Morgunblaðið - 05.08.1993, Side 1
64 SIÐURB/C
173. tbl. 81. árg. FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993 Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Látín kona elur
hraustan dreng
Los Angeles. Daily Telegraph.
KONA sem úrskurðuð var látin vegna heiladauða fyrir fjórum
mánuðum ól í gær dreng, „mesta myndarpilt" að sögn talsmanns
Highland General sjúkrahússins í Oakland í Kaliforníu. Eftir fæð-
inguna var búnaður sem haldið hafði líkamsstarfsemi móðurinn-
ar, hinnar 28 ára gömlu Trishu Marshall, tekinn úr sambandi.
fyrir skoti úr byssu húsvarðar er
hún reyndi að bijótast inn í íbúðar-
hús.
Fjölskylda Marshall og bamsfaðir
óskuðu strax eftir atvikið að reynt
yrði að halda lífi í fóstrinu. Vöktuðu
hjúkranarkonur hana allan sólar-
hringinn, gáfu henni fljótandi fæði
og fylgdust með barninu ófædda.
Ákveðið var að fæðingin færi fram
fyrir tímann er háþrýstingur fór að
gera vart við sig hjá móðurinni.
Óljóst er hvað verður um piltihn
nýfædda. Að sögn talsmanna
sjúkrahússins mun barnavemdar-
nefnd hafa forræði yfir honum tíma-
bundið.
Talsmenn sjúkrahússins sögðust
áætla að kostnaður við að halda lík-
amsstarfsemi Marshall gangandi og
við fæðinguna næmi jafnvirði 14,5
milljónum króna en vildu ekki gefa
upp hver myndi bera hann.
„Þetta er kraftaverk," sagði Rich-
ard Fulroth læknir um fæðinguna
en pilturinn fæddist fjórum vikum
fyrir tímann og vó 3.250 grömm.
„Hann lítur vel út og hefur þrosk-
ast eðlilega,“ bætti Fulroth við.
Trisha Marshall var úrskurðuð
látin vegna heiladauða í 17. viku
meðgöngunnar, iyrir 105 dögum,
eftir að hafa fengið byssuskot í
höfuðið. Að sögn lögreglu varð hún
Dæmdir fyr-
ir barsmíðar
Los Angeles. Reuter.
TVEIR lögreglumenn voru í
gær dæmdir í 30 mánaða fang-
elsi fyrir að ganga í skrokk á
blökkumanninum Rodney King
er þeir handtóku hann fyrir
tveimur árum.
Striplast um í sólinni s—
ÞÓTT kaldur sjór geri sjóböð sjaldnast að fýsilegum kosti hér á landi koma fyrir sólríkir dagar þegar óhætt er
að striplast um í flæðarmálinu eins og þessir strákar sem ljósmyndari hitti fyrir í Hraunsvík austan við Grindavík
á góðveðursdegi fyrir skömmu. Óhætt er að segja að suðurlandastemmning ríki í víkinni en sjórinn er eflaust
ekki eins heitur og á þeim slóðum og vert að bera sig mannalega.
Lögreglumennimir, Stacey
Koon og Laurence Powell, áttu
yfir höfði sér allt að 10 ára fang-
elsi en dómarinn sagðist hafa tekið
tillit til þess við ákvörðun refsing-
arinnar hve mikla mótspyrnu King
hefði veitt við handtökuna.
Lögreglumennirnir vora ásamt
tveimur starfsfélögum sýknaðir við
réttarhöld fyrir rúmu ári. Leiddi
það til óeirða í Los Angeles og
nokkrum fleiri borgum.
Karadzic og Boban yfirgefa Genf og halda heim
Ovissa um framhald
viðræðna um Bosiiíu
Tölvuvörð-
ur í bíla
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKUR prófessor, sem
missti fósturdóttur sína í
umferðarslysi, hefur fundið
upp kerfi, sem hann telur
geta dregið verulega úr ölv-
unarakstri og bílaþjófnaði.
■mm- , *.* /» neuttr
Matargjof
BORGARASTYRJÖLD hefur valdið hörmungum í suðurhluta Súdans
og hrjáir matvælaskortur Muer-þjóðina á þeim slóðum. Var myndin
tekin við matargjöf í búðum flóttamannahjálpar SÞ í gær.
HLÉ var gert á friðarviðræðum leiðtoga deiluaðila í Bosniu í
gær. Radovan Karadzic leiðtogi Bosníu-Serba og Mate Boban leið-
togi Bosníu-Króata héldu óvænt til Bosníu eftir viðræður við Regin-
ald Bartholomew sendimanns Bandaríkjastjórnar sem útskýrði
fyrir þeim í Genf í gær hvað fælist í hótun Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) um hernaðaraðgerðir gegn Serbum afléttu þeir ekki
umsátrinu um Sarajevo. Veruleg óvissa ríkir um framhald viðræðn-
anna en þó er gert ráð fyrir að Karadzic og Boban komi aftur
til Genfar á morgun, föstudag.
Brottför Karadzics og Bobans
þykir áfall fyrir sáttasemjarana
Owen lávarð og Thorvald Stolten-
berg sem höfðu ætlað að halda
deiluaðilum við samningaborðið í
Genf þar til friðarsamkomulag
væri í höfn. Þeir sögðust reiðubún-
ir að mæta aftur til funda á morg-
un ef tryggt væri að Alija Izet-
begovic leiðtogi múslima yrði þá
einnig við fundarborðið. Hann
mætti ekki til sáttafunda í vikunni
til að mótmæla sókn Serba í ná-
grenni Sarajevo en féllst í gær á
að snúa aftur að samningaborðinu.
Izetbegovic setti þó það skilyrði
fyrir þátttöku sinni að Serbar
drægju her sinn frá hæðunum Ig-
man og Bjelasnica við Sarajevo.
Ratko Mladic, yfirmaður heija
Serba, sagðist hafa náð þeim á sitt
vald í gær. Hann hefur ekki fallist
á að leyfa hersveitum Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) að yfirtaka þær, eins
og Karadzies kveðst ítrekað hafa
krafist af honum.
Owen gramur
Owen lávarður var sýnilega
gramur með gang mála í gær og
sagði að annaðhvort hefðu leiðtog-
ar deiluaðila enga stjórn á foringj-
um heijanna eða þeir segðu ósatt
er þeir segðust hafa skipað þeim
að hætta vopnaskaki. Þá sagði
Owen að hótun um loftárásir auð-
veldaði ekki friðarumleitanir. Eina
hernaðarlausnin væri að senda
landher inn í Bosníu.
Hlutabréf apans vora valin með
því að kasta pílu á hlutabréfasíðu
blaðsins. Þau nöfn sem pílan hitti
voru valin. Ávöxtun apans var 27,4
prósent, en hjá fyrirtækjunum tveim-
ur 21,0 og 17,0 prósent. Meðalávöxt-
un á markaðnum var 15 prósent.
Þegar keppnin var hálfnuð var apinn
Fred Goldberg segir, að kerf-
ið byggist á rafeinda- eða lykil-
korti, sem renna verði í gegnum
tölvurauf til að unnt sé að hreyfa
bílinn. Tölvuna er unnt að for-
rita þannig, að hún taki aðeins
við kortum eiganda eða þeirra,
sem heimild hafa til að nota
bílinn. Þeir, sem dæmdir eru
fyrir ölvunarakstur eða sviptir
réttindum af öðrum sökum, yrðu
að skila inn sínu korti og það
gerði þeim erfitt fyrir með að
stelast í bílinn. Þá gæti þetta
fyrirkomulag gert bílaþjófum
lífíð leitt.
Goldberg segir, að svona kerfí
muni ekki kosta meira en
10.000 íslenskar krónur og hef-
ur hugmynd hans vakið mikla
athygli í Svíþjóð.
neðstur, en náði sér síðan vel á strik.
Fyrirfram höfðu blaðamennimir ekki
búist við þessum niðurstöðum og eru
því nokkuð óvissir hvaða ráð þeir eigi
að gefa lesendum, sem vilja fjárfesta.
Niðurstaða keppni Politiken er
mjög í samræmi við niðurstöður af
samskonar keppni í Bandaríkjunum.
Apinn sigraði!
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðins.
HÁLFSÁRS keppni milli tilviljanakenndra fjárfestinga og atvinnu-
fjárfesta er lokið með sigri „apans“ yfir atvinnumönnuin. Danska blað-
ið Politiken stóð fyrir keppninni. Allir fjárfestar náðu þó ávöxtun yfir
meðallagi.