Morgunblaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993 Minning Gissur Jörundur Kristinsson fram- kvæmdasijóri Fæddur 17. júlí 1931 Dáinn 28. júlí 1993 Síðastliðinn föstudag barst mér sú harmafregn, að Gissur Jörundur, mágur minn, hefði látist skyndilega daginn áður í sumarleyfisferð. Óneitanlega brá mér í brún, þar sem ég hafði kvatt hann hressan og kátan nokkrum dögum áður og ekki séð þess nein merki, að svo stutt væri til æviloka. Að vísu vissi ég, að hann hafði þá um nokkurra ára skeið átt við nokkra vanheilsu að stríða, sem hann hafði borið með æðruleysi og jafnaðargeði á þann hátt að fáum var um kunnugt. Kynni okkar Gissurar höfðu þá staðið um 40 ára skeið allt frá þeim tíma er hann gekk að eiga systur mína Ástu Hannesdóttur. Með okk- ur tókst fljótlega hinn besti kunn- ingsskapur enda þótt mismunandi starfssvið leiddi til þess, að ekki væri um um dagleg samskipti að ræða. Mér varð fljótlega ljóst, að áhugamál Gissurar voru mjög víð- feðm, og lét hann sig öll mál varða og kynnti sér eftir föngum. Bar tæplega nokkurt mál á góma sem hann kunni ekki einhver deili á. Sérstaklega hafði hann mikinn áhuga á hvers konar félagsmálum. Það vakti fljótlega athygli mína af hve mikilli sanngimi hann talaði um öll mál og hlustaði á skoðanir, sem gengu gegn sannfæringu hans, og skipti engu, þótt um heit mál- efni væri að ræða eins og pólitík rétt fyrir kosningar eða hvers konar önnur dægurmál. Öfgar og ein- strengingsháttur var fjarri skap- lyndi hans og hann reyndi jafnan að ræða málin til hlítar og finna sanngjamar málamiðlanir, og í deil- um manna á milli var hann alltaf fús til að bera klæði á vopnin og vera mannasættir. Gissur gerðist á unga aldri ein- dreginn sósíalisti og hélt þeirri lífs- skoðun sinni allt til dauðadags. Eg er sannfærður um, að það var ekki af neinni sérstakri aðdáun á Stalín og fylgifískum heldur af meðfæddri samúð með þeim, sem minna máttu sín í hinum harða kapítalíska heimi. Það var bjargföst skoðun hans, að sósíalískt hagkerfi mundi best tryggja hag hinna verr settu í þjóð- félaginu. Hann skildi hins vegar vel sjónarmið hinna og lét ekki, svo mér sé kunnugt um, neinn gjalda þess í orði eða verki, að hann hefði andstæðar skoðanir, og átti jafnan mjög auðvelt með að starfa með mönnum með öndverðar skoðanir. Reyndi ég þetta oft persónulega, því að því fór víðs íj'arri að skoðan- ir okkar féllu saman um hin marg- víslegustu mál. Eftir því sem mér er kunnugt var hann ávallt vinsæll og vel látinn af því fólki sem hann vann með. Gissur var frá unga aldri bók- hneigður og las mikið. Hann átti gott bókasafn og hafði einkum áhuga á þjóðlegum fróðleik og ætt- fræði. Kunni hann þar deili á mörgu og margan fróðleik sótti ég til hans um þau málefni. Þegar tölvuöldin hélt innreið sína, fékk hann óskap- legan áhuga á þeim möguleikum, sem þar komu í ljós, og má segja, að tölvan ætti hug hans allan í frí- stundum upp frá þvi og mörg voru þau kvöldin, sem hann settist við tölvumar og vann fram á nætur við að kynna sér möguleikana og fylgjast með hinum öm breytingum og möguleikum. Hann var óþreyt- andi við að miðla þekkingu sinni til annarra, og þeir em ófáir, sem notið hafa aðstoðar hans á því sviði. Tölvubókasafn hans og upplýsinga- banki var með fádæmum og sam- skipti hans við alþjóðlega gagna- banka vom slík að margur atvinnu- maðurinn í faginu hefði getað verið stoltur af. Gissur naut lítillar skólagöngu í æsku og byijaði fljótt að vinna fyr- ir sér. Framan af ævinni stundaði hann ýmis störf til sjós og lands, sem of langt væri upp að telja, en 1970 hóf hann nám í trésmíði og lauk því námi 1973. Eftir það starf- aði hann við margs konar verkefni. Nýttust honum þá vel meðfæddir eiginleikar, sem vom vandvirkni og reglusemi í störfum og var því oft - t Móðir okkar, ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR, til heimilis í Álftamýri 38, lést þann 3. ágúst 1993 á hjartadeild Landspítalans. Börn hinnar látnu. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Viðimel 30, andaðist í Landakotsspítala miðvikudaginn 4. ágúst. Torfi Þ. Ólafsson, Guðrún E. Kristinsdóttir, Axel Ingólfsson, Elfsabet Dinsmore, Reed Dinsmore, Helga Guðrún Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför JÓNS EINARSSONAR kennara við Vélskóla íslands, Fellsmúla 5, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. ágúst kl. 15.00. Vilborg Berentsdóttir, Hólmfríður Jónsdóttir, Halldór Gíslason og barnabörn. valinn sem verkstjóri við vandasöm störf svo sem virkjunarfram- kvæmdir, hafnargerð og hitaveitur. Árið 1981 hófst lokaferill hans, þegar hann gerðist framkvæmda- stjóri við byggingu félagslegra íbúða í Kópavogi, fyrst á vegum Verkamannabústaða í Kópavogi og síðar Húsnæðisnefndar Kópavogs. Var hér um að ræða mjög ábyrgðar- mikið starf þar sem gæta þurfti mikilla fjármuna og sýna mikla lip- urð en þó mikla festu til að allt færi vel. Þrátt fyrir að starfið væri hápólitískt samkvæmt íslenskri venju tókst honum að sinna því af slíkri festu og sanngirni að aldrei var talin ástæða til að breyta til hver sem ofan á varð í hinni póli- tísku baráttu. Með faglegri þekk- ingu og mikilli fjármálalegri stjórn- un tókst honum að tryggja gæði og halda byggingakostnaði innan ramma kostnaðaráætlana og nú við starfslok eru þær orðnar margar félagslegar íbúðirnar, sem hann bar ábyrgð á. Að öðrum ólöstuðum tel ég, að þessar íbúðir beri af hvað snertir vandaða hönnun og bygg- ingu. Góður og fallegur frágangur lóða var honum einnig mjög hug- leikinn. Að góðri íslenskri venju vil ég ljúka þessum orðum mínum með því að gera lítils háttar grein fyrir uppruna og ætt Gissurar Jörundar. Hann var í föðurætt kominn af traustum vestfirskum ættum en í móðurætt af sterkum sunnlenskum ættum. Foreldrar hans voru Krist- inn G. Guðbjartsson vélstjóri og Salvör Gissurardóttir, og voru þau bæði búsett í Reykjavík. Móður sína missti hann fimm ára að aldri og ólst eftir það upp hjá móðurforeldr- um. Þrátt fyrir gott atlæti mun það hafa sett djúp spor í æsku hans og unglingsár. 1952 kvæntist hann systur minni, Ástu Hannesdóttur frá Undirfelli. Þau eignuðust íjögur böm: Dr. Hannes Hólmstein, dósent við Háskóla íslands, Salvöru Krist- jönu, lektor við Kennaraháskólann, Kristin Dag, verslunarmann í Kópa- vogi, og Guðrúnu Stellu, skólastjóra við Holtsskóla í Önundarfírði. Þegar þetta er ritað, eru bamabörn þeirra þijú. Ég mun sakna Gissurar mágs míns um langan tíma. Það var allt- af ánægjulegt að hitta hann og ræða um landsins gagn og nauð- synjar og heyra rólegan og rök- fastan málflutning hans og njóta þekkingar á hinum mörgu áhuga- málum hans. Systur minni, Ástu, bömum þeirra og bamabömum færi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Páll Hannesson. Hann setti sterkan svip á mann- fundi félaga okkar í Kópavogi. Skarpar athugasemdir, sjálfstætt álit og holl ráð vom kjaminn í ræð- um hans. Gamansemin og kímnin gáfu málflutningnum ætíð mannlegt yfírbragð svo að gagnrýni hans var betur tekið en frá flestum öðmm. Gissur Jörandur Kristinsson var traustur féþigi og góður vinur. Liðs- sveit Alþýðubandalagsmanna í Kópavogi er til muna svipminni þeg- ar slíkur flokksbróðir hverfur skyndilega yfír þau landamæri sem öllum em búin. Ég hlakkaði ávallt til að hitta Gissur Jörand og eiga við hann trún- aðartal til hliðar við hinn formlega vettvang fundanna. Hann gaf mér góð ráð og Iét í té mat sitt á mönn- um og málefnum. Greining hans á atburðum líðandi stundar og fram- rás sögunnar var djúpvitur og fram- leg, oft blönduð skörpu skyni á hið skoplega og jafnvel kaldhæðnislega í mannlegri tilvera, einkum á hinu dramatíska sviði stjórnmálanna, ekki aðeins hjá landsfeðrunum og forystumönnum annarra flokka heldur líka, oft ekki síður, í okkar flokki. Það var mér dýrmætt að eiga slíkan trúnaðarmann og vita að ætíð mælti hann af heilindum og vinsemd, bæði í minn garð og mál- staðarins. Mér fannst hver sá fund- ur í Kópavogi fátæklegur ef Gissur Jörandur hafði ekki deilt með mér í trúnaði hugmyndum sínum, frétt- um og mati á atburðum líðandi stundar. Á kveðjustund færi ég honum þakkir fyrir vináttu hans og holl- ustu, margar góðar stundir og sam- ræður. Félagar okkar í Kópavogi sakna forystumanns sem um árabil var í fremstu röð Alþýðubandalags- manna í bænum og kjördæminu. Gissur Jörandur var burðarás í und- irbúningi kosninga, lagði gjörva hönd á að gera félagslega aðstöðu og húsakost sem best úr garði, safn- aði kröftum til að létta fjárhagsleg- ar byrðar sem ætíð fylgja flokks- starfí og gaf góð ráð um val á nýj- um mönnum til framboðs og trúnað- arstarfa. Hann var einn þeirra sem ávallt var ómissandi þegar stórar og mikilvægar ákvarðanir voru á dagskrá. Gissur Jörandur var skarpskyggn og hjartahlýr hugsjónamaður en líka hagsýnn framkvæmdamaður. Hon- um var falinn mikill trúnaður við uppbyggingu félagslegs húsnæðis í Kópavogi. Það er að mörgu leyti dugnaði og sóknarkrafti Gissurar Jörandar að þakka, að Kópavogur er nú talinn fyrirmynd hvað snertir velferð og félgashyggju í húsnæðis- málum. Þær skipta hundraðum fjöl- skyldumar í Kópavogi sem bera hlýjan hug til hins góða drengs, Gissurar Jörandar, sem með upp- byggingu verkamannabústaða og hins félagslega húsnæðiskerfis í Kópavogi gerði þeim kleift að búa heimili og bömum traustan sama- stað. Saga Kópavogs er í reynd mikið ævintýri, kraftaverk hugsjóna- manna sem miðuðu allt sitt starf við hag fólksins og töldu gleði þess nægilega umbun fyrir erfíðið. Nafn Gissurar Jörandar Kristinssonar mun ávallt skína skært í einstakri sögu hinna hugsjónaríku jafnaðar- sinna sem gerðu Kópavog að fyrir- myndarbæ félagslegra framfara. Við kveðjum í dag traustan félaga og góðan vin. Ég færi fjölskyldu hans samúðarkveðjur frá miklum fjölda þakklátra samheija. Ólafur Ragnar Grímsson. Ég var felmtri sleginn er mér barst fregn um lát vinar míns, Giss- urar Jörundar Kristinssonar. Góður drengur er fallinn í valinn langt um aldur fram. Kynni okkar Gissurar hófust fyr- ir u.þ.b. einum áratugi. Hann var þá framkvæmdastjóri verkamanna- bústaða í Kópavogi. Hann í hlut- verki verkkaupa en ég í hlutverki verksala. Ágætis kunningsskapur tókst með okkur á þeim áram. Síðan lágu leiðir okkar saman aftur er ég hóf afskipti af pólitík í Kópavogi. Þá var Gissur orðinn framkvæmda- stjóri húsnæðisnefndar Kópavogs- bæjar. Samstarf okkar var með miklum ágætum og með okkur tókst náin vinátta. Gissur var mjög traustur maður og samviskusamur í alla staði. Hann rak bæði verkamannabústaðakerfið og svo núna húsnæðisnefnd með miklum sóma. Öll byggingamál og peningamál vora í föstum skorðum. Verktakar er unnu fyrir Gissur höfðu það á o'rði að alltaf stæðu greiðslur eins og stafur á bók og vel það. Gissur fór ekki fram með bægsla- gangi heldur vann hann sín verk án þess. Það var ótrúlegt hvað hann afkastaði miklu. Hann sá um bygg- ingaeftirlit ásamt fjármálum, út- hlutun íbúða, útreikning greiðslna íbúðarhafa og fleira mætti telja. Ekki má heldur gleyma þvi trausti sem hann ávann sér og Kópavogsbæ hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Menn þar á bæ sáu að hér fór traustur og áreiðanlegur maður, þar sem orð stóðu. Undip-hans stjóm var íbúða- verð í félagslega kerfinu hér í Kópa- vogi það lægsta á landinu. Það var hans verk. Gissur var manna snjallastur í tölvumálum og slógu fáir hann út á því sviði þó svo að þeir væru há- skólagengnir. Við hjá Kópavogsbæ báðum hann að framkvæma erfíð uppgjör og greiða úr málum sem komin voru í hnút. Allt slíkt leysi hann með stakri prýði og úrlausnir vora vel fram settar og skotheldar. Gissur var mikill vinur vina sinna. Hann var hrókur alls fagnaðar í vinahópi. Hann var húmoristi og kunni að njóta lífsins á góðri stund. Kópavogsbær sér nú á bak einum af sínum bestu og traustustu starfs- mönnum. Hans skarð verður vand- fyllt. Ég hef misst góðan vin og félaga. Ég votta fjölskyldu Gissurar Jör- t Ástkær eiginmaður minn, fafiir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR ELÍAS PÉTURSSON, Mosgerði 21, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 2. ágúst. Guðbjörg Halldórsdóttir, Guðmunda G. Pétursdóttir, Pétur Th. Pétursson, Nína Dóra Pétursdóttir, Baldey S. Pétursdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, FJÓLA STEINGRÍMSDÓTTIR, Norðurvangi 21, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum að morgni 4. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Helgi Sigurðsson, Helga Steingerður Sigurðardóttir, Jón Bergþór Kristinsson, Brynhildur Kristinsdóttir, Sigþór R. Kristinsson - og barnabörn. Kristinn Jónsson, Helga Jónsdóttir, Jóna Dís Bragadóttir, Haraldur Stefánsson, Katelijne Beerten, Snævarr Guðmundsson,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.