Morgunblaðið - 28.05.1993, Page 1
96 SIÐUR B/C
118. tbl. 81.árg.
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
A
Sex manns létust og ómetanleg listaverk skemmdust í sprengingu á Italíu
Ottast hryðjuverka-
herferð mafíunnar
Ciampi segir alla krafta ríkisins verða sameinaða gegn glæpasamtökunum
Róm. Reuter.
SEX manns létu Iífið þegar bílsprengja sprakk í gær í öng-
stræti bak við Uffizi-safnið í Flórens á Ítalíu, eitt merkasta
listasafn landsins og þar sem geymd eru flest meistaraverk
ítalskrar málaralistar frá 13. og fram á 18. öld. Urðu mikl-
ar skemmdir á húsinu og nokkur ómetanleg listaverk eyði-
lögðust. Talið er víst, að mafían hafi verið að verki og ótt-
ast ítalir, að glæpasamtökin hyggist hefna ófaranna að
undanförnu með hryðjuverkaherferð víða um landið. Innan-
ríkisráðherra Ítalíu varaði við því fyrir nokkru, að mafían
ætlaði að draga athyglina frá umsvifum sínum á Sikiley
og suðurhluta landsins með morðverkum á Norður-Ítalíu.
í opnu bréfi til Flórensborgar, sem Carlo Azeglio Ciampi
forsætisráðherra birti í gær, hét hann að „sameina alla
krafta ríkisins til að sigrast á glæpasamtökunum“.
GATTá
leiðinni
Brussel. Reuter.
SAMKOMULAG hefur tekist
innan Evrópubandalagsins
um verð á landbúnaðarvörum
og aukna styrki til bænda.
Talið er, að það muni gera
Frökkum kleift að undirrita
samkomulagið um landbún-
aðarkafla GATT.
„Við göngum nú út frá því,
að utanríkisráðherrar EB muni
undirrita samkomulagið um
fræolíuna 8. júní,“ sagði Bjöm
Westh, landbúnaðarráðherra
Dana,. á fréttamannafundi í
gær. Frakkar hafa fengið í
gegn, að EB auki bætur fyrir
hvert korntonn, sem bændur
hætta að framleiða, um rúmar
900 kr.
Jómfrúr-
ræða eft-
ir 43 ár
London. Reuter.
BRESKUR Iávarður sem hald-
ið hefur þá reglu í heiðri að
taka ekki til máls í lávarða-
deild breska þingsins fyrr en
hann hefði eitthvað að segja
rauf í fyrradag 43 ára þögn.
Trevor barón tók sæti í lá-
varðadeildinni árið 1950 þá 21
árs að aldri. Það var þó ekki fyrr
en á þriðjudag að hann sá ástæðu
til að taka til máls og flutti jóm-
frúrræðu sína. „Það er mér
ánægjuefni að taka til máls, enda
löngu tímabært, því það sem hér
er til umræðu varðar mína sveit,"
sagði baróninn.
Á dagskrá var tillaga um skip-
an nefnda til að hafa tilsjón með
lögreglunni. Hans hágöfgi lýsti
þeirri skoðun sinni að ráðstöfun
af þessu tægi væri róttæk og
kynni að hafa neikvæð áhrif á
starfsandann í lögreglunni.
Allen lávarður af Abbeydale
óskaði baróninum til hamingju
með að hafa „brotið ísinn“ og
sagðist vona að ekki liði langur
tími þar til hann talaði aftur.
„Þetta er hryðjuverk, sem hefur
þann eina tilgang að valda skelflngu
og dauða,“ sagði Pierluigi Vigna,
yfirdómari í Flórens, og hann kvaðst
ekki efast um, að mafían hefði stað-
ið að baki því. Fyrst var talið, að
gasleki hefði valdið en síðan kom í
ljós mikill gígur í götunni og brot
úr Fiat-bifreið á stóru svæði. Hrundi
gamalt hús, heimili fjögurra manna
íjölskyldu, til grunna við sprenging-
una og lét fólkið lífið ásamt manni,
sem bjó í húsi hinum megin götunn-
ar. Þá var leitað sjötta mannsins,
sem hafði heyrst hrópa á hjálp.
Nicola Mancino, innanríkisráð-
herra Ítalíu, sagði fyrir rúmri viku,
að mafían hefði á pijónunum hryðju-
verk um norðanvert landið en 14.
þessa mánaðar eyðilagðist íjölbýlis-
hús í Róm í mikilli sprengingu og
23 slösuðust. Er talið víst, að mafían
hafi verið þar að verki. í Uffizi-safn-
inu sprungu veggimir og skothelt
glerið í gluggunum brotnaði inn og
rigndi yfir meistaraverkin.
Mafían minnír á völdin
„Það er alveg ljóst hvað mafían
er að segja okkur með sprenging-
unni,“ sagði Tina Anselmi, fyrrver-
andi formaður í rannsóknarnefnd
þingsins. „Hún er að segja, að það
sé hún sem fari með völdin. Ég
óttast, að ofbeldi af þessu tagi
muni einkenna ástandið á næst-
unni.“
Sjá „Uffizi-safnið ...“ á bls. 28.
Reuter
Mafían hefnir sln
LÖGREGLU- og slökkviliðsmenn í rústum hússins, sem hrundi, ganiallar turnbyggingar frá miðöldum.
Fjögurra manna Qölskylda í húsinu lét lífið þegar sprengjan sprakk en henni hafði verið komið fyrir í
stolinni sendibifreið. Miklar skemmdir urðu einnig á ómetanlegum listaverkum í Uffizi-listasafninu rétt hjá.
John Major um uppstokkunina í ríkisstjórn breska íhaldsflokksins
Aðeins mannaskipti en
engin stefnubreyting
Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands,
tilkynnti í gær fyrstu uppstokkunina í stjórn
sinni frá þingkosningunum í fyrra í von um
að geta blásið lífi í stjómina og bætt ímynd
hennar. Helsta fórnarlamb uppstokkunarinn-
ar er Norman Lamont, sem lætur af emb-
ætti fjármálaráðherra, en við því tekur Ken-
neth Clarke, sem var innanríkisráðherra.
Uppstokkunin var mikil auðmýking fyrir Lam-
ont, sem hafnaði tilboði Majors um að hann
tæki við embætti umhverfísráðherra. Embættis-
menn sögðu að þeir hefðu átt stuttan fund sem
hefði farið „virðulega" fram.
„Stefna stjórnarinnar verður áfram sú sama,“
sagði talsmaður Majors. „Hér er aðeins um
mannaskipti að ræða.“
Howard tekur við af Clarke
Michael Howard, sem verið hefur umhverfis-
ráðherra, tekur við innanríkisráðuneytinu af
Clarke. John Gummer lætur af stjórn landbúnað-
ar- og sjávarútvegsráðuneytisins og tekur við
umhverfísmálunum af Howard. Gillian Shep-
hard, áður atvinnumálaráðherra, tekur við land-
búnaðarráðuneyti og atvinnumálaráðuneytið
fékk David Hunt, sem fór með málefni Wales.
í það embætti kemur John Redwood, sem fær
sæti í stjóminni í fyrsta sinn.
Sjá „Ekki líklegur ...“ á bls. 29-29.
Fórnarlambið Reuter
NORMAN Lamont í bílsímanum eftir að hafa
komið embættislaus út frá John Major.
Áfallfyr-
ir Jeltsín
Moskvu. The Daily Telegraph.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
varð fyrir alvarlegu áfalli í gær
þegar stjórnarskrárdómstóllinn
úrskurðaði, að þingið, sem er í
höndum harðlínumanna, ætti að
fara með yfirstjórn sjónvarpsins.
Ef það gengur eftir, að þingið
taki við umsjón með sjónvarpinu,
hefur Jeltsín misst eitt öflugasta
tæki sitt í baráttunni við þingið og
í áróðri sínum fyrir umbótastefn-
unni. Dómstóllinn úrskurðaði einn-
ig, að Upplýsingamiðstöð ríkisins,
sem Jeltsín stofnaði til að hafa
umsjón með ríkisfjölmiðlum, væri
ólögleg.