Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 12
Kammer-
tónleikar í
Hafnarborg
SÍÐUSTU tónleikar starfs-
Fyrstu tónleikar í nýrri sumar-
tónleikaröð í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar hefjast þriðju-
daginn 1. júní, kl. 20.30 og koma
þar fram þau Tómas Tómasson,
bassi, og Hrefna U. Eggerts-
dóttir, píanóleikari. Þetta er
ársins í tónleikaröð Tríós
Reykjavíkur og Hafnar-
borgar, menningar- og lista-
stofnunar Hafnarfjarðar,
verða haldnir á mánudag,
annan í hvítasunnu, og hefj-
ast þeir kl. 20.
Á þessum tónleikum verður
klarinettan mjög í sviðsljósinu, en
það eru Sigurður I. Snorrason,
klarinettuleikari, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanóleikari, Pál-
ína Árnadóttir, fiðluleikari, og
Guðmundur Kristmundsson sem
leggja Tríói Reykjavíkur lið á tón-
leikunum. Fluttur verður forleikur
um gyðingastef fyrir klarinettu,
píanó og strengjakvartett eftir
Sergej Prokofjev, Andstæður fyrir
fiðlu, klarinettu og píanó eftir
Béla Bartók og tríó fyrir píanó,
klarinettu og selló eftir Ludwig
van Beethoven. Tríó Reykjavíkur
skipa þau Halldór Haraldsson,
píanóleikari, Guðný Guðmunds-
dóttir, fiðluleikari, og Gunnar
Kvaran, sellóleikari. Tríóið mun á
sumri komandi leika á tónleikum
í Prag og Lundúnum.
Tríó Reykjavíkur á æfingu ásamt gestum slnum.
Tómas Tómasson. Hrefna U. Eggertsdóttir.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sumartónleikar
upphafið á röð sumartónleika,
alls 15 talsins, og munu þeir
standa til loka ágústsmánuðar.
Á efnisskránni eru ljóðasöngvar
og aríur eftir Sigfús Einarsson,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Karl
Ó. Runólfsson, Franz Schubert,
Gustav Mahler, Francis Poulenc,
Giuseppe Verdi, Wolfgang Amad-
eus Mozart og Tsjajkovskíj.
Tómas Tómasson lauk nýverið
8. stigs prófi í söng og hliðargrein-
um frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík undir handleiðslu Elísa-
betar Erlingsdóttur. Á mennta-
skólaárum sínum starfaði hann
með kór Menntaskólans í Hamra-
hlíð og með kór íslensku óperunn-
ar hefur hann starfað frá 1990.
Tómas hefur farið með ýmis ein-
söngshlutverk í uppfærslum ís-
lensku óperunnar og m.a. sungið
einsöng með Sinfóníuhljómsveit
íslands á jólatónleikum hennar
1992. Næsta haust heldur hann
til náms við óperudeild Royal Col-
lege of Music í Lundúnum.
NÝMYNDBÖND
* *
FRA HASKOLABIOI
BACK IN THE USSR
BLÁA LÍNAN
SEXUAL RESPONSE
Erótísk spennumynd þar sem kynlífsfræð-
ingur, sem stjórnar útvarpsþætti um kyn-
líf, hellir sér út í villt framhjáhald með
skelfilegum afleiðingum. Shannon Tweed
fer með aðalhlutverkið en hún er fyrr-
verandi leikfélagi ársins hjá Playboy.
Spennumynd þar sem grínið er aldrei langt undan.
Bandaríkjamaðurinn Archer Sloan fer í sumarfrí til
Moskvu en fríið snýst upp í martröð þegar hann
lendir óvart í hringiðu glæparotta og mafíu Moskvu-
borgar.
HASKOLABlÖ
Sími 611212
Myndlist
Samsýning í Ný-
listasafninu
Nú stendur yfir í efri sölum Ný-
listasafnsins við Vatnsstíg sýning á
verkum eftir Ingvar Ellert Óskars-
son, Svein Einarsson og Óskar M.B.
Jónsson. Á sýningunni eru teikning-
ar og litkrítarmyndir, verk unnin úr
plasthúðuðu blikki, útskurðarverk
og myndir unnar úr sandsteini. í
neðri sölum safnsins er kýning á
verkum Þóru Sigurðardóttur. Á sýn-
ingunni eru teikningar og þrívíð
verk, unnin á sl. 2 til 3 árum. Þóra
stundaði nám við MHÍ og Myndlista-
skólann í Reykjavík og framhalds-
nám við Det Jyske Kunstakademi í
Árósum. Þóra sýndi síðast á sl. ári
í Galleríi 11. Sýningum lýkur sunnu-
daginn 30. maí.
Síðasta sýningarhelgi
Bjargar
Björg Þorsteinsdóttir opnaði mál-
verkasýningu_ í Hafnarborg 8. maí
síðastliðinn. Á sýningunni eru mál-
verk og olíukrítarmyndir sem unnar
eru á sl. þremur árum. Björg stund-
aði myndlistarnám við MHÍ, Aka-
demie der bildende Kunste í Stuttg-
art, Myndlistaskólann í Reykjavík
og Atelier 17 í París. Hún hefur
haldið yfir tuttugu einkasýningar
hérlendis. Sýningin er opin til 31.
maí en lokuð hvítasunnudag.
Síðasta sýningarhelgi
Sundby
Gríska listakonan Theano Sundby
sýnir vatnslitamyndir og teikningar
í FÍM-salnum um þessar mundir, en
hún er nú búsett í Noregi þar sem
hún fæst við listsköpun sína. Hvíta-
sunnuhelgin er síðasta sýningarhelgi
hennar.
Gallerí Heimalist opnað
Gallerí Heimalist verður opnað á
fimmtudag, 27. maí, í Vestmanna-
eyjum. Galleríið verður með vörur
sem flestar eru unnar af Vestman-
neyingum og verður opið hús alla
hvítasunnuhelgina frá kl. 14-18.
Margo Renner í Eden
Margo Renner heldur sýningu á
glerskúlptúr í Eden, Hveragerði, yfir
hvítasunnuhelgina. Á sýningunni
gefst gestum kostur á að sjá gler
breytast í alls kyns listaverk.
Arktika í MÍR-salnum
„Arktika", sýning Katrínar Þor-
valdsdóttur og Alexöndru Kjuregej
Argunovu í sýningarsal MIR við
Vatnsstíg, stendur til 6. júní nk. en
þá verður sýningarefnið búið til
flutnings á íjölþjóðlega myndlistar-
sýningu í Jakútsk, höfuðborg lýð-
veldisins Sakha (Jakútíu) í Austur-
Síberíu. Aðgangur á sýninguna er
ókeypis og ölium heimill.
Morgunblaðið/Silli
Kirkjukór Ólafsfjarðar í Húsavíkurkirkju.
Húsavík
Kirkjukór Ólafsfjarðar
í Þingeyjarsýslu
Húsavík.
KIRKJUKÓR Ólafsfjarðar hélt
tvær söngskemmtanir í Þingeyj-
arsýslu nýlega í Ljósvetninga-
búð og Húsavíkurkirkju. Stjórn-
andi var Pólverjinn Jakub Ko-
losowski.
Söngskráin var mikil og fjöl-
breytt, alls 18 lög, og var söngnum
svo vel tekið að alls varð kórinn
að syngja 20 lög. Allt voru það
veraldleg lög en fréttaritari hefði
viljað fá að heyra eitthvað af and-
legum lögum, ekki síst þar sem í
kirkju var sungið.
Ólafsfirðingar virðast ekki eiga
við þann vanda að stríða sem
margir kirkjukórar á smærri stöð-
um glíma við og það er jafnræði
kven- og karlaradda, en hjá þeim
virðist ríkja jafnræði.
Aðsókn var sæmileg en viðtökur
ágætar eins og áður er sagt, af
þeim sem til heyrðu.
- Fréttaritari.
Þjóðleikhúsið
Allra síðustu sýning-
ar á My Fair Lady
SÝNINGUM á söngleiknum My
Fair Lady fer senn að ljúka. Sýn-
ingin hefur fengið afbragð und-
irtektir og verið sýnd yfir 40
sinnum. Aðeins eru þrjár sýning-
ar eftir, í kvöld, föstudaginn 28.
maí, 5. júní og 11. júní.
Rúmlega 30 manns taka þátt í
sýningunni, leikarar, söngvarar og
dansarar. Leikstjóri er Stefán Bald-
ursson, leikmynd gerir Þórunn S.
Þorgrímsdóttir en búninga þýskur
búningahönnuður að nafni María
Roers. Tónlistarstjóri er Jóhann G.
Jóhannsson og breski danshöfund-
urinn Ken Oldfield semur dansana.
í helstu hlutverkum eru Jóhann
Sigurðarson, Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir, Helgi Skúlason, Pálmi
Gestsson, Örn
Árnason, Bergþór
Pálsson, Helga
Bachmann, Þóra
Friðriksdóttir,
Sigurður Sigur-'
jónsson, Margrét
Guðmundsdóttir
og Sigríður Þor-
valdsdóttir.
Söngleikurinn
My Fair Lady
fyallar um glímu
málvísindaprófessorsins Henrys
Higgins við að kenna óheflaðri og
illa talandi alþýðustúlku, Elísu Doo-
litle, rétt mál í þeim tilgangi að
gera úr henni hefðarstúlku.
Sigurður Sig-
urjónsson.