Morgunblaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
Atvinnulaus-
um fækkar lítið
ATVINNULAUSUM hefur lítið fækkað á Akureyri í júlímánuði.
Tæplega tuttugu færri eru á atvinnuleysisskrá í júlílok en í lok
júní, en konum hefur fækkað nokkru meira en körlum. Meirihluti
atvinnulausra er á aldrinum 20 til 30 ára.
Samkvæmt upplýsingum
Vinnumiðlunarskrifstofunnar á
Akureyri voru 378 manns atvinnu-
lausir í lok júlímánaðar, 171 karl
og 207 konur. Við upphaf júlí voru
atvinnulausir alls 396, eða 18
fleiri. Þá voru atvinnulausir karlar
175 og konur 221. Þannig hefur
konum á atvinnuleysisskrá fækk-
að um 14 á meðan körlum fækk-
aði þar ekki nema um 4.
Ef nánar er litið á atvinnuleysis-
skrána á Akureyri kemur í ljós
að nú um mánaðamótin voru at-
vinnulausir 62 verkamenn, 83
verkakonur, 21 verslunarmaður,
47 verslunarkonur, 47 iðnverka-
menn, 51 iðnverkakona og 12
ræstingakonur.
Við lok júlímánaðar á síðasta
ári voru atvinnulausir á Akureyri
alls 250, 113 karlar og 137 kon-
ur, svo munurinn milli ára er afar
mikill.
Margt ungt fólk atvinnulaust
Samkvæmt upplýsingum
Vinnumiðlunarskrifstofunnar er
áberandi atvinnuleysi hjá ungu
fólki, einkum á aldrinum 20-25
ára. Til dæmis má nefna að í hópi
þeirra sem fæddir eru á árabilinu
1968-1972 eru nú 28 karlar at-
vinnulausir og 25 konur. Ekki mun
þar um að ræða skólafólk að veru-
legu leyti heldur verkafólk, versl-
unar- og iðnverkafólk.
Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson
Hitaveita Dalvíkur í stál
HÉR ER verið að leggja nýja stálaðveituæð Hitaveitu Dalvíkur sem
kemur í stað eldri asbestæðar.
Stál í stað asbests hjá
Hitaveitu Dalvíkur
Dalvtk.
HJÁ Hitaveitu Dalvíkur stendur nú yfir endurnýjun á aðveituæð.
Er hér um að ræða um það bil fjögurra kílómetra langa lögn frá
virkjunarsvæði veitunnar á Hamri að mörkum dreifikerfisins. Þetta
er síðasti hluti endurnýjunar á lagnakerfinu en á undanförnum sumr-
um hefur verið unnið við að endurnýja dreifikerfið í bænum, en það
var í upphafi lagt með asbeströrum.
Hitaveita Dalvíkur var stofnsett
árið 1969 og í upphafi var allt
dreifikerfi hennar lagt einangruð-
um asbeströrum. Er í ljós kom að
asbest gæti haft heilsuspillandi
áhrif og því ekki æskilegt til notk-
unar í vatnskerfum var ákveðið að
hefla endurnýjun á dreifikerfínu og
skipta yfír í stálrör. Að þessu hefur
verið unnið á undanfömum árum,
þrep fyrir þrep, en síðasti hluti þess
verks er endurnýjun aðveituæðar-
innar.
Framkvæmd við aðveituæðina
hófst í raun á síðasta ári er efni
til verksins var keypt, en rörin em
fengin frá Seti sf. á Selfossi. Heild-
arkostnaður við framkvæmdina er
áætlaður um 19 milljónir króna en
ráðgert er að ljúka verkinu nú í
haust.
Lyfíafræðingar
Óskum eftir að komast í samband við
lyfjafræðing vegna reksturs lyfjaverslunar í
verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð á Akureyri.
Upplýsingar gefur Alfreð Almarsson
í símum 96-21844 og 96-24236.
RekstramöUanefnd
SunnuhUðar
Hús flutt til hálendis
Morgunblaðið/Golli
í GÆR var risaþyrla bandaríska hersins við húsaflutninga á hálendinu. Á þessari mynd er verið að festa í
þyrluna hús Ferðafélags Akureyrar sem smíðað var á Akureyri en flutt í síðasta mánuði á bíl í Svartárkot.
Þaðan flutti þyrlan húsið i tveimur hlutum í Dyngjufjalladal. Að því loknu flutti þyrlan hús vélsleðamanna
frá Akureyri upp á Nýjabæjarfjall.
Á aiinad þúsund skáta
dansaði í Kjamaskógi
EKKI voru óspektir eða læti á Landsmóti skáta í Kjarnaskógi. Á
útidansleik í skóginum á laugardagskvöld var mikið fjör og þurfti
ekki nema skátaanda til að halda því uppi. Akureyrarbæ var á sunnu-
dag afhent sólúrið mikla í skóginum til varðveislu þar um ókomna
daga.
Ásgeir Hreiðarsson upplýsinga-
fulltrúi Landsmótsins sagði að í þeim
fjölda ótíðinda sem lægju eftir versl-
unarmannahelgina væri ánægjulegt
að segja frá lokadögum Landsmóts
skáta í Kjarnaskógi. Á laugardag
hefðu skátamir verið í tívolíi með
alls kyns þrautum, sem þeir hefðu
sjálfír útbúið. Að því loknu hefði
verið skátaball þar sem hljómsveitin
Karakter spilaði fyrir dansi. Þar
sagði Ásgeir að hefði verið geysileg-
ur fjöldi og mikil skemmtun. Um
það bil 900 manns hefðu verið á
ballinu allan tímann en fjöldi til við-
bótar komið og farið. Dansinum lauk
um miðnætti og allt var komið í ró
klukkan eitt, nema ómur hefði bor-
ist neðan úr bæ og upp í skóg.
Á sunnudag, sem var besti veður-
dagur mótsins, kom fjöldi gesta til
að taka þátt í dagskrá mótsins og
í vatnaveröldinni voru tekin í notkun
Gjörningakvöld
í Deiglunni
Á DAGSKRÁ Listasumars á Ak-
ureyri í kvöld er svokallað Qjörn-
ingakvöld, en þá verða fluttir í
listamiðstöðinni Deiglunni við
Kaupangsstræti fjórir gjörning-
ar.
Á Gjörningakvöldinu, sem hefst
klukkan 20.30 mun Hlynur Hallsson
flytja textaverk sem hann nefnir
Þrjú samtöl. Þá mun Valborg
Salome Ingólfsdóttir flytja nafnlaus-
an gjöming.
Hlynur og Valborg tóku bæði
þátt í sýningunni 16 dagar í Nýlista-
safninu í Reykjavík í júlí. Gjörninga-
kvöld þeirra mun standa yfír í tæpa
klukkustund.
mörg tæki sem lokað var vegna veð-
urs fyrr í vikunni.
Sólúrið gefið Akureyringum
Um 200 gestir komu í opinbera
móttöku á sunnudag og þar afhentu
skátar Akureyrarbæ til eignar sólúr-
ið stóra sem er eitt tákn mótsins.
Um kvöldið voru mótsslit að loknum
hátíðarvareðldi og endahnúturinn
var geysilega viðamikil og fögur
flugeldasýning, að sögn Ásgeirs veg-
legasta sýning sem skátar á Akur-
eyri hafa staðið að.
Ásgeir sagði að skógurinn hefði
auðvitað troðist dálítið við þann
flölda sem á mótinu var, alls á þriðja
þúsund í heila viku. Hins vegar liti
hann vel út og hey hefði verið stráð
í göngustíga sem vildu spillast í rign-
ingunni. Til marks um umgengnina
sagði hann að farið hefði verið í
hreinsiferð um mótssvæðið eftir að
skátar höfðu tekið saman pjönkur
sínar og eftirtekjan hefði verið botn-
fylli í mslapoka.
Ekkí réttlátt að mála
skrattann á vegginn
— segír framkvæmdastjóri Halló Akureyri
FRAMKVÆMDASTJÓRA fjölskylduhátíðarinnar Halló Akureyri
þykir gagnrýni á hátíðina óþarflega einhliða og óvægin. Hann telur
að samstarf allra hagsmunaaðila við undirbúning og framkvæmd
hátíðarinnar hefði þurft að vera meira. Þá hefðu aðilar sem tóku
að sér ákveðna dagskrárliði horfið frá þvi á síðustu stundu. En
með meira samstarfi og lengri og ítarlegri undirbúningi megi gera
Halló Akureyri að hátíð sem öllum líkar.
Ómar Pétursson framkvæmda-
stjóri Halló Akureyri sagði að
mönnum hætti um of til að horfa
eingöngu á svörtu blettina og
gleymdu um leið því jákvæða. Hins
vegar væru ölvun, skemmdir og
ónæði vissulega áhyggjuefni.
Aðbúnaður þarf að vera betri
Ómar sagði um tjaldstæðamál
hátíðarinnar að leitað hefði verið
eftir við íþróttafélögin KA og Þór
að hafa tjaldbúðir á íþróttasvæðum
félaganna. Viku fyrir hátíðina hefði
hins vegar verið ljóst að vegna rign-
inga treystu félögin sér því ekki
til að hafa tjaldbúðir þar, af ótta
við að íþróttavellimir skemmdust.
Því hefði ekki verið um fleiri kosti
að ræða en tjaldstæðið við Þórunn-
arstræti og það hefði verið ljóst
viku fyrirfram.
Ómar sagðist vilja skrifa á reikn-
ing bæjaryfirvalda að hluta til þann
vanda sem stafaði af salemisleysi
í miðbæ Akureyrar og sóðalegri
umgengni þar. í fyrsta lagi væri
ekki við öðru að búast þegar aðeins
örfáir ruslakassar væm í miðbæn-
um en að rusli væri hent á götur,
og það þyrfti ekki að einblína á
Halló Akureyri í því sambandi.
Miðbærinn væri iðulega eins og
mslahaugur eftir venjulega helgi.
Bæjarsalemin undir kirkjutröppun-
um hefðu verið lokuð á föstudags-
kvöld en þau fengist opnuð á laug-
ardag og verið opin upp frá því.
Samkomutjaldið, sem gagnrýnt
hefur verið að haft var við mestu
umferðargatnamótin í miðbænum,
sagði Ómar að hefði verið haft þar
með leyfi lögreglu.
Dagskrárliðir féllu niður
Nokkuð var kvartað undan því
að ýmsir liðir á dagskrá hátíðarinn-
ar féllu niður, meðal annars sjó-
sport og bílabíó. Ómar sagði það
dæmi um atriði sem hefðu verið
ákveðin og um samið við utanað-
komandi aðila að sjá um.