Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 1

Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 1
96 SIÐUR B/C 118. tbl. 81.árg. FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins A Sex manns létust og ómetanleg listaverk skemmdust í sprengingu á Italíu Ottast hryðjuverka- herferð mafíunnar Ciampi segir alla krafta ríkisins verða sameinaða gegn glæpasamtökunum Róm. Reuter. SEX manns létu Iífið þegar bílsprengja sprakk í gær í öng- stræti bak við Uffizi-safnið í Flórens á Ítalíu, eitt merkasta listasafn landsins og þar sem geymd eru flest meistaraverk ítalskrar málaralistar frá 13. og fram á 18. öld. Urðu mikl- ar skemmdir á húsinu og nokkur ómetanleg listaverk eyði- lögðust. Talið er víst, að mafían hafi verið að verki og ótt- ast ítalir, að glæpasamtökin hyggist hefna ófaranna að undanförnu með hryðjuverkaherferð víða um landið. Innan- ríkisráðherra Ítalíu varaði við því fyrir nokkru, að mafían ætlaði að draga athyglina frá umsvifum sínum á Sikiley og suðurhluta landsins með morðverkum á Norður-Ítalíu. í opnu bréfi til Flórensborgar, sem Carlo Azeglio Ciampi forsætisráðherra birti í gær, hét hann að „sameina alla krafta ríkisins til að sigrast á glæpasamtökunum“. GATTá leiðinni Brussel. Reuter. SAMKOMULAG hefur tekist innan Evrópubandalagsins um verð á landbúnaðarvörum og aukna styrki til bænda. Talið er, að það muni gera Frökkum kleift að undirrita samkomulagið um landbún- aðarkafla GATT. „Við göngum nú út frá því, að utanríkisráðherrar EB muni undirrita samkomulagið um fræolíuna 8. júní,“ sagði Bjöm Westh, landbúnaðarráðherra Dana,. á fréttamannafundi í gær. Frakkar hafa fengið í gegn, að EB auki bætur fyrir hvert korntonn, sem bændur hætta að framleiða, um rúmar 900 kr. Jómfrúr- ræða eft- ir 43 ár London. Reuter. BRESKUR Iávarður sem hald- ið hefur þá reglu í heiðri að taka ekki til máls í lávarða- deild breska þingsins fyrr en hann hefði eitthvað að segja rauf í fyrradag 43 ára þögn. Trevor barón tók sæti í lá- varðadeildinni árið 1950 þá 21 árs að aldri. Það var þó ekki fyrr en á þriðjudag að hann sá ástæðu til að taka til máls og flutti jóm- frúrræðu sína. „Það er mér ánægjuefni að taka til máls, enda löngu tímabært, því það sem hér er til umræðu varðar mína sveit," sagði baróninn. Á dagskrá var tillaga um skip- an nefnda til að hafa tilsjón með lögreglunni. Hans hágöfgi lýsti þeirri skoðun sinni að ráðstöfun af þessu tægi væri róttæk og kynni að hafa neikvæð áhrif á starfsandann í lögreglunni. Allen lávarður af Abbeydale óskaði baróninum til hamingju með að hafa „brotið ísinn“ og sagðist vona að ekki liði langur tími þar til hann talaði aftur. „Þetta er hryðjuverk, sem hefur þann eina tilgang að valda skelflngu og dauða,“ sagði Pierluigi Vigna, yfirdómari í Flórens, og hann kvaðst ekki efast um, að mafían hefði stað- ið að baki því. Fyrst var talið, að gasleki hefði valdið en síðan kom í ljós mikill gígur í götunni og brot úr Fiat-bifreið á stóru svæði. Hrundi gamalt hús, heimili fjögurra manna íjölskyldu, til grunna við sprenging- una og lét fólkið lífið ásamt manni, sem bjó í húsi hinum megin götunn- ar. Þá var leitað sjötta mannsins, sem hafði heyrst hrópa á hjálp. Nicola Mancino, innanríkisráð- herra Ítalíu, sagði fyrir rúmri viku, að mafían hefði á pijónunum hryðju- verk um norðanvert landið en 14. þessa mánaðar eyðilagðist íjölbýlis- hús í Róm í mikilli sprengingu og 23 slösuðust. Er talið víst, að mafían hafi verið þar að verki. í Uffizi-safn- inu sprungu veggimir og skothelt glerið í gluggunum brotnaði inn og rigndi yfir meistaraverkin. Mafían minnír á völdin „Það er alveg ljóst hvað mafían er að segja okkur með sprenging- unni,“ sagði Tina Anselmi, fyrrver- andi formaður í rannsóknarnefnd þingsins. „Hún er að segja, að það sé hún sem fari með völdin. Ég óttast, að ofbeldi af þessu tagi muni einkenna ástandið á næst- unni.“ Sjá „Uffizi-safnið ...“ á bls. 28. Reuter Mafían hefnir sln LÖGREGLU- og slökkviliðsmenn í rústum hússins, sem hrundi, ganiallar turnbyggingar frá miðöldum. Fjögurra manna Qölskylda í húsinu lét lífið þegar sprengjan sprakk en henni hafði verið komið fyrir í stolinni sendibifreið. Miklar skemmdir urðu einnig á ómetanlegum listaverkum í Uffizi-listasafninu rétt hjá. John Major um uppstokkunina í ríkisstjórn breska íhaldsflokksins Aðeins mannaskipti en engin stefnubreyting Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í gær fyrstu uppstokkunina í stjórn sinni frá þingkosningunum í fyrra í von um að geta blásið lífi í stjómina og bætt ímynd hennar. Helsta fórnarlamb uppstokkunarinn- ar er Norman Lamont, sem lætur af emb- ætti fjármálaráðherra, en við því tekur Ken- neth Clarke, sem var innanríkisráðherra. Uppstokkunin var mikil auðmýking fyrir Lam- ont, sem hafnaði tilboði Majors um að hann tæki við embætti umhverfísráðherra. Embættis- menn sögðu að þeir hefðu átt stuttan fund sem hefði farið „virðulega" fram. „Stefna stjórnarinnar verður áfram sú sama,“ sagði talsmaður Majors. „Hér er aðeins um mannaskipti að ræða.“ Howard tekur við af Clarke Michael Howard, sem verið hefur umhverfis- ráðherra, tekur við innanríkisráðuneytinu af Clarke. John Gummer lætur af stjórn landbúnað- ar- og sjávarútvegsráðuneytisins og tekur við umhverfísmálunum af Howard. Gillian Shep- hard, áður atvinnumálaráðherra, tekur við land- búnaðarráðuneyti og atvinnumálaráðuneytið fékk David Hunt, sem fór með málefni Wales. í það embætti kemur John Redwood, sem fær sæti í stjóminni í fyrsta sinn. Sjá „Ekki líklegur ...“ á bls. 29-29. Fórnarlambið Reuter NORMAN Lamont í bílsímanum eftir að hafa komið embættislaus út frá John Major. Áfallfyr- ir Jeltsín Moskvu. The Daily Telegraph. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, varð fyrir alvarlegu áfalli í gær þegar stjórnarskrárdómstóllinn úrskurðaði, að þingið, sem er í höndum harðlínumanna, ætti að fara með yfirstjórn sjónvarpsins. Ef það gengur eftir, að þingið taki við umsjón með sjónvarpinu, hefur Jeltsín misst eitt öflugasta tæki sitt í baráttunni við þingið og í áróðri sínum fyrir umbótastefn- unni. Dómstóllinn úrskurðaði einn- ig, að Upplýsingamiðstöð ríkisins, sem Jeltsín stofnaði til að hafa umsjón með ríkisfjölmiðlum, væri ólögleg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.