Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 4

Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 1.200 bankamenn mótmæltu uppsögnum í Landsbanka Islands á útifundi Áskorun um að draga uppsagnimar til baka BANKAMENN fjölmenntu á útifund sem Samband íslenskra banka- manna og Félag starfsmanna Landsbanka íslands boðuðu til á Lækj- artorgi kl. 17 í gær til að mótmæla uppsögnum 76 starfsmanna Landsbankans frá og með næstu mánaðamótum, en að sögn lögregl- unnar voru rúmlega 1.200 manns á fundinum. I upphafi fundarins söng kór starfsmanna Landsbankans, en því næst var leikið af hljóm- plötu lagið „Lax, lax, lax“. Ávörp fluttu Baldur Óskarsson, fram- kvæmdasljóri SÍB, Helga Jónsdóttir, formaður FSLÍ og Anna ívars- dóttir, formaður SÍB. Baldur Öskarsson sagði í upphafi máls síns að þetta væri svartur fímmtudagur í sögu íslenskra bankamanna og það ríkti dimma og drungi í bijósti viðstaddra. Hann sagði bankamenn vera saman- komna til að fordæma harðlega rík- isstjóm íslands sem þættist með annarri hendinni vera að leggja fimm milljarða í atvinnuskapandi aðgerðir, en með hinni á sama tíma fyrirskipa sínum eigin banka að segja upp 76 starfsmönnum og hafa gert kröfu um að fleirum yrði sagt upp. ^ Siðlausri aðgerð mótmælt Á fundinum var samþykkt sam- hljóða eftirfarandi ályktun: „Uti fundur bankamanna á Lækjartorgi mótmælir harðlega þeirri siðlausu ákvörðun bankastjómar Lands- banka íslands að segja fyrirvara- laust upp 76 starfsmönnum sínum. Fundurinn fordæmir þá atvinnu- stefnu ríkisstjómarinnar sem felst í að fyrirskipa sínum eigin banka að grípa til ijöldauppsagna sem skilar aðeins sáralitlum sparnaði í rekstri. Fundurinn skorar á banka- stjórn og bankaráð Landsbankans að draga þessar uppsagnir til baka og ganga til viðræðna við Félag starfsmanna Landsbanka Íslands og Samband íslenskra bankamanna um raunhæfar leiðir til sparnaðar í rekstri bankans. Fundurinn heitir á alla bankastarfsmenn að sýna órofa samstöðu með félögum sínum í Landsbankanum í baráttunni fyrir sjálfsögðum mannréttindum." Fundinum á Lækjartorgi bárast fjölmargar stuðningsyfirlýsingar frá starfsmannafélögum banka og sparisjóða víðsvegar af landinu, og einnig frá öðrum stéttarfélögum sem lýstu samstöðu sinni með bankamönnum. Morgunblaðið/Júlíus Uppsögnum motmælt Um 1.200 manns voru á mótmælafundinum á Lækjartorgi að mati lögreglunnar. VEÐUR IDAG kl. 12.00 Heímild: Veðurslola islands (Byggt á veðurapé kl. 16.1S í gær) VEÐURHORFUR í DAG, 28. MAI YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1037 mb hæð en lægðardrag við suðaustur- strönd islands þokast suðaustur. SPÁ: Norðlæg eða norðaustlæg átt, víðast kaldi eða stinningskaldí. Slydda með köflum um norðaustanvert landið, dálítil él á vestanverðu Norðurlandi og nyrst á Vestfjörðum, einkum á annesjum, en bjart veður að mestu sunnanlands og vestan. Norðanlands verður varla nema 2-5 stiga hiti en sunnanlands ætti hitinn að komast í 9-12 stig um hádaginn. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDGAG: Norðaustanátt. Slydduél eða súld með norður- og austurströndinn en léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Hiti 6 tiM 1 stig yfir daginn suðvestanlands en annars 1 til 5 stig. HORFUR A MANUDAG: Snýst í suðaustan- og austanátt. Þykknar upp sunnanlands en léttir til norðvestanlands. Áfram súld á Austfjörðum. Heldur hlýnandi. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30.Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990000. Heiðskírt r r r r r r r r Rigning <é -a & m Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað * r * * * * * / * * r * r * * * Slydda Snjókoma v '5' v Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörín sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjööur er 2 vindstig. 10° Hitastig v Súld = Þoka ítig-. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær) Það er yfirleitt ágæt færð á þjóðvegum landsins, og t.d. fært fyrir létta bíla um Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði á Vestfjörðum. Á Norður- landi er búist við að Lágheiði opnist á morgun. Á Norðausturlandi er ófært um Öxarfjarðarheiði og Hólssand. Hálendisvegir eru lokaðir vegna snjóa og aurbleytu. Viðgerðir á klæóingum eru víða hafnar og eru vegrar- endur beðnir að virða hraðatakmarkanir sem settar eru vegna hættu á grjótkasti. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 f gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 6 skýjað Reykjavlk 10 skýjað Bergen 13 iéttskýjað Helsinki 11 skýjað Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Narssarssuaq 5 þokafgrennd Nuuk 6 hálfskýjað Stokkhólmur 16 léttBkýjað Pórshöfn 7 alskýjað Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 14 súld Barcelona 21 skýjað Berlfn 13 rigning Chicago 16 skúrásíð.klst. Feneyjar 26 þokumóða Frankfurt 19 skýjað Glasgow 10 skýjað Hamborg 10 rigning London 14 afskýjað LosAngeles 14 skýjað Lúxemborg 18 skýjað Madrtd 17 skýjað Malaga 21 skýjað Mallorca 26 léttskýjað Montreal 10 skúr NewYork 18 heiðskírt Oriando 22 alskýjað París 20 skýjað Madeira 20 skýjað Róm 28 skýjað Vfn 26 skýjað Washfngton 16 léttskýjað Winnípeg 8 úrk,ígrennd Bankamenn ætla að hægja á afgreiðslu eftir næstu helgi FORMANNAFUNDUR aðildarfélaga Sambands íslenskra banka- manna ákvað í gær að beina því til allra starfsmanna í afgreiðslum banka og sparisjóða að fara í einu og öllu eftir settum starfsreghim næstkomandi þriðjudag, 1. júní, t.d. með því að biðja hvern og einn viðskiptavin um persónuskilríki, en það gæti leitt til tafa við af- greiðsluna. „Það var ákveðið að allir bankarnir myndu sýna sam- stöðu sína með Landsbankafólki á þennan hátt, en þetta er alveg 100% löglegt,“ sagði Anna ívarsdóttir formaður SÍB í samtali við Morgunblaðið. „Það eru ætíð biðraðir í bönkun- um um hver mánaðamót, en ef það á hins vegar að halda áfram að fækka bankamönnum þá er alveg ljóst að við veitum ekki þá sömu góðu þjónustu og við veitum í dag, og biðraðir verða því daglegt brauð í bönkunum," sagði Anna. Hún sagði að farið yrði fram á það við starfsmenn bankanna að þeir tækju öll þau vinnuhlé sem þeir ættu rétt á samkvæmt kjarasamningi, en al- gengt væri að fólk sleppti kaffitím- um um mánaðamót til að sinna þjónustuhlutverkinu. Viðræður um atvinnumál Anna sagði að á formannafund- inum í gær hefði ekki verið fjallað nánar um verkfallsheimild sem formannafundur hefur veitt stjórn og samninganefnd SÍB, en ætlunin væri að sambandið ásamt opinber- um starfsmönnum færi á næstunni í viðræður við stjórnvöld um at- vinnumál. Úrslit kunn í Hversdagsleikum Reykjavík tapaði fyrir Nithsdale REYKJAVÍK tapaði fyrir borginni Nithsdale í Skotlandi í Hvers- dagsleikunum í gær. I Reykjavík tóku 31.134 einstaklingar þátt í keppninni eða 31,10% íbúa en 30.041 einstaklingur eða 52,70% íbúa Nitlisdaie. Fáni Nithsdale mun því blakta við hún á ráðhúsi Reykja- víkur í heila viku í byijun júní. Að sögn Jónasar Kristjánssonar hjá íþrótta- og tómstundaráði var þátttaka í Reykjavík mjög góð miðað við að þetta var í fyrsta sinn sem keppnin var haldin hér á landi en í þriðja sinn í Nithsdale. „Miðað við að skólar eru ennþá starfandi í Nithsdale en ekki hér,“ sagði hann. „Ef við hefðum sent bréf til allra íþróttakennara í skólum borg- arinnar þar sem ent 20 þúsund nemendur þá hefði verið hægt að standa að hópíþróttum í löngufrí- mínútum. Það hefði munað um það.“ Úrslit í keppninni á Akureyri verða ekki kunn fyrr en í næstu viku vegna trúarhátíðar í ísarel og var keppninni frestað þar í gær en Akureyri keppir við Ashkelon í ísrael. Niðurstöður dagsins á Ak- ureyri voru því innsiglaðar og bíða þess að ísraelar ljúki sínum degi. Vilja lög um alþjóðlega skipaskrá SÉRSTÖK bókun fylgir kjara- samningi Vélastjórafélagsins og vinnuveitenda sem undir- ritaður var sl. miðvikudag sem kveður á um að hann sé undir- ritaður í trausti þess að sett verði lög um alþjóðlega skipa- skrá hér á landi og að gerðar verði ráðstafanir til að bæta samkeppnisstöðu íslenskra farmanna. Er samningurinn uppsegjanlegur frá 1. maí 1994 ef þessu máli hefur ekki verið ráðið til lykta. i i > i I t I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.