari
vöru og að minnsta kosti þess virði
að sækja fyrirtækið heim og for-
vitnast aðeins um starfsemi þess.
Villeroy & Boch fyrirtækið er
rótgróið, var stofnað árið 1767
og nú starfa um það bil fimmtán
hundruð manns þar við að fram-
leiða þá 17 milljón hluti sem þeir
framleiða á ári hveiju. Ef ein-
hveijir hafa hug á að kíkja inn í
verslunina er heimilisfangið
Villeroy & Boch center
330, route de Rollingergrund
L 2441 Luxemborg
Aðalverslunin er hinsvegar
staðsett við rue du Fossé. ■
Engin Nautaveisla
í helstu stórmörkuðum
NAUTGRIPABÆNDUR hafa nú sett á markað 6 kg. öskjur
með nautakjöti á lægra verði en tíðkast hefur í flestum
verslunum. Pakkarnir eru seldir undir heitinu „Nauta-
veisla" og kosta tæplega 4.200 krónur. Helstu stórmarkað-
ir hafa ákveðið að selja ekki „Nautaveisluna" en pakkarn-
ir verða þó fáanlegir í sumum verslunum, bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og landsbyggðinni.
í pökkunum er gúllas, hakk og
hamborgarar, sem sumir talsmenn
stórmarkaða telja ekki heppilegan
söluvaming á þessum árstíma.
„Nú fara menn að grilla og mér
sýnist þetta kjöt ekki hentugt til
þess,“ sagði Júlíus Jónsson hjá
Nóatúni meðal annars. Sagðist
hann telja pakka af þessu tagi
auðveldari í sölu að hausti en vori.
Á þriðjudag kostaði kíióið af
gúllasi 1.140 kr og kílóið af hakki
729 kr. í Nóatúni. I Hagkaup kost-
ar gúllas af fullorðnu nauti 948
kr. kílóið en 1.339 af ungnauti.
Hakk af fullorðnu nauti kostar 639
kr. kg. en af ungnauti 799 kr kg.
Jóhannes í Bónus hefur lýst því
yfir í fjölmiðlum að hann muni
ekki taka „Nautaveisluna" til sölu,
enda bjóði hann ódýara kjöt sjálf-
ur.
Bændur hafa bent á að verð á
„Nautaveislunni" sé allt að 30%
lægra en almennt verð á sambæri-
legu kjöti á markaðnum og hyggj-
ast þeir setja 15 þúsund pakka á
markað. í hverjum pakka eru 2,4
kg af hakki, 1,1 kg af hamborgur-
um alls 30 stykki og 2,5 kg. af
gúllasi. Júlíus í Nóatúni bendir á
að líklega yrði að selja svo stórar
pakkningar úr frosti, en það væri
úr takt við tímann. ■
BT
UPPSKRIFTIN
Rauðsprettuflök með
núðlum hjá Sigurgeir á Sjómannastofunni
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Sigurgeir Sigurgeirsson, matreiðslumaður á Sjómannastofunni
Vör í Grindavík, með einn vinsælasta réttinn sinn „rauðsprettufl-
ök með núðlum".
Steinsnar frá höfninni í
Grindavík, við Hafnargötu
9, stendur hvítt, látlaust,
einlyft hús, sem á stendur
Sjómannastofan Vör. Ég
er ókunn í plássinu, en
heimamaður, sem með mér
var í för, mælir með staðn-
um: „Héma færðu góðan
fisk.“ Þegar inn er komið
heilsar hress náungi á
kokkafötum og býður okk-
ur velkomin. Klukkan er
rúmlega eitt á fimmtudegi.
Aðeins einn viðskiptavinur
situr í salnum og er að
ljúka við kaffið sitt. Hádeg-
istraffíkin er að mestu yfir-
staðin og við pöntum rauð-
sprettuflök að hætti húss-
ins og pilsner með.
í eldhúsinu ræður Sigurgeir
Sigurgeirsson ríkjum og hefur
gert í tæp 4 ár, er hann tók rekst-
urinn á leigu af Sjómannafélagi
Grindavíkur. Áður var hann með
mötuneyti Fiskaness og þar áður
var hann sem kokkur á Grindvík-
ing GK 606.
I hádeginu á hveijum einasta
degi tekur Sigurgeir á móti heil-
um rútubílaförmum af „túrhest-
um“ eftir bað í Bláa lóninu.
„Hingað hafa komið allt upp í
140 manns í senn. Ég býð bæði
upp á físk- og kjötrétti, en út-
lendingar vilja heldur fisk. Og
þar sem Grindavík er sjávarút-
vegsbær, er tilhlýðilegt að leggja
áherslu á góðan físk. Vinsælast
er rauðspretta, lúða og gufusoðin
ýsa. Einnig hef ég verið að prófa
mig áfram með tindabikkju, sem
hingað til hefur ekki verið talin
mannamatur, en er mjög góð,
t.d. pönnusteikt með sósu,“ segir
Sigurgeir.
Að afloknum ljúffengum há-
degisverði féllst Sigurgeir á að
gefa Daglegu lífí uppskrift, sem
hann segir að hver meðaljón í
matargerð fari létt með að útbúa.
Hann frábað sér að nefna mæli-
einingar og bætir við: „Það er
aðeins tilfínningin, sem ræður í
minni matargerð."
Raudsprettuflök
með núðlum
_______rauðsprettuflök______
___________hveiti___________
_________jurtqkrydd_________
smjör, smjörlíki eða olíq
Hveiti og jurtakryddi blandað
saman, flökunum velt upp úr
blöndunni og léttsteikt á pönnu
í smjöri, smjörlíki eða olíu eftir
smekk.
Núðlur
núðlur
paprika
rjómagráðostur
Núðlur soðnar ásamt smátt
skorinni papriku. Sett í skál og
um það bil 2 msk af ijómagráð-
osti yfír. Sett í örbylgjuofn þar
til osturinn er bráðinn.
Sósa
smjör eða smjörlíki
hvítlaukur eða hvítlauksmassi
(tæst
i krukkum)
_____grænmetisteningur_______
__________tómatsósa__________
____________rjómi____________
_____hvítvín eða mysa________
Smjör brætt og hvítlaukur
settur út í. Grænmetiskrafti (ten-
ingi) hrært saman við. Þá er
tómatsósu bætt í og síðastijóma
og hvítvíni/mysu. Látið sjóða
niður. Sósan borin fram heit með
rauðsprettunni.
Salat
Kínakál, tómatar og gúrkur
skorið, sett í skál. Salat-sósa
gerð úr súrmjólk, sýrðum ijóma,
appelsínusafa eða óblönduðum
djús og steinselju. Hellt yfír sal-
atið.
Soðnar kartöflur bomar með
líka.
Að sögn Sigurgeirs má nota
hvaða físk sem er í stað rauð-
sprettu og sósan er jafnframt
góð með hvaða fískmeti sem er.
Geta má að lokum að fískmáltíð
á Sjómannastofunni kostar 850
kr. þ.e. súpa, fískréttur, salat og
kaffí. ■
Jóhanna Ingvarsdóttir.