Morgunblaðið - 05.08.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
21
Morihiro Hosokawa formlega kjörinn forsætisráðherra Japans í dag
Enn flótti úr þingliði LDP
til nýiu ríkisstiómarinnar
Tókýó. Reuter.
NÆSTI forsætisráðherra Japans, Morihiro
Hosokawa, verður formlega kjörinn af þinginu
nú síðdegis. Búist er við að hann nefni ráð-
herra sína fljótlega að því loknu. Meirihluta-
samstarfi flokkanna átta, sem munu standa að
næstu stjórn, bættist liðsauki í gær, þegar 10
félagar í fráfarandi stjórnarflokki, Fijálslynda
lýðræðisflokknum (LDP), sögðu skilið við hann
og gengu til liðs við hina nýju meirihlutastjórn.
Fráfarandi landbúnaðarráðherra, Masami
Tanabu, sagði um sig og níu aðra LDP-félaga:
„Við höfum ekki mannskap til þess að stofna nýj-
an flokk, en við munum styðja nýju stjómina sem
óháðir þingmenn." Tadae Takubo, stjórnmálafræð-
ingur við Kyorin-háskóla, segir að fari nýja stjóm-
in vel af stað og gangi vel í skoðanakönnunum,
megi búast við enn frekari klofningi í LDP; jafn-
vel kunni svo að fara að flokknum reynist ókleift
að vinna aftur meirihluta.
Kosning nýs forsætisráðherra fer væntanlega
fram klukkan 18.00 í dag að íslenskum tíma, og
búist er við að Hosokawa fái 265 atkvæði af 511.
Talið er víst að formenn hinna flokkanna í meiri-
hlutasamstarfínu fái allir ráðherrastöður. Formað-
ur Endumýjunarflokksins og fyrrum LDP-félagi,
Tsutomu Hata, verður væntanlega aðstoðarforsæt-
isráðherra og fjármálaráðherra. Takako Doi, fyrr-
verandi formaður Sósíalistaflokksins, hefur geng-
ist inn á að taka við embætti forseta neðri deildar
þingsins. Hún verður fyrsta konan til þess að gegna
því embætti í 104 ára sögu japanska þingsins.
Fráfarandi ráðuneyti Kiichis Miyazawas lét það
verða eitt af sínum síðustu verkum að biðja í gær
formlega afsökunar þá tugi þúsunda kvenna sem
vom neyddar til þess að gerast kynlífsþjónar í
heimsstyijöldinni síðari. Yfirvöld hafa ætíð neitað
því, en viðurkenndu í gær, að asískar og evrópsk-
ar konur hefðu verið neyddar til að vera japönsk-
um hermönnum „til þæginda" á stríðsámnum.
Ekki ílífshættu
ÍTALSKI kvikmyndaleikstjórinn
Frederico Fellini fékk heilablóðfall
í fyrradag og er af þeim sökum
lamaður að hluta, en að sögn lækna
er hann í góðu skapi og ekki í lífs-
hættu. Fellini er 73 ára gamall.
Greiðslukortafyrirtæki tapar dómsmáli í Frankfurt
Þóknun fyrir notkun
korts erlendis óheimil
UNDIRRÉTTUR í Frankfurt í Þýskalandi hefur fallist á kröfur manns
sem fór í mál við greiðslukortafyrirtæki vegna þóknunar sem fyrirtæk-
ið tók er maðurinn notaði kortið sitt erlendis, að sögn þýska dagblaðs-
ins Frankfurter Allgemeine Zeitung. Taldi dómstóllinn að gjaldtaka
þessi væri óheimil vegna þess að ekki kom fram ótvíræður áskilnaður
um hana í samningi þeim sem viðskiptavinurinn og kortafyrirtækið
gerðu í upphafi.
Nær öll greiðslukortafyrirtæki
Þýskalands, þ. á m. Visa, Eurocard,
Diners-Club og American Express,
taka 1% þóknun af viðskiptavinum
sínum fyrir notkun korts erlendis.
Lögmaður í Frankfurt fór í mál við
Eurocard og er talið að niðurstaðan
sem var honum í vil gildi jafnt fyrir
viðskipti allra þessara fyrirtækja. Er
það mat neytendasamtaka í Nordr-
hein-Westfalen að fyrirtækin megi
búast við háum endurkröfum frá við-
skiptavinum.
Það hefur tiðkast hjá greiðslu-
kortafyrirtækjum í Þýskalandi að
leggja 1% á hverja erlenda færslu
án þess þó að gjaldtaka þessi komi
sérstaklega fram á reikningi þeim
sem viðskiptavinurinn fær sendan
heim. Taldi dómstóllinn að það væri
einn meginþáttur samnings milli við-
skiptavinar og kortafyrirtækis að hið
síðamefnda gerði kaup út á kort
möguleg innanlands sem utan og
sendi svo viðskiptavininum reikning.
Óheimilt væri að reikna sér sérstaka
þóknun vegna úttekta erlendis fyrst
áskilnaður þar um kæmi ekki klár-
lega fram í upphaflegum samningi
greiðslukortafyrirtækis og viðskipta-
vinar. Almenn ábending í smáa letr-
inu dygði þar ekki til. Með þessari
gjaldtöku hallaði óhæfilega á við-
skiptavininn.
Búist er við áfrýjun af hálfu
Eurocard í máli þessu.
HANS Chnstian Abilgaard ríkis-
lögmaður Danmerkur hefur sagt
af sér, þar sem hann á yfir höfði
sér dóm fyrir ölvun við akstur.
Hann var tekinn með rúmlega
þijú prómill í blóðinu í vetur.
Þegar málið kom inn á borð
dómsmálaráðherra var lögmaður-
inn leystur frá störfum. Hann hefur
Samkvæmt upplýsingum frá
Eurocard og Visa hérlendis er nú
tekin 0,5% gjaldeyrisþóknun af notk-
un greiðslukorta í viðskiptum erlend-
is. Var þetta gjald hærra áður. Leif-
ur Steinn Elísson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Visa, segir að þóknun
þessi renni til hins opinbera. Taki
korthafi út peninga erlendis þá greið-
ir hann 2,5% þóknun til Eurocard
en 3,5% þóknun til Visa. Leifur seg-
ir að hluti þóknunarinnar renni til
þess banka erlendis sem lætur féð
af hendi en Visa taki einnig sinn
hluta fyrir þá þjónustu við fólk að
það geti tekið út peninga erlendis
og endurgreitt þá síðar.
Lögmaðurinn þykir afar hæfur lög-
fræðingur og hefur átt skjótan
frama. Um árabil hafa samstarfs-
menn hans vitað af mikilli drykkju
hans. Þó drykkjuskapur hans hafí
komist á síður danskra blaða hefur
hann komist upp með hann óáreitt-
ur, þ'ar til hann var stöðvaður í
vetur.
Afsögn vegna dryklgu
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davídsdóttur, fréttaritara Morgunblaösins.
nú sjálfur valið að segja af sér.
BILL Clinton ræðir við fréttamenn að loknu sjónvarpsávarpi sínu í
fyrrakvöld. Hann sýnir súlurit með yfirskriftinni: Réttlæti gagnvart
vinnandi fjölskyldum endurvakið.
fram árið 1990 en þá sveik hann
loforð sitt um að standa ekki fyrir
frekari skattahækkunum. Lýsa menn
eftir þeirri algjöru umbyltingu, „upp-
hafínu nýja“, í samfélagi Bandaríkja-
manna sem Clinton boðaði er hann
bar sigurorð af Bush í fyrrá.
Þingið og Clinton urðu sammála
um, að hæsta skattstig yrði hækkað
úr 31% í 36% af tekjum yfir 8,2
milljónir ísl. kr. hjá einstaklingum,
10 milljónir hjá hjónum, og í 39,6%
af tekjum yfir 18 milljónir kr. Clinton
vildi hækka skatt á fyrirtækjum úr
34% í 36% en þingið sagði 35% en
sátt varð um að gera 85% trygginga-
bóta skattskyld þegar ákveðnum
mörkum væri náð. Clinton vildi miða
við 1,8 millj. og 2,5 en þingið sagði
2,3 og 2,9 millj.
Skuggi Reagans
Erfíðleikar Clintons með fjárlaga-
frumvarpið hafa vakið upp spurning-
ar um stjórnunarhæfíleika hans og
getu en sumir fréttaskýrendur segja,
að honum sé nokkur vorkunn. Hann
og raunar aðrir stjórnmálamenn í
Bandaríkjunum séu fangar þeirra
viðhorfa, sem Ronald Reagan hafi
vakið upp í sinni stjórnartíð en hann
hélt því fram, að ríkið væri sjálft
vandamálið. Hann hamraði á þeim
mistökum, sem fyrri stjórnum hafði
orðið á og kom því inn hjá öllum,
að opinber afskipti væru slæm, skatt-
ar væru slæmir, opinber útgjöld af
hinu illa. Stjórnmálamenn vestra fara
því á taugum strax og rætt er um
skattahækkanir.
Hátt stefnt
Clinton hefur reynt að vega upp
á móti þessu með því að leggja
áherslu á „réttláta skiptingu" en
gengið það heldur illa. Fréttaskýr-
endur segja þó, að þetta verkefni,
að skera niður fjárlagahallann, sé
það merkilegasta og metnaðarfyllsta,
sem ráðist hafí verið í í langan tíma.
„Hann stefnir hærra en nokkur for-
seti hefur gert um áratugaskeið,“
segir Ernest F. Hollings, öldunga-
deildarþingmaður demókrata í Suð-
ur-Karólínu, en hann hefur þótt mjög
gagnrýninn á forsetann.
HeimM\r:Reuter,International
Herald Tribune.
KALDAR STAÐREYNDIR!
kæli- og frystiskáparnir gefa
þér mikið fyrir peningana!
Búnir hagkvæmum og vönduðum innréttingum, sem
gefa mikla nýtingarmöguleika.
Við bjóðum 15 gerðir kæli- og frystiskápa frá
Blomberg. Einn þeirra hentar þér örugglega.
Frystiskápur
FS 300
300 lítrar brúttó.
5 frystiskúlfur og
2 hillur með
kuldahlff.
Frystigeta: 20 kg á
sólarhring. Meira
en 20 klst. afþýð-
ing á vörum við
straumrof. Orku-
notkun á sólar-
hring: 1.54 kWh.
llfanáliggjandi
stjórnborð með
hlffðarloki.
Mál: H1580xB600xD595 mm.
Verð kr. 63.900,- eða kr. 60.700,-
stgr.
Kæliskápur
KS 223
189 Iftrar brúttó
Alsjálfvirk
afhríming. 4 hillur,
2 grænmetisskúffur.
Innbyggt Ijós.
3 stjörnu frystihólf
21 lítra nettó.
Orkunotkun á
sólarhring
1.0 kWh.
Mál: H1205xB543xD580 mm. .
Verð kr. 49.900,- eða kr. 47.400,- stgr.
Kæliskápur
KS140
143 lítrar brúttó.
Alsjálfvirk
afhrfming. 3 hillur,
2 grænmetisskúffur.
Innbyggt Ijós.
Orkunotkun
á sólarhring
0.65 kWh.
Mál: H850xB503xD580mm.
Verð kr. 41.900,- eða kt. 39.800,- stgr.
Frystiskápur
FS 200
200 lítrar brúttó. ---------------
3 frystiskúffur.
2 hillur meö.........
kuldahlíf. --------------
Frystigeta: 13 kg.
á sólarhring. ~
Meiraen 19 tíma
afþýðing á vörum -----------------
við straumrof.
Utanáliggjandi stjórnborð með hlífðarloki.
Mál: H1170xB600xD595 mm.
Verð kr. 52.900,- eða kr. 50.250,- stgr. I
Frystiskápur j
FS 250
250 Iftrar brúttó.
4 frystiskúffur.
2 hillur með
kuldahlif.
Frystigeta: 13 kg.
á sólarhring.
Meiraen 19 tíma
afþýðing á vörum
viö straumrof.
Utanáliggjandi
stjórnborð með hlífðarloki.
Mál: H1340xB600xD595mm.
|
Verð kr. 59.900,- eða kr. 56.900,- stgr.
Frystikista
FT225
230 lítrar nettó.
j 1 karfa.
■' Frystigeta 15 kg. ____________________
á sólarhring. ir*:
Kuldamælir og ísskafa fylgja.
Orkunotkun á sólarhring 1.05 kWh.
j Mál: H835xB830xD630
Verð kr. 43.900,- eða kr. 41.700,- stgr.
Frystikista
FT 335.330 lítrar nettó
Verð kr. 50.900,- eða kr. 48.350,- stgr.
Einar
Farestveit & Cohf
Borgartúni 28 622901 og 622900