Morgunblaðið - 28.05.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
1.200 bankamenn mótmæltu uppsögnum í Landsbanka Islands á útifundi
Áskorun um að draga
uppsagnimar til baka
BANKAMENN fjölmenntu á útifund sem Samband íslenskra banka-
manna og Félag starfsmanna Landsbanka íslands boðuðu til á Lækj-
artorgi kl. 17 í gær til að mótmæla uppsögnum 76 starfsmanna
Landsbankans frá og með næstu mánaðamótum, en að sögn lögregl-
unnar voru rúmlega 1.200 manns á fundinum. I upphafi fundarins
söng kór starfsmanna Landsbankans, en því næst var leikið af hljóm-
plötu lagið „Lax, lax, lax“. Ávörp fluttu Baldur Óskarsson, fram-
kvæmdasljóri SÍB, Helga Jónsdóttir, formaður FSLÍ og Anna ívars-
dóttir, formaður SÍB.
Baldur Öskarsson sagði í upphafi
máls síns að þetta væri svartur
fímmtudagur í sögu íslenskra
bankamanna og það ríkti dimma
og drungi í bijósti viðstaddra. Hann
sagði bankamenn vera saman-
komna til að fordæma harðlega rík-
isstjóm íslands sem þættist með
annarri hendinni vera að leggja
fimm milljarða í atvinnuskapandi
aðgerðir, en með hinni á sama tíma
fyrirskipa sínum eigin banka að
segja upp 76 starfsmönnum og
hafa gert kröfu um að fleirum yrði
sagt upp. ^
Siðlausri aðgerð mótmælt
Á fundinum var samþykkt sam-
hljóða eftirfarandi ályktun: „Uti
fundur bankamanna á Lækjartorgi
mótmælir harðlega þeirri siðlausu
ákvörðun bankastjómar Lands-
banka íslands að segja fyrirvara-
laust upp 76 starfsmönnum sínum.
Fundurinn fordæmir þá atvinnu-
stefnu ríkisstjómarinnar sem felst
í að fyrirskipa sínum eigin banka
að grípa til ijöldauppsagna sem
skilar aðeins sáralitlum sparnaði í
rekstri. Fundurinn skorar á banka-
stjórn og bankaráð Landsbankans
að draga þessar uppsagnir til baka
og ganga til viðræðna við Félag
starfsmanna Landsbanka Íslands
og Samband íslenskra bankamanna
um raunhæfar leiðir til sparnaðar
í rekstri bankans. Fundurinn heitir
á alla bankastarfsmenn að sýna
órofa samstöðu með félögum sínum
í Landsbankanum í baráttunni fyrir
sjálfsögðum mannréttindum."
Fundinum á Lækjartorgi bárast
fjölmargar stuðningsyfirlýsingar
frá starfsmannafélögum banka og
sparisjóða víðsvegar af landinu, og
einnig frá öðrum stéttarfélögum
sem lýstu samstöðu sinni með
bankamönnum.
Morgunblaðið/Júlíus
Uppsögnum motmælt
Um 1.200 manns voru á mótmælafundinum á Lækjartorgi að mati
lögreglunnar.
VEÐUR
IDAG kl. 12.00
Heímild: Veðurslola islands
(Byggt á veðurapé kl. 16.1S í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 28. MAI
YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1037 mb hæð en lægðardrag við suðaustur-
strönd islands þokast suðaustur.
SPÁ: Norðlæg eða norðaustlæg átt, víðast kaldi eða stinningskaldí.
Slydda með köflum um norðaustanvert landið, dálítil él á vestanverðu
Norðurlandi og nyrst á Vestfjörðum, einkum á annesjum, en bjart veður
að mestu sunnanlands og vestan. Norðanlands verður varla nema 2-5
stiga hiti en sunnanlands ætti hitinn að komast í 9-12 stig um hádaginn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDGAG: Norðaustanátt. Slydduél
eða súld með norður- og austurströndinn en léttskýjað á Suður- og
Vesturlandi. Hiti 6 tiM 1 stig yfir daginn suðvestanlands en annars 1 til
5 stig.
HORFUR A MANUDAG: Snýst í suðaustan- og austanátt. Þykknar upp
sunnanlands en léttir til norðvestanlands. Áfram súld á Austfjörðum.
Heldur hlýnandi.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990000.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
<é -a & m
Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
* r * * * *
* / * *
r * r * * *
Slydda Snjókoma
v '5' v
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörín sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjööur er 2 vindstig.
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
ítig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær)
Það er yfirleitt ágæt færð á þjóðvegum landsins, og t.d. fært fyrir létta
bíla um Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði á Vestfjörðum. Á Norður-
landi er búist við að Lágheiði opnist á morgun. Á Norðausturlandi er
ófært um Öxarfjarðarheiði og Hólssand. Hálendisvegir eru lokaðir vegna
snjóa og aurbleytu. Viðgerðir á klæóingum eru víða hafnar og eru vegrar-
endur beðnir að virða hraðatakmarkanir sem settar eru vegna hættu á
grjótkasti.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 f gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 6 skýjað
Reykjavlk 10 skýjað
Bergen 13 iéttskýjað
Helsinki 11 skýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Narssarssuaq 5 þokafgrennd
Nuuk 6 hálfskýjað
Stokkhólmur 16 léttBkýjað
Pórshöfn 7 alskýjað
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 14 súld
Barcelona 21 skýjað
Berlfn 13 rigning
Chicago 16 skúrásíð.klst.
Feneyjar 26 þokumóða
Frankfurt 19 skýjað
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 10 rigning
London 14 afskýjað
LosAngeles 14 skýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Madrtd 17 skýjað
Malaga 21 skýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Montreal 10 skúr
NewYork 18 heiðskírt
Oriando 22 alskýjað
París 20 skýjað
Madeira 20 skýjað
Róm 28 skýjað
Vfn 26 skýjað
Washfngton 16 léttskýjað
Winnípeg 8 úrk,ígrennd
Bankamenn ætla að
hægja á afgreiðslu
eftir næstu helgi
FORMANNAFUNDUR aðildarfélaga Sambands íslenskra banka-
manna ákvað í gær að beina því til allra starfsmanna í afgreiðslum
banka og sparisjóða að fara í einu og öllu eftir settum starfsreghim
næstkomandi þriðjudag, 1. júní, t.d. með því að biðja hvern og einn
viðskiptavin um persónuskilríki, en það gæti leitt til tafa við af-
greiðsluna. „Það var ákveðið að allir bankarnir myndu sýna sam-
stöðu sína með Landsbankafólki á þennan hátt, en þetta er alveg
100% löglegt,“ sagði Anna ívarsdóttir formaður SÍB í samtali við
Morgunblaðið.
„Það eru ætíð biðraðir í bönkun-
um um hver mánaðamót, en ef það
á hins vegar að halda áfram að
fækka bankamönnum þá er alveg
ljóst að við veitum ekki þá sömu
góðu þjónustu og við veitum í dag,
og biðraðir verða því daglegt brauð
í bönkunum," sagði Anna. Hún
sagði að farið yrði fram á það við
starfsmenn bankanna að þeir tækju
öll þau vinnuhlé sem þeir ættu rétt
á samkvæmt kjarasamningi, en al-
gengt væri að fólk sleppti kaffitím-
um um mánaðamót til að sinna
þjónustuhlutverkinu.
Viðræður um atvinnumál
Anna sagði að á formannafund-
inum í gær hefði ekki verið fjallað
nánar um verkfallsheimild sem
formannafundur hefur veitt stjórn
og samninganefnd SÍB, en ætlunin
væri að sambandið ásamt opinber-
um starfsmönnum færi á næstunni
í viðræður við stjórnvöld um at-
vinnumál.
Úrslit kunn í Hversdagsleikum
Reykjavík tapaði
fyrir Nithsdale
REYKJAVÍK tapaði fyrir borginni Nithsdale í Skotlandi í Hvers-
dagsleikunum í gær. I Reykjavík tóku 31.134 einstaklingar þátt í
keppninni eða 31,10% íbúa en 30.041 einstaklingur eða 52,70% íbúa
Nitlisdaie. Fáni Nithsdale mun því blakta við hún á ráðhúsi Reykja-
víkur í heila viku í byijun júní.
Að sögn Jónasar Kristjánssonar
hjá íþrótta- og tómstundaráði var
þátttaka í Reykjavík mjög góð
miðað við að þetta var í fyrsta sinn
sem keppnin var haldin hér á landi
en í þriðja sinn í Nithsdale. „Miðað
við að skólar eru ennþá starfandi
í Nithsdale en ekki hér,“ sagði
hann. „Ef við hefðum sent bréf til
allra íþróttakennara í skólum borg-
arinnar þar sem ent 20 þúsund
nemendur þá hefði verið hægt að
standa að hópíþróttum í löngufrí-
mínútum. Það hefði munað um
það.“
Úrslit í keppninni á Akureyri
verða ekki kunn fyrr en í næstu
viku vegna trúarhátíðar í ísarel
og var keppninni frestað þar í gær
en Akureyri keppir við Ashkelon í
ísrael. Niðurstöður dagsins á Ak-
ureyri voru því innsiglaðar og bíða
þess að ísraelar ljúki sínum degi.
Vilja lög um
alþjóðlega
skipaskrá
SÉRSTÖK bókun fylgir kjara-
samningi Vélastjórafélagsins
og vinnuveitenda sem undir-
ritaður var sl. miðvikudag sem
kveður á um að hann sé undir-
ritaður í trausti þess að sett
verði lög um alþjóðlega skipa-
skrá hér á landi og að gerðar
verði ráðstafanir til að bæta
samkeppnisstöðu íslenskra
farmanna. Er samningurinn
uppsegjanlegur frá 1. maí
1994 ef þessu máli hefur ekki
verið ráðið til lykta.
i
i
>
i
I
t
I