Morgunblaðið - 05.08.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
29
Hún sá ætíð björtu hliðamar á
málunum, gerði sér ekki rellu út
af smámunum og var hrókur alls
fagnaðar. í fasi hennar bjó stolt,
sem ekki fór fram hjá neinum, en
hún var einlæg í viðkynningu og
hjálpsöm.
Saga Guðnýjar er svo samofin
sögu Brunabótafélags íslands, að
saga félagsins verður ekki með
sannindum rakin án þess að geta
Guðnýjar, og má raunar telja hana
með frumkvöðlum félagsins. Guðný
helgaði Brunabótafélaginu alla
starfskrafta sína, sem aflögu voru
frá heimilisstörfum í hartnær 67
ár. Guðný hóf störf hjá félaginu 15.
september 1920, þá eldhress stúlka
á átjánda aldursári. Hún var ráðin
af fyrsta forstjóra félagsins, Sveini
Bjömssyni, þáverandi lögmanni og
alþingismanni, en þannig skipuðust
mál, að Sveinn var kvaddur til
sendiherrastarfa í Kaupmannahöfn
um sumarið og Guðmundur Ólafs-
son tók við sem forstjóri 1. ágúst
1920. Hún hefur því síðan unnið
með öllum sjö forstjómm félagsins
sem síðar komu, og er þá sá meðtal-
inn, sem hér stýrir penna.
Guðný vann með fjölmennum
hópi starfsfólks Bmnabótafélagsins
allan starfstíma sinn. Hún var alltaf
á svæðinu meðan aðrir komu og
fóm. Skapaði hún þannig styrka
samfellu, ekki einasta í starfi fé-
lagsins frá einu ári til annars, held-
ur ekki síður í vinnubrögðum og
starfsanda meðal starfsfólksins.
Guðný gekk til flestra starfa í félag-
inu og sakir þekkingar hennar á
öllum starfsháttum var hún mjög
ráðagóð og vegna reynslu hennar
kom henni fátt á óvart. Á vinnustað
var Guðný leiðbeinandi, mjög úr-
ræðagóð og hvetjandi. Þótt segja
megi, að Guðný hafi ekki verið allra,
eignaðist hún góða vini úr röðum
starfsfólksins, og var oft gaman að
heyra þá rifja upp liðin atvik, sem
sýndu vel, hvemig Guðný brást við
hinum ólíklegustu uppákomum.
Þegar Guðný varð áttræð í apríl
1983 héldum við henni samsæti og
þar fjölmenntu vinnufélagarnir. Ég
man, að ég hafði þá við orð, að
starfstími hennar hjá félaginu þá
þegar væri eflaust algert einsdæmi
og minntist á heimsmetabók Guinn-
ess í því sambandi. Það væru áreið-
anlega ekki margar konur í heimin-
um, sem hefðu unnið hjá sama
vinnuveitanda í 63 ár samfleytt.
En eftir það vann Guðný hjá félag-
inu í fjögur ár í viðbót, eða til 1987
að hún hætti að fullu og öllu.
Á þessari hinstu kveðjustund
leyfi ég mér að flytja Guðnýju þakk-
ir Brunabótafélags íslands fyrir
mjög farsæl störf, unnin af alúð og
samviskusemi í þágu félagsins.
Ekki síður flyt ég við þetta tæki-
færi kveðjur og þakklæti samverka-
manna Guðnýjar fyrir ánægjulega
og gefandi samveru gegnum tíðina.
Eg þekkti lítillega Guðnýju per-
sónulega áður en ég kom að Bruna-
bótafélaginu árið 1981, þá einkum
frá fyrri tíð, á árunum eftir síðustu
heimsstyijöld. Hún lét þá þjóðfrels-
ismál talsvert til sín taka og hafði
enda einarðar skoðanir á þeim mál-
um. Þegar ég réðst til Brunabótafé-
lagsins bauð hún mig velkominn
og óskaði mér alls hins besta. Vin-
skapur okkar stóð á traustum
grunni og persónulega flyt ég henni
alúðarþakkir fyrir samfylgd okkar.
Guðný var gift sæmdarmannin-
um Gils Guðmundssyni, rithöfundi
og fyrrverandi alþingismanni, og
lifir hann konu sína. Sár harmur
er nú kveðinn að Gils og fjölskyldu
þeirra við fráfall Guðnýjar, og flyt
ég þeim innilegustu samúðarkveðj-
ur frá Brunabótafélaginu, stjóm og
starfsfólki þess fyrr og síðar, svo
og frá okkur Rögnu, konu minni.
Ingi R. Helgason.
Ég var drengur vestur á Snæ-
fellsnesi þegar ég las í ísafold eða
öðru blaði, að ung stúlka í Reykja-
vík hefði unnið það afrek fyrst
kvenna að synda úr Engey til
Reykjavíkur. Unga stúlkan var
Guðný Jóhannesdóttir Lynge og
þetta sundafrek var einkennandi
fyrir allt líf hennar, því að hún var
að ýmsu leyti á undan sinni samtíð,
áræðin og dugleg.
Allt frá æskudögum stundaði
Guðný sundíþróttina af miklum
áhuga og nú síðustu árin og fram
til hinsta dags, þá orðin níræð, fór
hún næstum á hveijum morgni í
sund í sundlaug Seltjarnarness með
manni sínum, Gils Guðmundssyni.
Þótt sundið ætti stóran þátt í lífi
Guðnýjar átti hún fjölmörg áhuga-
mál önnur. Hún hafði yndi af að
kynnast fólki og hafði á unga aldri
eignast góðan kunningjahóp
þekktra listamanna og rifjaði oft
upp kynni sín við þá. Hún fylgdist
vel með þjóðmálum og þekkti betur
af eigin reynslu sögu lands og þjóð-
ar á 19. öld en flestir núlifandi ís-
lendingar.
Ung að árum byijaði hún að ferð-
ast til útlanda sem var fátítt í þá
daga og hélt því áfram alla ævi. í
vor fór hún í síðasta sinn ánægju-
lega ferð til útlanda, var viðstödd
skím dótturdóttur sinnar í Dan-
mörku og stúdentsútskrift sonar-
dóttur sinnar { Svíþjóð.
Guðný var víðlesin og fróð. Hún
var vel heima í alþjóðamálum og
hafði ánægju af að ræða þau. Hafði
hún þar sem í öðru sínar fastmót-
uðu skoðanir. í eðli sínu sameinaði
hún íslendinginn og heimsborgar-
ann.
Sú hefð hafði komist á fyrir
nokkrum ámm, að einu sinni í viku
lá leið þeirra Guðnýjar og Gils heim
úr sínu daglega sundi fram hjá
heimili okkar hjóna og varð Guðný
eftir hjá okkur fram að hádegi.
Henni fylgdi alltaf hressandi og
glaðvær andblær, minnið var ótrú-
lega gott og skýrt, enda kunni
Guðný flestum betur að segja frá.
Hún var lifandi og eftirminnileg-
ur persónuleiki. Við hjónin minn-
umst hennar með þakklæti og sökn-
uði.
Að endingu vottum við Ragnheið-
ur eiginmanni hennar, Gils Guð-
mundssyni, og börnunum, Úlfí og
Ernu, og barnabörnunum innilega
samúð okkar.
Blessuð sé minning Guðnýjar
Jóhannesdóttur Lynge.
Þórarinn Þórarinsson.
\r N N 1 i AUGL ÝSINGAR
Starfsfólk óskast Nýr og glæsilegur bílalúgustaður við Sæ- braut óskar eftir hressu og traustu starfs- fólki í heilsdags- og hlutastörf. Áhugasamir mæti til viðtals milli kl. 17 og 20 föstudaginn 6. ágúst á Sæbraut 20. AKTU - TAKTU Pizza 67 Pizza 67 vantar starfsfólk á nýjan stað í Hafnarfirði. Okkur vantar strax pizzubakara, starfsfólk í sal í þjónustustörf og bílstjóra við útkeyrslu. Upplýsingar eru veittar á Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði, milli kl. 18 og 21 í kvöld. FRAMHALDSSKÓLINN Á HÚSAVÍK Hjúkrunarfræðingur! Framhaldsskólann á Húsavík vantar kennara til að kenna sérgreinar á sjúkraliðabraut. Um er að ræða námsáfangana: Hjúkrun 205 (10 stundir á viku). Heilbrigðisfræði 102 (4 stundir á viku). IMæringarfræði 103 (6 stundir á viku). Fullt starf (26 stundir á viku) getur verið í boði, en einnig kemur til greina stunda- kennsla í einhverjum þessara áfanga. Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 96-41344. Skólameistari.
Vélskóflustjóri - kranamaður Okkur vantar vanan mann á vélskóflu og kranamann í afleysingastörf. Björgun hf., Sævarhöfða 33, sími 681833. Frá Kvennaskólanum í Reykjavík Með tilvísun til laga nr. 48 frá 1986 er aug- lýst hálft starf tölvufræðikennara. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 1993. Skólameistari.
RADA UGL ÝSINGAR
KENNSLA ÝMISLEGT TIL SÖLU
Kirkja og börn íborg Dagana 16.-20. ágúst verður haldið nám- skeið fyrir börn á vegum Dómkirkjunnar, sem kallast Kirkja og börn í borg. Námskeiðið stendurfrá kl. 13-17 dag hvern og er dagskrá hin fjölbreyttasta. Umsjón hafa prestarriir sr. Jakob Hjálmars- son og sr. María Ágústsdóttir. Innritað verður í safnaðarheimilinu mánudag 9. til miðvikudags 11. ágúst kl. 10-12 í síma 622755. Þátttökugjald er kr. 1500 og innifel- ur nesti alla daga og ferðina í Viðey. Dómkirkjan. Selfoss Áskrifendur athugið að umboðsmaður hefur fengið nýtt símanúmer sem er 23375. Afgreiðslan er opin frá kl. 7 alla útburðardaga. j Heildverslun Af sérstökum ástæðum er til sölu góð heild- verslun með matvörur og ýmsar aðrar vörur. Starfsmenn 2-3. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl. fyrir þriðjudaginn 10. ágúst, merkt: „T - 14888“.
StHMtauglýsingar
Vélritunarnámskeið
Ný námskeið byrja 9. ágúst.
Innritun í s. 36112 og 28040.
Vólritunarskólinn, Ánanaustum.
§Hjáipræðis-
hermn
Kirkiuatraetí 2
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Sveinn Sigurvin Ander-
sen talar. Kaffi og meðlæti.
Veriö velkomin.
UTIVIST
Hallvoicjarstíg 1 • sirni 614330
Kvöldganga 5. ágúst
kl. 20.00: Blákollur og Eldborg
nyröri. Gangan hefst viö þjóð-
veginn. Gengið er upp austur-
hrygg fjallsins allt í 532 m hæð.
Þá liggur leiðin niöur i Ólafs-
skarö og upp á Eldborg nyrðri.
Fararstjóri: Heiðrún B. Jóhann-
esdóttir. Verö kr. 800/900.
DagsferA sunnud. 8. ágúst
kl. 8.00: 8. áfangi fjallasyrpu
Útivistar. Hlöðufell 1188 m.
Brottför i ferðirnarfrá BS(, bens-
ínsölu. Miðar við rútur. Frítt fyrir
börn 15 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum.
Helgarferðir 6.-8. ágúst
Fjölskylduhelgi í Básum
Takið börnin með i Bása. Farið
verður í leiki og gönguferðir.
Pylsugrill og heitt kakó.
Gist i skála eða tjaldi.
Fimmvörðuháls
Fullbókað.
Nánari upplýsingar og miða-
sala á skrifstofu Útivistar.
Ársrit Útivistar 1993 er komið út.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Helgarferðir 6.-8. ágúst:
1) Síðsumarsferð til Þórsmerkur
- fjölskyidutilboð. Verð kr. 5.300
(utanfél.), kr. 4.750 (félagar).
2) Hveravellir - Þjófadalir,
grasaferð. Gist i sæluhúsi F.i. á
Hveravöllum.
3) Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi F.(. í Laugum.
4) Fjallahjólaferð: Línuvegur-
inn - Hlöðuvellir. Gist á Hlöðu-
völlum.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Mörkinni 6.
Ferðafélag islands.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnirl
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
( kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma i Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Mikill og fjölbreyttur söngur.
Ræðumaður Óli Ágústsson.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.