Morgunblaðið - 05.08.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
15
Fjöldi á Flúðum
Syðra-Langholti.
TALIÐ er að um 1.500 manns, flest
fjölskyldufólk, hafi verið á Flúðum
um helgina. Meginhlutinn gisti á
tjaldsvæðinu sem rekið er af Ferð-
amiðstöðinni. Hótelið var fullbók-
að og allmikil sala á veitingum,
að sögn Sólveigar Hallgrímsdóttur
hótelstjóra.
Er mál manna að aldrei hafí verið
fleiri gestir á Flúðum um verslunar-
mannahelgi. Allt fór fram með ró og
spekt og engin slys urðu á fólki.
Undi fólk sér hið besta í blíðviðrinu
en á sunnudag komst hiti í 20 gráður.
Á Álfaskeiði sem er vinsælt tjald-
svæði sunnan í Langholtssvæði, voru
3-400 manns. Þar í skóginum gengu
í hjónaband Helen Steinarsdóttir og
Þorgeir S. Þorgeirsson, bæði úr
Reykjavík. Gaf sóknarpresturinn í
Hruna, séra Halldór Reynisson, þau
saman að viðstöddum fjölmörgum
vinum og ættingjum, ásamt öðrum
tjaldgestum. Sig. Sigm.
Morgunblaðið/Helga
Á Þingeyri
SÓKNARPRESTURINN á Þingeyri sr. Ólafur Jens Sigurðsson, eigin-
kona hans frú Ólöf H. Halldórsdóttir, biskupshjónin hr. Ólafur Skúla-
son og frú Ebba Sigurðardóttir og sr. Baldur Vilhelmsson prófastur.
Biskup á Vestfjörðum
Þingeyri.
BISKUP íslands herra Ólafur Skúlason hóf fyrir helgi 10 daga vísi-
tasíu sína um Vestfirði. Með honum í för eru eiginkona hans frú
Ebba Sigurðardóttir og prófastur ísafjarðarprófastsdæmis, séra
Baldur Vilhelmsson í Vatnsfirði.
Vísitasían hófst með guðsþjón-
ustu í kapellunni á Hrafnseyri og
síðan var gamla kirkjan þar tekin
út. Þá var haldið yfír á Þingeyri
þar sem messað var klukkan tvö
og að því búnu hélt biskup að
Hrauni í Keldudal þar sem skoðuð
var gömul kirkja sem hefur verið
aflögð af því að söfnuður er þar
enginn lengur.
Um kvöldið sátu biskup og fylgd-
arlið hans svo veislu sóknamefndar
á Þingeyri.
Aðspurður kvaðst herra Ólafur
mjög ánægður með þennan fyrsta
dag og sagði hann lofa góðu. Hann
sagðist allsstaðar verða var við
velvilja gagnvart kirkjunni, fólk
hefði greinilega miklar væntingar
til hennar og að hún nyti mikils
trausts.
Meiri samvinna presta
Varðandi stöðu kirkjunnar í
þeirri miklu urnræðu sem nú í gangi
um sameiningu sveitarfélaga sagð-
ist hann ekki hafa nokkra trú á
því að kirkjan myndi hafa forgöngu
um fækkun eða sameiningu presta-
kalla, en hann sæi með bættum
samgöngum miklu fremur fyrir sér
mun meiri möguleika á samvinnu
presta á svæðinu.
—Helga.
Fjármálaráðuneyti hafnar ásökunum
um smásmygli í skattaeftirlitinu
Niðurstöður rétt-
læta eftirlitsátak
Flat Uno Arctic
-fyrir norðlœgar slóðir
Fiat Uno býðst nú á frábæru veröi.
Aðein8 kr.
Uno.
arcbc
748.000
á götuna - ryðvarinn og skráður.
Ath. Gerið verðsamanburð við aðra bíla!
UNO 45 3D
er sérbúinn fyrir norðlægar slóðir:
Styrkt rafkerfi - Stærri rafall - Sterkari
rafgeymir - Öflugri startari - Bein innspýting
- Betri gangsetning - Hlífðarpanna undir vél
- Öflugri miðstöð - Aukin hljóðeinangrun -
Ný og betri 5 gíra skipting.
Komið og reynsluakið
Frábær greiðslukjör
Úrborgun kr. 187.000 eða gamii bíllinn uppí.
Mánaðargreiðsla kr. 20.094 í 36 mánuði
með vöxtum og kostnaði auk verðtryggingar.
ITALSKIR BILAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)677620
FJÁRMALARÁÐUNEYTIÐ tekur undir hluta athugasemda Verslun-
arráðs Islands um framkvæmd eftirlitsátaks Ríkisskattstjóra með skatt-
framtölum fyrirtækja vegna síðasta árs. Ráðuneytið hafnar þó ásökun-
um um smásmygli og bendir á að niðurstöður eftirlitsátaksins sýni að
eðlilegt hafi verið að ráðast í það. Fram kemur að fjármálaráðuneytið
ætlar að beita sér fyrir því að settar verði samræmdar vinnureglur
um hvað megi telja til kostnaðar við rekstur.
Verslunarráðið sendi íjármála-
ráðuneytinu tvö bréf þar sem kvartað
var undan skatteftirliti, einkum sér-
stöku eftirlitsátaki, í vetur og vor.
Verslunarráðið sakaði skattayfirvöld
um að beina eftirlitsátaki sínu ein-
göngu að fyrirtækjum sem greiða
skatta en sinni ekki svokallaðri
svartri atvinnustarfsemi. í þessu
sambandi bendir ráðuneytið á að
þetta tiltekna átak, sem byggðist á
endurskoðun framtala og könnun
gagna sem að baki þeim liggja og
nái því ekki til svartrar atvinnustarf-
semi, sé aðeins eitt af eftirlitsverk-
efnum skattkerfísins. Á sama tíma
hafí verið lögð vaxandi áhersla á
aðra þætti, eins og að ljóstra upp
um óskráða starfsemi, og væri með-
al annars unnið að því á vegum skatt-
rannsóknastjóra. Ráðuneytið segir
að niðurstöður eftirlitsátaksins sýni
að fullkomlega réttlætanlegt hafí
verið að leggja út i verkefnið.
Fasteignir færðar sem
einkaneysla
Ráðuneytið tekur fram að val fyr-
irtækjanna í úrtakinu kunni að orka
tvímælis. Það sé hins vegar rangt
að eftirlitið hafí takmarkast við fyrir-
tæki með hagnað. í tilefni athuga-
semda Verslunarráðsins um miklar
kröfur um ljósritun fylgiskjala hjá
fyrirtækjunum sem lentu í úrtakinu
bendir ráðuneytið á að nauðsynlegt
sé að kanna samræmi færslna og
fylgiskjala í bókhaldi. Ráðuneytið
vekur athygli á því að skattyfirvöld
hafí viðurkennt að hafa farið offari
í einstökum tilvikum í upphafí átaks-
ins og hafí síðan stillt í hóf kröfum
um ljósritun fylgiskjala.
Skattur 400 aðila hækkaði um
388 miljj.
Ráðuneytið hafnar því að eftirlit-
ið hafí einkennst af óþarfa smá-
smygli og segir að staðreyndir úr
niðurstöðum átaksins tali nokkuð
skýru máli í því efni. Ástæða þótti
til að breyta tekjuskattsstofni hjá
nærri 400 aðilum og var hækkunin
á honum um 388 milljónir kr., sem
er nálægt 30% hækkun á samanlögð-
um tekjuskattsstofni sömu aðila.
Verslunarráðið nefndi sérstaklega
athugasemdir við gjaldfærslu á jóla-
glöggi og sælgæti sem starfsfólki
hefði verið gefíð. Ráðuneytið bendir
á að innan við 10% leiðréttinganna
hafí stafað af risnu og gjöfum. Önn-
ur og stærri dæmi um einkaneyslu
sem gjaldfærð hefði verið á rekstur
tækju til verðmeiri hluta svo sem
bifreiða og jafnvel fasteigna.
Viðræður um
kostnaðarhugtakið
í bréfi fjármálaráðuneytisins kem-
ur fram sú skoðun að reynslan af
átakinu bendi til þess að óæskilegt
ósamræmi sé í því hvemig skattalög
eru túlkuð að því er varðar hvað
telja má til kostnaðar við rekstur.
Segist ráðuneytið ætla að beita sér
fyrir því að samræmdar vinnureglur
verði settar í þessu efni og segist
reiðubúið að taka upg viðræður um
það við Verslunarráð íslands og lög-
gilta endurskoðendur.
/
Omissandi
upplýsingabanki
VÁKORTALISTÍ
Dags.5.8.1993. NR. 135
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
5414 8300 2760 9204
5414 8300 1028 3108
5414 8300 0310 5102
5414 8300 1130 4218
5414 8300 1326 6118
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3052 9100
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
semtakaberúrumferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.