Morgunblaðið - 27.05.1993, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
Minning
Sigurrós Jónsdóttir hár-
greiðslumeistnri frá
Lambhóli í Skeijafirði
Fædd 14. september 1912
Dáin 17. maí 1993
Sigga ömmusystir mín var mér
mikils virði, mikil fyrirmynd. Ég
vona að hún hafí vitað þetta.
Ég kveð hana nú hinstu kveðju.
Hún var sönn, tignarleg og til-
finningarík.
Þegar ég hugsa um æsku mína
þá er Sigga oft með mér. Hún viður-
kenndi börn sem fullgildar og sjálf-
stæðar persónur. Það er ekki öllum
gefið. Hún var sönn.
Ofarlega í minningunni eru leik-
húsferðir í hennar boði. Heimsókn-
irnar á hárgreiðslustofuna í Þjóð-
leikhúsinu. Þar var hún að greiða
leikurunum. Þvílíkur draumaheimur
sem leikhúsið er í augum barnsins.
Hamagangur þar sem augnablikið
skipti öllu. Ég, barnið, að flækjast
fyrir. Siggu tókst að koma mér í
samband við leikarana, eins og ég
var feimin, orðlaus og sá alit í hill-
ingum í leikhúsinu hennar. Sigga
var önnum kafin.
Hún var tignarleg.
í dag þegar ég fer með bömin
mín í leikhús, þá segi ég þeim frá
Siggu og leikhúsferðum mínum.
Þeim finnst ég „ótrúlega heppin".
Enn finnst mér jafn gaman að
barnaleikritunum og þá kemst ég
hvað best í snertingu við sjálfa
mig. Þar á Sigga stóra hlut að
máli. Þar er hún alltaf með mér.-
Sigga var rík af ástvinum. Börn-
um hennar, Ranka, Gunna, Maggi
og Halldór heitinn, tengdabörnin,
barnabömin og barnabarnabörnin,
öll svo hlý og innileg. Samheldnari
ijölskyldu hef ég ekki kynnst.
Ég er stolt af því að hafa átt svo
mikið í Siggu og hvað hún vildi
eiga mikið í mér.
Hún var tilfinningarík.
Ég þakka Guði fyrir að hafa átt
svo einstaka ömmusystur. Án henn-
ar erum við fátækari, en minningin
um hana er okkur dýrmæt.
Hvíli hún í friði.
Helga Guðmundsdóttir.
Mig langartil þess nú að leiðarlok-
um að minnast minnar góðu og
elskulegu vinkonu, Sigurrósar Jóns-'
dóttur, fyrrverandi hárgreiðslu-
meistara Þjóðleikhússins.
Kynni okkar hófust, er Sigurrós
var komin á miðjan aldur, en ég
ennþá strákhvolpur í leiklistarskóla,
og þróuðust í yfir tvo áratugi upp í
nána og einlæga vináttu.
Sigurrós starfaði við Þjóðleikhúsið
um áratuga skeið, lengst af ein í
sinni deild, en stundum með aðstoð-
arkonu, og vann hún þar störf sín
af alúð og smekkvísi hvert einasta
kvöld og hverja helgi, sem leikið
var, áratugum saman. Hætt er nú
við, að erfitt yrði að fá manneskju
í dag upp á þessi kjör.
Ekki var það vegna þess að „Rós-
in“ mín þyrfti svo oft að hafa hend-
ur í hári mínu, að kynni okkar urðu
svona mikil, heldur var það hlýja
þessarar konu, iífsýn hennar og
þroski, sem varð þess valdandi, að
varla leið sú sýning að ekki væri
sest niður, ef tími vannst til, og
spjallað um lífið og tilveruna, andann
og efnið. Og þar hafði hún ákveðnar
skoðanir á ýmsu, bæði mönnum og
málefnum.
Og þó að Sigurrós héfði greitt
margri misjafnlega heimsfrægri
prímadonnunni um ævina og um
skeið verið bæjarstjórafrú á ísafirði,
fannst ekki hjá henni mikillæti eða
hroki, og hafði hún hina megnustu
andúð á allri tilgerð og óheilindum.
Stundum, ef þannig viðraði, fór hún
með eftirfarandi vísu eftir Jón
Helgason:
Ef allt þetta fólk fær í gullsölum himnanna
gist,
sem gerir sér mat úr að nugga sér utan í
Krist,
þá hlýtur sú spuming að vakna, hvort mik-
ils sé misst
ef maður að síðustu lendir í annarri vist.
Þegar ég gifti mig tók Sigurrós
konu mína, Eygló, undir sinn vernd-
arvæng og varð heimilisvinur okkar
hjóna.
Sigurrós tók þá ákvörðun að
hætta við Þjóðleikhúsið strax og
starfsaldur leyfði. Og skelfing varð
mikið tóm, er hún var hætt. Þá fann
ég hvað ein manneskja getur haft
sterka viðveru.
„Rósin“ mín ætlaði að njóta þess
tíma, sem í hönd færi. Starfaði hún
um skeið sem lausamanneskja við
stofnunina, en ekki naut hún frelsis-
ins lengi því að heilablæðing, örfáum
árum síðar, varð henni frelsissvipt-
ing. En „Rósin" var sterk og rétti
við að nokkru. Að lokinni sjúkrahús-
dvöl, fluttist hún til Rönku, dóttur
sinnar, og Jes, tengdasonar síns, en
þau mat hún mikils. Við umhyggju
þeirra hjóna, Gunnu, dóttur sinnar,
barnabarna fékk hún nokkur góð ár.
En að því kom í lífi hennar, í jan-
úar ’92, að hún fluttist í Seljahlíð
og dvaldist hún þar við bestu að-
stæður, sem bjóðast, þegar svo er
komið högum vorum. En þungt féll
henni hvernig heilsu hennar hrakaði
undir lokin. Ég er þess fullviss, að
sú vist sem Sigurrós hreppir að lok-
inni þessari hérna megin, getur að-
eins orðið góð. Blessuð sé minning
hennar.
Jón Símon Gunnarsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Safamýri 42,
Reykjavik,
lést í Borgarspítalanum 25. maí.
Jarðarförin fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 2. júní
kl. 13.30.
Bryndís Jóna Jónsdóttir, Kalman Stefánsson,
Ásta Jónsdóttir, Óli Ágústsson,
Margrét Jónsdóttir, Torfi H. Ágústsson,
Edda Björk Bogadóttir, Ólafur Oddur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐBJÖRG ANNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR
IjósmóAir,
Vorsabæjarhjáieigu,
verður jarðsungin frá Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn 29. maí
kl. 10.30.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Ingimar Ottósson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Hilmar Fr. Guðjónsson,
Katrin Guðmundsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Guðrún Þ. Jónsdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, sonur, bróðir og mágur,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON,
Fjarðarseli 35,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju, laugardaginn 29. maí
kl. 13.30.
Marin Henný Matthíasdóttir,
Matthías Ólafsson,
Auður Ólafsdóttir,
Helgi Ólafsson,
Guðmundur Árnason, Auður Thoroddsen,
Árni Guðmundsson, Sigurbjörg Hermundsdóttir.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960
t
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi,
INGIMUNDUR INGIMUNDARSON
bifreiðasmiður,
Vallartröð 1,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 28. maí
kl. 10.30.
Ingimundur Ingimundarson, Hrefna Kristín Gísladóttir,
Guðný Dóra Ingimundardóttir, Gunnar H. Sigfinnsson,
Björk Ingimundardóttir, Björgvin H. Harðarson
og frændsystkin.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma,
RAKEL FRIÐBJARNARDÓTTIR,
Hásteinsvegi 27,
Vestmannaeyjum,
sem lést 23. maí, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn
29. maí kl. 14.00.
Knud Andersen,
Pétur Andersen,
Ingibjörg Andersen, Óskar Þórarinsson,
Hafdis Andersen, Sigurbjörn Hilmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför
KRISTRÚNAR HELGADÓTTUR,
Þiljuvöllum 33,
Neskaupstað.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Sjúkrahúss Neskaup-
staðar.
Sigurður Hinriksson,
sonur, tengdadætur og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Vörðufelli,
Skógarströnd,
sem lést mánudaginn 24. maí, verður jarðsungin frá Breiðaból-
staðarkirkju laugardaginn 29. maí kl. 14.00.
Jóhann Þorsteinsson, Edda Gisladóttir,
Edda Þorsteinsdóttir, Árni J. Árnason,
Elín Þorsteinsdóttir, Hjalti Oddsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
í leikhúsi starfar fjöldi fólks á bak
við tjöldin; fólk, sem áhorfandinn
fær aldrei að sjá en sem með störfum
sínum stuðlar að því, að leikarinn á
sviðinu og það, sem þar ber fyrir
augu, sé eins og best verður á kos-
ið. Það fer misjafnlega mikið fyrir
þessu fólki og í raun liggur það í
eðli starfsins að viðkomandi starfs-
fólk sé sem fyrirferðarminnst, hljóðl-
átt og allt að því ósýnilegt.
Einn slíkra starfsmanna var Sig-
urrós Jónsdóttir, sem starfaði sem
hárgreiðslukona hér við Þjóðleikhús-
ið um tveggja áratuga skeið, lengst
af sem hárgreiðslumeistari Þjóðleik-
hússins. Sigurrós var einstaklega
þægileg í viðmóti og allri um-
gengni. Frá henni stafaði ró og hiýju
og þetta voru eiginleikar, sem gerðu
hana að einhveijum vinsælasta
starfsmanni leikhússins. Það er mik-
ils virði fyrir leikara og í þessu til-
viki voru það oftar en ekki leikkon-
urnar, að láta fara mjúkum höndum
um hár sitt, fegra það og snyrta eða
tæta það og tutla allt eftir því sem
við á. Oft er það líka hlutskipti hár-
greiðslukonunnar að aðstoða við
greiðslu eða hárkolluskipti í hröðum
atriðaskiptum, þar sem ekkert má
fara úrskeiðis. Þá dugir hvorki fum
né fát. Sigurrós var einstaklega nat-
in og lagin á öllum þessum sviðum.
Með fagmannlegu handbragði og
róandi spjalli tókst henni að koma
leikkonunum í nákvæmlega rétt
hugarástand, áður en þær svifu inn
á leiksviðið. Eins og aðrir góðir bak-
tjaldsstarfsmenn átti hún þannig
sinn þátt í að gera leiksýninguna
sem best úr garði.
Sigurrós var sem fyrr segir hóg-
vær og hljóðlát, sumum þótti jafnvel
nóg um. Haft var eftir einum sam-
starfsmanni hennar, að hún Sigurrós
væri alveg ómöguleg, hún eyðilegði
allan baráttumóral, því hún gleymdi
stundum að skrifa niður alla vinnu-
tímana sína og stúlknanna. En Sig-
urrós var ein þeirra, sem starfaði í
leikhúsi af því að hún unni leiklist-
inni, skítt með einstaka yfírvinnu-
tíma til eða frá.
Allir eldri starfsmenn Þjóðleik-
hússins, sem störfuðu með henni og
kynntust henni, bera henni einstak-
lega vel söguna. Það var mikil eftir-
sjá að henni, þegar hún hvarf frá
störfum fyrir rúmum áratug og
hennar er ákaft saknað nú, þegar
hún er horfin fyrir full og allt. Við
sendum ættingjum hennar innilegar
samúðarkveðjur. Skarð Sigurrósar
er vandfyllt en minning hennar mun
lengi lifa og verða arftökum hennar
hvatning til eftirbreytni.
Stefán Baldursson.
Kynni á lífsleiðinni eru með ýmsu
móti. Til sumra er stofnað snemma,
til dæmis á skólaárum, og oft end-
ast þau meðan ævi endist. Önnur
koma til á afmörkuðu skeiði, vegna
þess að tilviljanir eða örlög leiða
menn saman, til dæmis vinnu sinn-
ar vegna.
Sigurrós Jónsdóttir var til langs
tíma hárgreiðslumeistari Þjóðleik-
hússins, og við Sigga Rósa kynnt-
umst í rauninni bara í vinnunni.
Þar reyndi ég hana að því að vera
afar samviskusamur starfsmaður,
sem ekki mátti vamm sitt vita, og
vann sinni stofnun af mikilli trú-
mennsku og heilindum. En meira
þarf til, því að starf hárgreiðslu-
meistara er býsna vandasamt í leik-
húsi og þar þarf auk góðrar fag-
kunnáttu, hugmyndaflug og áræði,
þekkingu á stílsögu og mannlega
innsýn. Allt þetta hafði Sigurrós til
brunns að bera, en þó staldra ég
einkum við hið síðasta, sem einnig
snýr að daglegri umgengni við lista-
fólk, sem eðlis starfs síns vegna
þarf að þola allnokkra tauga-
spennu. Þá þarf einhvers staðar
klettur að vera, lifandi ímynd ró-
legrar yfirvegaðrar þolinmæði,
hlýju og skilnings. Ég fann það oft
á mörgum leikaranum að Sigurrós
var þeim þessi sálusorgari baksviðs.
Svo þetta sé orðað berum orðum,
ég held að þeim hafi öllum þótt
vænt um hana.
Löngu dagsverki er lokið og
munu aðrir verða til þess að rekja
ætt, uppruna og önnur eyktarmörk
á lífsferlinum. Þessi fátæklegu
kveðjuorð eru aðeins frá okkur, sem
unnu með henni um skeið, og
geyma þá góðu minningu.
Sveinn Einarsson.