Morgunblaðið - 05.08.1993, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
LIST
Sigríður Asgeirsdóttir á al-
þjóðlegri glerlistasýningu
Morgunblaðið/RAX
Sigríður Ásgeirsdóttir við eitt verka sinna frá því hún sýndi í List-
munahúsinu við Tryggvagötu í fyrra.
og skjöldur í laginu og á sú hug-
mynd skylt við lögun verka þeirra
málara, sem hafa fengið sig
fullsadda á ferhyrningnum. Verkið
allt er svart og á Sigríður það einn-
ig sammerkt með málurum sam-
tímans að notast við einn lit. Skjöld-
urinn er sprunginn eins og ísjaki
og sums staðar má greina rákir í
sortanum."
Flestir sýnenda frá
Bandaríkjunum
Sýningin ber heitið „Glerið sem
strigi: óhefðbundið steint og slétt
gler.“ Flestir listamannanna eru
bandarískir, en þó einnig listamenn
frá Belgíu, Englandi, Kanada, Wal-
es og Þýskalandi.
Sýningin er haldin á vegum the
Society of Arts and Crafts á New-
bury Street, sem er ein af fjölfam-
ari götum borgarinnar. Þetta félag
hefur á stefnuskrá sinni að kynna
glerlist okkar tíma í Bandaríkjun-
um. „Sýning af þessu tagi hefur
aldrei verið haldin hér áður,“ sagði
Barbara Baker, starfsmaður félags-
ins, í samtali við Morgunblaðið.
„Hugmyndin er að sýna fram á
hversu framúrskarandi og fjöl-
breytilegir þeir listamenn eru, sem
nota málað gler í listsköpun sinni.“
Baker kvað 55 listamenn hafa
tekið þátt í samkeppninni, sem
haldin var um það hvaða verk
skyldu tekin til sýningar. Dæmt var
eftir gæðum verks, valdi listamanns
á málningartækni og tjáningar-
máta. Á endanum var 22 listamönn-
um boðið að senda verk á sýning-
una sem var opnuð 17. júli og stend-
ur til 23. ágúst.
Meat Loaf hefur lést um tugi kílóa og er nú kominn með nýja
plötu á markað.
TÓNLISTARMENN
Meat Loaf aftur
kominn á kreik
Mönnum stóð hálfgerð ógn af
söngvaranum Meat Loaf
þegar hann var upp á sitt besta,
enda var hann þá 130 kíló að þyngd
og söngurinn var í samræmi við
útlitið. Nú hefur hann gefíð út
nýja plötu ásamt félaga sínum Jim
Steinman sem fengið hefur nafnið
„Bat Out Of Hell II", en hún hefur
einnig verið nefnd „Back To Hell“.
Hann hefur líka grennst töluvert
og er nú sagður réttu megin við
100 kílóin. Þetta getur hann þakk-
að eiginkonu sinni, Lesley, því að
sögn kunnugra var það hún sem
átti frumkvæðið að megrunarkúr
Meat Loafs. í stað þess að borða
egg og beikon á morgnana borðaði
hann einungis ferska ávexti og í
stað stóru kjöthleifanna og frönsku
kartaflnanna fékk hann fisk og
fuglakjöt. Nú velta menn því hins
vegar fyrir sér hvort röddin hafi
breyst í samræmi við holdafarið.
Fyrirsætan Marcus
Schenkenberg, 24 ára,
sem meðal annars er á
samning við Calvin Klein
og auglýsir nærföt, hefur
tekið saman við MTV-
stjörnuna Rebeccu de
Ruvo. Hún sagði skilið við
sambýlismann sinn, Derek,
vegna fíkniefnanotkunar
hans. Þau Marcus og
Rebecca eru bæði sænsk, en
hafa unnið erlendis að und-
anförnu. Rebecca hefur búið
í London, þar sem hún vinn-
ur við MTV-tónlistarsjón-
varpið en Marcus býr í New
York. Samband þeirra upp-
götvaðist vegna þess að þau
hafa eytt frítíma sínum saman í MTV-sljarnan Rebecca de Ruvo
Stokkhólmi í sumar. og fyrirsætan Marcus Schenk
enberg.
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara
Morgunblaðsins.
Sigríður Ásgeirsdóttir myndlist-
armaður sýnir um þessar
mundir fjögur verk á alþjóðlegri
samsýningu 22 glerlistamanna í
Boston og var tekið fram í helsta
dagblaði borgarinnar að eitt verka
hennar skæri sig úr öðrum verkum
á sýningunni.
Tilgangur sýningarinnar er að
sýna fjölbreytni í verkum lista-
manna, sem kjósa að nota gler í
stað striga. Sýningar af þessu tagi
eru fátíðar í Bandaríkjunum og vildi
listamaðurinn Linda Lichtman, sem
búsett er í Boston og skipulagði
sýninguna, gefa almenningi kost á
því að virða fyrir sér list, sem lista-
söfn hafa sniðgengið.
Verk Sigríðar sögð meðal
þeirra áhrifamestu
Verk Sigríðar eru mjög frábrugð-
in öðrum verkum á sýningunni og
sagði í grein, sem birtist í dagblað-
inu The Boston Globe á laugardag,
að þau væru ásamt öðrum afstrakt
verkum meðal þeirra áhrifamestu,
sem_ þar væru.
„íburðarminnsta og óvægnasta
verkið á sýningunni er „Skjöldur"
eftir íslenska listamanninn Sigríði
Ásgeirsdóttur," sagði í gagnrýni
The Boston Globe. „Glerið er eins
SAMVERA
Svíar kynn
ast ástínni
erlendis
STJÖRNUR
Söngvarinn Rod Stewart skellti
sér á frönsku Rivieruna í sum-
arfríinu, þar sem hann á sumarbú-
stað, nánar tiltekið í Saint Tropez.
Með í förinni voru eiginkona hans,
Rachel, og dóttirin Renee.
Á undanförnum árum hefur Rod
bætt á sig nokkrum kílóum, sem
sumir segja að hann hefði gott af
að losna við. En er eitthvað við því
að segja að „bíldekk" sé komið um
mittið þegar maðurinn er kominn á
sextugsaldur? Haft er þó fyrir satt
að Rod reyni að hreyfa sig sem
mest á ströndinni og noti meðal
annars fótbolta til að stytta sér
stundimar.
Það er samdóma álit flestra að
það hafi gert Rod gott eitt að kvæn-
ast Rachel, því um það leyti fór
hann að stunda heilbrigðara líferni
um leið og hann fór að eyða aukn-
um tíma heima. Eftir að litla dóttir-
in Renee kom til sögunnar hefur
rokkstjarnan blómstrað í pabba-
hlutverkinu.
Rod Stewart ásamt eiginkonunni Rachel og dóturinni Renee á frönsku Rivierunni.
Rod Stewart eyddi sumar-
leyfinu í Frakklandi