Morgunblaðið - 28.05.1993, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
37
Umferðarfræðsla
fyrir 5-6 ára börn
LÖGREGLAN í Reykjavík, um-
ferðarnefnd Reykjavíkur og Um-
ferðarráð efna til umferðar-
fræðslu í júní fyrir börn sem fædd
eru árin 1987 og 1988. Gert er ráð
fyrir að hvert barn mæti tvo daga
í röð, klukkustund í senn.
í þeim skólum þar sem fræðslan
fer fram tvisvar sama daginn er um
sama efni að ræða en fólk getur
valið þann tíma sem hentar betur.
Foreldrar eða forráðamenn eru sér-
staklega boðnir velkomnir með börn-
um sínum.
Fræðslan fer fram í grunnskólum
borgarinnar sem hér segir: 1. og 2.
júní: Grandaskóli kl. 9.30, Hvassa-
leitisskóli kl. 11 og 13.30 og Hamra-
skóli kl. 15. 3. og 4. júní: Árbæjar-
skóli kl. 9.30, Seljaskóli kl. 11 og
13.30 og Fossvogsskóli kl. 15. 7. og
8. júní: Hólabrekkuskóli kl. 9.30 og
15 og Breiðholtsskóli kl. 11 og 13.30.
9. og 10. júní: Álftamýrarskóli kl.
9.30, Foldaskóli kl. 11 og 13.30 og
Ártúnsskóli kl. 15. 11. og 14. júní:
Breiðagerðisskóli kl. 9.30, Laugar-
nesskóli kl. 11 og 13.30 og Selás-
skóli kl. 15. 15. og 16. júní: Lang-
holtsskóli kl. 9.30 og 15 og Hlíða-
skóli kl. 11 og 13.30. 21. og 22. júní:
Húsaskóli kl. 9.30, Fellaskóli kl. 11,
Vesturbæjarskóli kl. 13.30 og Voga-
skóli kl. 15. 23. og 24. júní: Mela-
skóli kl. 9.30 og 15 og Austurbæjar-
skóli kl. 11 og 13.30.
Framundan er tími útivistar með
aukinni þátttöku bama í umferð.
Þessi fræðsla á að vera stuðningur
við foreldra og verður vonandi til að
auka umferðaröryggi. Því er lagt
mikil áhersla á að öll börn á þessum
aldri mæti til leiks.
(Fréttatilkynning)
Vormót Hraunbúa
um hvítasunnuna
ÁRLEGT vormót skátafélagsins
Hraunbúa í Hafnarfirði verður
haldið í Krísuvík um hvítasunnu-
helgina. Mótið verður sett á föstu-
dagskvöld kl. 21 og slitið á mánu-
daginn kl. 14. Yfirskrift mótsins
er „vemdum landið“.
Dagskráin verður að verulegu leyti
í formi svokallaðra póstakeppni en
hún felst í því að skátamir eiga að
vinna ákveðin verkefni og leysa
þrautir á ákveðnum tíma og við
ákveðin skilyrði. Keppt verður um
tjaldbúðarverðlaun þar sem tekið
verður tillit til hliðs, girðingar, skólp-
gryfju, eldstæðis o.fl. Einnig verður
matreiðslukeppni og mun þar m.a.
verða keppt um hvaða flokkur eldar
bestu kjötsúpuna og besta fískrétt-
inn. Þá verður varðeldar og kvöld-
¥
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Hvítasunnuferðir F.í.
28.-31. maí:
1) Snæfellsnes - Snæfellsjökull.
Gist í svefnpokaplássi að Görð-
um í Staðarsveit. Jökullinn heill-
ar, en margt annað er í boði
bæði á láglendi og fjöllum.
Silungsveisla. Stutt í sundlaug.
2) Öræfajökull - Skaftafell.
Gengið á Hvannadalshnúk, 15
klst. ganga. Gist að Hofi. Göngu-
ferð og æfing í þjóðgarðinum.
3) Skaftafell - Öræfasveit -
Jökulsárlón. Snjóbflaferð á
Skálafellsjökul í boði.
Göngu- og skoðunarferðir um
þjóðgarðinn og Öræfasveitina.
Góð gistiaðstaða ( svefnpoka-
plássi eða tjöldum að Hofi. Snjó-
bílaferð á Skálafellsjökul 1 'h klst.
Verð kr. 4.400.
Árbókin 1993: Við rætur Vatna-
jökuls eftir Hjörleif Guttorms-
son var að koma út. Ferðir 2
og 3 eru fyrstu af mörgum ferð-
um í sumar sem tengjast efni
hennar. Ómissandi í ferðir um
Austur-Skaftafellssýslu.
4) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála. Gönguferðir um Mörkina.
Brottför í ferðirnar er kl. 20.00.
5) 29.-31. ma( - brottför kl.
08.00: Fimmvörðuháls - Þórs-
mörk. Ekið að Skógum og geng-
ið þaðan á laugardeginum yfir
til Þórsmerkur.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.I., Mörkinni 6.
Dagsferðir
um hvítasunnu:
Sunnudagur 30. maí kl. 13.30:
Selvogur - Strandakirkja/
ökuferð.
Mánudaginn 31. maí verða
tvær ferðir: Kl. 10.30 Fossá -
Þrándarstaðafjall - Brynjudal-
ur. Gengið á Þrándarstaðafjall
frá Fossá og komið niður í
vökur með söng og skemmtiatriðum
á laugardags- og sunnudagskvöld.
Mótið sækja aðallega skátafélög
af Reykjanesi og ijölskyldubúðir
verða starfræktar að venju. Á sunnu-
daginn er heimsóknardagur og munu
skátar bjóða upp á gönguferð kl. 14
fyrir almenning um Krísuvík undir
leiðsögn sérfróðra manna og kakó
og kex á eftir.
♦ ♦ ♦------
■ HÚMANISTAHREYFINGIN
verður með götuleikrit og kynningu
á málefnum húmanista í miðbæ
Reykjavíkur frá kl. 16 til 17 í dag,
föstudaginn 28. maí. Götuleikritið
mun berast niður Laugaveg og um
miðbæinn og enda á Lækjartorgi þar
sem verður götusjónvarp, dreifíng
bæklinga og spjall við vegfarendur.
Brynjudal. Kl. 13.00 sama dag:
Reynivallaháls - Kirkjustígur.
Gengið upp frá Hálsnesi og aust-
ur eftir hálsinum og niöur Kirkju-
stíg.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Ferðafélag fslands.
NÝ-UNG
KFUM & KFUK
Suðurhólum 35
Samveran í kvöld hefur yfir
skriftina: „Bæn virkar".
Þar fjallar Sæunn Þórisdóttir um
nauðsyn bænarinnar í andlega
stríðinu. Fyrirbænastund.
Samveran er öllum opin!
Auðbrekka 2 . Kópavogur
Föstudagur: Samkoma kl.
20.30. Við bjóðum velkomna
gesti frá Bandaríkjunum, þau
Deboru og Charles Hill.
Laugardagur: Samkoma kl.
20.30. Charles Hill frá U.S.A.
predikar. Negrakór syngur létta
sveiflu.
Hvítasunnudagur: Samkoma
með Hillhjónunum frá U.S.A. kl.
16.30.
Annar hvítasunnudagur: Árshá-
tíð Krossins verður haldin í
Félagsheimili Kópavogs í Fann-
borg 2 og hefst kl. 19.00.
Þriðjudagur: Kveðjusamkoma
fyrir Hillhjónin kl. 20.30.
Allir eru velkomnir á þessar sam-
komur meðan húsrúm leyfir.
Tveir af aðalleikurum myndarinnar í hlutverkum sínum, þau Matt-
hew Modine og Jennifer Gray.
Háskólabíó sýnir mynd-
ina Siglt til sigfurs
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Siglt til sigurs
eða „Wind“. Með aðalhlutverk
fara Matthew Modine og Jennifer
Gray. Leikstjóri er Francis Ford
Coppola.
Mjmd þessi fjallar um hina harð-
vítugu keppni milli Bandaríkja-
manna og Ástralíumanna um Amer-
íkubikarinn svonefnda í kappsigling-
um á seglskútum. Lengst af hafa
Bandaríkjamenn haldið bikarnum en
myndin hefst einmitt á því að þeir
verða að sjá á eftir honum í hendur
Ástralíumannsins Johns Neville.
Þau Will og Kate er elskendur og
eru bæði heilluð af siglingum og sjó-
mennsku. Þegar Will gefst tækifæri
til að komast í áhöfn Morgans Weld,
handhafa Ameríkubikarsins, þá hik-
ar hann ekki eitt andartak. Morgan
gerir Will að aðstoðarmanni sínum
og felur honum stjórn annarrar
skútu sem á að keppa við hann.
Æfingar ganga fremur brösulega
og ekki bætir úr skák þegar Will
vill hafa Kate með sér í áhöfnina.
Þetta vekur ólgu meðal áhafnarinnar
enda gengur slíkt þvert á allar hefð-
ir. Niðurstaðan verður sú að Kate
hverfur á braut, fer að vinna að
fagi sínu, flugvélaverkfræði ásamt
Heiser flugvélaverkfræðingi.
Og þá er komið að sjálfri kappsigl-
ingunni um Ameríkubikarinn. Eftir
harðvítuga keppni verður Morgan
að láta í minni pokann fyrir Ástralíu-
manninum og áhöfnin dreifíst í ýms-
ar áttir. Will leitar Heiser flugvéla-
verkfræðing uppi í Nevada-eyði-
mörkinni sem bendir honum á að
flugvélar og seglskútur eiga fjöl-
margt sameiginlegt.
Leitað vitna
að árekstri
LÝST er eftir vitnum að
árekstri sem varð á mótum
Hringbrautar, Snorra-
brautar og Miklubrautar
um klukkan þrjú síðdegis
sunnudaginn 16. maí síðast-
liðinn.
Þar rákust saman tveir bíl-
ar, rauð Toyota Corolla, sem
ekið var austur Hringbraut og
beygt áleiðis norður Snorra-
braut og bíll sem ekið var vest-
ur Miklubraut og inn á gatna-
mótin.
Ökumenn greinir á um
stöðu umferðarljósanna við
áreksturinn og eru vitni að
árekstrinum beðin að hafa
samband við Sumarliða hjá
tjónadeild Sjóvár-Almennra
trygginga í síma 692500.
Heimsókn í
Krossinum
HJÓNIN Debora og Charles
Hill eru stödd hérlendis og mun
Charles Hill prédika á samkom-
um sem verða um helgina í húsa-
kynnum Krossins í Auðbrekku
2 í Kópavogi.
Charles Hill er varaforseti al-
þjóðlegrar kirkjudeildar sem hefur
höfuðstöðvar sínar í Jeffersonville
í Indíanafylki í Bandaríkjunum.
Hann hefur veitt söfnuðum for-
stöðu bæði í Dallas í Texas og
Oklahomaborg í Oklahomafylki.
(Fréttatilkynning)
"Núna er rétti tíminn
til að hætta að reykja "
Nýr upplýsingabœklingur um nikotín-
tyggigúmmí og 16 klukkustunda nikotín
piástur með ráðleggingum fýrir þá sem
vilja hœtta tóbaksreykingum.
Liggurframmi i apótekum.
■
Í
í
1