Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 17
■<mér út af bekknum.- Þetta feyfði
hann sér að segja um mig, sem var
alls ekki gömul kona, og það sagði
ég yfirlækninum sem brosti bara.
En þetta var ekkert til að brosa að,
hann hefði heldur átt að gefa unga
manninum áminningu, hann hefur
gleymt þessu strax enda um annað
að hugsa. Svona getur hégóminn
gert mann að fáráðlingi. Ég blygð-
aðist mín þegar ég hafði áttað mig
á kringumstæðunum. En þessi
demba kom svo óvænt yfir mig að
mér var meira um en svo, að ég
gæti áttað mig og hegðað mér eins
og virðulegri roskinni konu sæmdi.
Ef til vill hefur hann séð merki ell-
innar sem ég sjálf hafði ekki tekið
eftir, af því ég hafði ekki viljað sjá
þau. Öldruð kona sagði mér frá
reynslu sinni um kerlingarmálin.
Drengur i húsinu þar sem hún leigði
kallaði stundum á eftir henni: „Þú
ert kerling." Hún lét sem hún heyrði
það ekki, þangað til einn daginn
að henni datt í hug að svara hon-
um: „Já, ég er kerling og þú ert
karl.“ Drengurinn varð orðlaus.
Hann hét nefnilega Karl. Bömin
hérna í Seljahverfí eru flest prúð.
En forvitin urðu þau þegar þetta
stóra hús var allt í einu orðið fullt
af öfum og ömmum. Fáum dögum
eftir að ég var flutt í húsið tók ég
eftir því að tveir litlir drengir voru
alltaf að sniglast í kringum það og
horfa upp í gluggana. Eg fór út til
þeirra og spurði þá hvort þá lang-
aði til að hitta einhvern. Nei, sögðu
þeir báðir í einu, en okkur langar
svo óskaplega mikið til þess að sjá
inn. Ég sagði að það væri víst vel-
komið. Og við svar mitt urðu þeir
hjartanlega glaðir og þakklátir.
Þegar þeim fannst nóg komið að
sjá, kvöddu þeir mig, þeir höfðu
fengið að seðja forvitnina og um
leið nokkra fræðslu. Þeir höfðu
ekki farið langt til baka, þegar
annar þeirra kom hlaupandi og
spurði: „Heldurðu að við getum ein-
hvern tíma fengið að búa hérna?“
Ég svaraði eftir bestu getu í sam-
ræmi við spurninguna og við skild-
um mestu mátar. Ég get ekki látið
vera að minnast aðeins meira á
börnin. Þau eru mér svo hugleikin.
Gunnar Smári
ritstýrir
Heimsmynd
GUNNAR Smári Egilsson, fyrr-
verandi ritsljóri Pressunnar, hef-
ur tekið við starfi sem ritstjóri
tímaritsins Heimsmyndar. Her-
dís Þorgeirsdóttir, sem hefur rit-
stýrt Heimsmynd undanfarin ár,
er nú í leyfi.
Gunnar Smári sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann yrði í rit-
stjórastólnum um sinn, að minnsta
kosti í sumar. „Ég hef ekki ritstýrt
tímariti áður, en hins vegar hef ég
starfað sem blaðamaður á NT, Tím-
anum, Helgarpóstinum, Pressunni
og DV. Þó tímarit sé annað brag-
form þá er það ekki önnur veröld,"
sagði hann. „Mér er ekkert kapps-
mál að breyta blaðinu, en hins veg-
ar held ég að það sé ekki hægt að
ritstýra svona blaði án þess að það
sjáist hver er við stjórnvölinn."
Gunnar Smári sagði að hann
væri ekki búinn að leggja áform
um útgáfu eigin blaðs á hilluna. „Ég
vil reyna það til þrautar og ætla
að kanna grundvöll þess í sumar,“
sagði hann. „Það kemur í ljós á
næstu 2-3 mánuðum hvort af því
verður. Ég ætla mér hins • vegar
ekki að fara út í slíka útgáfu ef
það er ljóst að það gengur ekki
upp.“
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
cíí7
Oft hafa börn af dagheimilum í
nágrenninu komið og sungið fyrir
okkur. Eitt sinn var ég beðin að
segja þeim sögu að launum fyrir
sönginn. Það gladdi mig. Þegar
sögunni var lokið kom stærsti
drengurinn úr hópnum og gaf mér
innilegan þakklætiskoss á vangann.
Fleiri fóru svo að dæmi hans. Ég
varð himinsæl. Sambandið milli elli
og æsku er svo hjartanlegt og sak-
laust. Hingað að Seljahlíð hafa
margir komið til þess að gleðja
okkur með skemmtiatriðum. Öllu
þessu fólki sendi ég bestu þakkir.
Öllum er nauðsynleg einhver til-
breyting, ekki síst þeim sem lítið
geta farið sjálfir vegna elli og sjúk-
leika sem fylgir aldursskeiðinu.
Sóknarpresturinn og kvenfélag
Seljasóknar hafa ekki látið sitt eft-
ir liereia. þeim skal ekki eleymt.
Allir sem láta kærleikann ráða fá
laun sín þaðan sem réttlætið býr.
Þeim er mikið gefið sem eru ríkir
af þolinmæði, umburðarlyndi og
kærleika, það eru Guðs gjafír. Þeg-
ar ég var ung þurfti ég eitt sinn
að vaka yfir aldraðri deyjandi konu,
ég bjóst við umskiptum á hverri
stundu, ég var víst að hugsa um
að bráðum færi hún þangað sem
engin þjáning væri til. Allt í einu
sá ég að varir hennar bærðust, ég
lagði eyra mitt að vörum hennar,
þá heyrði ég orðin: „Þegar Guð er
með oss, hver er þá á móti oss?“
Mér fannst í svipinn að himininn
væri að opnast, og hvísl hinnar
deyjandi konu vera ómur af engla
söng.
Höfundur er rithöfundur.
Hvað er að
frétta afþér
í fríinu?
Farsíminn er mikilvægt samskiptatæki, hvort heldur er í
bílinn, sumarbústaðinn, útileguna eða fjallaferðina.
Með stafræna símakerfinu geturðu á einfaldan hátt flutt
símtal úr vinnunni eða að heiman beint í farsímann hvar
sem þú ert á landinu.
Þúsundir íslendinga nota farsíma daglega og nú átt þú
kost á að eignast einn slíkan frá Motorola á frábæru
verði og góðum greiðslukjörum.
MOTOROLA
— traustur tengiliður
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeildir I Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni
og á póst- og símstöövum um land allt
GOTT FÓLK / SlA