Morgunblaðið - 13.08.1993, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1993
mál að linni
Núer
eftir Jónas Fr.
Jónsson
Undanfarna daga hafa átt sér stað
afar háværar og harkalegar umræður
í fjölmiðlum, sem tengst hafa vali
þingfulltrúa á sambandsþing ungra
sjálfstæðismanna á Selfossi og í
Hveragerði nú um helgina. í upphafí
var hart deilt um val fulltrúa Heim-
dallar, en einnig hefur komið upp
verulegur ágreiningur varðandi full-
trúaval annarra félaga.
Mörg stór orð hafa fallið í þessum
umræðum. Gagnkvæmar ásakanir
hafa komið fram um að annarleg sjón-
armið hafí ráðið úrslitum um það,
hveijir kosnir voru ti! þingsetu af
„Þingfulltrúar verða því
að gæta þess, að þótt skoð-
anir þeirra kunni að vera
skiptar í ýmsum efnum,
þá verði umræður á þing-
inu málefnalegar, og
kosningabaráttan heiðar-
leg.“
hálfu einstakra félaga og hveijum
hafnað. Hér verður engu við þær
deilur bætt, enda kýs ég að taka
ekki þátt í þeirri umræðu á vettvangi
fjölmiðla. Mun eðlilegra er að fjalla
um slík atriði innan flokksins. Þar á
hún heima og ekki annars staðar.
Deilumar í blöðum og ljósvaka-
miðium hafa á ýmsan hátt verið til
skaða. Þannig hefur athyglin aðal-
lega beinst að karpi ungra sjálfstæð-
ismanna í stað þess að fjallað hafi
verið um mikilvægari mál, svo sem
hugmyndir frambjóðendanna um
áherslur í starfi SUS næstu árin og
leiðirnar, sem þeir vilja fara til að
ná markmiðum sínum. Einnig hefur
umræða um hugsjónir sjálfstæðis-
manna og stefnu SUS setið á hakan-
um. Það er miður, því að þegar allt
kemur til alls eru það mál af því
tagi, sem ráða eiga úrslitum á þing-
um ungra sjálfstæðismanna. Ekki er
Jónas Fr. Jónsson
síður sorglegt, að umræður manna
á meðal og í ákveðnum fjölmiðlum,
hafa faliið niður á stig lágkúru og
rógburðar. Slíkt er engum til sóma
og verður eingöngu til að skaða SUS
og Sjálfstæðisflokkinn.
Þing ungra sjálfstæðismanna
hefst síðdegis í dag. Hér er um að
ræða fjölmennasta þing í sögu hreyf-
ingarinnar og ljóst er, að kastljós
fjölmiðlanna mun beinast að því í
ríkum mæli. Þingfulltrúar verða því
að gæta þess, að þótt skoðanir þeirra
kunni að vera skiptar í ýmsum efn-
um, þá verði umræður á þinginu
málefnalegar, og kosningabaráttan
heiðarleg. Jafnframt verða ungir
sjálfstæðismenn að ganga sameinað-
ir til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og hugsjónir sjálfstæðismanna að
þinginu loknu.
Höfundur er lögfræðingur
Verslunarráðs Islands og
frambjóðandi til embættis
formanns SUS.
I KRINGLUNNI
í tilefni af sex ára afmæli Kringlunnar verður Tolli með sýningu á 14 nýjum
málverkum á göngugötum Kringlunnar. Þessi málverk málaði hann
sérstaklega til að sýna í Kringlunni og þar njóta þau sín vel, stór
og mikilfengleg í miklu rými. Viðskiptavinir Kringlunnar geta
nú skoðað listaverk Tolla um leið og þeir versla í fallegu
ff
umhverfi Kringlunnar. Sýningin opnar á afmæhs- J: •
daginn 13. ágúst og stendur til 31. ágúst.
AFMÆLI
13. ágúst fögnum við afmæli Kringlunnar.
Tónlistarfólk á vegum Japis og Skífunnar,
leikhópurinn Perlan og dansarar frá
Dansskóla Jóns Péturs og Köru skemmta
afmælisgestmn. Listamenn framtíðarinnar
fá að spreyta sig með Crayola litum í Litla
listahorninu sem er á fyrstu hæð í göngugötunni.
Sitthvað fleira verður gert á afmælisdaginn.
Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin í Kringluna.
KRINGMN
Frá og mcð 14. ágiisá vci'ður opið til kl. 16 á laugardögiiin