Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 41

Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 41
Atli Gunnar Arnórsson, Glaumbæ II. Guðmundur Jökull Jónsson, Dæli. Ingibjörg Fanney Haraldsdóttir, Brautarholti. Jón Eymundsson, Árgerði. Jón Reynir Sigtryggsson, Birkimel 11, Varmahlíð. Sigurlaug Jóhannsdóttir, Birkimel 5, Varmahlíð. Ferming í Stykkishólmskirkju, hvítasunnudag kl. 14. Prestur sr. Gunnar Eiríkur Hauksson. Fermd verða: Anna Margrét Einarsdóttir, Ægisgötu 11. Bergþór Smárason, Ásklifi 6. Birkir Pálsson, Nestúni 7. Björg Arna Elfarsdóttir, Ásklifi 2. Daði Heiðar Sigurþórsson, Sjávarflöt 4. Eva Rán Ragnarsdóttir, Víkurflöt 8. Guðbjörn Emilsson, Sundabakka 24. Herdís Rós Grétarsdóttir, Borgarflöt 11. Jóhann Freyr Guðmundsson, Tjarnarhólma 2. Jón Þór Gunnarsson, Vallarflöt 1. Kári Bergsson Hjaltalín, Garðaflöt 9. Margrét Hildur Ríkharðsdóttir, Ásklifi 9. Marinó Ingi Emilsson, Aðalgötu 14. Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir, Víkurflöt 2. Ragnheiður Kristín Vignisdóttir, Garðaflöt 4. Stefán Már Sigurðarson, Borgarflöt 7. Þorsteinn Eyþórsson, Tangagötu 13. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Ásklifi 15. Örn Guðbrandsson, Ægisgötu 8. Ferming í Helgafellskirkju í Stykkishólmsprestakalli annan í hvítasunnu kl. 14. Prestur sr. Gunnar Eiríkur Hauksson. Fermd verður: Margrét Erla Júlíusdóttir, Borgarlandi, Helgafellssveit. Ólafsvíkurprestakall. Ferming í Ingjaldshólskirkju, hvítasunnu- dag kl. 10.30. Prestur sr. Friðrik J. Hjartar. Fermd verða: Árni Garðar Jónsson, Gufuskálum. Bergþór Heimir Þórðarson, Klettsbúð 7, Hellissandi. Guðbjartur Þorvarðarson, Naustabúð 6, Hellissandi. Ingvi Hrafn Aðalsteinsson, Keflavíkurgötu 16, Hellissandi. Sigurþór Einar Halldórsson, ________________________________MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 41 Gufuskálum. Sævar Örn Sveinbjörnsson, Snæfellsási 3, Hellissandi. Eva Brá Hallgrímsdóttir, Helluhóli 7, Hellissandi. Hildur Þorgeirsdóttir, Háarifi 27, Rifi. Kolbrún Ósk Pálsdóttir, Munaðarhóli 12, Hellissandi. Sandra Ósk Eysteinsdóttir, Gufuskálum. Sigrún Friðriksdóttir, Laufási 6, Hellissandi. Ferming í Ólafsvíkurkirkju, hvítasunnudag kl. 13.30. Prestur sr. Friðrik J. Hjartar. Fermd verða: Amaldur Björnsson, Vallholti 5. Amþór Ágústsson, Grundarbraut 3. Gunnar Valdimar Bergsveinsson,. Skipholti 10. Jón Ingi Gylfason, Tungu. Jón Þór Jónsson, Skipholti 3. Kristmundur Sumarliðason, Hábrekku 8. Oddgeir Guðleifsson, Gmndarbraut 24. Óskar Hafberg Róbertsson, Túnbrekku 16. Sæbjörn Elvan Vigfússon, Brúarholti 5. Þórhallur Sigjónsson, Skipholti 11. Guðbjörg Birna Jónsdóttir, Hábrekku 12. Guðrún Katrín Jóhannesdóttir, Hábrekku 18. Guðrún Þorgrímsdóttir, Hjallabrekku 5. Gyða Hlín Björnsdóttir, Sandholti 32. Hansína Metta Jóhannsdóttir, Brautarholti 20. Heba Lind Björnsdóttir, Grundarbraut 13. Helga Jóhanna Guðmundsdóttir, Gmndarbraut 47. Hermína Kristín Lámsdóttir, Stekkjarholti 13. Hrafnhildur Árnadóttir, Lindarholti 6. Magðalena Margrét Kristjánsdóttir, Túnbrekku 9. Marta Sigríður Pétursdóttir, Skálholti 13. Ferming í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal hvítasunnudag kl. 13.30. Prestur sr. Haraldur M. Kristjáns- son. Fermd verða: Anna Rósa Einarsdóttir, Völlum, Mýrdal. Guðmundur Ragnar Ólafsson, Steig, Mýrdal. Guðni Þór Þórarinsson, Álftagróf, Mýrdal. Ingveldur Þórey Eyjólfsdóttir, Eystri-Pétursey, Mýrdal. Kolbrún Ósk Guðjónsdóttir, Nikhól, Mýrdal. Ragnar Sævar Þorsteinsson, Norður-Vík, Vík í Mýrdal. Alltaf sami dagurinn Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Dagurinn langi („Groundhog Day“). Sýnd í Stjörnubíói. Leik- sljóri: Harold Ramis. Handrit: Danny Rubin og Ramis. Aðal- hlutverk: Bill Murray, Andie MacDowell, Chris Elliott, Steph- en Tobolowsky, Brian Dole- Murray. Flest erum við föst í einhverri rútínu sem við sjáum sjaldnast út fyrir; lifum sama daginn upp aftur og aftur. Þetta er nákvæmlega það sem kemur fyrir Bill Murray í róm- antísku gamanmyndinni Dagurinn langi eða „Groundhog Day“, nema það gerist bókstaflega. Hann er veðurfréttamaður sem sendur er norður í krummaskuð að fjalla um múrmeldýrahátíð staðarins, en fyr- ir einhveija töfra sem aldrei eru skýrðir tekur hann að upplifa sama daginn, 2. febrúar, aftur og aftur og aftur, endalaust. . í gegnum allar þessar endur- tekningar sér hann loks að hann lifír heldur ómerkilegu lífí, hann er nánast kvenhatari, vinnuna hef- ur hann aldrei tekið alvarlega eða þótt varið í samstarfsfólkið, hann fyrirlítur smábæjarlífið en er kald- hæðnislegt meinhorn, sem aldrei sér glaðan dag. Tala ekki um þeg- ar það er alltaf sami dagurinn. En brátt fer hann að sjá að sér, hann sér villu síns vegar og breyt- ist í fullkomið eintak af hvítum, elskulegum miðaldra manni. Svo Dagurinn langi er þroska- saga með öllum sínum Hollywood- einkennum; vandamálið ristir ekki djúpt til að byija með en lausn þess er einkar viðkunnanleg og mannleg og lítt spennandi áður en bundin er risastór hamingjuslaufa í endann undir átakalítill leikstjórn Harolds Ramis. Hugmyndin um manninn sem vaknar alltaf til sama dagsins er góð en þetta er eins brandaramynd þótt afbrigðin af brandaranum séu fjölmörg. Fyrri hluti myndarinnar er mun betri en sá seinni. Þá er gamanleik- arinn Murray líka í essinu sínu. Það lýsir af honum grallaraskapur- inn og meinleg mannfyrirlitning líkt og þegar hann lék Skrögg í jólamyndinni „Scrooged“. En eins og í þeirri mynd linast hann allur í afstöðu sinni þegar líða tekur á Daginn langa og hann verður svona rómantísk hetja í ástaratrið- um með mótleikkonunni, Andie MacDowell. Svoleiðis nokkuð er bara ekki hans stíll. Það á engum eftir að takast að gera Bill Murray rómantískan. Engum. Það er margt fyndið í Deginum langa, skoplegt smábæjarlífið og einstaka persónur. Leikurinn er líka ágætur og þessi endurtekning á sama deginum er skemmtileg framan af. En brandarinn endist ekki í heila bíómynd og þegar ljóst verður að það hangir ekki meira á spýtunni en þessi þroskasaga Murrays og leikstjórn og handrit víkja ekki frá draumalöndum Hollywoodrómantíkunnar með sín- um ofurhamingjusömu endalokum, finnst manni að það hefði mátt útfæra góða hugmynd betur. Fjölskyldu- ruglingur Stjúpbörn („Big Girls Don’t Cry, They Get Even“). Leikstjóri: Joan Micklin Silver. Aðalhlut- verk: Hillary Jocelyn Wolf, David Strathairn, Margaret Whitton. Það er óhætt að segja að íj'öl- skyldulífíð í gamanmyndinni Stjúpbörn, sem sýnd er í Laugarás- bíói, sé ruglað. Aðalpersónurnar eru flestar ef ekki allar af fyrra hjónabandi og börnin eiga tvenn og stundum þrenn foreldri. Þau hafa fæðst inn í eina fjölskyldu, alist upp í annarri og búa þegar myndin hefst hjá þeirri þriðju. Myndin reynir að draga upp gam- anið af þessum stórkostlega fjöl- skylduruglingi en hún verður aldr- ei fyndin heldur aðeins farsakennd og á endanum sérstaklega væmin. Fólkið í myndinni er heldur ekki sérlega spennandi. Mest snýst hún um unga táningsstúlku sem föst er í fjölskylduruglinu miðju og er sögumaður myndarinnar; talar gjarnan beint til áhorfenda í gegn- um linsuna. Titillinn á frummálinu á líklega við hana, en hann er svona: Stórar stelpur gráta ekki heldur hefna sín. Álvöru föður hennar leikur smá- stirnið Griffín Dunne, sem er list- málari í tygjum við unga konu er ber tvíbura hans undir belti. Stúp- faðir stelpunnar er David Stratha- irn, moldríkur kaupsýslumaður. Móðir hennar og eiginkona hans hefur ekki undan að fegra sig og eyða peningum. Inní söguna bland- ast aðrar konur og önnur börn í svo miklum mæli að erfitt er að henda reiður á mannskapnum nema sögumaðurinn fær nóg af öllu saman og strýkur að heiman. Við það sameinast fólkið og fyrr en varir hafa sumir ruglað saman reytunum á ný en aðrir séð að sér og allir fá unaðslega lausn sinna mála áður en myndin klárast. Stjúpbörn er ekki mynd mikilla sjáva. Persónurnar eru vita fiatar og leikurinn einkar ómerkilegur. Sjálf sagan er lítt spennandi og gamansami þátturinn er ekki fall- inn til að framkalla hlátur enda hefur myndin alvarlegan undirtón sem smátt og smátt tekur völdin og verður allsráðandi í sinni væmni. Svo fór um sjóferð þá Bíóhöllin: Kapteinn Ron — „Captain Ron“. Leikstjóri Thom Eberhardt. Aðalleikendur Kurt Russell, Martin Short, Mary Kay Place, Benjamin Salisbury, Paul Anka. Touchstone Pictures. Þær gerast fjandakornið hvorki þynnri né ómerkilegri en þetta, þessar „laufléttu afþreyingar- myndir“ sem tröllriðið hafa kvik- myndahúsunum um allnokkra hríð. En nú eru samræmdu prófin að baki, hvítu kollunum hefur fjölgað og flestir nemendur um það bil að komast í bíóham að nýju. Og þá þýðir ekki að bjóða uppá hvað sem er því það unga fólk sem öðrum fremur heldur uppi bíórekstri í landinu er vandfýsið, vill að sjálf- sögðu fá einhveija skemmtun fyrir aurana sína og þá er til lítils að stilla upp argaþvælu eins og „Captain Ron“. Myndin hefst norður í Chicago — á heimili einhverrar minnst spennandi fjölskyldu sem sést hef- ur á tjaldinu — er heimilisfaðirinn (Short) kemst að því að hann hef- ur erft seglskútu suður í Karíba- hafi. Sá bögull fylgir skammrifi að hann þarf að sækja hana til fjarlægrar eyjar og sigla síðan fleyinu til hafnar í Bandaríkjunum til að koma því í verð. Nú verða góð ráð dýr því erfinginn hefur aldrei migið í saltan sjó, og þá er komið til kasta kafteins Rons (Russell). Þó að margt megi gott segja um jaxlinn Kurt Russel verður seint sagt að hann hafí snefil af gamanleikhæfileikum. Ekki bætir úr skák að maðurinn fær ekki að segja einn einasta fimmaurabrand- ara út alla myndina, hvað þá held- ur dýrkeyptari. Short er einnar myndar maður, hún hét Innerspa.ee og þar sýndi hann það litla sem hann getur; að leika guðsvolaða eymingja öðrum betur. Hér bætir hann enn einum í safnið. Einhver hefur dustað rykið af Paul Anka (af öllum mönnum) og pússað hann uppí aukahlutverk. Ó, dæjana! Handritið á að vera allt í senn, spennandi, dramatísk og fyndið en er ekki beysnara en svo að Kap- teinn Ron er doðaleg, flónsk og leiðinleg. Það hefðu betur allir við- komandi sleppt þessari sjóferð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.