Morgunblaðið - 05.08.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
5
Morgunblaðið/Jón Páll
Siglt seglum þöndum
ÞESSI glæsilega seglskúta hefur legið í gömlu höfninni í Reykjavík.
Skútan, sem er skólaskip frá Manchester í Englandi, hefur vakið at-
hygli þar sem hún hefur siglt þöndum fagurrauðum seglum á Faxaflóa,
um Hvalíjörð og víðar.
Gunnar Guðmundsson lögfræðingur Sophiu Hansen
Hlítum ekki lögum Halims
„HANN trúir því að ríki Halims sé ofar réttarríkinu Tyrklandi og vill
þar af leiðandi ekki sætta sig við niðurstöðu dómarans," segir Gunnar
Guðmundsson, lögfræðingur Sophiu Hansen, um samningaumleitanir
Halims Als, fyrrum eiginmanns hennar. Lögfræðingar Halims hafa
boðið Sophiu að vera með dætrum sínum 2-3 sinnum í viku á heimili
Halims og undir hans eftirliti og stjórn. Því hefur alfarið verið hafnað.
Gunnar sagði að Hasíp Kaplan,
lögfræðingur Sophiu í Tyrklandi,
hefði tekið ákvörðun um að sitja fund
með lögfræðingum Halims þar eð
gefíð hefði verið í skyn að umgengnis-
rétti Sophiu yrði hlítt. Sú hefði hins
vegar ekki verið raunin og hefði til-
boði Halims þar af leiðandi verið
hafnað. „Við viljum hlíta lögum og
reglum Tyrklands en ekki lögum
Halims,“ sagði Gunnar í þessu sam-
bandi.“
Halim mun gefast upp
Hann sagðist búast við því að reynt
yrði til þrautar á úrskurð dómara
vegna umgengnisréttar á föstudag.
Myndu stjómvöld þá í samstarfi við
löggæsluaðila fylgjast með því að
rétti Sophiu yrði framfylgt.
Þegar Gunnar var spurður að því
hvort hann væri bjartsýnn á að Sop-
hia gæti hitt dætur sínar á föstudag
kvaðst hann vera það. „Ég hef alltaf
verið bjartsýnn og er bjartsýnn fyrir
föstudaginn líka því að hringurinn
er alltaf að þrengjast. Viðbrögð hans
benda til þess að verið sé að þrengja
að honum úr öllum áttum og það
endar með því að hann gefst upp.
Með hvaða hætti og hvemig, það
kemur í ljós,“ sagði hann.
ÚTSALAN
HÓFST í DAG FIMMTUDAG
^vens^ B°rnoskór Herraskór
100,
sœti
FARKLÚBBUR VISA
UPPLÝSINGA- OG ÞJÓNUSTUMIDSTÖD
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík
Sími: 91-671700, fax: 91-673462
16. - 23. september
Sko&unarferð um borgina glaðværu
við Signu. Litið við ó listasöfnum.
Tískusýning, gönguferðir um París,
vínsmökkun, farið ó útimarkaði,
tónleikaferðir, sigling ó Signu og
fróbær veitingahús heimsótt. Hagstæð
afslóttartilboð í DISNEY WORLD.
Dvalið ó hinu fróbæra
íbúðahóteli HOME PLAZZA.
Verð aðeins 47.900 kr.
P 10 mánaða raðgreiðslur!
InnifaliS: MorgunverSur, flugvallaskattar,
skoSunarferS, flutningur til og frá flugvelli
og íslensk fararstjórn.
E.s. Ekki gleyma öllu hinu: Signubökkum,
Eiffelturninum og heimsins bestu verslunum,
listamönnum götunnar, kaffihúsunum og heillandi
mannlífinu, ásamt næturlífinu og rómantíkinni.
Sala farmiða:
Söluskrifstofa Hótel Esju, sími: 690100 - fax: 686905
Upplýsingar og bókun í síma: 690300
(svaraS alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 - 18)
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi