Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 60

Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 60
 BL S) M Á LETTÖL V ^ Gæfan fylgi þér í umferðinni SJOVA LMENNAR MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REÝKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, ' ' ILF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FOSTUDAGUR 28. MAI 1993 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Keisaraynjan SALLUSTRA keisaraynja prýðir forhlið rómversku koparmyntarinnar. Rómverskur koparpeningnr Ekki hef- ur fund- ist eldri hlutur RÓMVERSKUR koparpening- ur, sem fannst í jarðvegs- hleðslu í Vestmannaeyjum 1991, hefur verið aldurs- greindur og er hann frá 225-235 eftir Kristsburð, elsti manngerði hluturinn, sem fundist hefur hér á landi. Ragnar Borg, myntfræðingur, hefur aldursgreint peninginn ásamt Antoni Holt á myntsafni Seðlabankans og Þjóðminja- safnsins. „Þessi peningur er sleginn af Alexander Severusi Rómarkeisara, sem ríkti frá 225 til 235,“ sagði Ragnar. „Myndin á peningnum er af eiginkonu hans, Sallustia Barbia Orbiana." Ragnar sagði að áður hefðu fundist hér fjórir rómverskir peningar, en þeir væru allir 50-80 árum yngri. „Ég tel að þessir peningar hafí borist hing- að með Keltum, sem getið er í íslendingabók Ara fróða sem Papa. Þeir höfðu rómverska pen- inga í fórum sínum, sem höfðu táknrænt gildi, að gjalda skyldi keisaranum það sem keisarans væri og Guði það sem Guðs væri. Peningamir fímm fundust allir á svæðinu frá Vestmanna- eyjum að Papey og ég tel að fundur þeirra sanni að Papar hafí verið hér fyrir landnám vfk- inga,“ sagði Ragnar Borg. Sj ávarútvegsráðherra um tillögur Hafrannsóknastofnunar um þorskafla Veiði umfram 175 þús. tonn er ekki hagkvæm HAFRANNSOKNASTOFNUN hefur nú lagt til að þorskafli á næsta fiskveiðiári verði ekki meiri en 150.000 tonn. Að öðrum kosti verði gengið um of á hrygningar- og veiði- stofn, sem báðir séu í sögulegu lágmarki. Þorskaflinn á yfirstandandi fiskveiðiári verður um 235.000 tonn, sem er 45.000 tonn- um umfram tillögur Hafrannsóknastofnun- ar. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráð- herra, segir að veiði umfram 175.000 tonn geti tæpast talizt hagkvæm eða skynsamleg, en vill ekki tjá sig um hver ákvörðun hans um þorskafla kunni að verða. Davíð Odds- son, forsætisráðherra, segir ekki tímabært að tjá sig um tillögur fiskifræðinganna. Verði afli takmarkaður við 150.000 eða 175.000 tonn, þýðir það milljarða tekjusam- drátt, en talið er að auknar veiðar á úthafs- karfa, rækju og loðnu geti jafnazt á við um 20.000 tonna þorskafla. Þorskafli á íslandsmið- um varð 156.733 tonn árið 1919 og hefur aldr- ei síðan orðið svo lítill. Verði þorskafli á næstu árum miðaður við 225.000 tonn árlega, eru töluvert miklar líkur á að draga verði verulega úr þorskveiðum inn- an fárra ára. Slík veiði fæli einnig í sér um þriðjungs líkur á hruni þorskstofnsins. Þetta kemur fram í áliti vinnuhóps um nýtingu físki- stofna. „Mér sýnist að við getum dregið þá ályktun af þessari skýrslu að hagkvæmar veiðar úr þorskstofninum liggi á bilinu frá 125.000 lest- um upp í 175.000 lestir. Áhættuþættirnir eru mismunandi eftir því hvar menn bera niður á þessu svigrúmi, en utan við þennan ramma sýnist manni að ekki geti verið um skynsama eða hagkvæma nýtingu að ræða,“ segir Þor- steinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra. Á ekki að koma á óvart Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsókna- stofnunar, segir að nýútkomin skýrsla stofnun- arinnar sé aðeins staðfesting á síðustu skýrslu og því eigi mönnum ekkert að koma á óvart. Kristján Ragnarsson, formaður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna og Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri Sjómannasam- bandsins segja æskilegt að fara að tillögum fiskifræðinga um uppbyggingu þorskstofnsins. Sjá nánar í miðopnu blaðsins. Fjölgar á Tjörninni Morgunbl aðið/J úlíus EFTIR hægviðri og sól undanfarinna daga er ekki um að villast, sumarið langþráða er komið. Önnur óræk merki sumarsins í höfuðborginni eru ungarnir litlu á Tjörninni. Á þessari mynd sést stolt æður með unga sína þijá, en blikinn fylgist með sundtökum afkvæmanna úr hæfílegri fjarlægð. Þróað sölukerfi bruggara SÖLUKERFI landasala, sem er svipað upp byggt og í fíkniefnavið- skiptum, er orðið það þróað að mun auðveldara og fyrirhafnar- minna er fyrir unglinga á höfuð- borgarsvæðinu að komast yfir landa en annað áfengi. Landi er aðalvímugjafí unglinga á höfuðborgarsvæðinu, að sögn lög- reglumanna og fólks sem starfar með unglingum. Lögreglan telur að hveiju sinni séu nú starfandi á höf- uðborgarsvæðinu 4 stórvirkar landa- gerðir, sem hver framleiði allt að 200-250 lítra af eimuðum 40% landa í viku. Lögreglan handtekur þá sem hafa framfæri sitt að einhveiju eða öllu leyti af landasölu, en óvinnandi er að sinna öllum *ábendingum sem berast um framleiðslu í heimahúsum. Haft er eftir lögreglumanni, að segi 16-17 ára sölumaður að hann viti ekki hver framleiði landann, þá sé hann líklega að segja satt. Sölu- kerfíð sé uppbyggt á sama hátt og á fíkniefnamarkaðnum. Sjá bls. 22: „Landi talinn ...“ Þyrlur sóttu tvo sjómenn Erfiðlega gekk að fá samþykki varnarliðsins til að það sendi vélar í flugið TVEIR stýrimenn um borð í frystitogaranum Bald- vini Þorsteinssyni EA-10, í eigu Samhetja hf. á Akureyri, slösuðust skömmu eftir hádegi í gær er þeir urðu fyrir vir sem slitnaði en togarinn var þá á djúpkarfaveiðum 430 sjómílur suð-vestur af Reykjanesi. Annar mannanna handleggsbrotnaði við höggið en hinn slasaðist á höfði og missti meðvitund um tíma en var þó ekki talinn í lífs- hættu. Tilkynning um slysið barst klukkan 14 í gærdag. Ekki var unnt að senda þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir mönnunum þar sem flugdrægni hennar er aðeins 150 mílur á haf út. Var þá leitað til björgunarsveitar varnarliðsins. Erfíðlega gekk að fá samþykki varnarl- iðsins til að fara í flugið því skv. starfsreglum þess mega þyrlur sveitarinnar aðeins sinna björgunarflugi af þessu tagi þegar um líf eða dauða er að tefla og fékkst ekki heimild til að senda vélamar á loft fyrr en kl. 18.30. Að sögn Friðþórs Eydal blaðafulltrúa vamarliðsins hafa þessar' reglur alltaf verið í gildi en þó ekki ævinlega verið fylgt strangt eftir. í hveiju tilviki þyrfti að vega og meta hvort það væri réttlætanr legt að senda björgunarþyriur í svo kostnaðarsamt flug og sagði hann að þegar þrengdist um væri erfíð- ara að víkja frá reglunum. Sex tíma flug Tvær þyrlur og eldsneytisvél fóru loks í loftið kl. 19.10 í gærkvöldi og voru komnar á slysstað um kl. 21.20 en togarinn hafði þá siglt tæplega 100 mílur á móts við björgunarþyrlurnar. Tók rúman hálftíma að ná mönnunum en þeir voru teknir um borð í sitt hvora þyrluna. Voru þær væntanlega til Reykjavíkur um kl. 1 í nótt. Tveir sjómenn af togaranum Baldvin Þorsteinssyni EA10 slösuðust f gær þegar togarinn var staddur um 430 sjómllur S V af Reykjanesi. Tvær þyrlur frá Varnarliðinu í fylgd eldsneytisvélar lögðu upp frá Keflavík kl. 19:10 og komu að skipinu kl. 21:20. Áætlað var að komið yrði með sjómennina til Reykjavlkur um kl. 1:00 í nótt. ÍSLAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.