Morgunblaðið - 05.08.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
7
V erðlag japanskra
bíla hefur hækkað
• •
mmna en gengi jens
INNFLUTTIR bílar frá Japan hafa ekki hækkað hér á landi sem
nemur hækkun jensins á síðasta ári, en eins og greint var frá í
Morgunblaðinu fyrir skömmu hefur jenið hækkað um 57% á einu
ári. Að sögn eins innflytjenda japanskra bíla er ástæða þessa að
jenum hefur verið skipt m.a. í þýsk mörk og því hafi verið hægt
að komast fyrir þetta mikla hækkun á japönskum bílum.
Hrafnkell Gunnarsson, fjármála- Emil segir að Toyota í Japan sé
stjóri Heklu, sem m.a. flytur inn mjög vel sett og ætti að þola að taka
Mitsubishi bíla, segir að þeir hafí
breytt jeni yfír í aðrar myntir, sem
ekki hafi hækkað jafn mikið, með
svokölluðum framvirkum samning-
um. Þá hafí umboðið skert álagningu
sína til að halda viðskiptum. „Við
höfum tryggt þetta fyrirfram núna
en næst þegar við kaupum inn bíla
koma þeir mjög líklega til með að
hækka eitthvað. Svo er þetta einnig
spurning um hvort framleiðendurnir
muni lækka verðið hjá sér vegna
þessarar gífurlegu hækkunar á jen-
inu.“
Samið um fast verð
Emil Grímsson, markaðsstjóri P.
Samúelssonar, Toyota-umboðsins,
segir að fyrr á árinu hafí þeir samið
um fast verð í þýskum mörkum og
þvi hafi hækkun verið minni en ella.
„Við höfum þurft að taka þetta á
okkur og framleiðandinn hefur þurft
að taka á sig vegna þessarar
hækkunar. Við höfum fengið mjög
lítið út úr þeim bílum, sem við höfð-
um keypt með jenum. Hins vegar
höfum við eðlilega álagningu á þeim
bílum, sem við keyptum með þýskum
mörkum.“
Fomleifar við Flatey
Stærsta safn
leirmuna
hérlendis
SÉRFRÆÐINGAR Þjóðminja-
safns Islands hafa nú staðfest að
30 kg af leirmunum, sem fundust
í flaki á sjávarbotninum við Flatey
í Breiðafirði eru frá 17. öld.
Bjarni F. Einarsson fornleifafræð-
ingur segir að þetta safn sé hið
stærsta sinnar tegundar á íslandi
og muni verða notað sem grunn-
heimild hér á landi um 17. aldar
leirmuni. Það þýðir að leirmunir af
svipuðu tagi, sem kunna að finnast
í framtíðinni, verða bornir saman
við þetta safn.
Bjarni segir að þessi niðurstaða
renni enn styrkari stoðum undir þá
kenningu að skipið sé í raun hol-
lenska kaupfarið, sem Ballarár-
annáll hermi að hafi sokkið við Flat-
ey árið 1659. Hins vegar líti nú út
fyrir að fallbyssan, sem fannst í fjö-
ruborðinu rétt hjá flakinu, sé of stór
og of mikið vopn til að hafa verið
um borð í venjulegu kaupfari. Þess
vegna er erfitt eins og staðan er í
dag að fullyrða hvaðan fallbyssan
er upprunnin að sögn Bjarna.
þessa hækkun jensins á sig í tölu-
verðan tíma til að vera samkeppnis-
hæfír við evrópska bíla. Hins vegar
séu margir japanskir framleiðendur
í verulegum vanda vegna þessarar
gífurlegu hækkunar jensins.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Umhverfishugsun
fortíðar
BÍLHRÆ þetta varð á vegi ljós-
myndara Morgunblaðsins suður af
Höskuldarvöllum á Reykjanesi, þar
sem því hafði verið hvolft og kveikt
í. Þama framhjá liggja vinsælar
gönguleiðir, og lítil prýði er af
gróðri sem þessum undir suðurhlíð-
um Trölladyngju. Hilmar Malm-
quist, eftiriitsmaður Náttúrufræði-
stofnunar á Suðvesturlandi, segir
mikið hafa dregið úr því að ónýtir
bílar og fleira rusl sé skilið eftir á
víðavangi. Þegar ábendingar berist
um þvílíkt séu þær sendar náttúru-
vemdarráði viðkomandi staðar eða
viðkomandi sveitarfélagi, og reynt
að hafa uppi á eiganda ruslsins eða
það fjarlægt.
Ók næstum í
sjóinn með
fjórar stúlkur
ÖLVAÐUR og réttindalaus öku-
maður var nær búinn að missa
bifreið sína út í sjó i Hafnarfirði
er hann ók á ofsahraða niður
Reykjavíkurveg í áttina að Fjarð-
argötu aðfaranótt sunnudags.
Fjórar stúlkur voru farþegar í
bílnum.
Ökumaðurinn missti vald á bif-
reiðinni með þeim afleiðingum að
Iitlu mátti muna að hún lenti í sjón-
um. Fyrir tilviljun lenti hún á sand-
bingi og nokkrum vörubrettum, sem
dró úr ferðinni. Ökumaðurinn komst
undan á hlaupum, en náðist síðar
um nóttina, að sögn lögreglunnar í
Hafnarfirði.
BESTO
SJONVARPS-
TÆKIN
FRÁ PHILIPS
Þau allra bestu frá PHILIPS eru nýju 100 riða
MATCHLINE tækin.
• Hljómgæði eins og þau eru best í hágæða
geislaspilara!
• Að sjálfsögðu er textavarp með íslenskum
stöfum!
• Línuflökt heyrir sögunni til. Skipting á
milli ramma í mynd er jafnari!
• Mattur, svartur myndlampi sem gefur
30% meiri skerpu á mynd!
• Þið fylgist betur með: Tvær stöðvar á
skjánum í einu!
Komið og sjáið með eigin augum.
Gerið samanburð og veljið það besta!
MATCHKHUNE
m,
PHILIPS
þegar skerpan skiptir málil
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 • SÍMI: 69 15 15 • KRINGLUNNI • SÍMI: 69 15 20