Morgunblaðið - 05.08.1993, Side 3
I
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
3
Könnun Hagfræðistofnunar HI um afnám styrkja og viðskiptahindrana í landbúnaði
Matvælaútgjöld heímila
gætu lækkað um rúm 40%
Ureltar tölur og undarlegar forsendur segir Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra
Morgunblaðið/Kristinn.
Styrkjapólitík Norðurlanda í landbúnaði
SKÝRSLA um landbúnaðarstefnu Norðurlandanna og hag heimilanna var kynnt á fréttamannafundi í
gær. F.v. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, Guðmundur Magnússon, forstöðumað-
ur Hagfræðistofnunar, Sighvatur Björgvinsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, og Krislján Jóhanns-
son, lektor og annar af höfundum skýrslunnar.
HEILD ARSTUÐNIN GUR við
landbúnað á Norðurlöndum var
mestur á íslandi eða 110,7% sé
hann mældur sem hlutfall af fram-
leiðsluverðmæti í hveiju landi um
sig á árunum 1988-1990. Sama
niðurstaða blasir einnig við ef
Evrópubandalagið, Bandaríkin,
Japan, Ástralía, Nýja Sjáland og
Japan eru tekin til. viðmiðunar.
Þetta kemur fram í skýrslu á veg-
um norrænu ráðherranefndarinn-
ar um landbúnaðarstefnu Norður-
landanna og hag heimilanna sem
byggð er á könnun sem unnin var
af Hagfræðistofnun Háskóla ís-
lands. Var skýrslan kynnt á frétta-
mannafundi sem Sighvatur Björg-
vinsson, samstarfsráðherra Norð-
urlanda, efndi til í gær. Könnunin
var unnin árið 1991 og byggist á
gögnum frá árunum 1988 til 1990.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra segir í samtali við Morgun-
blaðið, að skýrslan sé byggð á
úreltum tölum frá árinu 1988 auk
þess sem ýmislegt fleira sé þar
athugavert og því sé ekki hægt
að draga af henni neinar ályktan-
ir.
I skýrslunni segir að árlega hafí
heildarstuðningur íslenskra neytenda
við landbúnað numið samtals 16,7
milljörðum króna á verðlagi yfir-
standandi árs, sem jafngildi um 255
þúsund krónum á ári á hveija fjög-
urra manna fjölskyldu eða um 7%
af heildarútgjöldum heimilanna. Ef
allar stuðnings- og vemdaraðgerðir
stjómvalda við landbúnað, eins og
þær voru á árunum sem könnunin
nær til, yrðu afnumdar mætti, skv.
skýrslunni, lækka heildarútgjöld ís-
lenskra heimila til matvælakaupa um
rúm 40%.
Könnunin var gerð fyrir gildistöku
nýja búvörusamningsins en skv. upp-
lýsingum frá landbúnaðarráðuneyt-
inu, sem Sighvatur dreifði á fund-
inum í gær, hafa engar breytingar
átt sér stað á viðskiptavernd íslensks
landbúnaðar frá því að könnunin var
gerð en aftur á móti hafa beinir
styrkir ríkisins til landbúnaðar lækk-
að á föstu verðlagi úr 11,2 milljörðum
króna i 7,4 milljarða frá árinu 1991
eða um 34%. Ekki er tekið tillit til
þessa samdráttar í könnuninni.
Halldór Blöndal sagðist vera að
kynna sér skýrsluna en hún byggðist
greinilega á mjög undarlegum for-
sendum. Þar væri m.a. talið sérstakt
hagræði fyrir íslenskan landbúnað
að honum væri bannað að njóta hag-
ræðis af fijálsum áburðarkaupum til
landsins. „Það er talinn sérstakur
ávinningur fyrir landbúnaðinn að
vera þvingaður til að versla við
Áburðarverksmiðju ríkisins, sem
sýnir auðvitað að þeir sem skrifuðu
skýrsluna hafa ekki gaumgæft mál-
in. Þama er fleira athugavert. Það
fer mjög misjöfnum sögum af þeim
mönnum í hagfræðideild háskólans
sem fjalla þar um landbúnaðarmál,"
sagði Halldór.
6 milljarða sparnaður af
fijálsum innflutningi
Hagfræðistofnun kannaði einnig
hugsanleg áhrif þess að gefa inn-
flutning landbúnaðarvara fijálsan og
flytja þær inn á heimsmarkaðsverði.
Könnunin leiddi í ljós að íslenskir
neytendur gætu sparað sér tæpa sex
milljarða króna á verðlagi ársins
1993 með því að fá landbúnaðarvör-
ur á heimsmarkaðsverði. Fyrir hveija
fjögurra manna fjölskyldu jafngildi
þetta yfir 90 þús. krónum á ári og
sé þessi upphæð sett í samband við
heildarútgjöld heimilanna til mat-
væla megi ætla að hver ijölskylda
gæti lækkað matarreikninginn um
14%.
í skýrslunni kemur einnig fram
að neysla landbúnaðarvara nemur
15-20% af heildarútgjöldum heimila
á Norðurlöndum og er hlutfallið
hæst á íslandi eða 20,6%, en lægst
í Danmörku 14,4%. Þá kemur fram
að matvælaútgjöld eru hlutfallslega
hæst hjá þeim tekjulægstu og ellilíf-
eyrisþegum og sagði Kristján Jó-
hannsson lektor, sem er höfundur
skýrslunnar ásamt Sigurði Ólafssyni
hagfræðingi, að af þessu mætti
draga þá ályktun að það væri mikil-
vægara fyrir þessa hópa en aðra að
ná fram lægra vöruverði.
Krafa um róttaekar breytingar
Sighvatur sagði að niðurstaða
skýrslunnar sýndi að stuðningur við
landbúnað væri mjög mikill á ís-
landi. Nú þegar væri hafin vinna við
að lækka útgjöld til landbúnaðar á
fjárlögum en ekki mætti gera ráð
fyrir að opnað yrði fyrir innflutning
lanbúnaðarvara eða að styrkir yrðu
að fullu afnumdir á einni nóttu.
Breytingamar þyrftu að eiga sér stað
á lengri tíma. Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
sagði að styrkjapólitík við landbúnað
væri óvíða meiri en á íslandi og í
kjölfar skýrslunnar yrði gerð aukin
krafa um róttækar breytingar í ís-
lenskum landbúnaði.
I fllefnl
svmarfllJboðs:
Örfá eintök af
metsölufjaUahjólinu
JAZZ/THEK
* sórtilboAi
10 DAGA UTSALA A MJOG VINSÆLUM BANDA-
RÍSKUM FJALLAHJÓLUM í FLESTUM STÆRÐUM
fyrir börn, unglinga og fullorbna.
DÆMI: Frá SPECIALIZED: Model HARDROCK SPORT
á kr. 30.031,- stgr. (ábur kr. 42,900,-)
Frá GT-USA: Model Outpost á kr. 27.295,- stgr.
(áður kr. 37.950,-).
BANDARÍSK SPORTHJÓL frá kr. 21.250,- stgr.
(ábur kr. 32.691,-)
Einnig hefbbundin fótbremsuhjál meb öllu
I eða 3 gírar. DÆMI: Frá SPRICK
(V,- þýsk): 1 gíra kvenhjól á kr. 14.984,- stgr.
(ábur kr. 21,405,-) og 3ja gíra karl og kvenhjól
kr. 18.512,- stgr. (ábur kr. 26.446,-). Jafnframt
fáein úrvals barnahjól. DÆMI: Frá SPRICK: 16" LUXUS
telpnahjól á kr. 9.745,- (ábur kr. 13.922,-).
ALUR HJÓLAHJÁLMAR SELDIR MED
25% AFSLÆTTIMEÐAN Á ÚTSÖLUNNISTENDURI
TREK GOTUFJALLAHJÓL
18 og 21 aira,
domu- og herrastell
mjúkt gel-sæti
-- SMELLIGÍRAR MEÐ
handfangsskiptingu
KRÓMÓLÝ
leitmáimssiell
MEÐ ÆVILANGRI
ÁBYRÐG
24" hjól (frá 8/9 ára)
26" hjól (frá lOára)
á 19.863,-stgr.
(ábur kr. 27.888,-)
~
28"frá£r2X488.
(áður kr. 33.555,-)
ÚTSAi-A
mEÐ ALLTA&
SUMARTILBOÐIÐ
STENDUR AÐEINS
í 10 DAGA
VERSLUN SIMI 679890 - VERKSTÆÐI SIMI 679891
RAÐGREIÐSLUR
A FAEINUM HJOLUM SEM ENN ERU EFTIR AF 1992 ARGERÐINNI
ALVEG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST KJORGRIP A TOMBOLUVERÐI
R OPIÐ SIIEIfllMMI V V /
y^y L— LAUGARDAGA jncirvnivi f f * r